Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2009, Blaðsíða 15
Hver er maðurinn? „Ólafur Björn
Loftsson, nemi í Bandaríkjunum.“
Hvað drífur þig áfram? „Fjölskyld-
an og vinirnir.“
Hvar ertu uppalinn? „Í vesturbæ
Reykjavíkur.“
Hvað vekur helst áhuga þinn
fyrir utan golf? „Ég myndi segja
íþróttir yfirhöfuð. Hef mikinn áhuga
á þeim.“
Uppáhaldsstaður utan Íslands?
„Það eru margir sem koma til greina.
Ætli það sé ekki Ástralía.“
Hefur þú áður náð fimm fuglum í
röð? „Já, ég hef náð því áður, en ekki
á svona þýðingarmiklu andartaki.“
Eru síðustu holurnar á Grafar-
holtsvelli með þeim erfiðari á
landinu eins og talað er um? „Já,
þær eru mjög erfiðar þótt ég hafi
látið það líta öðruvísi út á sunnudag-
inn.“
Hverjar voru væntingar þínar
eftir fyrri hluta lokahringsins?
„Bara að halda áfram að gera mitt
besta og reyna að ná Stebba. Þetta er
ekki búið fyrr en það er búið.“
Hvað finnst þér um að hafa
sigrað á nánast sama hátt og
faðir þinn tæpum 40 árum áður?
„Mér finnst hálf-lygileg hvað þetta
raðast skemmtilega saman. Gerir
þetta ennþá sætara fyrir vikið.“
Hvernig var tilfinningin að færa
titilinn aftur heim í Nesklúbb-
inn? „Hún er rafmögnuð. Það var
rosaleg stemming hjá okkur
Nesmönnum í gær. Ég er mjög
stoltur af því að koma öðrum titli
heim eftir langa bið.“
Hvert stefnir þú í golfinu? „Ég
stefni á atvinnumennsku. Evrópsku
eða bandarísku mótaröðina.“
Viltu að Valhöll á ÞingVöllum Verði endurreist?
„Já. Hún tilheyrir staðnum einhvern
veginn.“
GUðmUNdUr SiGUrviNSSoN
61 ÁRS dEiLdaRStJÓRi
„Já. Það er nostalgía sem tengist
húsinu. Ég vil alla vega ekki fá
monthöll sem bara alþingismenn hafa
aðgang að eins og Össur Skarphéðins-
son vill.“
Bjarki ÞórariNSSoN
45 ÁRa LÆkNiR
„Já. Það er rosalegur sjónarsviptir að
húsinu. Það mætti byggja eitthvað í
svipuðum stíl.“
maj-Britt kolBrúN
HafStEiNSdóttir
65 ÁRa HEiMaviNNaNdi
„að sjálfsögðu. Það er menningarauki
að þessu. Svo finnst mér það líka
sjálfsagt út af þjónustu á svæðinu.“
HafStEiNN GUðBjörNSSoN
65 ÁRa BLikkSMiðuR Á EFtiRLauNuM
Dómstóll götunnar
ólafUr BjörN loftSSoN
varð Íslandsmeistari í höggleik á
sunnudag þegar hann sigraði á
nánast sama hátt og faðir hans gerði
tæpum 40 árum áður. Hann leggur
stund á nám í Bandaríkjunum og
stefnir á að verða atvinnumaður.
Hálf-lygilegt
„Ég vil ekkert tjá mig um það.“
aNNa júlÍUSdóttir
50 ÁRa StuðNiNGSFuLLtRúi
Einkavæðingin sem átti að sjá um
sig sjálf og aldrei lenda á borðum
almennings brotlenti einmitt þar.
Áður en belgurinn lenti var hirt úr
honum allt nýtilegt og skuldbind-
ingar mestu glannanna unnvörp-
um felldar niður. Fjögur hundruð
milljónir milljóna í mínus var það
sem eftir stóð. Vilji stjórnvalda til
að axla þessa byrði og færa yfir á
þegnana hefur verið réttlættur með
samfélagi þjóðanna, önnur leið
inniberi bannfæringu og útskúfun.
Þessi afstaða ríkisstjórnarinnar fel-
ur í sér þau skilaboð að gull eins sé
sviti annars, með öðrum orðum að
sé glæpur nógu stór geti gerandinn
gert ráð fyrir að allir vitleysingarn-
ir sem létu fíflast eigi skilið áratuga
þegnskylduvinnu.
Einkavæðingin sem átti að sjá
um sig sjálf og aldrei lenda á borð-
um almennings útheimtir nú allt í
einu ríkisábyrgð. Hvers vegna tóku
nýju bankarnir á sig allar þess-
ar ábyrgðir? Var það vegna þrýst-
ings áhrifamanna í viðskiptalífinu
eða var hag stjórnmálamannanna
sjálfra best borgið með þessari út-
færslu? Voru hagsmunirnir kannski
samtvinnaðir? Kreppuríkisstjórnin
hamraði sýknt og heilagt á skuld-
lausum ríkissjóði og skuldir þjóð-
arinnar væru mestmegnis einka-
neysla. Að Icesave slepptu standa
samt þrjú hundruð milljónir millj-
óna eftir, hvernig má skýra það hjá
skuldlausri þjóð? Eflaust hafa þær
yfirlýsingar verið í takt við leik-
myndir útrásarvíkinganna, blekk-
ing.
Einkavæðingin sem átti að sjá
um sig sjálf og aldrei lenda á borð-
um almennings hefur afhjúpað
innanmein þjóðar sem lengi hefur
búið við stjórnarfar þröngra hags-
munaklíka, pólitískt, í ríkisrekstri
og á einkamarkaði. Þó enn sé mikið
grugg má þó sjá jákvæð teikn. Fólk-
ið sem stýrði og tók þátt í hruna-
dansinum týnir nú óðum tölunni
eða missir vigt, í orði sem æði.
Hugmyndin um einkavæðingu
sem á að sjá um sig sjálf og aldrei
lenda á borðum almennings er
samt enn góð og gild. Þessi fyrsta
tilraun Íslendinga mistókst vegna
vanmats stjórnmálaflokka á krafti
einstaklinganna en ofmats á sið-
ferðisþreki sömu aðila. Stjórn-
málamenn gerðu sig seka um oftrú
og of mikla nánd við viðskiptalífið.
En þó þessi vanræksla hafi reynst
dýrkeypt bíður atvinnulífið eftir
næsta nafnakalli. Sprotar nýrrar út-
rásar munu spretta úr þeirri gömlu
og leggja til nýjan efnivið. Von-
andi læra stjórnmálamenn fram-
tíðarinnar af mistökum fyrirrenn-
ara sinna ekki síst þeir sem tilheyra
báðum hópunum.
Sjálfbær einkavæðing
kjallari
mYnDin
1 idolþátttakandi látinn
Hin 25 ára alexis Cohen vakti óskipta
athygli sjónvarpsáhorfenda þegar hún tók
þátt í american idol tvö ár í röð, 2007 og
2008. Hún lést á laugardagsmorgun
vestan hafs eftir að keyrt var á hana.
2 kynlífshneyksli í stórverslun
Forsvarsmenn H&M verslanakeðjunnar
rannsaka nú hvað sé hæft í þeim
ásökunum að starfsfólk einnar af
verslunum keðjunnar stundi kynlíf af
miklum krafti í versluninni.
3 kona afhöfðaði barn sitt
33 ára kona frá texas skar höfuð af þriggja
vikna gömlu barni sínu og stakk síðan
sjálfa sig í maga og brjóstkassa.
4 Stóri skjálftinn á að koma í
kvöld
Lára Ólafsdóttir sjáandi spáði stórum
skjálfta á Suðurlandi, í gærkvöldi.
5 kaffidrykkir mjög óhollir
dæmi eru um að kaldir kaffidrykkir
innihaldi jafn margar hitaeiningar og heit
máltíð. Einkum á þetta við sykraða drykki
með mjólk og/eða rjóma.
6 jordan kynnir nýja bók - myndir
Glamúrskvísan Jordan, eða katie Price, var
djörf í klæðaburði eins og henni einni er
lagið þegar hún kynnti nýja skáldsögu
sína á dögunum.
7 ali larter sýnir bossann
- myndir
Leikkonan ali Larter úr þáttunum Heroes
varð fyrir því óláni þegar hún beygði sig
niður að óæðri endinn blasti við
nærstöddum.
mest lesið á dv.is
umræða 28. júlí 2009 Þriðjudagur 15
olÍUBoriN Gata Olía lak úr geymslu sinni og gerði Hálsagötu í Reykjavík hættulega umferð síðdegis í gær. Lögregla og
slökkvilið komu á vettvang til að stöðva umferð og hreinsa upp olíuna. mYNd róBErt
lÝðUr ÁrNaSoN
heilbrigðisstarfsmaður
skrifar
„Fólkið sem stýrði
og tók þátt í hruna
dansinum týnir nú
óðum tölunni eða
missir vigt...“
maður Dagsins