Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2010, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 19. apríl 2010 FRÉTTIR
Tólf starfsmenn sem enn starfa hjá
Íslandsbanka fengu nærri 21 millj-
arð króna í lán meðan þeir störf-
uðu hjá gamla Glitni. Tveim þessara
starfsmanna var tímabundið vik-
ið frá störfum í upphafi apríl vegna
stefnu skilanefndar Glitnis gagnvart
þeim. Þeir eru Magnús Arnar Arn-
grímsson og Rósant Már Torfason.
Ellefu þessara starfsmanna eru karl-
menn og einungis ein kona.
Hvatakerfi íslensku bankanna
hefur verið töluvert í umræðunni
eftir að skýrsla rannsóknarnefndar
Alþingis var birt fyrir viku. Í skýrsl-
unni eru birt nöfn allra þeirra starfs-
manna sem fengu kúlulán þeg-
ar þeir störfuðu hjá bönkunum.
Starfsmenn Glitnis, Kaupþings og
Landsbankans fengu samtals 173
milljarða króna lánaða til hluta-
bréfakaupa á árunum 2004 til 2008.
Þeir starfsmenn sem fengu kúlulán
hjá Kaupþingi og Landsbankanum
hafa allir látið af störfum. Innan Ís-
landsbanka starfa enn 12 kúlulán-
þegar að ógleymdri Birnu Einars-
dóttur bankastjóra sem fékk aldrei
kúlulán vegna „tæknilegra mistaka“.
Birkir fékk 13 milljarða
Stórtækasti lántakandinn sem enn
starfar hjá Íslandsbanka er Birkir
Kristinsson, fyrrverandi landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, fjárfestir
og starfsmaður í einkabankaþjón-
ustu Íslandsbanka. Hann fékk 13,5
milljarða króna lán í gegnum fé-
lögin BK-44 og BK-42. DV hefur
áður fjallað um málefni Birkis en
hann var einn af hluthöfum eignar-
haldsfélagsins Gnúps ásamt bróð-
ur sínum Magnúsi Kristinssyni, út-
gerðarmanni í Vestmannaeyjum.
Birkir skuldaði líka Banque Ha-
villand í Lúxemborg 450 milljón-
ir króna en hann hefur leitað eft-
ir samkomulagi við að greiða upp
skuldir sínar við bankann.
Jóhannes og Vilhelm
skulda þrjá milljarða
Jóhannes Baldursson, fram-
kvæmdastjóri fjárstýringar og mark-
aðsviðskipta Íslandsbanka, og
Vilhelm Már Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Ís-
landsbanka, fengu rúmlega 3.200
milljónir króna í kúlulán hjá Glitni
á árunum 2004 til 2008. Nöfn þeirra
beggja koma oft fyrir í skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis í kjölfar yf-
irtöku ríkisins á Glitni en þeir voru
báðir kallaðir í skýrslutöku. Þeir áttu
báðir fund í Seðlabankanum síð-
degis 25. september eftir að Þor-
steinn Már Baldvinsson, þáverandi
stjórnarformaður Glitnis, og Davíð
Oddsson, þáverandi Seðlabanka-
stjóri, höfðu fundað saman í hádeg-
inu þann dag.
Þeir Jóhannes og Vilhelm fengu
báðir 800 milljóna króna kúlu-
lán hvor 15. maí 2008 en þann dag
fengu níu stjórnendur Glitnis alls
sex milljarða kúlulán. Flest þessara
lána eru á gjalddaga í maí 2012. Við
skýrslutöku hjá rannsóknarnefnd-
inni töldu flestir þessara starfs-
manna að tilgangur þessara lána
hefði fyrst og fremst verið að umb-
una þeim fyrir vel unnin störf við úr-
lausn vandamála bankans. Athygli
vekur að Glitnir gaf ekki út neina
tilkynningu um þessi viðskipti en
hefði átt að gera það þar sem skipt-
ar skoðanir voru um viðskiptin. Við
skýrslutöku tók Jóhannes Baldurs-
son fram að ástæða þess að ekki
hefði verið birt tilkynning hefði ver-
ið sú þessir níu stjórnendur Glitnis
hefðu ekki verið innherjar og gjörn-
ingnum hefði því ekki verið ætlað að
auka traust bankans út á við.
Magnús Guðmundsson
fékk nærri þrjá milljarða
Athygli vekur að Íslandsbanki
skuli vera eini bankinn sem
ekki hefur vikið öllum kúlu-
lánþegum sínum frá störf-
um. Hjá Kaupþingi störf-
uðu 19 kúlulánþegar í
október 2008 en þeir
hafa allir látið af störfum.
Starfsmenn Kaupþings
fengu samtals nærri 70
milljarða króna í kúlu-
lán á árunum 2004 til 2008.
Þess skal þó getið að Magn-
ús Guðmundsson, núverandi
forstjóri Banque Havilland í Lúxem-
borg, gegndi sömu stöðu hjá Kaup-
þingi. Hann fékk 2.640 milljóna
króna kúlulán til hlutabréfakaupa
í Kaupþingi. Ekki er getið um kúlu-
lán Magnúsar í rannsóknarskýrslu
Alþingis. Hann lét þau fleygu orð
„Takk. Meira en nóg“ flakka þeg-
ar Sigurður Einarsson, þáver-
andi stjórnarformaður Kaupþings,
spurði hann í tölvupósti hvort einn-
ar milljónar evra bónus væri nóg.
Frændi Björgólfs
fékk 800 milljónir
Landsbankinn veitti lítið af
lánum beint til starfs-
manna eða eignar-
haldsfélaga þeirra.
Í staðinn runnu
kaupréttir inn í af-
landsfélög sem
Landsbankinn
hafði stofnað fyr-
ir starfsmenn.
Landsbankinn
veitti þó tveimur
milljörðum króna
beint til starfs-
manna. „Um
40 pró-
sent
þeirra lána sem Landsbankinn
veitti starfsmönnum sínum gengu
til Guðmundar Péturs Davíðsson-
ar. Hann er bróðursonur Björgólfs
Guðmundssonar. Lán Guðmundar
og eignarhaldsfélags hans, Brim-
holts, stóðu í tæplega 800 milljón-
um kr. í lok september 2008,“ segir í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is.
MEÐ 20 MILLJARÐA
KRÓNA Í KÚLULÁN
Tólf starfsmenn, sem fengu alls 21 milljarð króna í kúlulán hjá gamla Glitni, starfa enn hjá Íslandsbanka.
Stórtækastur var Birkir Kristinsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður, sem fékk 13,5 milljarða í lán en hann
starfar enn í einkabankaþjónustu Íslandsbanka. Kúlulánþegar Kaupþings og Landsbankans hafa allir látið
af störfum.
Stórtækasti lán-takandinn sem
enn starfar hjá Íslands-
banka er Birkir Krist-
insson, fyrrverandi
landsliðsmarkvörður í
knattspyrnu.
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamaður skrifar: as@dv.is
Kúlulán núverandi starfsmanna
Íslandsbanka.
Nafn M. kr.
Alfreð Hauksson 300
Árni Magnússon 544
Birkir Kristinsson 13.484
Bjarni Jóhannesson 232
Elmar Svavarsson 232
Friðfinnur Ragnar Sigurðsson 232
Jóhannes Baldursson 1.734
Magnús Arnar Arngrímsson 1.127
Rósant Már Torfason 1.065
Sólrún Adda Elvarsdóttir 112
Stefán Sigurðsson 232
Vilhelm Már Þorsteinsson 1.479
SAMTALS 20.773
Kúlulánþegar
„Við erum að fara yfir niðurstöður skýrslunnar. Þessi mál
eru í skoðun innan bankans og stjórn og stjórnarnefnd
munu fjalla um málið á næstunni,“ segir Birna Einarsdóttir,
bankastjóri Íslandsbanka, í svari við fyrirspurn DV um hvort
tekin hafi verið ákvörðun um að víkja úr starfi einverjum af
þeim12 kúlulánaþegum sem enn starfa hjá Íslandsbanka,
eftir að skýrsla rannsóknarnefndar kom út.
Birna skoðar málin
Heildarlán bankanna til starfsmanna
Samtals: 69.290 Samtals: 69.134 Samtals: 34.313
Heildarlán til starfsmanna Glitnis og
eignarhaldsfélaga þeirra í milljónum
króna talið.
Heildarlán til starfsmanna Kaupþings
og eignarhaldsfélaga þeirra í
milljónum króna talið:
Heildarlán til starfsmanna Landsbankans
og eignarhaldsfélaga þeirra í
milljónum króna talið:
2004 2005 2006 2007 2008 2005 2006 2007 2008 2004 2005 2006 2007 2008
5.
99
3
10
.9
13
13
.3
40
17
.0
82
21
.9
62
9.
24
7
16
.4
70
20
.0
01
23
.4
16
1.
63
5 4.
83
4
6
.3
64
9.
39
9
12
.0
81
Fékk 13 milljarða Birkir Kristinsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður og starfsmaður
einkabankaþjónustu Íslandsbanka, fékk 13,5 milljarða króna lánaða hjá gamla Glitni.
Stórskuldugir stjórnendur 12 starfs-
menn sem starfa hjá Íslandsbanka fengu
21 milljarð króna í kúlulán á árunum 2004
til 2008 þegar þeir störfuðu hjá Glitni. 11
karlmenn og einungis ein kona.
MYND HEIÐA HELGADÓTTIR