Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Side 12
Bógur ódýrasti
veislumaturinn
Ferskur svínabógur, hátíðarkjúkling-
ur, Bayonneskinka, hamborgarhrygg-
ur og frosinn kalkúnn eru allt dæmi
um hátíðarmat sem hægt er að kaupa
á minna en þúsund krónur kílóið. DV
fór í Bónus, sem jafnan mælist ódýr-
asta matvöruverslunin, og Hagkaup,
Tjón vegna
gjaldþroTs
Kröfur neytenda, til dæmis þeirra
sem eiga inneign hjá fyrirtæki
sem verður gjaldþrota, njóta
ekki forgangs í þrotabúum. Því
er oft hæpið að þær fáist greidd-
ar. Í sumum tilvikum tekur nýr
aðili við umboði vörumerkja og
ákveður að þjónusta viðskiptavini
gjaldþrota fyrirtækisins áfram, til
dæmis með því að taka við gjafa-
bréfum eða veita aðra úrlausn
mála. Einnig er til í dæminu að
þeir sem hafa keypt gallaða vöru
geti leitað beint til framleiðenda
hennar. Á heimasíðu Neytenda-
samtakanna má lesa nánar um
það hvert fólk á að snúa sér sem
brennur inni með inneignir eða
hefur keypt gallaða vöru af fyr-
irtæki sem fer í þrot. Samtökin
hvetja félagsmenn sína til að hafa
samband, hafi þeir orðið fyrir
tjóni vegna gjaldþrots seljanda.
sushi Fisk-
markaðarins
Í lasti í DV í síðustu viku kom
fram gagnrýni frá óléttri konu
sem sagðist hafa þurft að greiða
1.400 krónur fyrir 8 bita af græn-
metissushi á meðan óþung-
aðir, sem mættu borða hráan
fisk, fengju 14 bita fyrir sama
verð. Hrefna Rós Jóhannesdóttir
Sætran, eigandi Fiskmarkaðar-
ins, vildi koma því á framfæri að
grænmetisrúllan kostaði 1.300
krónur en ekki 1.400. Hún sagði
enn fremur að 8 bitar af græn-
metissushi (maki) innihéldu
jafn mikið magn og 14 bitar af
hefðbundnu sushi (nigiri, maki
og sashimi). Svokallaðir maki-
bitar séu töluvert stærri en hinir
og magnið því það sama. Hún
sagðist enn fremur taka mark á
allri gagnrýni og sagðist ætla að
endurskoða orðalag á matseðli til
að forðast allan misskilning.
n Viðskiptavinur
Nonnabita hafði
samband og vildi lasta
fyrirtækið fyrir verð á
ís. Hann sagði að
pínulítill ís með dýfu
kostaði 290 krónur. „Hann náði
ekki 10 sentimetrum og var svo
linur að ég þurfti að henda
honum svo hann læki ekki út um
allt,“
sagði
viðskiptavin-
urinn.
n Viðskiptavinur verkstæðisins Hjá
Krissa, Hrafnshöfða 19, hafði
samband við DV og vildi láta
vita af ódýrri og góðri þjónustu.
Þar lét hann umfelga einn
umgang af dekkjum og greiddi
aðeins 4.000 krónur fyrir. Það er
lægsta verð sem DV
hefur heyrt af.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Dísilolía
mjódd verð á lítra 184,1 kr. verð á lítra 181,3 kr.
kaplakrika verð á lítra 184,2 kr. verð á lítra 181,4 kr.
algengt verð verð á lítra 185,7 kr. verð á lítra 182,9 kr.
bensín
dalvegi verð á lítra 181,1 kr. verð á lítra 178,3 kr.
Bæjarlind verð á lítra 181,2 kr. verð á lítra 178,4 kr.
hæðasmára verð á lítra 181,2 kr. verð á lítra 178,4 kr.
UmSjóN: BALDUR GUÐmUNDSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
12 mánudagur 30. nóvember 2009 neyTendur
sem gefur sig út fyrir að hafa mesta
úvalið, og athugaði verðið á algeng-
um hátíðarmat.
Svínið ódýrast
Ferskur svínabógur er nær helmingi
ódýrari en allur annar hefðbundinn
veislumatur sem stendur neytend-
um til boða. Kílóverðið er aðeins 499
krónur með afslætti en öll verð á há-
tíðarmat eru reiknuð með auglýst-
um afslætti. Hátíðarkjúklingurinn,
Bayonneskinka og Bónus hamborg-
arhryggur fylgja þar á eftir. Kílóverð-
ið í Bónus er á þessum vörum rétt lið-
lega 900 krónur.
Ef einungis er horft til beinlausra
bita er Bayonneskinkan ódýrust, 899
krónur kílóið, en þar á eftir fylgir Ali
grísalund sem kostar liðlega 1.500
krónur.
Gæsin kostar skildinginn
Þær upplýsingar fengust í Hagkaup-
um að nánast engin erlend villibráð
væri komin til landsins. Úrvalið á því
eftir að aukast til muna. Villtar gæsa-
bringur voru þó á boðstólum á 5.299
krónur kílóið. Gæsin reyndist því
langdýrasti veislumaturinn sem kom-
inn er í hillur Hagkaupa, samkvæmt
athugun DV. Ekki skal útilokað að
fleiri tegundir villibráðar fáist á þess-
um tíma í öðrum verslunum á borð
við Nóatún og Fjarðarkaup.
Á eftir gæsabringunum, sem skera
sig úr hvað verð snertir, koma frosnar
ungnautalundir, úrbeinað hangilæri
og andabringur en þessar vörur kosta
á bilinu 2.500 til 3.000 krónur.
Meðlætið með jólasteikinni
DV athugaði einnig verð á algengu
meðlæti með jólamatnum. Þar bar
hæst að laufabrauð í kassa kostar um
1.700 krónur í Hagkaupum, 2 lítrar af
ís kosta í Bónus í grennd við 600 krón-
ur og sósan með ísnum um 300 krón-
ur. Dósamatur á borð við kokteilávexti,
baunir og jarðarber kostar á bilinu 90
til 300 krónur, allt eftir magni og fram-
leiðanda. Loks kostar fylling í kalkún-
inn um 1.000 krónur í Hagkaupum en
erfitt er að reikna út hvað það kostar
að búa til eigin fyllingu.
„Ef einungis er horft
til beinlausra bita
er Bayonneskinkan
ódýrust.“
Svínabógur, Bayonneskinka og hvítt fuglakjöt er á meðal þess sem ódýrast er að hafa í
jólamatinn, samkvæmt athugun DV. Ferskur svínabógur sker sig úr hvað verð varðar.
Hann er nær helmingi ódýrari en sú steik sem næst kemur í verði.
Svínasteik, kartöflur,
sósa og rauðkál
Hefðbundinn íslenskur
jólamatur þarf ekki að
kosta annan handlegg-
inn. Kílóið af svínabóg
fæst á um 500 krónur.
MyND PhOtOS.cOM
n Ferskur svínabógur 499 kr/kg.
n hátíðarkjúklingur 898 kr/kg.
n Bayonneskinka 899 kr/kg.
n Bónus hamborgarhryggur
899 kr/kg.
n Kalkúnn frosinn* 958 kr/kg.
n Lambahryggur frosinn 1119 kr/kg.
n Lambalæri frosið 1138 kr/kg.
n holdakalkúnn ferskur* 1298 kr/kg.
n Ali grísalund 1499 kr/kg.
n Kryddað ferskt lambalæri
1554-1798 kr/kg.
n hrefnusteik* 1598 kr/kg.
n Frosinn humar 1898 kr/kg.
n Pekingönd frosin* 1898 kr/kg.
n Kalkúnabringur* 1947 kr/kg.
n Andabringur 2518 kr/kg.
n KEA úrbeinað hangilæri
2558 kr/kg.
n Ungnautalundir frosnar
2998 kr/kg.
n Villtar gæsabringur* 5299 kr/kg.
* VERÐ í HAGKAUpUm. ANNAÐ mIÐAST VIÐ VERÐ í BóNUS
EN FæST YFIRLEITT LíKA í HAGKAUpUm.
algengt meðlæti *
n Maís lítil dós ca. 90 kr.
n Egils jólaöl 0,5 lítrar ca. 90-130 kr.
n Grænar baunir 1/2 ca. 100 kr.
n Ora rauðkál stór krukka ca. 180 kr.
n Jarðarber í dós ca. 200 kr. stór dós
n Íssósa ca. 300 kr.
n Kokteilávextir ca. 300 kr/kg.
n Kartöflur 300-450 kr/kg.
n Ís 1,5-2,0 lítrar 460-650 kr.
n tilbúin kalkúnafylling ca. 1000 kr.
n Laufabrauð í boxi ca. 1700 kr.
* NÁmUNDAÐ VERÐ
verð á hátíðarmat *
Olís mjódd 184,10 181,30
Atlantsolía Kaplakrika 184,20 181,40
Shell Algengt 185,70 182,90
Orkan Dalvegi 181,10 178,30
óB Bæjarlind 181,20 187,40
N1 Hæðasmára 181,20 178,40