Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2010, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 19. apríl 2010 FRÉTTIR
„Þingmennirnir lifa í einhverjum
fílabeinsturni og vita ekkert hvernig
það er að lifa við svona fátækt,“ seg-
ir Ása Hjálmarsdóttir, 85 ára ellilíf-
eyrisþegi, sem hefur þrjátíu þúsund
krónur aflögu í hverjum mánuði til
að eiga í sig og á. Með því að leyfa sér
ekkert í innkaupum nær hún að láta
peningana duga í tvær til þrjár vikur.
Ása starfaði sem sjúkraliði alla
sína tíð og hefur fram til þessa náð
vel að framfleyta sér og sínum. Nú
er svo komið að hún þarf að leita til
barna sinna eftir aðstoð. „Þar sem ég
hef alltaf náð að sjá fyrir mér er það
hræðilegt að geta það ekki núna. Það
er það erfiðasta, það er alveg ferlegt.
Það er svo erfitt að þurfa nú að biðja
um hjálp, þó að þetta séu börnin
mín,“ segir Ása.
Dugar aldrei
Aðspurð segist Ása fá 140 þúsund
krónur á mánuði í lífeyrisgreiðsl-
ur. Hún leigir þriggja herbergja íbúð
undir sig og son sinn, sem er öryrki,
í Hafnarfirði og þegar leiga hefur ver-
ið greidd stendur lítið eftir. „Ég fæ
140 þúsund á mánuði og svo þarf ég
að greiða leiguna og af láni. Þetta er
ekki neitt. Þegar allt hefur verið greitt
standa eftir 30 þúsund fyrir mig að
lifa af á mánuði. Það dugar aldrei.
Það má alveg segja það að ég hef
hvorki í mig né á. Það er mjög erfitt,“
segir Ása.
„Ég hef unnið mikið og alltaf
náð að vinna fyrir heimilinu. Nú get
ég það ekki því peningarnir end-
ast aldrei út mánuðinn. Ég næ að
kaupa inn fyrir svona hálfan mánuð,
stundum þrjár vikur. Ég er búin að
missa íbúðina mína en krakkarnir ná
stundum að hjálpa mér.“
Leyfir sér ekkert
Ása hefur í gegnum tíðina meðal
annars notið aðstoðar Ásgerðar Jónu
Flosadóttur, framkvæmdastjóra Fjöl-
skylduhjálpar Íslands, sem svíður að
sjá fátæktina sem hún þarf að búa
við. „Þegar ég sá aðstæður hennar
Ásu varð mér allri lokið. Gamla kon-
an sefur á sófa í stofunni og hefur lít-
ið sem ekkert á milli handanna. Ég
er mjög sorgmædd að sjá hennar að-
stæður og ég óttast að hópur eldri
borgara búi við það sama, þó svo þeir
hafi ekki komið fram í umræðunni til
þessa. Ég á mér þann draum að ör-
yrkjar og eldri borgarar þurfi ekki að
búa við þessa fátækt því það er ekk-
ert eðlilegt hvernig sumt fólk þarf að
búa. Þetta er háalvarlegt mál og við
sem ung erum verðum að berjast fyr-
ir hóp eldri borgara,“ segir Ásgerður
Jóna.
Þar sem sonur Ásu býr hjá henni
reynir hún að láta hann ganga fyr-
ir þegar kemur að matseld heimilis-
ins. Henni sárnar hversu mikið hefur
verið klipið af öldruðum undanfarin
misseri. „Það er alltaf klipið af okk-
ur öldruðum. Ég hef þurft að breyta
mínum innkaupum. Ég þarf að horfa
í hverja krónu og það er nú ósköp lít-
ið sem ég fæ fyrir þessa aura sem ég
hef. Þetta er fljótt að fara og ég næ
aldrei að kaupa það sem ég vil. Ég lifi
mestmegnis á hafragraut en ég reyni
að hafa alltaf eitthvað handa strákn-
um mínum. Ég leyfi mér hvorki eitt
né neitt,“ segir Ása.
Ása Hjálmarsdóttir var sjúkraliði áratugum saman. Í ellinni lifir hún á 30 þúsund
krónum á mánuði sem oftast duga henni hálfan mánuðinn. Fyrir vikið leyfir hún sér
ekkert í innkaupum og þarf að biðja börnin sín um hjálp. Hún segir þingmenn lands-
ins lifa í fílabeinsturni þar sem þeir viti ekkert um það hvernig er að lifa við fátækt.
HAFRAGRAUTUR
Í FLEST MÁL
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Ég næ að kaupa inn fyrir svona
hálfan mánuð, stundum
þrjár vikur.
Mjög erfitt Ásu finnst erfitt að geta
ekki séð fyrir sjálfri sér og treystir á
hjálp barna sinna. Hún nær hvorki
að hafa í sig né á.
Afar sárt Ásgerði Jónu finnst sárt að
fylgjast með skjólstæðingi sínum þjást
vegna fátæktar og skilur ekki hvernig
Ásu sé ætlað að lifa af á þessum aurum.
Ungur nemandi í Langholtsskóla laus úr einangrun síðustu vikna:
Drengur sendur í annan skóla
Samkvæmt heimildum DV hefur ung-
ur nemandi í Langholtsskóla, sem
verið hefur í einangrun síðustu vikur,
verið færður úr skólanum yfir í Brúar-
skóla. Þangað eru nemendur í 5.-10.
bekk sendir sem glíma við alvarleg
geðræn vandamál eða hegðunarerf-
iðleika.
Ungi nemandinn, sem er af er-
lendu bergi brotinn, hefur verið úti-
lokaður frá samskiptum við jafn-
aldra sína. Foreldrar bekkjarsystra
hans lögðust gegn áframhaldandi
veru hans í bekknum eftir samskipti
við stúlkurnar. Kvartanir foreldra
hafa leitt til þess að ungi nemandinn
dvelur í sérherbergi yfir skóladaginn,
fjarri bekkjarsystkinum, fær hvorki að
fara í frímínútur með þeim né borða
með þeim hádegismat í matsal skól-
ans. Hann hefur aftur á móti fengið að
fara í frímínútur og í matsal með yngri
nemendum skólans. Þannig hafa síð-
ustu vikur verið hjá drengnum í skól-
anum.
DV hefur heimildir fyrir því að
hluti kennarahópsins í Langholts-
skóla sé ósáttur við úrvinnslu máls-
ins og íhugi uppsögn. Eftir því sem
DV kemst næst hefur kennurum verið
bannað að tjá sig um málið og þeim
neitað um að senda frá sér tilkynn-
ingu til foreldra í skólanum. Þá hefur
menntasviði borgarinnar borist form-
legt erindi þar sem óskað hefur verið
skýringa. Þá hefur málið verið rætt á
bekkjarfundum í þeim árgangi sem
nemandinn ungi var í.
Skólastjórnendur Langholtsskóla
hafa unnið að lausn málsins með
menntasviði Reykjavíkurborgar en á
meðan var talið nauðsynlegt að halda
drengnum í einangrun. Skólastjóri
skólans, Hreiðar Sigtryggsson, og
talsmaður menntasviðs, Auður Árný
Stefánsdóttir, skrifstofustjóri Grunn-
skólaskrifstofu Reykjavíkurborgar,
hafa bæði látið hafa eftir sér að sök-
um trúnaðar geti hvorugt þeirra tjáð
sig um málið en ávallt sé unnið eftir
ákveðnu ferli með fagaðilum. Þannig
sé reynt að finna bestu lausnina í
hverju máli.
trausti@dv.is
Farinn úr skólanum Ungi nemandinn hefur verið færður í Brúarskóla eftir að
foreldrar bekkjarsystra risu upp og kröfðust þess að hann yrði útilokaður frá
bekkjarsystkinum.
Féll útbyrðis
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNÁ
var kölluð út á laugardagskvöldið
eftir að tilkynning barst um sjómann
sem féll útbyrðis af togara sem var
að veiðum 67 sjómílur suðvestur af
Reykjanesi. Skipverjar voru að reyna
að ná manninum um borð en það
gekk illa.
Fór þyrlan í loftið klukkan 23.18,
þegar komið var í loftið barst til-
kynning frá stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar um að búið væri að ná
manninum um borð og endurlífgun
hafin, var þyrlulæknir í sambandi
við skipstjóra úr þyrlunni. Eftir
skoðun var maðurinn úrskurðaður
látinn.
Vinna fyrir þjóðina
Margrét Tryggvadóttir, þingmaður
Hreyfingarinnar, gagnrýnir það að
þingmenn sem hafa sagt af sér tíma-
bundið vegna
skýrslu Rann-
sóknarnefndar
Alþingis, skuli
segja af sér af
því að það þjóni
hagsmunum
flokks síns betur.
Hún sagði í Silfri
Egils á sunnudag
að Illugi Gunnarsson og Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir hefðu verið í
vinnu fyrir þjóðina, ekki Sjálfstæð-
isflokkinn, þegar þau stóðu vaktina
fyrir efnahagshrunið og ættu því að
segja af sér því það henti þjóðinni
betur en ekki Sjálfstæðisflokknum.
Afskrifa kröfu
Lífeyrissjóðurinn Stapi hefur afskrif-
að 4 milljarða króna kröfu á hendur
Straumi. Lögmenn sjóðsins gleymdu
að lýsa kröfunni í þrotabú Straums
áður en kröfulýsingarfrestur rann út.
Þessi ákvörðun hefur þau áhrif að
að tryggingafræðileg staða sjóðs-
ins verður lakari um 1 til 2 prósent.
Lögmenn Stapa hafa alveg frá því
upp komst um mistökin reynt að
lýsa kröfunni á hendur Straumi, en
stjórnendur sjóðsins hafa nú sætt sig
við að það muni ekki ganga eftir.
Hefur störf á DV
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
hefur verið ráðin umsjónarmaður
helgarblaðs DV. Hún mun starfa
við hlið Ásgeirs Jónssonar sem
eftir sem áður
stýrir innblaði
DV. Ingibjörg
hefur undan-
farið starfað
sem ritstjóri
Nýs Lífs og
Húsa og hí-
býla. Hún
hóf störf sem
blaðamaður á Mannlífi árið 2006.
Hún tók þátt í stofnun tímarits-
ins Ísafoldar árið 2007 og var rit-
stjórnarfulltrúi þess tímarits. Við
sameiningu Ísafoldar og Nýs Lífs
varð hún ritstjóri þess tímarits.