Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2010, Side 10
10 MÁNUDAGUR 19. apríl 2010 FRÉTTIR
Þrír danskir lögmenn, sem stýra
þrotabúum danskra dótturfélaga
íslenska fasteignafélagsins Land-
ic Property, hafa sent fyrrverandi
stjórnarmönnum félaganna bréf
þar sem þeir láta þá vita af því að
þeir gætu verið krafðir um bætur
til þrotabúanna vegna starfa sinna
fyrir þau. Bæturnar gætu hljóðað
upp á allt að níu milljarða króna,
um 385 milljónir danskra króna,
samkvæmt heimildum DV. Líklegt
þykir að tryggingar stjórnendanna
muni dekka bótakostnaðinn ef svo
fer að þeim verði stefnt.
Ekki er um innheimtubréf að
ræða því ekki liggur ljóst fyrir að
stjórnarmennirnir þurfi að greiða
bæturnar en í bréfunum mun koma
fram að þeir verði hugsanlega krafð-
ir um bætur. Bótakrafan er byggð
á ákvæðum í dönskum lögum um
ábyrgð stjórnarmanna samkvæmt
heimildum DV. Ekki er vitað hvaða
ákvarðanir það eru sem skiptastjór-
arnir vilja fá bætur fyrir.
Landic Property, sem var í eigu
FL Group, Ingibjargar Pálmadótt-
ur, Fons og fjárfestingafélagsins
Stapa, var tekið til gjaldþrotaskipta
í lok janúar á þessu ári. Félagið
skuldaði rúmar 970 milljónir evra,
rúmlega 141 milljarð króna á þá-
gengi, í október 2008. Dönsku dótt-
urfélögin voru tekin til gjaldþrota-
skipta í fyrra.
Fyrirtækið átti fjölmörg dóttur-
félög og fasteignir á Norðurlönd-
unum í gegnum dönsku félögin
Keops Development A/S, Landic
Property A/S og Landic Investment
A/S. Landic átti meðal annars stór-
verslanirnar Illum og Magasin du
Nord í Danmörku. Lögmennirnir
þrír sem eru skiptastjórar búanna
þriggja sendu stjórnarmönnun-
um bréfin. Um er að ræða sænska,
danska og íslenska stjórnarmenn.
Snýst um persónulega ábyrgð
DV hafði samband við tvo af lög-
mönnunum og þeir staðfestu báð-
ir að slíkt bréf hefði verið sent til
stjórnarmanna í dönsku dóttur-
félögunum. Þeir vildu hins vegar
ekkert tjá sig um bréfin þar sem
kröfuhöfum félaganna hefur ekki
verið greint frá bréfsendingunni til
stjórnarmannanna.
Annar lögmannanna segir
þó að ekki sé um kröfu á hendur
stjórnarmönnunum að ræða held-
ur verði stjórnarmennirnir að öll-
um líkindum krafðir um bætur eftir
því hver ábyrgð þeirra var á tiltekn-
um ákvörðunum. „Í þrotabúum í
Danmörku er það svo að kröfur eru
gerðar á hendur einstaka stjórnar-
mönnum en ekki á hendur stjórn-
inni sem heild. Þegar þú ert með
stjórn sem hefur tekið ákvörðun
um eitthvað gæti það verið svo að
þeir sem greiddu atkvæði með séu
skaðabótaskyldir en ekki þeir sem
greiddu atkvæði gegn ákvörðun-
inni. Þetta getur svo auðvitað líka
verið öfugt,“ segir lögmaðurinn í
símasamtali frá Kaupmannahöfn.
Skarphéðinn fékk bréf
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
fyrrverandi forstjóri Landic Prop-
erty og stjórnarmaður í dönsku
dótturfélögunum, segist ekki kann-
ast við að stjórnarmennirnir hafi
fengið innheimtubréf, en fyrsta
heimild DV um málið sagði að
svo væri, frá þrotabúunum en seg-
ist hins vegar kannast við að hafa
fengið bréf frá skiptastjórunum
þar sem honum er tjáð að hugsan-
lega komi til þess að hann þurfi að
greiða stjórnendatryggingu. „Hins
vegar kannast ég við að einhverj-
ar stofur hafi gert mönnum viðvart
varðandi stjórnendatryggingar.
Ég hef fengið bréf frá þeim sem er
svona teknískt í dönskum rétti þar
sem menn gera vart við það að ef
til þess kemur að gerðar verði ein-
hverjar kröfur eigi þeir að vera með
sín tryggingamál á hreinu,“ segir
Skarphéðinn Berg sem bætir því
við aðspurður að ýmsar ástæður
geti legið að baki slíkum kröfum á
stjórnarmenn.
Vanræksla möguleg ástæða
Viðar Þorkelsson, sem tók við for-
stjórastarfinu í Landic Property af
Skarphéðni Berg eftir hrunið í nóv-
ember 2008, segist einnig hafa feng-
ið slíkt bréf frá dönsku lögmönnun-
um. „Ég hef fengið svona bréf þrátt
fyrir að hafa komið inn í félagið
þetta seint. Ég sat í stjórn nokkurra
þessara félaga,“ segir Viðar.
Aðspurður af hverju bréfin séu
send, hvort skiptastjórarnir telji
að þeir hafi komið að óeðlilegum
ákvörðunum innan félaganna seg-
ir Viðar: „Já, það er væntanlega
eitthvað í þá veruna... En það er of
snemmt að segja eitthvað til um
það nákvæmlega.“ Segir Viðar sem
var fenginn inn í Landic til að sjá
um endurskipulagningu félagsins.
Aðspurður hvaða ákvarðanir
það séu sem skiptastjórarnir setji
út á segir Viðar: „Ég get nú ekki sagt
til um það í smáatriðum. Þetta er
nýlega komið til okkar og við höf-
um ekki farið yfir þetta í smáatrið-
um. Þetta eru ýmis atriði en fyrst og
fremst er þetta tæknilegt í mínum
huga. En ég veit satt að segja ekki
alveg eftir hverju þeir eru að fiska.
En það er nú bara þannig í dag að
við höfum orðið varir við það í öllu
þessu ferli að lögmenn í Danmörku
ganga mjög langt í sínum erindis-
rekstri. Við höfum ekki kynnst
svona löguðu á Íslandi.“ Hann bæt-
ir því við aðspurður að rök skipta-
stjóranna séu byggð á ákvæðum
laga um ábyrgð stjórnarmanna.
Viðar segir að stjórnendurnir
séu með stjórnendatryggingar og
að hugsanlega ætli skiptastjórarn-
ir sér að reyna að komast yfir þá
peninga. „Það eru á bak við þetta
stjórnendatryggingar sem menn
sjá kannski eitthvert fé í,“ segir
hann en bæturnar vegna stjórn-
endatrygginganna munu þá koma
frá tryggingarfélögum stjórnar-
mannanna. „Það er hins vegar
engan veginn ljóst hvort einhverj-
ar málssóknir hljótist af þessu. Það
er ekki búið að stefna einum eða
neinum... En ef það verður gert
reynir á stjórnendatrygginguna,“
segir Viðar sem ekki getur staðfest
um hversu háar fjárhæðir stjórnar-
mennirnir verði hugsanlega krafð-
ir.
Kröfuhöfum dönsku dótturfé-
laganna verður greint frá efni bréf-
anna sem fyrrverandi starfsmenn
og stjórnendur dótturfélaganna
hafa fengið send í þessari viku. Lík-
legt má telja að nánar verði greint
frá gagnrýni skiptastjóranna eftir
þetta en þeir eru tregir til þess að
veita upplýsingar um málið fyrr en
það verður.
Skiptastjórar danskra þrotabúa dótturfélaga Landic Property hafa sent nokkrum stjórnendum félagsins bréf
þar sem fram kemur að hugsanlega verði þeir krafðir um bætur vegna starfa sinna. Tveir forstjórar Landic
Property fengu slík bréf fyrir skemmstu. Erlendir starfsmenn Landic hafa einnig fengið slík bréf um bætur.
INGI F. VILHJÁLMSSON
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þar sem rætt
er um Landic Property. 2. bindi, blaðsíða 231
„Landic Property hf. (áður Fasteignafélagið Stoðir hf.) var eitt stærsta fast-
eignafélagið á Norðurlöndum, með starfsemi á Íslandi, Finnlandi, Danmörku
og Svíþjóð. Félagið sérhæfði sig í umsýslu og leigu á atvinnuhúsnæði til
fyrirtækja og einstaklinga. Umsvif Landic Property jukust verulega á síðustu
árum, sér í lagi eftir kaup á fasteignafélaginu Keops í Danmörku árið 2007.
Sögu Landic Property má rekja allt aftur til 1999 þegar Fasteignafélagið Stoðir
hf. var stofnað. Árið 2002 sameinuðust Fasteignafélagið Stoðir hf. og Þyrping
hf. undir nafni Fasteignafélagsins Stoða hf. Á árinu 2005 keypti félagið danska
fasteignafélagið Atlas Ejendomme, sem átti m.a. fasteignir stórverslananna
Illum og Magasin í Kaupmannahöfn. Umsvif félagsins jukust enn með kaup-
um á danska fasteignafélaginu Keops árið 2007. Meðal stærstu viðskiptavina
Landic Property á Íslandi voru Hagar, Reykjavíkurborg, Landsbankinn, Glitnir,
Hilton Hotel og Actavis. Stærstu hluthafar félagsins sumarið 2008 voru Stoðir
hf. (39,8%), Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir og tengdir aðilar (16,3%), Stapi
fjárfestingarfélag ehf. (13%) og Fons hf. (7,5%).“
Stjórnarmenn gætu lent í því Stjórnarmenn í
dönskum dótturfélögum íslenska fasteignafélagsins
Landic Property gætu þurft að greiða bætur til
þrotabúa félaganna. Skarphéðinn Berg Steinarsson
var forstjóri Landic þar til eftir hrunið og Hannes
Smárason var hluthafi í félaginu í gegnum FL Group.
VILJA BÆTUR FRÁ
STJÓRNENDUM Það er ekki búið að stefna einum eða neinum.