Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2009, Blaðsíða 19
sviðsljós 28. júlí 2009 þriðjudagur 19
Sesseljuhús umhverfissetur
Sólheimum
Fræðslusetur um umhverfismál
og sýningarhús um sjálfbærar byggingar.
Fjölbreyttar sýningar
fyrir alla fjölskylduna
Hrein orka – Betri heimur
Ókeypis er allt það sem er best
Lifandi leir – frá leirverkstæði Sólheima
Ljósmyndasýningar
Fræðsla og leiðsögn fyrir ýmsa hópa, skóla,
fyrirtæki og ferðamenn.
Opið alla daga í sumar frá 12-18
Allir velkomnir - Ókeypis aðgangur
www.sesseljuhus.is
Smáauglýsingasíminn er
515 5550
smaar@dv.is
TryllT
KaTie og
Carrie?
Katie Price Verður hugsanlega
í næstu Sex and the City-mynd.
Trúlofa sig
aftur
Dominic Monaghan og evangeline Lilly:
Lost-hjúin Dominic Monaghan og Evangeline Lilly hafa trúlofað sig
að nýju og ætla loksins að
ganga í það heilaga. Parið
sleit trúlofun sinni fyrir
tveimur árum og ákvað sem
sagt að hætta við að gifta sig.
Síðan þá hafa þau verið sundur
og saman en eru núna sögð harð-
ákveðin í því að slá þessu föstu.
Foreldrar Dominics, sem sló
í gegn í myndunum Lord Of The
Rings, hittu parið í Las Vegas fyrir
stuttu þar sem þau sögðu þeim
tíðindin. Það er langt síðan
að persóna Dominics lést í
þáttunum Lost en Evange-
line er enn þá í einu af
aðalhlutverkunum sem
Kate.
Ástfangin Loksins tilbúin
til þess að ganga í það heilaga.
Breska bomban Katie Price gæti hugsanlega fengið hlutverk í framhaldsmyndinni af Sex and the City. Flestar kon-
ur kannast við þættina og svo
kvikmyndina með þeim Carrie,
Samönthu, Charlottu og Mir-
öndu. „Ég fór nýlega til L.A. í
leiklistartíma fyrir Sex and
the City, Part 2,“ segir glam-
úrmódelið.
„Þeir vilja stórbrjósta
enska glamúrgellu í myndina
og ég fékk áheyrnarprufu,“
bætir hún við en svo gæti far-
ið að fyrirsætan fái hlutverk-
ið. Jordan kynnir þessa dag-
ana skáldsögu sem hún gaf
nýverið út auk þess sem hún
á í skilnaðardeilum við fyrr-
verandi eiginmann sinn Peter
André.
Katie Price í prufur fyrir Sex and the City 2: