Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2009, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2009, Qupperneq 36
36 föstudagur 21. ágúst 2009 helgarblað Abbey Road Fá plötuumslög hafa öðlast viðlíka frægð og umslag plötunnar Abbey Road með The Beatl- es. Umslagið hefur verið stílfært og stælt oftar en nokkuð annað plötuumslag og jafnvel í dag gerir fólk sér ferð á Abbey Road í Lundúnum og lætur mynda sig á gangbrautinni sem Bítlarn- ir gengu yfir fyrir um 40 árum. U m þessar mundir á Abbey Road, eitt frægasta plötuumslag tón- listarsögunnar, fjörutíu ára af- mæli. Leiða má líkur að því að engin mynd hafi jafnoft verið stæld og stílfærð og sú sem prýðir umslag Abbey Road. Engum blöðum er um að fletta að Bítlarn- ir brutu blað í sögu popptónlistar í fleiri en einum skilningi. Þrátt fyrir að ferskleiki tón- listar þeirra á upphafsárum hljómsveitar- innar hafi lagt grunninn að velgengni henn- ar má ekki líta framhjá þætti George Martin, upptökustjóra EMI-útgáfunnar, og frábærri markaðssetningu umboðsmannsins Brians Epstein. En þá er ónefnd sú bylting sem Bítlarnir áttu þátt í og sneri að plötuumslögum og sem fyrr segir er umslag Abbey Road eitt það frægasta. Everest-sígarettur Upphaflega átti þessi plata, sem var sú síðasta sem Bítlarnir tóku upp (Let it be var tekin upp á undan, en gefin út síðar), að heita Everest. Hugmyndin var ekki fengin frá hæsta fjalli á jörðu og var öllu jarðbundnari. Þannig var mál með vexti að Geoff Emerick hljóðmaður reykti Everest-sígarettur og í kjölfarið vaknaði sú hugmynd að kalla plötuna Everest og fljúga með Bítlana til Himalaya- fjallanna og ljósmynda þá við ræt- ur Everest. Áður en sú hugmynd varð að veruleika snerist Bítlunum hugur og öllu einfaldari hugmynd fæddist; að kalla plötuna Abbey Road eftir hljóðverinu sem hún var tekin upp í og ljósmynda hljómsveit- ina fyrir framan hljóðver 8. Þess má þó geta að platan var einnig að hluta tekin upp í Trid- ent- og Olympic-hljóðverunum. Tíu mínútna vinna Talið er að Paul McCartney hafi fengið hug- myndina að myndatökunni og John Lennon hafði sambandi við sameiginlegan vin sinn og Yoko Ono, Iain Macillan og hafði hann tíu mínútur til að klára verkið, rétt fyrir hádegi 8. ágúst 1969. Lögregluþjónn lokaði götunni við gang- brautina og Macmillan tók myndir í gríð og erg, standandi í stiga. „Það var taugastrekkj- andi,“ rifjaði Macmillan upp síðar. „Að fá þá til að ganga á réttan hátt var erfitt.“ Árangurinn varð hversdagsleg mynd af frægustu tónlistarmönnum heims að ganga yfir götu, en áhrifa ljósmyndarinnar átti eftir að gæta um ókomin ár. Lesið í myndina Til langs tíma hafði tíðkast að lesa dulin skila- boð úr flestu því sem Bítlarnir létu frá sér fara og yrði sennilega of langt mál að tíunda allt sem almenningur gat lesið úr ljósmyndinni sem prýðir umslag Abbey Road. En ein kenningin var sú að með myndinni væri staðfest að Paul McCartney hefði safn- ast til forfeðra sinna, kenning sem hafði lif- að góðu lífi í nokkur ár. Kenningin byggðist meðal annars á klæðnaði Bítlanna og þeirri staðreynd að McCartney hélt á sígarettu, var berfættur og ekki í takt við félaga sína þrjá. Hvítklæddur John Lennon átti að vera presturinn, tiltölulega snyrtilegur Ringó Starr var útfararstjórinn, George Harrison í galla- fatnaði var grafarinn og Paul, berfættur, með líkkistunagla og úr takti, að sjálfsögðu líkið. Berfættur á heitum degi Skýringin á berum fótum McCartneys var ekki flókin. Þannig var mál með vexti að McCartn- ey hafði fest kaup á húsi sem var rétt handan hornsins við Abbey Road-hljóðverið og átti það til oftar en ekki að bregða sér í hljóðverið eins og hann var þá stundina. Þennan dag vildi svo til að heitt var í veðri og McCartney mætti til myndatökunnar á sandölum og á að minnsta kosti tveimur myndanna sem teknar voru af Bítlunum á gangbraut- inni er Paul með sandala á fót- um og því um einbera tilviljun að ræða að hann var berfætt- ur á þeirri mynd sem síðan var valin. Hvað sígarettuna varðar má ætla að um tilviljun hafi ver- ið að ræða og þá frekar að til- viljun hafi ráðið því hinir voru ekki með sígarettu, því oftar en ekki voru þeir reykjandi á ljós- myndum þess tíma. Dularfullt bílnúmer Burtséð frá kenningum um dauða McCartneys byggðum á fatnaði getur einnig að líta forláta Volkswagen-bjöllu á ljósmynd- inni. Á númersplötunni má lesa „LMW28IF“ og átti að renna frek- ari stoðum undir kenningar um dauða Pauls McCartney. Vissulega þarf frjótt ímyndunar- afl til að lesa slíkt út úr númersplötunni en ef minni mitt bregst ekki var túlkunin á þessa leið: Live McCartney Would (be) 28 (years) If (he had liv- ed). Ánægja eiganda bjöll- unnar á myndinni hefur án efa verið tvíbent því hann hafði ekki undan að endur- nýja númersplötuna eftir að Abbey Road kom út svo oft var henni stolið. Volkswagen-inn var loks seldur á uppboði fyrir 23.000 bandaríkjadali og er nú á Volks- wagen-safninu í Wolfsburg í Þýskalandi. Ekki í fyrsta skipti Þetta var ekki í fyrsta skipti sem aðdáendur hljómsveitarinnar fundu staðfestingu fyr- ir dauða Pauls McCartney með því að túlka plötuumslag. Sú var raunin árið 1967 þegar Sgt Pepper’s Lonly Hearts Club Band kom út, en vangaveltur um umslag þeirrar plötu dygðu í aðra grein. Eitt atriði er ónefnt sem veldur því að þetta „hversdagslega“ plötuumslag er eftirtektar- verðara en önnur plötuumslög þess tíma. Það er sú staðreynd að á framhlið umslags- ins getur hvergi að líta nafn hljómplötunn- ar eða hljómsveitarinnar og var það á þeim tíma nánast óþekkt eða óþekkt með öllu. Sú hugmynd hefur verið eignuð John Kosh, list- rænum yfirmanni Abbey Road-hljóðversins. Reyndar hugnaðist útgáfufélaginu ekki sú hugmynd. „Við seljum aldrei nokkrar plötur ef þú segir okkur ekki um hvaða hljómsveit er að ræða,“ var sagt við Kosh. En í ljósi þess að myndin sýndi fjórmenningana frá Liver- pool, The Beatles, frægustu hljómsveit popp- sögunnar, reyndust slíkar áhyggjur með öllu óþarfar. Árangurinn varð hversdagsleg mynd af frægustu tónlistarmönnum heims að ganga yfir götu, en áhrifa ljósmyndar- innar átti eftir að gæta um ókomin ár. 40 ára Abbey Road-myndatakan Umslag Abbey Road var uppspretta ýmissa kenninga og hefur verið stælt og stílfært ótal sinnum. „Abbey Road“ Booker T & the M.G.’s Simpson-fjölskyldan Á „Abbey Road“ á forsíðu Rolling Stone-tímaritsins. Red Hot Chili Peppers Fáklæddir í fótsporum Bítlanna Everest sígarettur Hæsta fjall heims snerti upphaflegu hugmyndina ekkert.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.