Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2010, Page 17
FRÉTTIR 18. janúar 2009 MÁNUDAGUR 17
og jafnvel vegatálmum sem fólk hafði
sett upp.
Sem fyrr segir hafa margir brugð-
ið á það ráð að yfirgefa borgina í von
um betri lífsbjörg í sveitunum. Aðrir
hafa flykkst til flugvallarins í von um
að komast um borð í flugvélar sem
komu hlaðnar hjálpargögnum, en
fara hlaðnar Haítum, en her Banda-
ríkjanna hefur verið afhent stjórn
flugvallarins.
Augu alþjóðasamfélagsins hafa
hingað til beinst að höfuðborg Ha-
ítí, en samkvæmt fyrstu fregnum er
ástandið síst betra vestur af Port-
au-Prince þar sem jarðskjálftinn átti
upptök sín. Að sögn fréttamanns BBC
er tjónið þar jafnvel enn hörmulegra
en í höfuðborginni og sagði hann að
ástandið þar væri líkt og á „dóms-
degi“, þúsundir manns væru komn-
ar á vergang og nánast hver einasta
bygging rústir einar.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
einuðu þjóðunum eru 80 til 90 pró-
sent mannvirkja í Leogane, 19 kíló-
metrum vestur af höfuðborginni, í
rúst, en íslenska sveitin kom þar í gær
og verður þar í dag.
Vörubílar hlaðnir líkum
Vörubílum hlöðnum líkum hefur
verið ekið að fjöldagröfum sem tekn-
ar voru í hasti fyrir utan borgina, en
talið er að fjöldi líka sem enn eru
grafin undir rústum hlaupi á tugum
þúsunda.
Ríkisstjórn Haítí, sem reynir hvað
hún getur til að vera starfhæf, telur
að fjöldi látinna sé á milli 100.000 og
200.000 þúsund.
Fyrir utan aðalspítala Port-au-
Prince er fjöldi líka sem rotna í sól-
inni og í spítalagarðinum er fjöldi
slasaðra liggjandi í rúmum.
„Allt á Haítí er í molum. Öll ráðu-
neyti eru hrunin. Ekki er að finna
eina manneskju í landinu sem ekki
hefur misst ættingja eða vin,“ sagði
Marie Laurence Jocelyn Lassegue,
upplýsingaráðherra Haítí. „Þeg-
ar sagt er að ríkisstjórnin sé sein til
erum við sannarlega að gera okkar
besta.“
Kapphlaup við tímann
Á sunnudag tókst björgunarsveitum
að bjarga þremur úr rústum Port-
au-Prince og samkvæmt Sameinuðu
þjóðunum var tólf manns bjargað á
laugardaginn. Samtals hefur yfir sjö-
tíu manns verið bjargað á lífi úr rúst-
um húsa á Haítí. Þrátt fyrir að von-
ir um að margir finnist á lífi minnki
vinna björgunar- og leitarsveitir enn
hörðum höndum.
Sveitir frá 43 löndum eru stadd-
ar á Haítí, samtals rúmlega 1.700
manns og 161 leitarhundur, og hafa
að því er talið er farið yfir um 60 pró-
sent af þeim svæðum sem verst urðu
úti í jarðskjálftanum.
Tölur um látna eru á reiki en heil-
brigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna
áætlar að 40.000 til 50.000 hafi farist í
jarðskjálftanum, en nokkuð víst er að
tala látinna þegar upp er staðið mun
fara eftir því hvernig gengur að koma
skipulagi á neyðaraðstoð, matvæla-
flutning og læknisaðstoð.
„EINS OG DÓMSDAGUR“
Gísli Rafn Ólafsson, einn stjórnenda
björgunarsveitar ÍA á Haiti:
Íslenska björgunarsveitin fór
snemma í gærmorgun til borgar-
innar Léogane sem liggur í suð-
vestri af höfuðborginni Port au
Prince á Haítí. Léogane liggur
nær upptökum skjálftans og þar
hafa alþjóðlegar björgunarsveit-
ir ekki farið fyrr en nú. Gísli Rafn
Ólafsson mat aðstæður í borginni í
gærmorgun þegar hann flaug með
þyrlu yfir svæðið. „Allt að 70% af
húsum eru algjörlega eða að hluta
til hrunin. Það er settur forgangur
á að koma vatni og mat á til borg-
arinnar.“ Íslenska sveitin mun
vinna með breskri sveit og sveit
frá Katar. Þeir munu verja næstu
tveimur sólarhringum í Leógane.
Gísli segir að vonin um að finna
fólk á lífi sé enn til staðar. „Hér er
gott veður, ekki rignt og ekki kalt
og það heldur fólki lengur á lífi.
Það fundust þó nokkrir á lífi í gær
og í dag í Port au Prince. Það virðist
vera að byggingarmátinn hér á Ha-
ítí orsaki að meiri holrými mynd-
ast en annars staðar. Algengast er
í jarðskjálftum að hús falli alveg
saman. Við köllum það pönnu-
kökuhrun, þegar til dæmis fjórar
plötur af gólfi falla saman og ekk-
ert er á milli. Hér eru hins vegar
holrými og við leitum að þeim.“
Fjörtíu alþjóðlegar björgunar-
sveitir eru komnar til Haítí, en það
eru um 1.700 manns og 160 hund-
ar. Íslendingarnir voru með þeim
fyrstu sem komu og komu upp
búðum á flugvallarsvæðinu. „Það
er gaman að geta þess að Samein-
uðu þjóðirnar komu síðan á svæð-
ið og sögðu að við hefðum valið
gott svæði undir búðirnar okkar
og báðu okkar um að skipuleggja
hvar menn ættu að koma upp búð-
um. Okkar hópur hefur því verið
að skipuleggja gríðarmikið svæði.
Það að koma 1.700 manns fyrir í
tjaldbúðum er ekki auðvelt.“
Gísli segir að ekkert sé búið
að ákveða með heimferð. Sveitin
vinni áætluð verkefni og sjái svo
til. „Þetta er mikil erfiðisvinna og
við pössum upp á að drekka nógu
mikið vatn og borða nógu mikið.
Menn eru í góðu standi og mór-
allinn er mjög góður, menn eru
ánægðir með það starf sem við
gerum,“ segir Gísli og minnir á að
þeir horfi uppi á skelfilegar að-
stæður. „Andlegi þátturinn þarf að
vera með góðum hætti.“
„Okkur hefur verið vel tekið af
öllum Haítíbúum sem við höfum
hitt, fólk er mjög þakklátt. Það eru
allskonar sögusagnir í gangi að það
hafi verið ráðist á björgunarmenn,
en það er vitleysa. Hér eru einhver
glæpagengi sem berjast sín á milli
en við erum auðvitað látnir vera,“
segir Gísli. Hann segir að fjöldi líka
sem sem safnast saman á götum
sé mjög hár. „Þetta er með mestu
hamförum sem hafa dunið yfir í
heiminum í mjög langan tíma.“
Gísli gleðst yfir að Íslendingar
fylgist grannt með ferðum björg-
unarsveitarinnar. „Stuðningurinn
sem við fáum að heiman, heilla-
óskirnar sem við fáum send-
ar, hvernig okkar aðstandendur
heima fá stuðning frá velunnur-
um okkar - allt hjálpar þetta okk-
ur rosalega mikið. Allur móralsk-
ur stuðningur skiptir miklu máli.““
helgihrafn@dv.is
Stuðningurinn
mikils virði
Íslenska sveitin á Haítí Eru staddir í borginni Léogane þar sem eyðileggingin
er gríðarleg. MYND: LANDSBJÖRG
Dæmi eru um að þeir sem
gripnir voru glóðvolgir við
gripdeildir hafi verið tekn-
ir af lífi án dóms og laga
og haft er eftir fréttaritara
Reuters að einn slíkur hafi
verið brenndur lifandi.
Miðborg Port-au-Prince Leitun er að heillegu
húsi í höfuðborg Haítí. MYND: AFP
Björgunarmaður við störf Innan við hundrað
manns hafa fundist á lífi í rústum húsa. MYND: AFP
Í járnum á götunni Lögreglan gætir manns
sem grunaður er um gripdeildir. MYND: AFP
Við kirkjugarð í höfuðborginni Hörmulegt
ástand veldur því að fjöldi líka er grafinn í
fjöldagröfum fyrir utan Port-au-Prince. MYND: AFP
Götuhreinsun í höfuðborginni Lík, drasl
og hrörleg skýli hafa tafið fyrir flutningabílum
með hjálpargögn. MYND: AFP