Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Side 5
fréttir 30. nóvember 2009 mánudagur 5
Swopper vinnustóllinn
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Opið laugardaga til jóla kl. 11-16
„Maðurinn þarf að svara fyrir þetta.
Málið mun hafa sinn gang og það er
best að ég segi sem fæst orð,“ segir
Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæj-
arstjóri Kópavogs. Hann hefur höfðað
meiðyrðamál gegn Þórarni Ævarssyni,
íbúa á Kársnesi, eftir að sá síðarnefndi
ritaði harðorða grein um bæjarstjór-
ann fyrrverandi og skoraði á Gunnar
að segja af sér.
Sjálfur hefur Þórarinn sagst vera
flokksbróðir Gunnars en það vill hann
ekki kannast við. „Mér er ekki kunn-
ugt um að viðkomandi sé í Sjálfstæð-
isflokknum. Ég bendi fólki bara á að
lesa greinina og dæma sjálft. Sjón er
sögu ríkari,“ segir Gunnar.
Gunnar hefur ræktað sjálfan sig
undanfarið ár og hefur lést um 30
kíló. Fyrir tveimur mánuðum fór
hann í aðgerð á hné þar sem skipt var
um lið í því. Aðspurður hefur Gunn-
ar það mjög gott fyrir utan bakslag í
hnénu. „Ég segi allt gott en er reyndar
að drepast í hnénu. Ég hef sennilega
æft of stíft. Ég er óþolinmóður maður
og þarf nú líklega að láta kíkja á þetta,“
segir Gunnar.
Gunnar ætlar að gefa kost á sér í
prófkjöri sjálfstæðismanna í Kópa-
vogi í febrúar næstkomandi. Þar ætl-
ar hann sér aftur á toppinn. „Ég hef
góðar væntingar til prófkjörsins enda
fengið góðar viðtökur. Ég sækist eft-
ir því að verða aftur forystumaður
flokksins,“ segir Gunnar.
trausti@dv.is
Fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs höfðar meiðyrðamál:
Ætlar á toppinn þrátt
fyrir hnémeiðsli
Harður í horn að taka Gunnar hefur
höfðað meiðyrðamál og stefnir ótrauður
að forystuhlutverki í Kópavogi.
Birkir Kristinsson, fjárfestir og starfs-
maður eignastýringar Íslandsbanka,
þurfti að afskrifa þriggja milljarða
króna kröfu sem hann átti á hend-
ur einkahlutafélagi í eigu hálfbróður
síns, Magnúsar Kristinssonar, fjárfest-
is og útgerðarmanns í Vestmannaeyj-
um. Afskriftin á skuldinni var tilkomin
vegna þess að Magnús gat ekki greitt
Birki eftirstöðvar sjö milljarða króna
kaupverðs fyrir hlut Birkis í fjárfest-
ingafélaginu Gnúpi.
Bræðurnir áttu saman 28,5 pró-
senta hlut í félaginu í gegnum eign-
arhaldsfélögin MK 44 ehf. og MK 44
II ehf. en um sumarið 2007 keypti
Magnús hlutina í Gnúpi út úr félögun-
um. Birkir og Magnús gerðu með sér
nauðasamning í apríl í fyrra þar sem
þetta kemur fram samkvæmt heimild-
um DV. Með samningnum var félagi
Magnúsar forðað frá gjaldþroti.
Enginn vissi að Birkir
ætti í Gnúpi
Gnúpur var fjárfestingafélag sem var í
eigu þeirra bræðra og Kristins Björns-
sonar og Þórðar Más Jóhannessonar,
sem jafnframt var forstjóri félagsins.
Ekki var hins vegar vitað að Birkir hefði
verið svo stór hluthafi í félaginu fyrr en
DV greindi frá því fyrir skömmu og var
talið að Magnús hefði átt sameiginleg-
an hlut þeirra einn. Hugsanlegt er að
eignarhald Birkis hafi verið látið liggja
á milli hluta vegna þess að ekki hafi
þótt við hæfi að yfirmaður í eignastýr-
ingu Glitnis ætti svo stóran hluta í einu
stærsta fjárfestingafélagi landsins sem
jafnframt var stór hluthafi í stærsta
hluthafa Glitnis.
Gnúpur fjárfesti í hlutabréfum í FL
Group og Kaupþingi og varð um sum-
arið 2007 stærsti einstaki hluthafinn
í FL Group með meira en 20 prósent
eignarhluta. FL Group var jafnframt
stærsti hluthafinn í Glitni banka í kjöl-
far breytinga á hluthafahópnum í apr-
íl 2007.
Gnúpur varð fyrsta stóra íslenska
fjárfestingafélagið til að fara á hliðina
í íslenska góðærinu en í janúar 2008
voru eignir félagsins seldar til stærsta
kröfuhafa félagsins, Glitnis, með mikl-
um afföllum. Jón Fjörnir Thoroddsen
hagfræðingur segir í bók sinni um ís-
lenska efnahagshrunið að eftir fall
Gnúps hefðu allir sparifjáreigendur á
Íslandi átt að draga fé sitt út úr pen-
ingmarkaðssjóðum bankanna. „En
fall Gnúps fór ekki hátt í umræðu á
Íslandi,“ segir Jón Fjörnir og má skilja
hann svo að fall félagsins hafi í reynd
markað upphafið að íslenska efnhags-
hruninu.
Birkir fékk 4 milljarða greidda
Þrátt fyrir að Birkir hafi þurft að afskrifa
þá 3 milljarða króna sem hann átti úti-
standandi hjá bróður sínum fékk hann
hina fjóra milljarðana greidda frá fé-
lagi Magnúsar. Suðurey, sem stofn-
að var gagngert til að halda utan um
fjárfestingu Magnúsar í Gnúpi, komst
hins vegar í mikil vandræði með falli
Gnúps. Suðurey skilaði tæplega 20
milljarða króna tapi á árinu 2007 vegna
falls Gnúps og því gat félagið ekki greitt
eignarhaldsfélagi Birkis milljarðana
þrjá.
Birkir hefði því tæknilega séð get-
að farið í mál við Magnús bróður sinn
út af Gnúpsviðskiptunum því Magnús
gat ekki staðið við þá samninga sem
hann gerði við hann þegar hann keypti
hann út úr Gnúpi. Til þess kom þó ekki
vegna nauðasamningsins sem þeir
gerðu með sér samkvæmt heimild-
um DV auk þess sem Birkir hefði ekki
grætt neitt á því að setja félagið í þrot
þar sem engar eignir voru inni í því til
að greiða skuldina upp. Viðskiptin ollu
hins vegar miklu ósætti á milli þeirra
bræðra, samkvæmt heimildum DV, þó
svo Birkir hafi ekki farið í hart.
Birkir lagði 1,5
milljarða inn í Gnúp
En tengslum Birkis við Gnúp lauk ekki
eftir að hann seldi Magnúsi bróður
sínum hluti sína í félaginu um sum-
arið 2007. Í nóvember 2007, um það
leyti sem byrjaði að síga verulega á
ógæfuhliðina hjá Gnúpi, keypti Birkir
hlutabréf í Gnúpi af félaginu fyrir 1,5
milljarða króna. Birkir átti eftir þetta
7 prósent í félaginu en heildarhlutafé
þess nam rúmum 36 milljörðum um
þetta leyti.
Þetta gerði Birkir að tilstuðlan
Magnúsar bróður síns en þegar þetta
gerðist átti hann eftir að fá milljarðana
3 frá honum. Birkir tapaði hins vegar
einnig þessari fjárfestingu því eins og
áður segir komst félagið í mikil vand-
ræði í lok árs og voru eignir þess seld-
ar með miklu tapi í ársbyrjun 2008.
Því má segja að tap Birkis vegna fjár-
festinga í Gnúpi og sölunni á sínum
eignarhluta til bróðir síns hafi numið
á að giska 4,5 milljörðum króna en þó
verður að hafa í huga að verðmatið á
hlutabréfum í Gnúpi sem stuðst var
við þegar Birkir seldi sig út úr félaginu,
var afar uppsprengt líkt og verðmatið
á mörgum íslenskum fyrirtækjum um
þetta leyti.
Því má fullyrða að Birkir Kristins-
son hafi farið afar illa út úr falli Gnúps,
líkt og bróðir hans gerði, þó svo að ekki
hafi verið mikið um það rætt.
Birkir Kristinsson fékk ekki greitt nema
hluta þess verðs sem Magnús bróðir hans
skuldbatt sig til að greiða honum fyrir
hlutabréf í fjárfestingafélaginu Gnúpi.
Birkir fékk greidda 4 milljarða af 7. Birkir
var ekki sáttur við bróður sinn út af þess-
um viðskiptum. Birkir tapaði einnig 1,5
milljarði sem hann lagði inn í Gnúp þegar
félagið var í dauðateygjunum.
Úr bók Jóns FJörnis
Thoroddsen þar sem hann
ræðir um GnÚp:
„Sérfræðingur frá bandarískum
fjárfestingabanka lagði eitt sinn
mat á Gnúp eftir gjaldþrot félagsins
[innskot blaðamanns: félagið varð
ekki gjaldþrota formlega]. „Gnupur.
What a joke!” Hann gerði óspart grín
að félaginu: „Gnúpur var sjálfsagt eitt
heimskasta fjárfestingafélag sem
uppi hefur verið. Félagið veðjaði
bara á eitt.” Hann átti við að í raun var
engin dreifing á eignasafni Gnúps.
Þess vegna varð félagið gjaldþrota
á leifturhraða, á aðeins nokkrum
vikum. Hann átti um það bil 22% í FL
Group, 5% í Kaupþingi og átti að auki
nánast nákvæmlega sömu erlendu
eignir og FL Group, þ.e. bandaríska
flugfélagið American Airlines (AMR)
og þýska bankann Commerzbank.”
aFskriFaði
miLLJarða aF
skuLd maGnÚs-
ar bróður
Ósætti vegna Gnúps Birkir
Kristinsson þurfti að afskrifa 3
milljarða króna sem Magnús
bróðir hans skuldaði honum út
af viðskiptum með hlutabréf
í fjárfestingafélaginu Gnúpi.
Magnús sést hér með Þórði Má
Jóhannessyni, forstjóra Gnúps.
Lagði 1,5 milljarð í Gnúp Birkir Kristinsson, sem er landsþekktur sem markvörð-
ur í fótbolta, lagði 1,5 milljarða króna í Gnúp þegar félagið var í dauðateygjunum í
lok árs 2007. Hann tapaði þeim fjármunum.