Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2010, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2010, Blaðsíða 29
SVIÐSLJÓS 19. apríl 2010 MÁNUDAGUR 29 Paris Hilton smellti rembingskossi á afa sinn, Barron Hilton, þegar hún fór út að borða með fjölskyldu sinni í Hollywood fyrir helgi. Með í för voru einnig foreldrar Parisar og systir hennar Nicky. Háværar sögusagnir hafa verið um sambandsslit Parisar og unnusta hennar Dougs Reinhardt en þær hafa nú ver- ið staðfestar. Lengi neitaði Paris öllu slíku og sagði meðal annars á Twitter-síðu sinni: „Getur stúlka ekki farið út að skemmta sér með systur sinni án þess að svona fáránlegar stöður fari af stað?“ Nú hefur talsmaður hennar staðfest fregnirnar en Par- is og Doug höfðu verið saman í 14 mánuði. Talsmaðurinn sagði einnig að reyndar hefði sambandinu verið lokið fyrir þó nokkru eða fyrir tveimur vikum. Á hraðri UPPLEIÐ Candice Swanepoel: Baðfatafyrir-sætan Candice Swanepoel er á hraðri uppleið í fyrir- sætubransanum. Hún prýddi forsíðu baðfataút- gáfu Sports Illustrated síð- ast en það er eitt mest selda tímarit Bandaríkjanna ár hvert. Þá er hún nýjasta við- bótin við elítu engla Victor- iu en þar er að finna flestar af þekktustu bað- og undirfata- fyrirsætum heims. Þessar myndir eru teknar af Candice fyrir suðurafrísku út- gáfuna af GQ en hún er fædd og uppalin í Suður-Afríku. Það var einmitt á fatamarkaði í Jóhann- esarborg sem útsendarar mód- elskrifstofu komu auga á hana og nú nokkrum árum seinna er hún hratt rísandi stjarna. Candice Swane- poel Er sjóðandi heit og á uppleið. Tila Tequila í samkeppni við Perez Hilton: Vígði bloggið með stæl Söngkonan, raunveru-leikasjónvarpsstjarnan og nú slúðurbloggarinn Tila Tequila vígði nýja blogg- síðu sína með stæl fyrir helgi. Slóðin á síðu hennar er tila- tequilaomg.com en omg í lok slóðarinnar stendur fyrir „Oh my God“ eða Guð minn góð- ur. Tila segir slúðurblogg sitt vera í beinni samkeppni við ofurbloggarann Perez Hilton sem varð heimsfrægur fyrir það eitt að skrifa um fræga fólkið í Hollywood. Hún segist ætla að velta Perez úr „hásætinu“ en þau hafa eldað grátt silfur í gegnum tíðina. Enda kallar Tila hann Piggy Perez. Djörf Virðist gera nánast hvað sem er fyrir athygli. Tila Tequila Hefur opnað vefsíðuna tila tequila omg.com. Paris Hilton hætt með Doug Reinhardt: Einhleyp og kyssir afa Heppinn afi Barron fær rembings koss. Hætt með Doug Eftir 14 mánaða samband.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.