Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 3. mars 2010 FRÉTTIR Fimm stúlkur bjóða upp á nudd á nuddstofu þar sem „happy end- ing“ er lofað í lokin. Kúnninn ræð- ur hvort nuddarinn er nakinn eða í nærfötum þegar nuddið fer fram. Fyrir nuddara í nærfötum eru greiddar 15.000 krónur en 20.000 fyrir nakinn nuddara. Símanúmer nuddstofunnar eró- tísku er skráð í Reykjanesbæ þar sem þjónustan er kölluð sannkall- að sælu nudd. Þar er frábærri þjón- ustu lofað þar sem dekrað sé við viðskiptavini og þeir hvattir til að láta nuddið eftir sér. Afgreiðslutími hinnar erótísku nuddstofu er milli 11 og 23 alla daga vikunnar. Vændi en ekki nudd Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunn- ar á höfuðborgarsvæðinu, segir lög- regluna koma til með að rannsaka þessa tilteknu starfsemi. Áhersla er sem fyrr á umsjónarmenn stofunnar erótísku og þá sem kaupa þjónust- una. „Við munum skoða þetta, það er klárt. Við erum að spá í þetta allt saman. Það er forvitnilegt að vita hvað þetta „happy ending“ þýðir,“ segir Björgvin. Ruth Jensdóttir, fulltrúi siða- og kærunefndar Félags íslenskra heilsunuddara, lítur svo á að þjón- ustan auglýsta sé ekkert annað en vændisstarfsemi og hafi lítið með nudd að gera. Hún vonast til þess að enginn sinna félagsmanna bjóði upp á slíkt nudd. „Mín skoðun er einföld. Eins og þetta hljómar er þetta ekkert annað en vændi og per- sónulega er ég á móti því. Þetta er bara dulbúið vændi þar sem greitt er fyrir þjónustuna og ég set þetta ekk- ert í samband við nudd,“ segir Ruth. Orðið fyrir áreiti Ruth segir siðanefndina ekki taka á svona málum nema að um félags- menn sé að ræða. Aðspurð viður- kennir Ruth að hún sjálf hafi ítrek- að verið beðin um að ljúka þjónustu sinni með kynlífsgreiða. Hún bend- ir á að nemendur í nuddi séu var- aðir við þeim beiðnum. „Það verð- ur að vera skýr lína á milli nuddsins og svona kynlífsþjónustu. Við nudd- arar höfum alltaf orðið fyrir áreiti þar sem kúnnarnir biðja um eró- tískt nudd og að nuddið endi með alls konar greiðum gegn hærri greiðslu. Sumir nuddarar hafa orð- ið fyrir svona áreiti, karlarnir líka, og ég held að í náminu núna sé varað við þessu. Mér hefur þótt þetta pín- legt og ég man alltaf tilfinninguna hvernig mér leið fyrst þegar þetta gerðist,“ segir Ruth. Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu ætlar að rannsaka erótíska nuddstofu sem býður kúnnum upp á svokallað sælunudd. Ruth Jensdóttir, fulltrúi siðanefndar Félags íslenskra heilsunuddara, segir þjónustuna vera vændi sem eigi ekkert skylt við nudd. NUDDARAR LOFA „HAPPY ENDING“ n „Það er hægt að velja úr fimm stúlkum. Menn geta valið á milli þess hvort stelpan sé alveg nakin eða í nærfötum, 15.000 í nærfötum en 20.000 nakin. Við erum alltaf með kerti og svona slakandi tónlist i bakgrunninum til að gera þetta soldið rómó. En við sem sagt byrjum á að bera olíu á okkur allar og þú getur fylgst með. Þú myndir liggja á maganum fyrst og ég sest ofan á þig og ber þig allan með olíu og nudda bakið og axlirnar, rassinn og lærin og renni mér svona eftir líkamanum þínum. Svo þegar þú snýrð þér við sest ég fyrst ofan á þig þannig að ég sný bakinu að þér og nudda á þær fæturnar og lærin betur. Þá getur þú líka séð rassinn minn almennilega og svona. Ég leyfi alveg snertingu, þú mátt strjúka og finna annars endar nuddið alltaf á happy ending og ég myndi gera mitt besta til að láta þér líða sem best.“ Lýsing nuddaranna á meðferðinni: TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Við nuddarar höfum alltaf orðið fyrir áreiti þar sem kúnnarnir biðja um erótískt nudd og að nuddið endi með alls konar greiðum gegn hærri greiðslu. Nakin eða í nærfötum Kúnnar nuddstof- unnar fá að velja hvort nuddstúlkan sé nakin eða í nærfötum. Verðmunur er á því en í báð- um tilvikum er lofað „happy ending“. Myndin tengist fréttinni ekki beint. MYND PHOTOS.COM „Við erum með stóran hóp fanga sem er í endurhæfingu og aðlögun hjá okkur. Við höfum mikla reynslu af föngum og sjáum að leggja þarf sér- staka áherslu á málefni þeirra. Við upplifum hræðslu hjá föngunum við að fá frelsið á nýjan leik,“ segir Hjalti Kjartansson, framkvæmdastjóri EKRON, atvinnutengdrar endurhæf- ingar. Í mánudagsblaði DV kom fram í viðtali við Þór Óliver Gunnlaugs- son fanga að hann óttaðist frelsið en hann lýkur langri fangelsisvist síðla næsta árs. Hjalti kannast vel við lýs- ingu fangans á upplifun hans því að það sé afar erfitt fyrir fanga að fóta sig aftur í samfélaginu að lokinni af- plánun. „Það er mjög erfitt fyrir fyrr- verandi fanga að komast út í samfé- lagið á ný. Við þekkjum það vel og það er reynsla okkar af samstarfi við fangana. Þetta er nákvæmlega svona sem þetta er,“ segir Hjalti. Meðal þeirra einstaklinga sem leita sér aðstoðar hjá EKRON eru fangar í afplánun og fangar sem lokið hafa afplánun. Þeim er boðið upp á ýmiss konar uppbyggingarstarf með það fyrir augum að gera þá hæfari til að takast á við lífið eftir fangelsisvist. Hjalti segist finna mikið þakklæti hjá þeim föngum sem hafa leitað til hans en mikið skorti enn í endurhæfingar- málum fanga hérlendis. „Það er mitt mat að aðlögun og endurhæfingu eftir afplánun skorti mjög hér á landi. Við þurfum að mæta þessum föng- um og hjálpa þeim að komast aftur út í samfélagið. Í þessum hópi liggur auður og við þurfum að mæta þeim þar sem þeir eru staddir. Endurhæf- inguna þurfum við síðan að byggja upp skref yfir skref. Ég finn mikið þakklæti hjá þeim föngum sem við náum að hjálpa og árangur okkar er mjög góður, stærstur hluti þeirra nær að koma undir sig fótunum á nýjan leik,“ segir Hjalti. trausti@dv.is Hjalti Kjartansson vill betri endurhæfingu fyrir fanga: Skortir aðlögun eftir afplánun Þurfa hjálpina Að mati Hjalta eru fangar þakklátur hópur sem þarfnast virkilega aðstoð- ar við að koma undir sig fótunum á nýjan leik. Fábjánar og skoðanir þeirra „Það er eðlilegt að í öllum þjóðfé- lögum eru fábjánar og þeir eiga rétt á skoðunum sínum eins og aðrir. Hins vegar finnst mér að fjölmiðlar eigi ekki að gera skoðunum fábjána jafnhátt undir höfði eins og úthugs- uðum skoðunum hjá greindu fólki,“ sagði Þráinn Bertelsson í útvarps- þættinum Í bítið á þriðjudag. Hann svaraði þar gagnrýni á listamanna- laun en samkvæmt netleik þáttar- ins þar sem spurt er um afstöðu til listamannalauna kom fram mikil andstaða við þau. Sagði Þráinn að fimm prósent þjóðarinnar væru fábjánar. Bjargað upp úr gjótu Um klukkan 11.30 á þriðjudag voru undanfarar björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu kallaðir út vegna konu sem féll í sprungu mitt á milli Valabóls og Húsfells, rétt ofan við Hafnarfjörð. Konan sat föst á um 4–5 metra dýpt. Meðlimir Slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins komu einnig á vettvang. Konan var ásamt annarri á göngu á svæðinu og steig á snjó er huldi sprunguna með fyrr- greindum afleiðingum. Björgunarsveitamenn sigu í sprunguna eftir konunni og um klukkan 12.45 náðu þeir henni upp. Reyndist hún ómeidd. Vilja losna við vínauglýsingar Þingmenn vinstri grænna, Ög- mundur Jónasson og Þuríður Backman, hafa lagt fram frum- varp til laga um breytingu á áfengislögum. Er þetta í sjötta skipti sem frumvarp gegn dul- búnum auglýsingum á áfengum drykkjum er lögð fyrir Alþingi. Ögmundur og Þuríður vilja með frumvarpinu loka því gati sem virðist vera á löggjöfinni þannig að framleiðendur og dreifingaraðilar geti ekki farið í kringum bann við auglýsingum á áfengi og einstökum áfengis- tegundum með því að nota lík- ar umbúðir og nöfn á óáfenga drykki sem þeir svo auglýsa, segir í frumvarpinu. Skötusel kannski fórnað fyrir sátt „Það er ekki útilokað að skötusels- ákvæðinu svokallaða verði frestað um einhvern tíma á meðan menn freista þess að ná samkomulagi enda er það markmiðið,“ segir Björn Valur Gíslason, þingmaður vinstri grænna í sjávarútvegs- og landbún- aðarnefnd. Miklar deilur hafa verið um nýtt frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. „Menn hafa engan áhuga á að fara í breytingar sem viðhalda því stríði sem ríkt hefur í þessari grein undanfarna áratugi,“ bætir Björn við. Frumvarpið er nú til umræðu í sjávarútvegsnefnd og ekki hefur verið ákveðið hvenær það verður af- greitt úr nefnd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.