Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Síða 11
FRÉTTIR 3. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR 11 Úr bréfum sænska fjármálaeftirlitsins til Milestone á fyrri hluta árs 2009: n „Moderna Finance-samstæðan er í alvarlegu ásigkomulagi og hefur nú þegar farið á svig við reglur.“ n „Fjármálaeftirlitið hefur farið yfir gögnin en skoðarnir okkar eru óbreyttar. Það er mat fjármálaeftirlitsins að tillögurnar sem lagðar hafa verið fram svari vandamálunum ekki á fullnægjandi hátt...“ n „Fjármálaeftirlitið vill einnig benda á að eigendur félaga sem lúta reglum stofnunarinnar eru skuldbundnir til að tryggja að öll félög þeirra fari eftir reglum og eigi það eigið fé sem þau þurfa til að mæta skuldbindingum sínum.“ n „Fjármálaeftirlitið lítur svo á að stjórn Moderna Finance eigi að halda áfram með söluferlið líkt og kemur fram í bréfinu 30 janúar. Samkvæmt þeim upplýsingum sem sænska fjármálaeftirlitið hefur þarf Moderna Finance AB að gefa væntan- legum kaupendum tryggingafélaganna Moderna Försakringar Sak og Moderna Försakringar Liv svar sitt fyrir fimmtudag/föstudag í þessari viku. Þess vegna þarf að ljúka söluferlinu hratt og örugglega.“ n „Enn fremur hefur fjármálaeftirlitið áhyggjur af því hvort líta eigi á Milestone sem traustan og áreiðanlegan eiganda fjármálasamstæðu.“ n „Skoðun fjármálaeftirlitsins er sú að vankantarnir séu þess eðlis að það sé nauðsynlegt að efast stórlega um sérfræðiþekkingu og getu æðstu stjórnenda dótturfélaganna til að stjórna þeim vegna þeirra erfiðleika sem nú steðja að fjármálamörkuðum.“ n „Í ljósi alvarlegrar stöðu dótturfélaganna verði ekki gefinn langur tími til svara. Skriflegar athugasemdir Milestone um þetta bréf þurfa að hafa borist til sænska fjármálaeftirlitsins fyrir 10. febrúar 2009. Fjármálaeftirlitið mun þá taka ákvörðun um hvort gripið verður inn í rekstur félagsins. Stjórn stofnunarinnar mun taka slíka ákvörðun. Fjármálaeftirlitið kann að taka ákvörðun varðandi þetta efni hvort svo sem Milestone sendi athugasemdir sínar eða ekki.“ n „Stjórnendurnir halda því fram að þeir viti ekki að það vanti eigið fé og lausafé inn í félagið... Það verður að teljast vera ein af grunnskyldum stjórnendanna að geta áttað sig á því hversu mikið fjármagn samstæða þurfi. Það er alvarlegt að stjórnendurnir séu ekki meðvitaðir um slíkt grundvallaratriði.“ Harðorðir Svíar óbeint í Moderna AB og þar með sænsku fjármála- og tryggingafé- lagi, án þess að áreiðanleikakönnun hefði farið fram á bankanum og því hefði ekki svarað hvort hann væri hæfur til að eiga fjármála- og trygg- ingafyrirtæki í Svíþjóð. Jafnframt sagði í bréfinu að fjár- málaeftirlitið hefði áhyggjur af því að Milestone teldist sennilega ekki lengur vera „traustur og áreiðan- legur (e. fit and proper) eigandi fjár- málasamstæðunnar“ og að stofnun- in væri nú byrjuð að velta fyrir sér þessari spurningu. Ljóst er því að gagnrýni fjármálaeftirlitsins sænska gegn Milestone byggðist alls ekki eingöngu á fjárhagslegum rökum en fjöldamörg ummæli úr bréfum þeirra til Moderna benda til þess að starfsmenn stofnunarinnar hafi haft miklar efasemdir um hæfi Mile- stone til að eiga og reka fjármála- samstæðu. Áttu að ljúka söluferlinu hratt og örugglega Niðurstaða sænska fjármáleftirlits- ins var því sú, þrátt fyrir loforð Glitn- is um lánafyrirgreiðslu til Moderna til að félagið gæti haldið eignum í Svíþjóð, að stjórn Moderna ætti að halda áfram söluferlinu á eignum sínum: „Fjármálaeftirlitið lítur svo á að stjórn Moderna Finance eigi að halda áfram með söluferlið líkt og kemur fram í bréfinu 30. janúar. Samkvæmt þeim upplýsingum sem sænska fjármálaeftirlitið hefur þarf Moderna Finance AB að gefa vænt- anlegum kaupendum tryggingafélaganna Moderna Försak- ringar Sak og Mod- erna Försakringar Liv svar sitt fyrir fimmtu- dag/föstudag í þess- ari viku. Þess vegna þarf að ljúka söluferl- inu hratt og örugg- lega,“ segir í bréfinu frá sænska fjár- málaeftirlitinu til Milestone og Moderna Finance í byrjun febrúar í fyrra. Ljóst var því að hvorki eig- endum og stjórnendum Mile- stone né Glitni yrði að ósk sinni að Moderna héldi áfram utan um sænska eignir félagsins með lána- fyrirgreiðslu og stuðningi Glitnis þar sem sænska fjármálaeftirlitið setti sig upp á móti því. Glitnir leysir Moderna til sín Í lok febrúar var Milestone til- kynnt að Glitnir myndi ekki geta stutt fjárhagslega endurskipulagn- ingu félagsins og sama dag greindi Karl Wernersson stjórn Moderna AB frá þess- ari ákvörðun Glitnis. Í kjölfarið var því ljóst að Milestone yrði ekki end- urskipulagt og tók Glitnir Moderna yfir um þremur vikum síðar. Glitnir leysti til sín hlutabréf í sænska félaginu Moderna AB, dótt- urfélagi Milestone, 16. mars 2009 vegna þess að gengið var að veð- um sem stofnað hafði verið til vegna lánveitinga upp á nærri 200 milljón- ir evra, rúmlega 33 milljarða króna á þávirði, til eignarhaldsfélagsins Svartháfs í febrúar 2008. Þennan dag misstu eigendur Milestone yfirráð yfir öllum eign- um félagsins til Glitnis þar sem þær höfðu verið færðar undir Moderna í árslok 2007. Af bréfasamskipt- um sænska fjármáleftirlitsins að dæma var það ekki síst harka sænsku stofnunar- innar sem kom í veg fyr- ir að þáverandi eigendur Moderna héldu áfram að eiga félagið ásamt Glitni. Þessi bréfaskipti segja líka meira en mörg orð um skoðanir sænska fjármála- eftirlitsins á Milestone, af við- leitni stofnunarinnar í bréfun- um að dæma var álit hennar á Milestone alls ekki gott. VILDI LÁNA MILESTONE 20 MILLJARÐA Í FYRRA Vildi tryggja framtíð Milestone Árni Tómasson bauð dótt- urfélagi Milestone, Moderna, lánafyrirgreiðslu upp á rúma 20 milljarða króna í lok janúar í fyrra. Lánið átti að hjálpa Moderna við að standa í skilum gagnvart lánardrottnum sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.