Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2009, Side 23
helgarblað 21. ágúst 2009 föstudagur 23
„Það er af sem áður var þegar fólk
kepptist um að vinna hér,“ seg-
ir Björn Ólafsson, eigandi lífsstíls-
búðarinnar Brim, eða Bubbi eins
og hann er kallaður. Bubbi hefur
undanfarnar vikur leitað að starfs-
fólki en ekkert gengið. „Ég vil meina
að við séum bara komin í danska
kerfið. Nú þykir mörgum sjálfsagt
að vera á atvinnuleysisbótum. Því
miður,“ segir hann.
Brim sérhæfir sig í sölu á bretta-
og strætisfatnaði auk snjóbretta og
hjólabretta. Verslunin hefur leit-
að eftir fólki í gegn um vefsíðuna
Monitor sem er vel sótt af mark-
hópi Brim, auk þess sem verslun-
in er með auglýsingu á Atvinnu-
leit.is.
„Ég hef aldrei lent í öðru eins.
Hér hefur alltaf verið fullt af fólki
að sækja um jafnvel þó við höfum
ekkert auglýst. Nú á hins vegar að
vera þetta mikla atvinnuleysi og ég
finn ekki fyrir neinum áhuga,“ seg-
ir Bubbi. Honum finnst sorglegt
ef upp er að vaxa kynslóð sem kýs
frekar að vera á bótum en að taka
vinnu sem býðst.
Verslanir Brim eru á tveim-
ur stöðum, á Laugavegi og í
Kringlunni. Í sumar hefur starf-
að þar nokkuð af skólafólki sem
heldur nú aftur í skólann og kvíð-
ir Bubbi vetrinum ef ekki fæst inn
nýtt starfsfólk. „Ég veit ekki alveg
hvernig ég á þá að halda þessum
búðum opnum,“ segir hann.
Atvinnuleysi hefur verið gríðar-
legt á árinu og eru yfir 16 þúsund
manns skráðir atvinnulausir á land-
inu. Meðalatvinnuleysi í júlímánuði
var átta prósent en þegar aðeins er
litið til höfuðborgarsvæðisins var
það sýnu meira, eða 9,3 prósent.
Þrátt fyrir þetta næst ekki að
manna auglýstar stöður og hef-
ur meðal annars verið greint frá
því að enn vantar starfsfólk á frí-
stundaheimili í Reykjavík.
erla@dv.is
ATVINNULAUSIR VILJA EKKI VINNA
Bubbi í Brim hefur áhyggjur af vetrinum:
Bri fær ekki starfsfólk
Áhyggjufullur Bubba í Brim
finnst sorglegt ef hér er að vaxa
upp kynslóð sem sér ekkert
athugavert við að vera á bótum
frekar en að taka vinnu sem býðst.
Bensínafgreiðsla Samkvæmt
launatöflu Eflingar eru lægstu
laun bensínafgreiðslumanna
sambærileg atvinnuleysisbótum.
Velkomin í Hólaskóg
Skemmtilegar skoðunarferðir
á götuskráðum fjórhjólum um
náttúruperlur Þjórsárdals og
nágrennis, jafnt sumar sem vetur.
Sími: 661-2503
eða 661-2504
www.icesafari.is
Sérverslun með
FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060 - Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-14
Skór & töskur
www.gabor.is
Smáauglýsingasíminn er
515 5550
smaar@dv.is