Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2009, Side 30
Útvarpsmaðurinn Siggi Hlö
verður umvafinn konum næsta
föstudag. Frá þessu greina Vík-
urfréttir en Siggi mun skemmta
á árlegri hæfileikakeppni starfs-
manna leikskólanna á Suður-
nesjum. Keppnin fer fram á
Officeraklúb Einars Bárðarsonar
og er diskóþema. „Þetta verður
nú ekki leiðinlegt. Ég verð lok-
aður þarna inni í Officeraklúbb-
num með hundruðum kvenna í
lengri tíma,“ sagði Siggi um við-
burðinn í samtali við Víkurfréttir.
„Við vorum fimm saman í hópferð á leik Manchester
United og Blackburn. Við vorum í engum sérstökum
sætum, en ekki langt frá varamannaskýlum. Þar sáum
við þá félaga fyrir leik og þá var ekkert um annað að
ræða en að láta taka mynd af sér með þeim félögum,“
segir Magnús Már Einarsson, ritstjóri á fótbolti.net, en
hann ásamt félögum sínum lét taka mynd af sér með
einhverjum þekktustu stuðningsmönnum Manchester
United, aröbunum við hliðina á varamannaskýlunum.
Arabarnir vekja gjarnan mikla lukku en þeir sjást
nánast í hvert einasta sinn sem Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester, sést í sjónvarpinu. Hafa glöggir menn séð
að þeir láta sig aldrei vanta á heimaleiki á Old Trafford.
„Við þekktum þá um leið og þeir voru mjög hress-
ir. Fannst gaman að við værum komnir alla leið frá Ís-
landi. Mér sýndist fleiri vera að biðja um mynd af sér
með þeim og þeir spjölluðu við alla. Toppmenn.“
Magnús er gallharður Liverpool-maður og segir
muninn á Old Trafford og Anfield, heimavelli Liver-
pool, felast í stemmingunni. „Það fer kannski eftir því
hvar maður situr – en það var nánast engin stemming
þar sem við sátum – svona miðað við það sem maður
hefur upplifað,“ segir Magnús en hann varð eftir á Eng-
landi. Eingöngu til að sjá Liverpool etja kappi við Birm-
ingham á mánudag.
benni@dv.is
Hitti arabana á Old traffOrd
Magnús Már Einarsson á fótbolti.nEt:
Gísli Örn Garðarsson:
geymda
30 miðvikudagur 4. nóvember 2009 fólkið
„It´s time,“ segir Gísli Örn Garðarsson
drungalegri röddu í fyrstu stiklu stór-
myndarinnar Prince of Persia sem
kom á netið í fyrradag. Eins og áður
hefur komið fram í fjölmiðlum leikur
Gísli eitt helsta illmenni myndarinn-
ar sem er eins kon-
ar djöfull og nefnist
The Vizier. Með aðal-
hlutverk myndarinn-
ar, sem er úr smiðju
ofurframleiðandans
Jerrys Bruckheimer,
fara þau Jake Gyllen-
haal og Gemma Art-
erton. Einnig leika í
myndinni gömlu brýn-
in Ben Kingsley og Al-
fred Molina.
„Þetta lúkkar bara
mjög vel,“ sagði Gísli
Örn um sýnishorn-
ið þegar DV náði tali af honum.
„Þetta verður alveg örugglega stór-
skemmtileg mynd,“ en Prince of
Persia er byggð á samnefndum
tölvuleik og spá kvikmyndaspek-
ingar því að myndin, sem frumsýnd
verður í maí, verði ein sú stærsta á
árinu 2010.
„Það var auðvitað bara frábært
tækifæri og algjört ævintýri að fá að
taka þátt í þessu verkefni,“ segir Gísli
um hvernig var að leika í svo stórri
mynd. Aðspurður hvort Gísli verði
viðstaddur frumsýningu myndar-
innar á næsta ári sagðist hann ekki
vera farinn að hugsa svo langt.
Gísli einbeitir sér nú af fullum
krafti að leiksýningunni Faust sem
hann leikstýrir í Borgarleikhúsinu.
Gísli var við það að hefja æfingu þeg-
ar blaðamaður náði tali af honum en
verkið verður frumsýnt á annan í jól-
um. Faust er þekkt verk um allan heim
en það er hinn heimsþekkti tónlistar-
maður Nick Cave sem sér um tónlist-
ina í verkinu ásamt Warren Ellis. Sag-
an af Faust er aldagömul en Gísli er
höfundur þessarar útgáfu ásamt Birni
Hlyni Haraldssyni, Nínu Dögg Filipp-
usdóttur og Víkingi Kristjánssyni.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Gísli og Cave vinna saman en hann sá
einnig um tónlistina í verkinu Ham-
skiptin þar sem Gísli lék aðalhlutverk
og leikstýrði ásamt David Farr.
asgeir@dv.is
Skuggalegt
illmenni
Gísli Örn Garðarsson er
vígalegur í fyrstu stiklu
stórmyndarinnar Prince
of Persia. Hann sést þar
ásamt stórleikurunum Jake
Gyllenhaal, Ben Kingsley,
Gemmu Arterton og Al-
fred Molina. Hann undir-
býr verkið faust af full-
um krafti sem frumsýnt
verður annan í jólum.
Gemma Arterton, Jake Gyllenhaal og Ben Kingsley Leika ásamt Gísla í
myndinni Prince of Persia sem frumsýnd verður í maí 2010.
Vígalegt illmenni Gísli
er nánast óþekkjanlegur
með öll örin í andlitinu.
Vígalegur Gísli Örn
í hlutverki The Vizier.
umvafinn
kOnum
leyndarmálið
beSt
Hljómsveitin FM Belfast er lof-
uð hástert á tónlistarsíðunni
dancenova.com. Hljómsveitin
er kölluð best geymda leynd-
armál Íslands hvorki meira né
minna en verið er að fjalla um
það að breiðskífa þeirra How To
Make Friends komi út í febrú-
ar erlendis. Vefsíðan fær yfir
100.000 heimsóknir á viku og
þykir áhrifamikil þegar kemur að
umfjöllun um raf- og danstónlist.
Hún hefur verið starfrækt síðan
árið 2001. FM Belfast vinnur nú
að því að koma frá sér sinni ann-
ari breiðskífu en sú fyrri fékk frá-
bæra dóma hér heima fyrir.
Flott gengi Magnús, Davíð Snorri Jónasson
og Elvar Geir Magnússon ásamt aröbunum.