Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Blaðsíða 9
„Já, að sjálfsögðu kjósum við. Við höfum aldrei látið okkur vanta á kjörstað enda erum við fólk með skoðanir,“ segir Eva Sigurbjörns- dóttir, hótelstýra á Hótel Djúpavík. Ákveðið hefur verið að moka veg- inn frá Djúpavík norður til Trékyllis- víkur meðal annars vegna fyrirhug- aðrar þjóðaratkvæðugreiðslu um Icesave-málið. Eva og eiginmaður hennar Ásbjörn Þorgilsson kom- ast þá loks til annarra íbúa í Árnes- hreppi á Ströndum en þau hafa búið við algjöra einangrun í Djúpavík, þar sem þau búa ein á veturna. Vegurinn frá Hólmavík til Árnes- hrepps verður ekki ruddur fyrr en eftir 20. mars og eru íbúar í hreppn- um ósáttir við fyrirkomulagið því að þeir komast hvergi úr hreppn- um nema með flugi tvisvar í viku til Reykjavíkur. Þá fannst mörgum steininn taka úr á laugardaginn þegar símkerfið lá niðri svo klukku- stundum skipti. Föst inni og símalaus „Þessi orrusta er unnin en stríð- inu er ekki lokið,“ segir Eva á Hótel Djúpavík. Eins og DV hefur greint frá ætla Eva og Ásbjörn að kæra samgöngu- og sveitarstjórnarráðu- neytið. „Okkur finnst að brotið sé á jafnræðisreglu stjórnsýslulaganna en hún kveður á um að jafnræðis sé gætt í úrlausnum mála.“ Eins og DV hefur sagt frá hafa stjórnvöld dregið úr snjómokstri í Árneshreppi en vegurinn til Hólma- víkur, sem tengir sveitarfélagið landleiðina við umheiminn, er ekki skafinn af Vegagerðinni frá janúar þangað til vorar. Eina leiðin til og frá hreppnum er með flugi en níu manna vél Flugfélagsins Ernis flýgur frá hreppnum til Reykjavíkur tvisvar í viku. Í tilfelli hjónanna í Djúpavík bætist við að vegatenging þeirra við aðra íbúa í Árneshreppi lokast við þetta. Þegar símkerfið í hreppnum bilaði á laugardaginn einangruðust hjónin algjörlega og hefðu til dæmis ekki getað beðið um læknisaðstoð ef eitthvað hefði komið upp á. Slengt aftur um áratug Svokölluð G-regla hefur gilt um veg- inn frá Hólmavík til Árneshrepps, en G-vegur er í bókum Vegagerð- arinnar ekki mokaður frá nóvem- ber og fram í mars. „Þessi regla hef- ur ekki verið í praxís hér, við höfum síðustu árin fengið mokstur fram að áramótum og eftir það af og til þeg- ar tíðarfarið hefur verið gott. En í sparnaðinum núna beita þeir allt í einu þessari reglu sem Vegagerð- in hefur ekki farið eftir í 12 ár. Þeir eru að slengja okkur aftur um heil- an áratug. Við erum lögaðilar, höf- um rekið hótel hér í 25 ár og njótum ekki sömu meðferðar og samkeppn- isaðilar okkar á öðrum stöðum. Það virðist vera að þeir vilji spara meira á sumum stöðum en öðrum,“ seg- ir Eva sem vinnur nú að kærunni á hendur Kristjáni L. Möller, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra. Dýrt að ferðast Um 50 manns búa í Árneshreppi, hann er fámennasti hreppur lands- ins og eina sveitarfélag landsins þar sem aðalsamgönguæðin á landi getur lokast. Oddný Þórðardóttir, oddviti hreppsins, segir einangr- unina auðvitað slæma. „Hér verð- ur ekki opnað fyrr en eftir 20. mars. Það er spurning hvort þetta sé við- unandi nú á dögum. Ungt fólk er kannski ekki tilbúið að búa á svona stað, ef það getur ekki farið og kom- ið að vild. Þetta hamlar samskipt- um okkar við sveitarfélögin hér í kring. Maður getur í raun ekki farið nema með töluverðum tilkostnaði,“ segir Oddný. Flug til Reykjavíkur er eina leið íbúanna í Árneshreppi til að komast í samband við um- heiminn þegar vegurinn er lokað- ur. Flugið kostar 11.700 krónur aðra leið. Læknir kemst ekki „Á laugardaginn var heimasím- inn gjörsamlega úti, en rafmagn- ið hafði farið af um nóttina, og var ekki kominn í gagnið fyrr en klukk- an 16,“ segir Jóhanna Ósk Kristjáns- dóttir, íbúi í Árnesi. Hún hefur ver- ið mjög ósátt við samgöngumálin í hreppnum og segir steininn taka úr þegar símanum er kippt úr sam- bandi í þokkabót og þar við bætist að farsímasamband er mjög stopult á svæðinu. 3G-háhraðaneti hefur nú verið komið upp í hreppnum en það mun þó ekki vera komið í gagn- ið alls staðar. Þá nefnir Jóhanna Ósk að læknisþjónustan sé af skornum skammti. „Læknir frá Hólmavík kemur einu sinni í mánuði, og mað- ur verður helst að vera veikur þá,“ segir Jóhanna, „og hann kemst ekki með góðu móti auðvitað ef vegur- inn er lokaður og ég tala nú ekki um þegar símkerfið liggur niðri.“ FRÉTTIR 3. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR 9 Fyrsta myndin af varðskipinu CNN í Chile birti mynd af varðskipinu Þór í fréttaflutningi af skemmdum í hafnarborginni Talcahuano þar sem Asmar-skipasmíðastöðvarnar eru. Hvorki Georg Kr. Lárusson forstjóri né Ingvar Kristjánsson, forstöðumaður skipatæknisviðs Landhelgisgæslunn- ar, höfðu séð myndina þegar DV sýndi þeim hana. Þeir sögðu að við fyrstu sýn virtist myndin sýna að skipið hall- aði ekki jafnmikið og áður var talið og það séu afar góðar fréttir. Flóðbylgja kastaði skipum og bát- um inn á götur Talcahuano en svo virðist sem Þór hafi sloppið ágætlega. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar ætluðu á þriðjudag að freista þess að ferðast til Santiago þar sem ástandið er ekki jafnslæmt og í borginni Con- cepción, þar sem skjálftinn mikli olli gríðarlegri eyðileggingu. MOKA ÚT ÍBÚA TIL AÐ KJÓSA Íbúar í Árneshreppi eru mjög ósáttir við einangrunina sem þeir lenda í vegna sparn- aðaraðgerða Vegagerðarinnar. Eva Sigurbjörnsdóttir og Ásbjörn Þorgilsson verða leyst úr algjörri prísund sinni vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag. Þessi orrusta er unnin en stríðinu er ekki lokið. Einangrast Hótel Djúpavík er rekið af Evu Sigurbjörnsdóttur og Ásbirni Þorgilssyni sem lokast tvö inni á svæðinu vegna snjóa á vegum og geta ekki tekið á móti gestum. MYNDIR EVA SIGURBJÖRNSDÓTTIR Vilja ekki skafa Vegagerðin hefur skorið niður snjómokstur og enginn kemst til Árneshrepps nema með kostnaðarsömu flugi. Enginn leki hjá mér Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sak- sóknari, hafnar því að rannsóknar- gögnum sé lekið í fjölmiðla af hálfu starfsmanna embættisins. Hann seg- ir í tilkynningu að ekkert hafi kom- ið fram sem renni stoðum undir sögusagnir þess efnis. „Sérstakur saksóknari og aðrir rannsókn- araðilar hafi síður en svo hag af því að rannsóknarupp- lýsingar séu birtar í fjölmiðlum,“ segir í tilkynningu. Segir enn fremur í tilkynningunni að starfsmenn embættisins hafi ekki einir aðgang að rannsóknargögnun- um heldur hafi gögnin verið afhent verjendum sakborninga í málum sem eru til rannsóknar við embættið. Stakk keppinaut um ástir konu Hans Alfreð Kristjánsson var á þriðjudag dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir hættulega lík- amsárás. Hann stakk mann með hnífi ofarlega á framanverðan brjóstkassann í íbúð í fjölbýlishúsi á Akureyri í júní í fyrra. Hans Alfreð var þá gestkom- andi hjá vinkonu sinni þegar mað- urinn sem varð fyrir árásinni kom þangað. Hans Alfreð var ósáttur við komu mannsins sem hafði gert sér dælt við vinkonu Hans þegar hann var í fangelsi. Lauk samskipt- um þeirra með því að Hans stakk manninn. Kjaftshögg fyrir ríkisstjórnina Einar Kristinn Guðfinnson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, segir skoðana- könnun Capacent um traust Íslend- inga á núverandi ríkisstjórn vera kjaftshögg fyr- ir meirihlut- ann. „Þetta er eitt mesta kjaftshögg sem nokkur ríkis- stjórn getur feng- ið. Ríkisstjórn, sem fær þann dóm þjóðarinnar að henni sé ekki trey- standi fyrir þjóðarhagsmunum í sam- skiptum við aðrar þjóðir, á ekki leng- ur trúnað þjóðarinnar. Og þegar hann er farinn er lífsneistinn slokknaður,“ skrifar Einar K. á heimasíðu sína. Samkvæmt könnuninni treystir einungis fjórðungur landsmanna rík- isstjórninni til að gæta hagsmuna Ís- lendinga í samningum við ESB. HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.