Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2010, Blaðsíða 3
FRÉTTIR 19. apríl 2010 MÁNUDAGUR 3
n Í ljós hefur komið að kvikan sem kemur upp nú er
nokkuð frábrugðin venjulegri basaltkviku eins og við
sáum á Fimmvörðuhálsi. Hún er sögð ísúr. Það þýðir að
hún er seigari en basaltkvikan. Og um leið og við erum
með seiga kviku er erfiðara fyrir gasið sem er í kvikunni
að streyma út í andrúmsloftið. Afleiðingarnar verða
þessar miklu sprengingar sem dunið hafa í fjallinu svo
hús á svæðinu titra. Eftir hverja sprengingu myndast
gríðarlegur mökkur.
Þetta gos ógnar einum grösugustu landbúnaðarhéruð-
um landsins. Því miður hefur það gerst í gegnum tíðina
að eldgos hafa sett heilu sveitirnar í eyði. Hér er því um
mjög alvarlegan atburð að ræða. Mikið alvarlegri en
margir gera sér grein fyrir. Sumir jarðvísindamenn gera
því skóna að nú hljóti gosið að fara að minnka þar sem
kvikugeymirinn í fjallinu, það er þar sem kvikan safnast
saman, sé frekar lítill og liggi grunnt. Hér má ekki gleyma
því að kvikugeymirinn hefur aðfærsluæð sem fæðir hólfið og þar með gosið. Það helsta sem gæti breyst er að virknin í fjallinu
verður skrykkjóttari en ella. Sagan hefur kennt okkur að þessi eldstöð hefur mikið úthald og á árunum 1821-1823 gaus hún
ekki samfellt heldur með hléum. Gosið hætti og byrjaði svo aftur og aftur og aftur. Og í júní árið 1823, nokkru eftir að gosinu
lauk í Eyjafjallajökli, hófst Kötlugos sem stóð í um sex mánuði.
Það sem yfir okkur gengur núna eru því hamfarir sem alls ekki er hægt að sjá fyrir endann á. Hamfarir þar sem eitt okkar
besta landbúnaðarsvæði er í stórkostlegri hættu. Enda þótt vindstefnan breytist taka bara önnur svæði við eitrinu og svo snýst
vindur aftur og þá dynja hörmungarnar yfir á nýjan leik þar sem askan féll áður. Ef Katla fer í gang er vart hægt að leyfa sér að
hugsa þá hugsun til enda. Í samanburði er Katla fíllinn og Eyjafjallajökull músin.
OKKAR BESTU LANDBÚNAÐARSVÆÐI Í HÆTTU
HAMFARIR Á HEIMSMÆLIKVARÐA
við erum að horfa upp á gos sem
standa mun til dæmis í 6 mánuði
verður flugleiðin milli Evrópu og Ís-
lands og Bandaríkjanna og Íslands
sífellt að lokast af og til og til lengri
eða skemmri tíma. Þeir sem eiga bók-
að flug í júní eru því sem sakir standa
ekkert öruggari með að komast í sitt
flug á bókuðum brottfarardegi en
þeir sem nú eru í stökustu vandræð-
um. Og þó Katla sýni engin merki um
að taka þátt í dansinum nákvæmlega
núna, getur hún tekið upp á því að
vakna án mikils fyrirvara. Fari hún í
gang verður óreiðan í millilandaflug-
inu enn meiri. Enn fleiri landbúnað-
arsvæði verða þá í hættu og stórkost-
legir gripaflutningar myndu hefjast.
Búferlaflutningar hæfust. Vegasam-
göngur á Suðurlandi myndu fara
enn frekar út skorðum og svona
mætti áfram telja. Þessa hugsun vilja
kannski fæstir hugsa til enda og trúa
á Guð og lukkuna.
Þrír mjólkurbílar ásamt aftan-
ívögnum voru sendir austur fyr-
ir Markarfljót á laugardag. Þeir eiga
að sinna svæðinu austan megin ef
til þess kemur að ekki verði fært
yfir gömlu brúna yfir Markarfljót og
allt lokist. Þeir munu safna mjólk á
svæðinu og flytja hana til Egilsstaða
ef þörf krefur.
Öskumökkur Að aka inn í
öskumökkinn er eins og að
aka á vegg. Allt í einu sést
lítið eða ekki neitt.
MYND AFP
„Hann var þreyttur í fyrrakvöld,
hafði ofkeyrt sig enda þvílíkt sem
hefur gengið á. Eftir að hafa far-
ið að læknisráði og hvílt sig er
hann eldhress,“ segir Guðný Val-
berg, eiginkona Ólafs Eggertsson-
ar, bónda að Þorvaldseyri. „Ólafur
hefur haft í mörgu að snúast sem
hefði gert flesta menn stressaða.
Hann var, ásamt vinum og ættingj-
um, í kapphlaupi við tímann við
að klára að líma fyrir og troða í öll
göt svo við gætum verið róleg hér
inni vegna öskunnar,“ segir Guðný.
Hjónin hafa verið mikið í fjölmiðl-
um vegna eldgossins.
Guðný segist hafa fundið á sér
að náttúran ætti eftir að láta meira
á sér kræla en með gosinu í Fimm-
vörðuhálsi en segist óhrædd. „Nú
þegar ég fæ að vera heima hjá mér
nýt ég þess í botn. Ég veit að það
er vel vakað yfir okkur bæði af al-
mannavarnakerfinu og lögreglunni
og að vissu leyti eru forréttindi að
fá að lifa svona tíma. Auðvitað veit
enginn hvað morgundagurinn ber
í skauti sér en við tökum lífinu með
ró og hvern dag fyrir sig. Hér er
gott að vera í dag og þótt askan sé
mikil á bæjartúninu berst hún ekki
inn, nema með skónum líkt og um
snjó væri að ræða. Hér hefur rignt
og rigningin hefur hreinsað loftið.“
indiana@dv.is
Ólafi Eggertssyni bónda að Þorvalds-
eyri var ráðlagt að hvíla sig:
Álag vegna gossins
Hjónin að Þorvaldseyri Guðný segir
viss forréttindi að fá að lifa þessa tíma
og upplifa slíka krafta náttúrunnar.
n Ein afleiðing öskumyndunar eins og frá Eyjafjallajökli er hindrun sólarljóss til
jarðar. Verði sú raunin að Eyjafjallajökull haldi uppteknum hætti við framleiðslu á
gjósku og ösku í marga mánuði getur það vel leitt til þess að kaldara verði en ella.
Hversu mikið er mjög erfitt að meta nú enda ræðst það af gangi gossins. Við erum
það heppin að vera að sigla inn í sumar því hér er rétt að rifja upp móðuharðindin
sem svo voru kölluð 1783 í kjölfar goss í Lakagígum. Það gos varð til þess að
móða úr gosösku hindraði sólarljósið og leiddi yfir landið hörkuvetur – svo dæmi
voru um horfelli á mörgum bæjum.
Gosaskan er eins og fyrr segir með öllu háð vindum og þeir dreifa henni um
efri loftlög. Reykjavík á eftir að fá sinn skammt haldi jökullinn áfram. Sú stað-
reynd þýðir að áhrifanna myndi þá gæta í Reykjavík. Þetta þýðir enn fremur að
ferðalangar á leið um landið í sumar verða að spá í öskufallið og vindstefnur áður
en lagt er í hann.
Eftir að vindarnir eru búnir að dreifa öskunni um háloftin og valda þar með
mögulegri kólnun líður alltaf nokkur tíma þar til andrúmsloftið hreinsast á ný.
Dagbundnir vindar sjá fyrst og fremst um að dreifa öskunni „út um landið“. Hér er
rétt að ítreka að þessir þættir eru háðir því að gosið dragist á landinn.
ÁHRIF LANGVARANDI GOSS Á LANDSMENN:
1. Gæti leitt til fólks- og gripaflutninga frá gossvæðunum.
2. Áhrif á birtumagn og þar með geðslag landsmanna.
3. Haft áhrif á grasuppskeru, kartöflurækt og aðra grænmetisrækt sem fram fer
utan dyra, slíkt myndi þá leiða til hærra verðs á þessum afurðum.
4. Áætlanir fólks um hvenær og hvert skuli haldið í sumarfrí raskast.
5. Gæti haft í för með sér hættu fyrir einstaklinga með alvarlega sjúkdóma, s.s.
lungnasjúklinga.
6. Frægustu ferðamannastaðir gætu opnast og lokast með reglubundnum hætti
og sumir lokast alveg ef öskufall fer úr hófi fram.
7. Ekki verður hægt að treysta á að flug verði alltaf með eðlilegum hætti, hvorki
innanlands né utan.
8. Gæti spillt vatnslindum og þar með aðgangi að hreinu drykkjarvatni.
9. Óhreinindi aukast í andrúmslofti sem leiddi til þess að ungbörn verði síður
látin sofa úti við.
10. Haft aukinn kostnað fyrir skattgreiðendur og einstaklinga í för með sér vegna
aðgerða sem grípa þarf til hverju sinni.
GOSIÐ ÓGNAR SUMRINU