Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Page 8
8 mánudagur 30. nóvember 2009 fréttir Sjóðsstjórar minningarsjóðs auð- konunnar Sonju Zorrilla segja enga aura að fá úr sjóðnum. Í svörum sjóðsstjóranna kemur fram að sjóð- urinn, Sonja Foundation, sé yfir- skuldbundinn í ár og allt næsta ár. Umsækjendum er óskað velfarnað- ar í öðrum styrkjaumleitunum sín- um. Þetta kemur fram í svarbréfi annars af tveimur umsjónarmönn- um minningarsjóðsins, bandaríska lögfræðingsins John Fergusons, til umsækjanda um miðjan nóvem- bermánuð. Þar segir hann ekkert úr sjóðnum að fá því hann sé skuld- bundinn alveg út næsta ár að lág- marki. Umsjónarmennirnir hafa frá stofnun sjóðsins neitað að gefa nokkrar upplýsingar um úthlutanir og þrátt fyrir ítarlega leit DV finnst fátt um þær. Mörgum neitað Við stofnun sjóðsins var því lýst yfir að hlutverk hans væri að styrkja börn til náms og heilsu. Í samtölum við DV hefur fjöldi umsækjenda undrast það hvers vegna ekki fáist styrkir úr sjóðnum og hversu erfitt sé að sækja um styrk hjá honum. Þannig hafa til dæmis Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum, kvenréttindafélagið Thor- valdsensfélagið og Listaskóli Rögn- valdar Ólafssonar á Ísafirði sótt um styrki án árangurs. Þá hafði einnig ungum listanema, Birni Mekkin- óssyni, borist vilyrði um styrk frá sjóðnum en án þess að hafa feng- ið krónu. Rögnu Marínósdóttur, fram- kvæmdastjóra Umhyggju, er ekki kunnugt um íslensk stuðningsfélög sem hafi hlotið styrk úr minning- arsjóðnum. Hún skilur ekki hversu erfiðlega það gengur. „Þetta er of- boðslegur frumskógur og við erum eiginlega á sama stað og í upphafi þegar við sóttum um. Við erum þau fyrstu sem sóttum um og ég veit ekki um neinn sem hefur feng- ið styrkinn. Fyrir löngu fengum við loforð um úthlutun úr sjóðnum en höfum ekki fengið neitt ennþá og ekkert að gerast. Það er orðið svo langt síðan að ég er hreinlega búin að gleyma því hversu miklu okkur var lofað,“ sagði Ragna. Sjóðurinn ekki stór? Minningarsjóður um Sonju Wendel Benjamínsson de Zorrilla var stofn- aður eftir andlát hennar árið 2002. Meginhlutverk hans átti að vera að styrkja langveik börn á Íslandi og í Bandaríkjunum. Eigur hennar voru metnar á tæpa tíu milljarða króna árið 2001samkvæmt bókinni Ríkir Íslendingar, sem kom út það ár, og var ætlunin að stærstur hluti þeirra eigna færi í minningarsjóðinn. Tveir sjóðsstjórar voru settir yfir Minningarsjóð Sonju, áðurnefnd- ur Ferguson, lögræðingur Sonju til margra ára, og frændi hennar, fjár- festirinn Guðmundur Birgisson. Þrátt fyrir mikil auðæfi hennar hafa báðir sjóðstjórarnir gefið DV þau svör að sjóðurinn hafi takmarkað fjármagn til styrkveitinga. Hvorug- ur þeirra hefur viljað veita nokkrar upplýsingar um bolmagn sjóðsins til styrkveitinga, stofnfé hans eða ávöxtunarleiðir. Þá hafa þeir orð- ið tvísaga um úthlutanir, á meðan annar þeirra hefur fullyrt að úthlut- að hafi verið úr sjóðnum hefur hinn neitað slíku. Nokkrar milljónir Eftir því sem DV kemst næst hafa tvö fræðasetur Háskóla Íslands hlotið styrki frá sjóðnum, annars vegar Rannsóknarsetur í barna- og fjölskylduvernd og hins vegar Rannsóknarsetur í fötlunarfræð- um. Í síðara tilvikinu er skráður tut- tugu milljóna króna styrkur til fimm ára, 2006-2010, en forstöðumaður setursins staðfesti í samtali við DV að tvær greiðslur hafi borist, á nú- verandi gengi ríflega átta milljón- ir. Styrkurinn var veittur í tengslum við rannsókn á æsku og uppvexti fatlaðra barna og unglinga. Þá hef- ur fósturgreiningadeild Landspítal- ans fengið fjárstyrk úr sjóðnum. Eina tilkynningin sem finnst um styrki úr sjóðnum erlendis er fimm þúsund dollara styrkur til Saint Mary-spítala í New York árið 2006, sem nam þrjú hundruð þús- und krónum á þeim tíma. Auk þess koma fram gögn þar sem Lee-sýsla á Flórída krefur sjóðinn um níu þúsund dollara vegna vangold- inna skatta árið 2007, eða sem nam fimm hundruð og fimmtíu þúsund krónum á þeim tíma. Mikil leynd Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir svar- aði enginn í farsíma Guðmundar Birgissonar, frænda Sonju og ann- ars umsjónarmanns minningar- sjóðs hennar, við vinnslu frétta- rinnar og því fengust engin svör frá honum. Reyndar hafa verið gerðar fjöldamargar tilraunir á DV undan- farin tvö ár að ná í Guðmund en án árangurs. Síðast náði blaðamaður tali af honum árið 2007 og þá sagði hann: „Það gengur alveg ljómandi vel með sjóðinn. Það er alltaf verið að úthluta og sjóðurinn er í ákveðn- um farvegi,“ var það eina sem Guð- mundur lét hafa eftir sér. Hann sagðist vera að flýta sér og bað um að hringt yrði í sig síðar. Þrátt fyr- ir ítrekaðar tilraunir til að ná aftur í Guðmund tókst það ekki. John Ferguson, bandaríski lög- maðurinn og hinn sjóðsstjóri minn- ingarsjóðsins, hefur heldur ekki, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, gef- ið DV skýr svör um sjóðinn „Þetta er einkasjóður og ég get ekki gef- ið neinar upplýsingar. Við erum að gera allt sem við eigum að gera og höfum gefið allt sem við gátum. Við höfum veitt myndarlega styrki til þriggja ára og veittum til allra þeirra sem sóttu um og höfðu rétt á því,“ sagði Ferguson í samtali við DV. Að því loknu lagði hann á án þess að kveðja. Sjóðsstjórar minningarsjóðs Sonju Zorrilla, Sonja Foundation, segja ekkert að hafa úr sjóðnum í ár og allt næsta ár. Sjóðurinn er sagður yfirskuldbundinn en erfitt er að finna í hvað sjóðurinn hefur skuldbundið sig. Auðkonan dulúðlega var metin á nærri tíu milljarða króna fyrir andlát sitt og mestur hluti átti að renna í minningarsjóð til styrktar börnum. TÓMUR SJÓÐUR SONJU ZORRILLA Sveipuð dulúð Sonja Wendel Benjamínsson de Zorrilla lést 22. mars 2002, 85 ára að aldri. Sonja þótti afar fögur og hrífandi kona sem hafði gaman af að umgangast fólk og átti langa og litríka ævi. Þrátt fyrir að líf hennar hafi verið sveipað dulúð eignaðist hún marga vini á lífsleiðinni og margir þeirra eru meðal ríkasta fólks veraldar. Sögur af samskiptum hennar við karlmenn eru margar og óljóst þykir hversu margar þeirra eru sannar. Ljóst er þó að Sonja átti í eldheitu ástarsambandi við gríska skipakónginn Aristotle Onassis, sem síðar giftist Jacqueline Kenn- edy. Síðar gekk hún í hjónaband með Argentínumanninum Alberto Zorrilla, myndarlegum ólympíu- og heimsmethafa í sundi og hæfileikaríkum tangódansara, og eru þau bæði jörðuð hér á landi. Alla tíð fylgdi Sonja þeirri skoðun sinni að konur ættu að taka örlög sín í eigin hendur. Hún bjó yfir miklu hugrekki og frelsisþrá, stundaði myndlist, ræktaði með sér ótvíræða viðskiptahæfileika og varð vellauðug. Síðustu æviárin bjó hún að mestu á Seltjarnarnesinu þar sem hún hafði útsýni til fjalla. Hún hafði gefið þau fyrirmæli að eftir andlátið skyldi auður hennar að mestu renna í minningarsjóðinn. TrauSTi hafSTeiNSSoN blaðamaður skrifar: trausti@dv.is engin svör Guðmundur gefur engin svör um úthlutanir minningarsjóðs frænku sinnar. Hafðu samband í síma 515-5555 eða sendu tölvupóst á askrift@dv.is - inn í hlýjuna Fáðu DV heim í áskrift

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.