Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Qupperneq 30
Þráinn Bertelsson gerði svo sannarlega allt vitlaust með því að koma í Í bítið og tjá sig um listamannalaun. Sagði þjóðina vera fábjána meðal annars. Þrá- inn hefur mikilla hagsmuna að gæta, enda sjálfur á heiðurslista- mannalaunum. Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur er ekki vanur því að tala undir rós og segir á fésbókarsíðu sinni: „Að greiða heiðurslistamannalaun til Þráins Bertelssonar er eins og að míga yfir þjóðina.“ Áskorendamótaröð Audda, Sveppa og Gillz hjá Pókerklúbbn um 53 á Gullöldinni hófst nú fyrir skömmu. Þar fá pók erspilarar landsins að spreyta sig gegn þeim þremenningum en Auddi og Gillz eru þekktir pók- erspilarar og er sá síðarnefndi fyrirliði íslenska landsliðsins í póker. Í lok mótaraðarinnar fær stigahæsti spilari meðal annars tækifæri á að taka þátt í móti frægra sem verður tekið upp fyrir sjónvarp og hefur verið í undir- búningi í langan tíma. „Hlökkum til að sjá ykkur rassskella þessa trúða,“ segir meðal annars í til- kynningu frá mótshöldurum. „Ég ákvað bara að filma þetta. Þetta eru uppáhaldsblúsarnir mínir og þeir eru að- gengilegir bæði á síðunni minni og You- tube,“ segir Bubbi Morthens en hann skellti sér í hljóðver í janúar og tók upp nokkra blússlagara. Þrjú lög eru komin inn en flestallir slagararnir voru teknir upp og bíða aðdáendur Bubba með mikilli eftir- væntingu eftir fleiri lögum. Sitting on top of the world, Take this hammer og Keep your hands off her er hægt að sjá á vefnum endurgjaldslaust. Bubbi hefur löngum sannað að hann getur sungið hvað sem er, allt frá ballöðum til rokksins. Blúsinn hins vegar tekur hann föstum tökum og fer listavel með lögin. Þegar DV heyrði í Bubba var hann á Ísafirði þar sem hann var að undirbúa tónleika fyr- ir framhaldsskólann í plássinu. „Það hefur verið ógeðslega gaman að gera þetta,“ segir Bubbi en hann hefur spilað frítt fyrir fjölda framhaldsskólanema að undanförnu. „Það hefur verið mikil stemmning og gríð- arleg mæting. Manni þykir vænt um það,“ segir Bubbi um leið og hann steig á sviðið á Ísafirði. ÞÓR SIGFÚSSON: 30 MIÐVIKUDAGUR 3. mars 2010 FÓLKIÐ MIGIÐ FRAMAN Í ÞJÓÐINA PÓKERMÓT FRÆGRA „ÁKVAÐ AÐ FILMA ÞETTA“ BUBBI MORTHENS TÓK UPP UPPÁHALDSBLÚS LÖGIN SÍN OG SETTI Á NETIÐ: Staddur á Ísafirði Bubbi Morthens hefur spilað frítt fyrir framhaldsskólanema að undanförnu. Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvár, ku vera á leiðinni í doktorsnám í hagfræði. Þór lauk BA-prófi í hagfræði við University of N-Carolina í Bandaríkjunum 1990 og meist- araprófi frá sama skóla 1991. Þór er nú at- vinnulaus eftir að hafa misst forstjórastól Sjó- vár og hyggst því ganga menntaveginn. Þór er grunaður um að hafa valdið Sjó- vá tjóni með vanrækslu í starfi. Viðurlög við slíku broti geta varðað allt að sex ára fangelsi en sérstakur saksóknari rannsakar nú málið. Þá gæti Þór einnig hafa skapað sér skaðabóta- skyldu gagnvart Sjóvá með því að lesa ekki samninga áður en hann skrifaði undir þá. Þór hefur sagt að hann hafi aldrei haft frumkvæði að neinum ákvörðunum um fjárfestingar fé- lagsins. Hann kveðst þó þurfa að horfast í augu við að hafa skrifað undir samninga sem reyndust félaginu dýrkeyptir án þess að hafa vitneskju um innihald þeirra. í yfirheyrslum yfir Þór hjá sérstökum sak- sóknara kom fram að Þór vissi oft og tíðum ekkert undir hvaða samninga hann var að skrifa hjá Sjóvá þar sem hann hefði yfirleitt ekki lesið þá yfir. Þór gat ekki heldur útskýrt hver ástæðan var fyrir 10,5 milljarða króna láni frá Sjóvá til Vafnings í febrúar 2008. Hann vissi ekki hverjir forsavarsmenn þess félags voru né hvaða eignir það átti. Samt skrifaði hann undir samninginn. Þá segist Þór ekki hafa hagnast á viðskiptunum og ekki hafa haft frumkvæði að þeim. Hann hafi talið sig vera með teymi í kringum sig sem hann gæti treyst. Þór skrifaði eitt sinn bókina Betrun: Hvernig bæta má stjórnun með því að læra af mistökum. Þar fjallar Þór um velgengni sína á for- stjórastóli Sjóvár. Frá því bókin var gefin út í fyrra hefur hrap Þórs verið ótrúlegt: hann er ekki lengur stjórnarformaður Árvakurs, út- gáfufélags Morgunblaðsins; hann var látinn taka pokann sinn hjá Sjóvá og er kominn í tímabundið leyfi frá störfum sem formað- ur Samtaka atvinnulífsins á meðan aðkoma hans að glæfralegum rekstri Sjóvár er rann- sökuð. Betrunarbókin ætti því að geta nýst honum sjálfum sem aldrei fyrr um þess- ar mundir því samkvæmt henni kann hann manna best þá list að læra af mistökum. benni@dv.is Þór Sigfússon, fyrrverandi for- stjóri Sjóvár, er á leið í doktors- nám. Þór lauk BA-prófi í hagfræði við University of N-Carolina í Bandaríkjunum 1990 og meistara- prófi frá sama skóla 1991. Á leið í DOKTORSNÁM Á leið í doktorinn Þór er útskrifaður með BA og meistaragráðu í hagfræði frá Bandaríkjunum. X-D Þór var formaður Heimdallar og framkvæmdastjóri Sambands ungra sjálfstæðismanna 1986-88. Hér með borgarstjóra Reykjavíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.