Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2009, Blaðsíða 8
8 þriðjudagur 14. júlí 2009 fréttir
„Öll Evrópa ætti að svara kalli Íslands.
Því sannleikurinn er sá að þótt kenna
megi stjórnendum bankanna um ófar-
irnar vegna óábyrgrar og áhættusæk-
innar hegðunar á fjármálamarkaði, og
íslenskir stjórnmálamenn og embætt-
ismen beri ábyrgð á því að leyfa þessa
hröðu og skuldsettu útþenslu, þá bera
þeir ekki einir ábyrgðina vegna þess
að skipbrot íslenska fjármálakerfisins
er jafnframt skipbrot eftirlitskerfis Evr-
ópusambandsins. Íslendingar bera
tæplega ábyrgð á því.“
Þannig kemst bankasérfræðingur-
inn Frida Fallan að orði í sjö blaðsíðna
samantekt sem hún sendi yfirmanni
sínum Lars Nyberg, aðstoðarseðla-
bankastjóra Svíþjóðar 1. desember
síðastliðinn.
Ísland er ekki eitt ábyrgt
Drög að samantekt Fallan, sem DV
hefur undir höndum, eru afar athygl-
isverð í ljósi þeirra deilna sem uppi
eru um Icesave-samninginn og ábyrgð
ríkisins á ofurskuldbindingum. Þá eru
komnar fram vísbendingar um að
skuldir þjóðarinnar séu nú þegar við
hættumörk. Þetta eykur óvissuna um
að samningurinn um ríkisábyrgð á
Icesave-skuldunum njóti meirihluta-
stuðnings á Alþingi. Ekki er búist við
að málið verði afgreitt úr nefndum
þingsins fyrr en meirihlutastuðning-
ur hefur verið tryggður. Einna helst er
litið til þess að styrkja endurskoðunar-
ákvæði með sérstakri bókun þingsins.
Frida Fallan gerir innistæður, trygg-
ingasjóði innistæðueigenda og ríkis-
ábyrgð á slíkum innistæðum að um-
talsefni. „Ísland hefur komið verr út úr
kreppunni en nokkurt annað Evrópu-
land, og er fyrir vikið þjakað af hrika-
legri skuldabyrði. Því ættu sérstaklega
gistiríki íslensku bankanna (Holland
og Bretland) og leiðtogar ESB, að við-
urkenna að vandamál Íslands er ekki
einungis tilkomið vegna óábyrgra lán-
veitinga og ófullnægjandi viðbragða
íslenskra stjórnvalda, heldur að miklu
leyti líka vegna úrelts eftirlitskerfis
ESB, sem stjórnmálaleiðtogar innan
ESB hafa kosið að horfa fram hjá.“
Ríkið á endanum ábyrgt
Fallan segir að þetta sé mikilvægt
sjónarmið. Óviðunandi sé að Ísland
beri eitt ábyrgðina á Icesave-reikning-
unum og það sé eðlilegt að gistiríkin
og aðildarlönd ESB komi til móts við
Ísland. Illugi Gunnarsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, vék orðum að
þessu og grein Fallan á þingfundi í lok
júní.
Frida Fallan fullyrðir að ESB-til-
skipunin segi ekki berum orðum að
ríkissjóður sé ábyrgur fyrir innistæð-
um heldur megi líta svo á að banka-
kerfið sjálft beri ábyrgðina. Hin um-
deilda tilskipun segir aðeins að ríkið
beri ábyrgð á að innistæðutrygginga-
kerfi sé fyrir hendi. „Í íslenska til-
vikinu (líkt og víða annars staðar) er
tryggingasjóður innistæðna rekinn
af bönkunum með litlu fjármagni en
skyldu þeirra til þess að leggja meira
fé í hann ef á þarf að halda.“
Fallan spyr hvað sé að þessu fyrir-
komulagi og bendir á að þetta sé eins-
konar tryggingarkerfi sem geti virk-
að verði einn banki gjaldþrota. „En
verði stór banki gjaldþrota er ekki trú-
verðugt að aðrir bankar standi und-
ir slíku gjaldþroti. Með þessum hætti
er það líkt og þegjandi samkomulag
að ríkið hlaupi undir bagga í stórum
bankagjaldþrotum. Vitanlega mundi
sá kostur líklega verða fyrir valinu,
að láta bankann ekki verða gjald-
þrota heldur beita öðrum ráðum. En
á endanum getur kostnaðurinn fallið
á skattgreiðendur og ríkið mun þjóna
hlutverkinu sem innistæðutryggjandi
til þrautavara.“
Handvömm stjórnmálamanna
Frida Fallan segir að einmitt þetta hafi
aldrei verið rætt opinskátt. Þvert á
móti hafi umræðan snúist um að ríkið
ætti ekki að fjármagna tryggingasjóði.
„Og það sem verra er að þetta gefur til
kynna að ábyrgð á því sem er í grund-
vallaratriðum neytendavernd í gesta-
landinu er flutt yfir á skattgreiðendur í
heimalandinu.“
Fallan spyr hvernig í ósköpunum
það hafi orðið að meginreglu innan
ESB að heimaland verði ábyrgt fyr-
ir erlendri starfsemi fyrirtækja sinna
í öðru landi. Hvernig má það vera að
þessu furðulega kerfi var komið á fót?“
Fallan segir að grunnregla ESB um
ábyrgð heimalands eigi rætur að rekja
til hugmyndarinnar um sameiginleg-
an markað; allir bankar innan ESB-
landa eigi að geta keppt við banka í
öðru aðildarlandi. Á sama tíma eigi
sparifjáreigendur að geta treyst því að
heimaland erlends banka veiti sömu
tryggingar og þeir fá í sínu eigin landi.
Þetta er skynsamlegt í markaðs-
legu tilliti en ef tilteknar greinar eru
mjög stórar geta þær risið heilum
þjóðríkjum yfir höfuð og stjórn- og
eftirlitskerfið hefur þróast með sama
hraða og til dæmis bankageirinn, seg-
ir Fallan. Hún er ekki einu sinni viss
um að íslenskir stjórnmálamenn hafi
í upphafi gert sér fulla grein fyrir því
út á hvað lagatextinn gekk. „Viðbrögð
þeirra í upphafi bankahrunsins benda
til þess að þeir hafi ekki gert það. Og
var hægt að ætlast til þess? Til þess að
skilja flækjur ESB-regluverksins þarf
maður að vera innvígður eða hafa
aðgang að fjölda sérfræðinga. Fjarri
meginlandinu er staða Íslands ekki
góð í þessu sambandi.“
En það þarf tvo í dansinn og aðr-
ir áttu að skilja hvað var í uppsigl-
ingu en brugðust. „Margir hvísluðu að
AllAr AlmennAr viðgerðir á
húsbílum og ferðAvögnum
DV0812169178_06b.jpg
DV0903123464.jpg
DV0905104358_015.jpg
Skuldir þjóðarinnar eru við hættumörk og það eykur óvissuna um það hvort Alþingi samþykki Icesave-
samninginn. Sænskur bankasérfræðingur, Frida Fallan, skrifaði um miðjan vetur að Íslendingar væru
fórnarlömb innistæðutryggingakerfis sem leiðtogar ESB hefðu kosið að líta fram hjá. Enginn hefði gripið í
taumana og slökkt á tónlistinni þegar sláttur Íslands á dansgólfinu hefði verið orðinn hættulega mikill.
JóHann Hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
óstöðvandi hrunadans
„Og það sem verra er að þetta gefur til kynna að
ábyrgð á því sem er í grundvallaratriðum neyt-
endavernd í gestalandinu er flutt yfir á skatt-
greiðendur í heimalandinu.“
Hrunadans? „Margir hvísluðu að
hraði Íslands á dansgólfinu væri
orðinn hættulega mikill. En stöðvaði
einhver dansinn? Slökkti einhver á
tónlistinni?“ spyr sænski bankasér-
fræðingurinn. Sigurjón Þ. Árnason,
fyrrverandi bankastjóri Landsbank-
ans, átti frumkvæðið að Icesave.