Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2010, Blaðsíða 29
SVIÐSLJÓS 19. apríl 2010 MÁNUDAGUR 29
Paris Hilton smellti rembingskossi á afa sinn, Barron Hilton, þegar hún fór út að borða með fjölskyldu sinni í Hollywood fyrir helgi. Með í för voru einnig
foreldrar Parisar og systir hennar Nicky.
Háværar sögusagnir hafa verið um sambandsslit Parisar
og unnusta hennar Dougs Reinhardt en þær hafa nú ver-
ið staðfestar. Lengi neitaði Paris öllu slíku og sagði meðal
annars á Twitter-síðu sinni: „Getur stúlka ekki farið út að
skemmta sér með systur sinni án þess að svona fáránlegar
stöður fari af stað?“
Nú hefur talsmaður hennar staðfest fregnirnar en Par-
is og Doug höfðu verið saman í 14 mánuði. Talsmaðurinn
sagði einnig að reyndar hefði sambandinu verið lokið fyrir
þó nokkru eða fyrir tveimur vikum.
Á hraðri
UPPLEIÐ
Candice Swanepoel:
Baðfatafyrir-sætan Candice Swanepoel er
á hraðri uppleið í fyrir-
sætubransanum. Hún
prýddi forsíðu baðfataút-
gáfu Sports Illustrated síð-
ast en það er eitt mest selda
tímarit Bandaríkjanna ár
hvert. Þá er hún nýjasta við-
bótin við elítu engla Victor-
iu en þar er að finna flestar af
þekktustu bað- og undirfata-
fyrirsætum heims.
Þessar myndir eru teknar af
Candice fyrir suðurafrísku út-
gáfuna af GQ en hún er fædd og
uppalin í Suður-Afríku. Það var
einmitt á fatamarkaði í Jóhann-
esarborg sem útsendarar mód-
elskrifstofu komu auga á hana
og nú nokkrum árum seinna er
hún hratt rísandi stjarna.
Candice Swane-
poel Er sjóðandi
heit og á uppleið.
Tila Tequila
í samkeppni
við Perez
Hilton:
Vígði bloggið
með stæl
Söngkonan, raunveru-leikasjónvarpsstjarnan og nú slúðurbloggarinn
Tila Tequila vígði nýja blogg-
síðu sína með stæl fyrir helgi.
Slóðin á síðu hennar er tila-
tequilaomg.com en omg í lok
slóðarinnar stendur fyrir „Oh
my God“ eða Guð minn góð-
ur.
Tila segir slúðurblogg sitt
vera í beinni samkeppni við
ofurbloggarann Perez Hilton
sem varð heimsfrægur fyrir það
eitt að skrifa um fræga fólkið
í Hollywood. Hún segist ætla
að velta Perez úr „hásætinu“
en þau hafa eldað grátt silfur í
gegnum tíðina. Enda kallar Tila
hann Piggy Perez.
Djörf Virðist gera nánast
hvað sem er fyrir athygli.
Tila Tequila Hefur
opnað vefsíðuna
tila tequila omg.com.
Paris Hilton hætt með Doug Reinhardt:
Einhleyp og kyssir afa
Heppinn afi Barron
fær rembings koss.
Hætt með Doug Eftir 14
mánaða samband.