Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Page 30
skákmeistari
Egill Einarsson, einnig þekkt-
ur sem Gillzenegger, Störe eða
Þykki, var heldur betur áber-
andi í íslenskum fjölmiðlum
á föstudaginn. Fyrst var Egill í
þættinum Auddi og Sveppi þar
sem hann tók þátt í ratleik þeirra
félaga til Egilsstaða og til baka,
þar næst var hann gestur hjá
Loga Bergmann í þættinum Logi
í beinni og endaði svo kvöldið
á Rás 2 í útvarpsþættinum Litla
hafmeyjan. „Þið þurfið bara ekki
að fara út úr húsi á morgun,“
sagði Egill um málið á Face-
book-síðu sinni. Hann er þessa
dagana að kynna nýjustu bókina
sína. Hún heitir Mannasiðir og
er væntanleg í verslanir.
„Þetta eru innslög, svona þrjár til fjór-
ar mínútur. Þetta er bara eitthvert sprell
þar sem við tökum fyrir jóla-þetta og
jóla-hitt,“ segir Bragi Valdimar Skúlason
í Baggalúti um Jóladagatal þeirra í fjöl-
listahópnum vinsæla. Dagatalið hefst
1. desember og verður á dagskrá Rás-
ar 2 alla aðventuna, bæði í Popplandi
alla virka daga klukkan 9.30 og 13.30 og
hjá Bergssyni & Blöndal á laugardags-
morgnum.
Bragi segir að tekið verði fyrir ýmis-
legt tengt jólahaldinu. „Jólafötin verða
tekin fyrir, uppruni jólanna, jólaandinn
og bara eiginlega jóla-allt.“ Og kreppan
sleppur vitanlega ekki við að vera hrá-
efni í þessu jólaföndri Baggalútsmanna.
„Einn þátturinn heitir jól í kreppu. Og
svo verður einn nostalgískur sem fjall-
ar um jól í góðæri,“ segir Bragi en eins
og heyra má eru þættirnir þematengd-
ir. Söguþráður er enginn ólíkt því sem
venjan hefur verið í Jóladagatali Sjón-
varpsins. „Nei, þetta er náttúrlega ekki
svona dýrt og fínt. Við höfðum ekki efni
á söguþræði.“
Og þá enginn hávaxinn gaur í bláum
geimbúningi sem kemur við sögu? „Nei,
og þess vegna fengum við bara að vera
með þetta í útvarpi. Við vorum með svo
háleitar kröfur í búningamálum.“
Þess má geta að Baggalútur hefur
einnig samið fjögur jóla- og aðventulög
sem hlotið hafa nöfnin Spádómslag-
ið, Betlehemslagið, Hirðingjalagið og
Englalagið. Þau verða frumflutt í þætti
Guðna Más á Rás 2 á hverjum sunnu-
degi aðventunnar.
kristjanh@dv.is
Höfðu ekki efni á söguþræði
Jóladagatal Baggalúts verður á rás 2 alla aðventuna:
Vignir Vatnar:
Eitthvað gengur brösuglega hjá
silfurdrengnum og stuðboltan-
um Loga Geirssyni að koma út
væntanlegu jólalagi sínu sem
margir bíða spenntir eftir. Geng-
ur illa að finna söngvara en þeg-
ar skyttan öfluga var innt eftir
svörum á Facebook-síðu sinni
sagði Logi: „Það eru ekki miklar
framfarir gamli minn. Ég er að
sjá hvort ég geti ekki reddað ein-
hverjum góðum söngvara með
mér í þetta. Hérna úti í Germany
eru þeir ekki á hverju strái.“
Öllu betur gengur þó hjá Loga
og félaga hans Björgvini Páli
Gústavssyni í gel-bransanum en
Logi upplýsir á sömu Facebook-
síðu að þeir félagarnir séu mjög
ánægðir með viðtökurnar á vöru
þeirra og ætli þeir að svara því
með „style“.
Jóla-babb
í bátinn
30 mánudagur 30. nóvember 2009 fólkið
„Hann er nú ekki hár í loftinu
og náði varla upp á borðin,“ seg-
ir Brynja Árnadóttir, skólastjóri í
Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ,
um sex ára skáksnillinginn Vigni
Vatnar Stefánsson. Eins og Víkur-
fréttir greindu frá á föstudag var
haldið fjöltefli í skólanum þar sem
Vignir sýndi ótrúlega snilli sína og
vann sex af sjö skákum gegn eldri
nemendum skólans.
„Það var skondið að sjá hann
snúast þarna í hringi og hlaupa
á milli borðanna. Hann er alveg
ótrúlega klár strákur hann Vign-
ir,“ heldur Brynja áfram en fjöltefl-
ið á föstudag var lokahnykkurinn á
þemadögum skólans þar sem skák
var meðal annars í hávegum höfð.
„Þarna gátu svo foreldrar og aðrir
komið og fylgst með því hvað við
höfðum verið að gera á þessum
þemadögum.“ Meðan á þemadög-
unum stóð var Vignir duglegur að
tefla og lagði hann að velli samnem-
endur sem voru meira en helmingi
eldri en hann. „Hann vann þarna
krakka allt upp í tíunda bekk.“
Árangur Vignis er ekki bara ein-
stakur vegna þess hve ungur hann
er heldur eru ekki nema tæp tvö
ár síðan hann lærði mannganginn
og aðeins nokkrir mánuðir síðan
hann fór að æfa skák. „Hann byrj-
aði í janúar eða febrúar á þessu ári,“
segir Sigurlína H. Guðbjörnsdóttir,
móðir Vignis, um skákferil sonar
síns. „Hann æfir núna með Skák-
félagi Hafnarfjarðar, Garðabæjar
og Reykjavíkur,“ en Sigurlína segir
áhugann fyrst og fremst koma frá
Vigni sjálfum. „Hann hefur brenn-
andi áhuga á þessu og við höfum
alls ekkert verið að ýta á eftir hon-
um.“
Vignir keppti um helgina
á Íslandsmóti barna- og ungl-
ingasveita sem fram fór í Garða-
bæ en hann var þar langyngsti
keppandinn. „Hann keppti þar
með unglingaflokki með Skák-
félagi Reykjavíkur. Það voru fjór-
ir bestu af yngri krökkunum sem
kepptu með en hann var langyngst-
ur.“ Björn Þorfinnsson, forseti Skák-
sambands Íslands, sá Vigni á móti
í vetur og hreifst svo af hæfileikum
hans að Vignir mætir nú í einkatíma
hjá Birni einu sinni í viku. „Vignir er
mjög efnilegur og fólk hefur varla
séð svona skáksnilling hér heima.
Ekki svo ungan í það minnsta,“
segir Sigurlína stolt en Vignir mun
eflaust láta mikið að sér kveða á
næstu árum og áratugum.
Annar skáksnillingur sem Ís-
lendingar kannast vel við, Bobby
Fischer, byrjaði sjálfur að æfa skák
þegar hann var sex ára en hann er
af mörgum talinn einn helsti
skákmeistari heims frá
upphafi.
asgeir@dv.is
Vignir Vatnar Stefánsson, sex ára skák-
snillingur, sló í gegn í fjöltefli í Myllu-
bakkaskóla fyrir helgi þar sem hann
vann sex skákir af sjö. vignir sigraði
nemendur allt upp í tíunda bekk.
Föstudagurmeð Þykka
sex ára
Baggalútur
Sífyndnir,
sumar jafnt
sem vetur.
MYND GúNDi
ViGNir VatNar StefáNSSoN
Er einn efnilegasti skákmaður sem
Ísland hefur alið af sér.
fjör á ÍSlaNDSMóti Vignir
var langyngstur keppenda.
Stuttur Vignir náði
varla upp á borðin.
ViGNir Hefur látið að
sér kveða á fleiri mótum.