Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Síða 17
FRÉTTIR 3. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR 17 Vill selja Rússum herskip Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, á yfir höfði sér reiði ráðamanna í Washington eftir að hann staðfesti að Frakkar hefðu hafið „sérstakar samningaviðræður“ við Rússa um kaup þeirra síðarnefndu á fjórum herskipum af Mistral-gerð. Ef af viðskiptunum verður yrði um að ræða stærstu sölu Nato-rík- is til Rússa, en áformin hafa valdið áhyggjum í Bandaríkjunum og yfir- valda í Georgíu sem er enn í fersku minni stríðið sem háð var við Rússa fyrir tveimur árum. Að sögn Sarkozys myndu skipin verða seld Rússum án hernaðar- tækja, og sagði Dmitry Medvedev, forseti Rússlands, að salan myndi verða „tákn trausts þjóðanna í milli“. Medvedev reiður Dmitry Medvedev, forseti Rússlands, krafðist þess í vikubyrjun að emb- ættismenn innan rússneska íþrótta- sambandsins segðu af sér vegna bágrar frammistöðu þjóðarinnar á vetrarólympíuleikunum í Vancouver. Fyrir leikana sögðu umræddir embættismenn að takmarkið væri 30 verðlaunapeningar og eitt af þremur efstu sætunum með tilliti til fjölda verðlaunapeninga. Raunin varð ellefta sæti með tilliti til gull- verðlauna og sjötta með tilliti til heildarfjölda verðlaunasæta. Medvedev sagði í sjónvarpsút- sendingu að ef þeir sem ábyrgð báru á undirbúningi íþróttamannanna segðu ekki af sér yrði ákvörðunin tekin fyrir þá. Fréttaflutningur bannaður Afgönsk yfirvöld bönnuðu á mánu- daginn að sýnt yrði beint frá árásum talibana. Bannið byggist á því mati yfirvalda að myndir frá slíkum at- burðum blésu íslömskum stríðs- mönnum baráttu í brjóst. Tilkynnt var um bannið sama dag og fréttir bárust af sex hermönn- um alþjóðlegra herja, undir forystu NATO, sem drepnir voru í sókn gegn talibönum. Fréttamönnum mun eingöngu heimilt að taka myndir í kjölfar árása að gefnu leyfi frá yfirstjórn örygg- ismála. Þeir fréttamenn sem ganga í bága við reglurnar verða settir í varðhald á meðan á árásum stendur og búnaður þeirra gerður upptækur. Reykingar Baracks Obama Banda- ríkjaforseta hafa verið til umræðu vestanhafs undanfarið og mönn- um er enn í fersku minni loforðið sem hann gaf spúsu sinni, Michelle, í upphafi kosningabaráttu hans um að hann ætlaði að láta af reyk- ingum. Á þeim tíma upplýsti hann einnig að hann reykti um átta vind- linga á dag. Samkvæmt fyrstu læknisskoðun sem hann hefur farið í síðan hann tók við embætti forseta Bandaríkj- anna á Obama ennþá í erfiðleik- um með fíknina og að lokinni lækn- isskoðuninni staðfestu læknar að honum hefði ekki tekist að vinna bug á henni. Barack Obama ku vera viðkvæm- ur ef reykingar hans ber á góma og verður önugur í garð þeirra frétta- manna sem vekja máls á þeim. Í fyrra tjáði Barack Obama frétta- mönnum að hann væri hættur að reykja, en fengi sér þó einn og einn vindling, en fór ekki nánar út í hve marga vindlinga hann reykti á dag. En Barack Obama virðist vera við ágæta heilsu og þarf víst ekki að fara í skoðun fyrr en árið 2012. Hann, sem er 48 ára, er með full- komna sjón, vegur 81 kíló alklædd- ur og í skóm, og þarfnast ekki lyfja svo neinu nemur. Auk nikótínlyfja notar Obama bólgueyðandi lyf vegna krónískra verkja í vinstra hné, en hann stundar körfuknattleik reglulega við Hvíta húsið. En læknar komust einnig að þeirri niðurstöðu að forsetinn þyrfti að gæta að mat- aræði sínu því kólesteról hjá honum væri í hærri kantinum. Gengur erfiðlega að standa við loforð sem hann gaf eiginkonunni um reykingar: Bandaríkjaforseti getur ekki hætt Barack Obama við Hvíta húsið Við hestaheilsu en þarf að hætta að reykja. MYND: AFP Umræðan um bann við notkun búrku hófst í Frakklandi. Fin- ancial Times stóð fyrir skoðanakönnun þar sem grennslast var fyrir um skoðun annarra Evrópuþjóða á notkun búrkuklæðnað- ar sem hylur kvenmannslíkamann frá tám og upp úr. Búrkubann nýtur stuðnings Samkvæmt könnun sem gerð var af Harris Poll-fyrirtækinu fyrir Financi- al Times styður meirihluti kjósenda í fjórum Evrópuríkjum, auk Frakklands, bann við notkun búrku, sem runnið er undan rifjum Nicolas Sarkozy Frakk- landsforseta. Könnunin sýnir að bannið nýtur stuðnings meirihluta kjósenda í Bret- landi, á Ítalíu, Spáni og í Þýskalandi, og að sjötíu prósent þeirra sem svöruðu í Frakklandi styðja áform um að banna notkun klæðnaðar sem hylur kven- mannslíkamann frá tám og upp úr. Svipað var uppi á teningnum á Spáni og Ítalíu, en 65 prósent að- spurðra á Spáni og 63 prósent á Ítalíu voru fylgjandi slíku banni. Mesta furðu vekja viðbrögð Breta og Þjóðverja, því 57 prósent Breta og um 50 prósent Þjóðverja voru fylgj- andi banni við búrkunotkun. Önnur tákn í lagi Þrátt fyrir að andstaða við notkun búrku virðist mikil í Evrópu voru fáir aðspurðra reiðubúnir til að styðja við bann við notkun búrku ef slíkt bann væri hluti af tilhneigingu til aukinnar veraldlegrar hyggju í landi viðkom- andi. Aðeins 22 prósent Frakka sögð- ust styðja bann af þessum toga ef því fylgdi átak gegn notkun allra trúarlegra tákna, til dæmis krossins eða kollhúfu gyðinga, og í Bretlandi myndu einungis níu prósent fylgja banni með slíkum formerkjum. Patrick Weil, prófessor við Sorb- onne-háskólann í París og sérfræð- ingur í fræðum sem lúta að sjálfs- mynd þjóða, sagði að andstaða í Frakklandi við notkun búrku færi vaxandi vegna umræðunnar um búrkuna og sjálfsmynd þjóðarinn- ar, en hann sagði að sú væri einnig raunin víða annars staðar í Evrópu, og „endurspeglaði þær vaxandi áhyggjur sem eru til staðar vegna málsins í nokkrum hlutum Evr- ópu“. Bandaríkjamenn virðast ekki hafa jafnmiklar áhyggjur af málinu og Evrópubúar því aðeins 33 pró- sent þeirra sem tóku þátt í könn- uninni sögðust vera fylgjandi banni við notkun búrku. Spurt um strípiskanna Harris Poll kannaði einnig hvort stuðning væri að finna á meðal al- mennings hvað varðar notkun stríp- iskanna á flugvöllum. Meira en helmingur Bandaríkjamanna og íbúa allra Evrópuríkja sem könnunin náði til, nema eins, voru fylgjandi því að slíkir skannar yrðu teknir í notk- un. Eina þjóðin, sem könnunin náði til, sem ekki virtist sérstaklega ánægð við þá tilhugsun að vera nánast af- klædd á flugvöllum var Spánverjar. Á Spáni voru 46 prósent fylgjandi notk- un strípiskanna og 23 prósent and- víg. KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Könnunin sýnir að bannið nýtur stuðnings meirihluta kjósenda í Bretlandi, á Ítalíu, Spáni og í Þýska- landi... Fleiri hermenn Á sama tíma og líf færðist smám saman í eðlilegt horf hjá flestum íbúum höfuðborgarinnar Santíagó bað Jacqueline van Rysselberg- he, borgarstjóri Concepción, um fleiri hermenn og aðstoð frá rík- inu. Að sögn hennar var ekki leng- ur að finna mannskap til að dreifa vatni til borgarbúa því þeir urðu fyr- ir árásum þeirra sem aðstoðina áttu að fá. „Óttinn er alls staðar, menn vopnaðir byssum ráðast á heimili borgarbúa [...] sendið eins marga hermenn og mögulegt er,“ er haft eftir henni á vefsíðu The Guardian. Opinber fjöldi látinna var í gær 723 og nítján var saknað, en fregn- ir frá nálægum byggðarlögum gefa til kynna að fjöldi þeirra sem sakn- að er kunni að hlaupa á hundruð- um og óttast er að fjölda fólks hafi skolað á haf út. ÖRVÆNTING OG ALLSLEYSI Ljóst er að tjón í Chile vegna jarðskjálftans í síðustu viku er gríðarlegt. Víða er skortur á matvælum og öðrum nauðsynjum orðinn alger og í örvæntingu sinni hafa almennir borgarar gripið til örþrifaráða. Í fyrsta sinn í yfir tuttugu ár eru hermenn á götum borga landsins. Herinn á götum Concepción Var kallaður út til að verja verslanir og banka. MYND: AFP Búrkuklædd kona Bann við búrkunotkun nýtur aukins stuðnings í Evrópu. MYND: AFP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.