Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2010, Qupperneq 19
Hver er maðurinn? „Sumarliði
Hvanndal.“
Hvaðan ertu? „Ég er ættaður úr
Borgarnesi en bý á Akureyri og er
búinn að búa þar undanfarin ár.“
Hvað drífur þig áfram? „Það er
gleði og glens.“
Hver er fyrsta minning þín úr
æsku? „Það var þegar ég vaknaði
um miðja nótt að míga á sjónvarpið
heima hjá mér. Ég hafði gengið í
svefni og mamma kom og vakti mig
þegar ég var að því.“
Hver er þín fyrirmynd? „Gene
Simmons í Kiss.“
Áhugamál? „Það er bara tónlist.“
Hvaða bók er á náttborðinu?
„Kepp calm and carry on. Þetta er
svona kreppuheilræðabók.“
Hver er eftirminnilegasta
kvikmynd sem þú hefur séð?
„Það er Exorcist. Hún er fyrsta
hryllingsmyndin sem ég sá og ég gat
ekki sofið í marga mánuði. Ég er enn
að hugsa um hana.“
Ertu Eurovision-aðdáandi?
„Ég horfi á þetta. Mér finnst lögin
yfirleitt ekkert góð en stemningin í
kringum þetta, partífílingurinn, er
skemmtilegur.“
Hvernig leið þér að komast
áfram? „Mjög vel. Þetta kom
skemmtilega á óvart og við vorum
ekki undir þetta búnir.“
Hver samdi dans Valmars fiðlu-
leikara? „Hann samdi þetta sjálfur á
æfingu kvöldið áður. Þá byrjaði hann
að haga sér svona eins og hálfviti
og við sögðum að hann yrði að gera
þetta eins í beinni útsendingu.“
Í HVAÐA SÆTI LENDIR ÍSLAND Á EM Í HANDBOLTA?
„Þeir vinna, ef þeir halda sér á jörðinni.“
SIGURÐUR ÁSGEIRSSON
58 ÁRA HÚSASMÍÐAMEISTARI
„Þeir lenda í þriðja sæti. Ég held að þeir
séu nægilega sterkir.“
ANDRI STEINN BIRGISSON
26 ÁRA KNATTSPYRNUMAÐUR
„Ég fylgist voðalega lítið með
handbolta.“
ÓLAFUR HÁKON ÓLAFSSON
19 ÁRA NEMI
„Við lendum í fjórða sæti.“
HENNING SÆVAR SVEINSSON
26 ÁRA ATVINNUBÍLSTJÓRI
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
SUMARLIÐI HVANNDAL
er einn af Hvanndalsbræðrum sem
komust áfram í Eurovision-keppni
RÚV um helgina. Hvanndalsbræður
fóru áfram með lagið Gleði og glens
ásamt laginu I’ll Be One More Day
sem Bubbi og Óskar Páll sömdu og
Jógvan Hansen flutti.
GRJÓTHARÐUR
AÐDÁANDI SIMMONS
„Þeir lenda í þriðja sæti.“
GUÐFINNUR BALDUR SKÆRINGSSON
21 ÁRS HÁSKÓLANEMI
MAÐUR DAGSINS
Viðhorf útgerðarmanna og þjóð-
ar um eignarhald veiðiréttinda fer
ekki saman. Fyrir hrun mátti ekki
á breytingar minnast vegna hættu
á hruni sem varð samt sem áður
án neinna breytinga eða íhlutun-
ar á fiskveiðistjórn. Sama vísan er
svo kveðin eftir hrun og svonefnd
firningarleið sögð aðför að grein-
inni. Jafnvel skal flotanum stefnt í
land í mótmælaskyni.
Nú liggur fyrir að eitt helsta hal-
dreipi Íslendinga er sjávarútveg-
ur og atvinnugreinin sú líklegasta
að halda okkur á floti í kreppunni.
Margir útvegsbændur eru ofur-
skuldsettir eftir að hafa keypt afla-
heimildir of dýru verði í góðær-
inu. Sumar útgerðir halda þó sjó
og gætu haldið áfram að óbreyttu.
Aðrar virðast mestmegnis hreið-
urgerð fyrir banka og/eða óskylda
starfsemi. Ríkisstjórnin ætti að kort-
leggja útgerðir landsins og gera upp
þær sem eiga sér engan rekstrar-
grundvöll, afskrifa skuldirnar en
innkalla á
móti aflaheimildir. Hin fyrirtæk-
in, sem stöndugri eru, gætu veitt
áfram sinn kvóta. Framsal og leiga
yrði jafnframt bönnuð. Með þessu
gætu útgerðir átt sitt framhaldslíf,
veitt sinn kvóta sjálfar og treysta á
þann arð sem sjávarfangið gefur.
Þannig myndi þjóðin losna við út-
gerðarfyrirtæki sem gera út á leigu-
brask og spákaupmennsku og opn-
ast myndi fyrir nýliðun með þeim
kvóta sem innkallaður væri. Hvern-
ig honum yrði úthlutað er svo ann-
að þrætuepli en uppboð þar sem
hæstbjóðendur hlytu
veiðiréttinn til ákveðins tíma er
ein leið, önnur svæðaskipting þar
sem allir gætu sótt fiskinn uns pott-
urinn er búinn, þriðja leiðin gæti
verið dagróðrakerfi að færeyskri fyr-
irmynd.
En annað væri líka hægt. Skipta
miðunum í djúpmið og grunnmið,
miða við tilteknar sjómílur, t.d. 50
mílur, og kvótasetja veiðirétt djúp-
miða og spyrða við stærri skip, leigja
þann rétt hæstbjóðendum en láta
smábátaflotann einoka grunnmiðin
með sín vistvænu veiðarfæri, hand-
færi og línu. Þar gæti ríkt dagakerfi
og stærri smábátarnir gert út megn-
ið af árinu en þeir minni að sumar-
lagi. Sjómenn myndu landa í sinni
heimahöfn og borga sínu byggð-
arlagi X krónur fyrir hvert landað
kíló, mismikið eftir tegundum. Við
þetta fengju sjávarþorpin sjálfstæð-
an tekjustofn og nytu á ný nálægð-
arinnar við fiskimiðin.
Margar leiðir eru færar til leið-
réttingar á núgildandi fiskveiði-
stjórnunarkerfi og um einhverja
þarf að sammælast. Kvótaframsalið
hefur sýnt sig að vera mistök, það
færði einstaklingum á silfurbakka
auð af þjóðareign, auð sem allir eða
engir áttu að njóta samkvæmt jafn-
ræðisreglu. Enn erfist þessi þjóðar-
eign og fólk telur sig eiga hana með
réttu þrátt fyrir að stjórnarskrá-
in segi ótvírætt annað. Umgengn-
in hefur líka verið slík að hundruð
milljóna hafa verið dregnar út úr
atvinnugreininni og skilið hana eft-
ir stórskulduga. Meira að segja hafa
menn virt að vettugi skýr ákvæði
stjórnarskrárinnar að veiðiréttur á
Íslandsmiðum sé ógildur sem veð
og megi ekki falla útlendingum í
skaut. Slík umgengni er forkastan-
leg, nærri landráðum. Staðreynd
engu að síður og ætti að sameina
alla rétthugsandi Íslendinga í því að
eignarhald auðlindarinnar verði að
vera óskorað þjóðarinnar en tíma-
bundinn nýtingaréttur standa út-
vegsbændum til boða. Menn geta
tuðað um útfærslur og leiðir og
drepið þannig málinu á dreif en
þegar litið er yfir völlinn, reynsl-
una, söguna, útrásina, auðmenn-
ina og atganginn allan þá sjáum við
í raun hversu íslenzkur sjávarútveg-
ur er öflugur, að geta haldið úti öllu
þessu sukki og svona lengi. En þetta
var bara fyrir fáa og nú þarf þjóð-
in á sínu floti að halda, hver einasti
kjaftur. Og það er hlutverk stjórn-
málamanna að ganga í verkið, hags-
munaaðilar gera það aldrei, hvorki í
þessari atvinnugrein né annarri.
Flotinn í land, allt í bál og brand
KJALLARI
MYNDIN
1 Auðmennirnir í London
Útrásarvíkingarnir í London búa á
misfallegum stöðum. Það fer ágætlega
um Björgólf Thor Björgólfsson og Hannes
Smárason í Notting Hill-hverfinu.
2 Turnsvítan á Borginni opin á 80
ára afmælinu
Hótel Borg fagnar afmæli.
3 Kysstust uppi á sviði
Leikkonurnar Meryl Streep og Sandra
Bullock stálu senunni á verðlaunahátíðinni
Critics’ Choice Movie Awards.
4 Cole fórnarlamb kynþáttahat-
urs - BBC biðst afsökunnar.
BBC bað Ashley Cole afsökunar á því að
hafa leyft tveimur fulltrúum breska
þjóðarflokksins að halda því fram
gagnrýnislaust í útvarpsþætti að Cole væri
ekki breskur að uppruna.
5 Guðbjartur: Starfaði aldrei fyrir
Björgólfsfeðga
Guðbjartur Hannesson, formaður
fjárleganefndar, segir það út í hött að
hann hafi starfað fyrir Björgólfsfeðga eins
og bloggarinn Jón Valur Jensson fullyrti.
6 Íslendingur rændur og byrlað
svefnlyf í Taílandi
Íslenskum ferðamanni var byrluð ólyfjan
og hann rændur af þremur konum á
hótelherbergi sínu á Pattaya-ströndinni í
Taílandi á laugardagsmorgunn.
7 Skortur á drykkjarvatni á Haítí
Hjálparstofnanir á Haítí keppast við
tímann við að útvega eftirlifandi íbúum
eyríkisins drykkjarvatn.
MEST LESIÐ á DV.is
UMRÆÐA 18. janúar 2010 MÁNUDAGUR 19
Glænýr Ólafur FH-ingurinn Ólafur Guðmundsson býr sig nú af kappi með íslenska landsliðinu undir sitt fyrsta stórmót A-landsliða
í handbolta. Ólafur þykir afar efnilegur og hver veit nema hann taki einn daginn við hlutverki nafna síns Stefánssonar, sem leiðtogi
íslenska liðsins. Hér er hann í þann mund að skora sitt fyrsta mark fyrir A-landsliðið, í Laugardalshöllinni gegn Portúgal. MYND RAKEL ÓSK
LÝÐUR ÁRNASON
heilbrigðisstarfsmaður
skrifar
„Umgengnin hefur líka
verið slík að hundruð
milljóna hafa verið
dregnar út úr atvinnu-
greininni...”