Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2010, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2010, Side 16
16 MÁNUDAGUR 18. janúar 2009 FRÉTTIR Nú er tæp vika síðan öflugur jarð- skjálfti reið yfir Haítí og alþjóðleg- ar leitar- og björgunarsveitir hafa lagt nótt við nýtan dag í leit í rústum höfuðborgarinnar Port-au-Prince. En hjálparstarf á Haítí gengur enn afar hægt og vandræði í flutningum hamla því að koma hjálpargögnum til hundraða þúsunda hungraðra og þyrstra Haíta sem margir hverjir hafast við í bráðabirgðaskýlum sem hrófað hefur verið upp á götum, inn- an um rústir og rotnandi lík. Samkvæmt fréttum eru flugvélar hlaðnar hjálpargögnum á flugvellin- um í höfuðborginni en hægt og illa gengur að afhlaða þær. Mikillar ör- væntingar gætir á hjá fjölda þeirra sem lifðu jarðskjálftann af á þriðju- dag og hafa síðan beðið við hörmu- legar aðstæður eftir aðstoð, matvæl- um og drykkjarvatni, og reyna margir að yfirgefa borgina. Sjóher Bandaríkjanna hefur notað þyrlur til að koma vatni til bágstaddra en hermenn á jörðu niðri hafa séð um dreifinguna, og Sameinuðu þjóðirnar hafa útdeilt orkustöngum, en fram- boðið svarar ekki þörfinni. Slegist um nauðþurftir „Ég fer þangað með sorg í hjarta,“ sagði Ban Ki-moon, aðalritari Sam- einuðu þjóðanna, þegar hann fór til Haítí á sunnudaginn. „Tjónið, eyði- leggingin, mannskaðinn eru einfald- lega yfirþyrmandi.“ Að sögn Ban Ki-moon brauð- fæddu Sameinuðu þjóðirnar um 40.000 manns á dag og að vonir stæðu til að sá fjöldi yrði ein milljón innan tveggja vikna.Að hans sögn er stærsta áskorunin aðstoðin til fórn- arlamba jarðskjálftans. Nú þegar hefur örvænting þeirra sem lifðu af skjálftann breyst í bar- áttu upp á líf og dauða og vegna fjar- veru lögreglu hefur borið á veru- legum gripdeildum. Komið hefur til bardaga vopnaðra hópa og sam- kvæmt fréttaveitu Reuters hefur reið- ur múgur tekið völdin í sínar hendur. Dæmi eru um að þeir sem gripn- ir voru glóðvolgir við gripdeildir hafi verið teknir af lífi án dóms og laga og haft er eftir fréttaritara Reuters að einn slíkur hafi verið brenndur lif- andi. Þrátt fyrir að borið hafi á grip- deildum og ofbeldi fer því þó fjarri að það sé einkennandi á Haítí. Sam- kvæmt fréttastofu AFP er einnig al- gengt að sjá Haíta, jafnvel þá sem staðið hafa í gripdeildum, deila því litla sem til er og líta eftir þeim sem eru mest þurfandi. Lokaðar götur Hundruð flutningabíla hlaðnir hjálp- argögnum hafa streymt frá flugvellin- um og miðstöð Sameinuðu þjóðanna í fylgd vopnaðra hermanna Samein- uðu þjóðanna og sett stefnuna á hin ýmsu borgarhverfi. Leið bílanna var vörðuð hópum fólks, líkbílum, líkum KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is „EINS OG DÓMSDAGUR“ Enn er leitað að lifandi fólki í rústum höfuð- borgar Haítí, Port-au- Prince, en um sjötíu manns hefur verið bjarg- að á lífi úr rústunum. Erfiðlega hefur gengið að koma neyðaraðstoð til þurfandi fólks og örvænting og reiði hefur valdið gripdeildum og ofbeldi. Ástandið vestur af Port-au-Prince er að sögn vitna jafnvel verra en í höfuðborginni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.