Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 3. mars 2010 FRÉTTIR Skilanefnd Glitnis vildi lána Moderna, dótturfélagi Milestone, rúma 20 milljarða í ársbyrjun 2009. Árni Tómassson skilanefnd- arformaður taldi þetta þjóna hagsmunum skilanefndarinnar. Sænska fjármálaeftirlitið setti sig upp á móti endurskipulagn- ingunni sem talin var „óraunhæf“ og lét hörð orð falla um stjórn- endur Milestone. Glitnir banki bauð sænska félag- inu Moderna AB rúma 20 milljarða króna að láni í janúar í fyrra til að bjarga þessu félagi þeirra Karls og Steingríms Wernerssona frá þroti. Eignir Milestone-samstæðunnar eins og Sjóvá, Askar og Avant höfðu verið fluttar inn í Moderna AB frá Milestone á Íslandi í ársbyrjun 2008 og héldu því utan um þessar eign- ir þegar þetta var. Íslenska eignar- haldsfélagið Milestone, sem var í eigu þeirra Karls og Steingríms, var hins vegar móðurfélag Moderna. Viðræður um fjárhagslega end- urskipulagningu Moderna AB höfðu staðið yfir við sænska fjármálaeftir- litið frá bankahruninu haustið 2008 en staða Milestone-stamstæðunnar versnaði til muna í hruninu. Í kjöl- farið hófust mikil samskipti á milli sænska fjármálaeftirlitsins þar sem stofnunin taldi Moderna ekki nægi- lega fjárhagslega burðugt til að geta staðið við skuldbindingar sínar. Sænska fjármálaeftirlitið setti það sem skilyrði að eiginfjárstaða Moderna yrði bætt til að stofnunin gæti stutt endurskipulagningu fé- lagsins. Þessi lausafjárinnspýting átti að koma frá Glitni, sem jafn- framt var stærsti kröfuhafi Mile- stone, og sendi Árni Tómasson, for- maður skilanefndar Glitnis, bréf með vilyrði um lánafyrirgreiðsluna til Moderna í lok janúar 2009. Vilyrðið um lán var rökstutt með tilvísun til þeirra gríðarlegu hags- muna sem Glitnir átti að gæta hjá Milestone-samstæðunni. Lánafyrir- greiðslan var háð því að kröfu- hafaráð Glitnis samþykkti lánin til Mile stone en bankinn átti að verða eigandi 67 prósenta hlutafjár í Mile- stone í kjölfarið á endurskipulagn- ingu félagsins. Með þessu taldi skilanefndin sig vera að verja bet- ur hag kröfuhafa Milestone en ef af endurskipulagningunni hefði orðið hefði Moderna ekki verið neytt til að selja eignir sínar í Svíþjóð. Milljarðar áttu að fara til Lehman Heildarfjárhæðin sem Árni veitti Moderna vilyrði fyrir hljóðaði upp á 1.480 milljónir sænskra króna. Í bréfi Árna til Moderna var útlistað hvernig verja ætti þessum fjármun- um: 258 milljónir átti að nota til að greiða upp lán við Glitni; 425 millj- ónir áttu að fara í endurfjármögnun á láni hjá Lehman-bræðrum og 797 milljónir átti að nota til að endur- greiða ýmis önnur lán, meðal ann- ars innan Milestone-samstæðunn- ar. Bréf Árna var svar við bréfi frá sænska fjármálaeftirlitinu 28. janú- ar þar sem stjórn Moderna var lát- in vita af því að hún þyrfti að tryggja sér 1.500 milljónir sænskra króna út af endurskipulagningu félags- ins. Fyrir þann tíma hafði fjármála- eftirlitið sænska sagt að Moderna þyrfti 700 milljónir sænskra króna út af endurskipulagningu félagsins. Fjármálaeftirlitið gaf Moderna 36 tíma til að safna peningunum og lét stjórnin, sem Karl Wernersson fór fyrir, óánægju sína í ljós með þenn- an skamman fyrrivara í bréfi til fjár- málaeftirlitsins. Samtals hefðu þessi lán numið rúmum 20 milljörðum króna á gengi dagsins 30. janúar 2009. Lánin hefðu þá bæst við þá tæplega 44 milljarða króna sem Milestone skuldaði Glitni samkvæmt kröfuskrá þrotabús fé- lagsins. Af lánafyrirgreiðslunnni varð þó ekki á endanum. Tekið skal fram að þessar viðræð- ur áttu sér stað áður en komið var í ljós hvernig Milestone hafði leikið tryggingafélagið Sjóvá: Skilið eftir um tíu milljarða króna gat í eigna- safni þess sem kom í veg fyrir að tryggingafélagið gæti staðið við lög- bundnar vátryggingaskuldbinding- ar sínar. Í reynd hafði Sjóvá fengið frest frá Fjármálaeftirlitinu íslenska í janúar til að bæta eignasafn félags- ins svo það stæðist lögbundin skil- yrði um gjaldþol tryggingafélaga. Meirihlutinn af þeim upplýsingum sem komið hafa fram um glæfraleg- an rekstur Sjóvár var því óþekktur á þessum tíma. Vildi tryggja framtíð Moderna Ástæða skilanefndar Glitnis fyrir þessum lánveitingum kemur fram í öðru bréfi frá Árna til Moderna sem dagsett var tveimur dögum á undan, 28. janúar 2009. Þar segir Árni að skilanefnd Glitnis sé meðvituð um að sænskar eignir Moderna, fjármála- og trygg- ingafyrirtækið Invik, séu í söluferli en að bankinn sé andsnúinn því að eignirnar verði seldar: „Glitnir banki hf. er á þeirri skoðun að það þjóni ekki hagsmunum bankans og ann- arra kröfuhafa Moderna Finance AB að halda áfram með söluferlið. Ljóst er að fyrirtækið hefur þann valkost að tryggja eðlilega starfsemi sína og fjárhagslegan grundvöll félags- ins og dótturfélaga með eiginfjárm- framlagi,“ sagði Árni í bréfinu en andstaða Glitnis við sölu eignanna byggðist á því að verið væri að selja þær á brunaútsölu. Árni sagði í lok bréfsins að Glitnir styddi endurfjármögnun Moderna og að bankinn væri staðráðinn í að fjármagna eiginfjárframlagið til fé- lagsins. Ástæðan fyrir því að sænska fjár- máleftirlitið beitti sér svo mjög í Moderna-málinu var sú að stofn- unin þurfti að hugsa um hagsmuni viðskiptavina dótturfélaga Moderna í Svíþjóð sem áttu á hættu að tapa á falli félagsins á sambærilegan hátt og viðskiptavinir íslensku bankanna í bankahruninu 2008 eða viðskipta- vinir Sjóvár í fyrra. Þess vegna þurfti rekstur Moderna að vera traustur og eiginfjárstaðan eðlileg. Sænska fjármálaeftirlitið taldi hugmyndirnar óraunhæfar Þrátt fyrir vilyrði Glitnis um lánafyr- irgreiðslu til Moderna taldi sænska fjármálaeftirlitið að þessar hug- myndir um endurskipulagningu væru ófullnægjandi. Stofnunin hafði í desember sagt við stjórnend- ur Milestone að hugmyndir þeirra um endurskipulagningu Moderna væru „óraunhæfar“ og var þessi skoðun endurtekin þrátt fyrir vilyrði Glitnis um lánafyrirgreiðslu til Mod- erna. Í svarbréfi fjármálaeftirlitsins til Moderna segir: „Fjármálaeftirlitið hefur farið yfir gögn- in en skoðarnir okk- ar eru óbreyttar. Það er mat fjármálaeftir- litsins að tillögurnar sem lagðar hafa ver- ið fram svari vanda- málunum ekki á fullnægjandi hátt...“ en hér var fyrst og fremst átt við eig- infjárstöðu Mod- erna sem sænska stofnunin taldi ekki nægilega góða í til- felli Moderna til að félagið gæti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart lán- ardrottnum sín- um. Lánum Glitnis var vitanlega ætlað að gera bragarbót á þessari lausa- fjárstöðu. „Fjár- málaeftirlitið vill einnig benda á að eigendur félaga sem lúta reglum stofnunarinnar eru skuldbundnir til að tryggja að öll félög þeirra fari eftir reglum og eigi það eigið fé sem þau þurfa til að mæta skuldbinding- um sínum,“ segir í bréfinu en af því að dæma er ljóst að sænska fjár- málaeftirlitið er ekkert lamb að leika sér við. Milestone þurfti meira fé Í bréfinu kom fram að þær 1.480 milljónir sænskra króna sem Glitnir hafði lofað að lána Mod- erna dygðu ekki til að Moderna gæti staðið við skuldbindingar sínar. Að mati sænska fjármáleft- irlitsins þurfti félagið að fá rúmar 1.650 milljónir sænskra króna að láni til að geta gert þetta. Moderna hefði því þurft að verða sér úti um tæpar 200 milljónir, meira en 2,5 milljarða króna, til viðbótar. Auk þess setti sænska fjármála- eftirlitið út á að Glitnir ætti að eiga 2/3 hluta í Milestone, og þar með n Milestone var eignarhaldsfélag sem átti meðal annars Sjóvá, Askar Capital, fjármögnunarfyrirtækið Avant og hlut í Glitni í gegnum dótturfélag sitt. Eigendur félagsins voru Karl og Steingrímur Wernerssynir. Félagið flutti eignir sínar til Svíþjóðar í ársbyrjun 2008. Félagið sem hélt utan um eignir Milestone í Svíþjóð hét Moderna Finance AB. Auk áðurnefndra íslenskra eigna átti Moderna fjármála- og tryggingafélagið Invik auk fleiri félaga. Félagið fór á hliðina í bankahruninu 2008, meðal annars vegna falls Glitnis. Félagið átti í nokkurra mánaða löngum samningaviðræðum við lánardrottna sína vegna mögulegrar endurskipulagn- ingar félagsins í lok árs 2008 og byrjun árs 2009. Þessar viðræður fóru út um þúfur á endanum, meðal annars vegna þess að sænska fjármálaeftirlitið setti sig upp á móti þeim. Eftir að kröfuhafar félagsins tóku það yfir kom í ljós að rekstur félagsins hafði verið glórulítill og hafði félagið meðal annars misfarið með bótasjóð Sjóvár. Það mál er nú til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara. Milestone varð gjaldþrota í fyrra og nema kröfurnar í þrotabúið um 100 milljörðum króna. Hvað var Milestone? VILDI LÁNA MILESTONE 20 MILLJARÐA Í FYRRA INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is Glitnir banki hf. er á þeirri skoð- un að það þjóni ekki hagsmunum bankans og annarra kröfuhafa Mod- erna Finance AB að halda áfram með söluferlið. Milestone á bláþræði Eignarhaldsfélagið Milestone og dótturfélög þess héngu á bláþræði í ársbyrjun í fyrra og reyndu eigendur þess að tryggja framtíðina með því að leita til Glitnis eftir lánum. Guð- mundur Ólason var forstjóri Milestone og Karl Wernersson helsti eigandi félagsins. Bauð lán Bréf Árna til Moderna þar sem hann bauð félag-inu lán frá Glitni í lok janúar í fyrra. Sænska fjármáleftirlitið taldi lánið ekki nógu hátt og fór hörðum orðum um hæfi stjórnenda Milestone í bréfaskiptum við félagið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.