Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Page 25
Hraðskreiðasti maður jarðar, jama-
íski spretthlauparinn Usain Bolt,
hefur verið mikið hvattur síðustu
daga til þess að byrja að æfa 400
metra hlaup ásamt stífum æfingum
sínum í 100 metrum og 200 en hann
er heimsmethafi í báðum þeim
vegalengdum. Raddir þess efn-
is urðu enn háværari á mánudag-
inn þegar hann hljóp frábæran 400
metra sprett með Racers Lions-liði
sínu í keppni gegn bandarískum há-
skóla. Hann hljóp þá síðasta sprett-
inn í 400 metra boðhlaupi og vann
upp nær 30 metra forskot Banda-
ríkjamannsins Nicholas Maitland.
Bolt æfir aðeins og keppir í 400
metra hlaupi í byrjun hvers tíma-
bils til þess að auka þolið fyrir 200
metrana. Sjálfur vill hann ekki
keppa í 400 metra hlaupi en heims-
methafinn í þeirri vegalengd, Mi-
chael Johnson, hefur hvatt hann til
þess. „Það er enginn sem hefur átt
heimsmetið í 100, 200 og 400 metra
hlaupi. Það mun heldur engum tak-
ast það ef Usain gerir það ekki að
mínu mati,“ segir Johnson.
Þjálfari Bolts, Glen Mills, seg-
ir metið svo sannarlega í hættu
haldi Bolt áfram að æfa 400 metr-
ana. „Það er engin spurning um að
hann stórbætir metið hans John-
sons ef hann ákveður að leggja 400
metrana fyrir sig. Hann er hinn
fullkomni spretthlaupari því hann
verður hraðari með hverjum deg-
inum,“ segir þjálfarinn en sjálfur er
Bolt ekkert spenntur fyrir áskorun-
unni.
„Mig langar ekki að keppa í 400
metra hlaupi. Ég veit samt að þjálf-
arinn minn á eftir að sannfæra mig
einhvern veginn. Ég mun samt ekki
reyna við heimsmetið fyrr en ég er
búinn að vinna ólympíugullið í 100
og 200 metra hlaupi aftur,“ segir Us-
ain Bolt. tomas@dv.is
Usain Bolt gæti skráð sig á spjöld sögunnar:
Gælir við heimsmetið í 400m
ANCELOTTI VILL EKKI ÍTALÍU
Carlo Ancelotti, þjálfari Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, seg-
ist ekki spenntur fyrir því að þjálfa ítalska landsliðið. Marcello
Lippi lætur af störfum eftir HM í sumar og hefur nafn Ance-
lottis borið á góma. „Ég er ekkert spenntur fyrir því að gerast
landsliðsþjálfari. Frekar vil ég vinna í London hjá Chelsea og
reyna að koma því í úrslit Meistaradeildarinnar,“ segir Ancel-
otti en það er langþráður draumur Romans Abramovic, eig-
anda Chelsea, að vinna deild þeirra bestu.
REINA ÁFRAM HJÁ LIVERPOOL Breska
blaðið Liverpool Echo greindi frá því á þriðjudaginn að markvörð-
ur Liverpool, Pepe Reina, ætlaði sér að vera áfram hjá liðinu. Hann
mun gera við Liverpool nýjan samning sem gildir út leiktíðina
2014-2015 en núverandi samningur hans átti að renna út á næsta
ári. Reina hefur verið einn albesti markvörður ensku úrvalsdeild-
arinnar frá því hann gekk til liðs við Liverpool frá Villarreal. Hann
vann gullhanskann, verðlaun sem veitt eru besta markverði úr-
valsdeildarinnar ensku, þrjú ár í röð frá 2006-2008.
SPORT 3. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR 25
STÓRLEIKUR HJÁ ANTONI
OG GYLFA
n Fremsta handknattleiksdóm-
arapar landsins, þeir Anton Gylfi
Pálsson og Hlynur Leifsson, fá
svo sannar-
lega stórleik
um helgina.
Þeir félagarn-
ir ferðast til
Zagreb í Króa-
tíu og dæma
þar Meistara-
deildarleik
HC Croatia
Osiguranja og Hamburg. Bæði lið
eru í bullandi titilbaráttu í heima-
landinu en Hamburg er efst í
Þýskalandi og hefur verið miklu til
tjaldað þar á bæ til þess að vinna
titla. Með Osiguranja leika nokkr-
ar króatískir landsliðsmenn en
liðið er afar sterkt.
VALSMENN GETA HEFNT
n En að handbolta hér heima.
Fjórtánda umferðin í N1-deild
karla fer fram á fimmtudaginn
en allir fjórir
leikir um-
ferðarinnar
eru spilaðir
þá. Vals-
menn geta
komið fram
hefndum fyrir
skammarlegt
bikartap gegn
Haukum en þeir sækja Íslands-,
deildar-, deildarbikar- og bikar-
meistara Hauka heim á Ásvelli.
Mikil spenna er í deildinni og bar-
átta um sæti í úrslitakeppni hörð
sem og baráttan á fallsvæðinu.
Einnig mætast í umferðinni Fram
og FH, HK og Akureyri og Stjarnan
og Grótta.
EYJAMENN MÆTA
BLIKUM
n Nóg er að gerast í Lengjubikarn-
um þessa dagana og heldur hann
áfram eftir landsleik Íslands á
miðvikudags-
kvöldið. Alls
eru fimm leik-
ir um helgina
en hæst ber að
nefna úrvals-
deildarslag
Eyjamanna og
Blika á föstu-
dagskvöldið.
Eyjamenn töpuðu illa, 4-1, fyrir
KR í síðustu umferð á meðan
Breiðablik vann sinn annan leik í
röð. Leikurinn hefst klukkan 21.00
í Egilshöll. Upplýsingar um leiki
og leiktíma má finna á heimasíu
KSÍ, ksi.is.
LEIKIÐ UM NÍUNDA
SÆTIÐ
n Vonbrigðamótinu hjá íslenska
kvennalandsliðinu í fótbolta á Alg-
arve í Portúgal lýkur í
dag, miðvikudag. Þá
leika stelpurnar um
níunda sætið gegn
gestgjöfum móts-
ins, Portúgal. Ísland
var í afar sterkum
riðli með Banda-
ríkjunum,
Svíum og Norð-
mönnum en
allir leikirnir
töpuðust,
minnst
3-2 fyrir
Noregi. Ís-
land hafnaði
samtals í áttunda
sæti allra riðlanna
átta í A- og B-riðl-
um.
MOLAR
Fljótasti maður jarðar Usain Bolt á heimsmetið í 100m og 200m og íhugar að slá
metið í 400m einnig. MYND AFP
EFTIRMINNILEGUSTU STUNDIRNAR
DROTTNING LEIKANNA Marit Bjørgen, skíðagöngukona frá Noregi, var
óumdeilt drottning vetrarleikanna í Vancouver. Hún vann alls fimm verðlaun,
þar af þrjú gull. Fyrstu verðlaun vann hún í eltihlaupinu, sprettgöngunni og
4x5 kílómetra boðgöngu kvenna með norsku sveitinni. Ofan á það bætti
hún svo silfri í 30 kílómetra göngu með hefðbundinni aðferð og bronsi í 10
kílómetra göngu með frjálsri aðferð. Enginn vann fleiri gull en sú norska á
leikunum. Sannkallaður draumur.
RAUÐI TÓMATURINN
KLIKKAÐI EKKI Banda-
ríkjamaðurinn Shaun White
vann kannski bara eitt gull í
Vancouver. White er alfærasti
brettakappi heims og sigraði
í hálfpípunni með þvílíkum
yfirburðum að annað eins
hefur ekki sést. Hann er ekki
ósvipaður hjólabrettasnillingn-
um Tony Hawk að því leyti að
hann er að finna upp brögðin
sem aðrir reyna svo að leika
eftir. Á meðan hann er alltaf
skrefi eða tveimur á undan
verður hann ósigrandi. White
kom inn á leikana sem stjarna
og fór út skærari stjarna.
LOKSINS ÓL-GULL Bode Miller er formlega
orðinn besti skíðamaður Bandaríkjanna frá
upphafi. Þessi margverðlaunaði skíðagarpur á
urmul verðlauna frá heimsmeistaramót-
um en bara tvö silfur frá Ólympíu-
leikum en þau komu fyrir átta
árum á heimavelli. Takmarkið
tókst þó loksins í Vancou-
ver. Bode Miller hampaði
sigri í alpatvíkeppninni
og tókst því loks að vinna
ólympíugull. Með því
fylgdu silfur í stórsvigi og
brons í bruni. Ekki slæmir
leikar hjá Miller.
ENDAÐI VEL Petter Northug var rétt fyrir Ólympíuleikana kosinn
vinsælasti maðurinn í Noregi. Skíðagöngukóngurinn fór aftur á móti
hryllilega af stað og stefndi allt í ömurlega leika hjá þessum allra besta
göngugarpi heims. Hann tók sig þó taki. Hann náði í silfur og brons í
boðgöngu og sprettgöngu og tókst loksins að landa gulli í liðasprett-
keppninni. Leikarnir enduðu þó frábærlega hjá Northug. Hann vann
næstsíðustu grein leikanna, 50 kílómetra göngunna með hefðbundinni
aðferð, en það er ein aðalgreinin og fékk hann verðlaunin afhent á
lokaathöfninni fyrir framan 60.000 manns.
SIMON AMMANN Svissneski
skíðastökkvarinn vann bæði ólympíu-
gullin í Tórínó fyrir fjórum árum. Hann
lék það eftir á þessum leikum, sigraði
með yfirburðum bæði á 90 og 120
metra palli. Ammann er ekki efstur
í heimsbikarnum en ólympíuleikar
virðast algjörlega vera hans. Hann á
nú fjögur ólympíugull, aðeins 28 ára
gamall, og hver veit nema hann verði
tveimur gullum ríkari eftir leikana í
Rússlandi eftir fjögur ár.
STJÖRNUR OG STUNDIR Í VANCOUVER
STJÖRNURNAR Í VANCOUVER