Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2010, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 19. apríl 2010 MÁNUDAGUR 11
Nú er skýrslan komin.
Hvað þarf að breytast
í stjórnarfari og
stjórnarháttum?
Fyrirlestur í Hátíðarsal Háskóla Íslands
Þriðjudaginn 20. apríl kl. 12.00
Fyrirlesari dr. Daniel Levin
Fundarstjóri Bolli Héðinsson
Dr. Daniel Levin hefur verið ráðgjafi ríkisstjórna
og stofnana í mörgum löndum um vöxt, viðgang
og reglur á fjármálamörkuðum, hrun fjármálastofnana,
efnahagsmál og stjórnmál, svo sem skuldaaðlögun,
einkavæðingu og úrlausnir deiluefna.
Ókeypis aðgangur - allir velkomnir
Dr. Daniel Levin veitir forstöðu
„Liechtenstein Foundation for
State Governance“.
Lögreglan hefur Sigurð Kárason
grunaðan um að hafa stundað um-
fangsmikla fjársvikastarfsemi hér á
landi um árabil. Hann á að hafa haft
nokkur hundruð milljónir króna af
rúmlega 90 manns.
Grímur Grímsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn og yfirmaður auðg-
unarbrotadeildar lögreglunnar, segir
að rannsóknin hafi staðið yfir í nokk-
urn tíma og brotin talin ná nokkur ár
aftur í tímann. Hæstiréttur staðfesti
fyrir helgi gæsluvarðhaldsúrskurð
héraðsdóms og mun Sigurður sitja í
gæsluvarðhaldi í fjórar vikur.
Lofaði ávöxtun
„Hann var handtekinn á mánudag-
inn [í síðustu viku] og er grunaður
um að hafa fengið fólk með ólög-
mætum hætti til að afhenda sér fjár-
muni. Fjárhæðin getur náð allt að
300 milljónum. Einstaklingarnir eru
mjög margir, líklega 90 talsins. Það
er hluti rannsóknarinnar að leiða í
ljós hversu lengi þetta hefur stað-
ið yfir, en talið er að þetta hafi gerst
á undanförnum árum,“ segir Grím-
ur en segir ekki hægt að fullyrða að
svo stöddu í hversu mörg ár meint
svikamylla hafi verið starfrækt. „Í
einhverjum tilfellum er það þannig
að sá grunaði lofar einhverri ávöxtun
á þessa peninga og er grunaður um
að hafa ætlað að koma þeim í fjár-
festingar. Grunur leikur á að hann
hafi hvorki staðið við það né haft
nokkra möguleika til slíks.“
Rannsókn lögreglunnar er viða-
mikil. „Það verða margir yfirheyrðir
vegna málsins, og reynt að komast í
samband við þetta fólk. Við höfum
ekki enn náð sambandi við alla þá
fjölmörgu einstaklinga sem kunna
að hafa verið fórnarlömb, tjónþol-
ar, í málinu. Og sá grunaði verður að
sjálfsögðu yfirheyrður, oftar en einu
sinni og oftar en tvisvar,“ segir að-
stoðaryfirlögregluþjónninn.
Heimildarmenn DV segja að
nokkur ár séu frá því að grunur fór að
beinast að Sigurði um fjársvikastarf-
semi. Sagt er að margir hafi í gegnum
árin reynt að benda lögregluyfirvöld-
um á það, hann hafi verið kærður
en lögreglan hafi ekki stöðvað hann
af einhverjum ástæðum. „Lögreglu
hefur áður verið tilkynnt um mann-
inn, það get ég staðfest,“ segir Grímur
Grímsson.
Úr spilasal í hótel og tívolí
Sigurður Kárason var á árum áður
þekktur athafnamaður á Íslandi.
Viðskiptaferillinn hófst þegar hann
rak spilakassasal nálægt Hlemmi í
Reykjavík. Hann stofnaði tívolí og
starfrækti það fyrst um sinn í Reykja-
vík en síðar í Hveragerði sem lands-
menn muna margir eftir. Árið 1985
keypti Sigurður ásamt þáverandi
viðskiptafélaga sínum Hótel Borg
og vöktu þau kaup talsverða athygli.
Hótel Borg var fjórum árum síðar
boðin upp á nauðungaruppboði en
reksturinn hafði reynst erfiður.
Ýmis deilumál og fjármálaerfið-
leikar í tengslum við tívolíið í Hvera-
gerði rötuðu á síður blaðanna á ní-
unda og tíunda áratug síðustu aldar.
Að lokum fór svo, í kringum árið
1990, að tívolíið varð gjaldþrota og
reksturinn lagðist af.
Í september 1989 voru Sigurður
Kárason og félagi hans Pálmi Magn-
ússon, dæmdir í sakadómi Reykja-
víkur, í fimm mánaða fangelsi hvor,
fyrir fjársvik og fyrir að hafa haldið
eftir vörslufé af launum starfsmanna
tívolísins og Hótel Borgar á árunum
1985-1986. Dómarnir voru skilorðs-
bundnir í þrjú ár.
Gaf Sigurði 30 milljónir
Sigurður Kárason var árið 1998 í
Hæstarétti dæmdur í 20 mánaða
fangelsi í hinu svokallaða „milli-
færslumáli“. Sigurður var sakfelldur
fyrir að misnota aðstöðu sína þegar
hann lét Alzheimer-veika konu á nír-
æðisaldri leggja inn á bankareikning
sinn um 30 milljónir króna (um 60
milljónir króna að núvirði). Var Sig-
urður dæmdur til að greiða fjármun-
ina til baka með vöxtum.
Konan, Ásrún Einarsdóttir, lést
árið 2005, 89 ára að aldri. Hún var
eiginkona Arons Guðbrandssonar,
forstjóra Kauphallarinnar, sem auðg-
aðist mikið á verðbréfaviðskiptum á
sínum tíma. Þar sem þau hjónin voru
barnlaus sat Ásrún í óskiptu búi eftir
fráfall Arons, en ætlunin var að hinar
miklu eignir hans myndu síðar meir
renna til líknarmála.
Sigurður var heimagangur á
heimili Ásrúnar eftir fráfall Arons
árið 1981. Þau urðu góðir vinir og er
Sigurður sagður hafa aðstoðað hana
á ýmsa lund, til dæmis með viðhald á
húsi hennar, en hann er húsamálari
að mennt.
Við fráfall Ásrúnar var búi þeirra
Arons skipt. Runnu 43 milljónir til
Krabbameinsfélag Íslands, Styrktar-
félags vangefinna, Blindravinafélags-
ins og fleiri félaga.
Það er hluti rann-sóknarinnar að
leiða í ljós hversu lengi
þetta hefur staðið yfir,
en talið er að þetta hafi
gerst á undanförnum
árum.
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Sigurður Kárason situr í haldi lögreglu, grunaður um að hafa svikið 300 milljónir út úr 90 einstaklingum.
Hann rak tívolíið í Hveragerði á árum áður og átti Hótel Borg um skamma hríð. Árið 1999 var Sigurður
dæmdur í 20 mánaða fangelsi fyrir að fá konu á níræðisaldri til að afhenda sér 30 milljónir króna.
TELJA FJÁRSVIKIN
HAFA VARAÐ LENGI
Í klessubílnum í Hveragerði Sigurður
Kárason hefur tvisvar verið dæmdur fyrir
fjársvik. Hann er nú grunaður um að
hafa fengið 90 manns til að afhenda sér
samtals 300 milljónir með ólögmætum
hætti.
Gæsluvarðhaldið staðfest Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurðinn yfir
Sigurði fyrir helgi. Hann hefur áður hlotið dóm fyrir fjársvik.