Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2010, Blaðsíða 15
Boða þarf til aðalfundar húsfélaga með minnst átta sólarhringa
fyrirvara. Mikilvægt er að skrifa fundargerðir af slíkum fund-
um. Þeir sem ekki komast á aðalfundi húsfélaga geta framvísað
skriflegu umboði svo aðrir geti mætt á fund fyrir þeirra hönd.
GUÐBJÖRG MATTHÍASDÓTTIR, lögfræðingur Húseigendafélagsins, svarar fyrirspurnum.
NEYTENDUR 19. apríl 2010 MÁNUDAGUR 15
TÍU RÁÐ ORKUSETURSINS TIL AÐ SPARA ORKU
• Lækka innihita (um 20°C er hæfilegt).
• Slökkva alveg á raftækjum, ekki skilja þau eftir í biðstöðu.
• Hafa glugga lokaða nema við gagngera loftun.
• Ganga eða hjóla styttri vegalengdir.
• Fylla ávallt þvottavél og uppþvottavél.
• Hafa lok á pottum og pönnum og þekja alla helluna.
• Setja gluggatjöld fyrir glugga að næturlagi.
• Vistakstur með mjúkum akstri og réttum loftþrýstingi í dekkjum.
• Ekki byrgja ofna með húsgögnum eða gluggatjöldum.
• Fara í sturtu frekar en bað.
AÐALFUNDIR
spurt og svarað
Með hvað miklum fyrirvara er
skylt að boða til aðalfundar og
hvaða afleiðingar hefur það ef
boðað er til fundar með of stutt-
um fyrirvara? Haldinn var að-
alfundur fyrir stuttu sem boðað
var til með 5 sólarhringa fyrir-
vara og allir mættu.
Boða þarf til aðalfundar með
minnst 8 en mest 20 sólarhringa
fyrirvara. Verði misbrestur á get-
ur það haft þær afleiðingar að
ákvarðanir sem teknar eru á fund-
inum verða ekki bindandi gagn-
vart þeim sem ekki mæta. Sé
ástæða til að bæta úr slíkum ann-
marka má boða til annars fundar
þar sem fyrri ákvarðanir eru stað-
festar. Þeir sem mæta á fund og
taka þátt í atkvæðagreiðslu geta
hins vegar ekki borið fyrir sig síð-
ar að fundurinn hafi verið ólög-
mætur á þeim grunni einum að
boðað hafi verið til fundar með of
skömmum fyrirvara.
Í húsinu mínu á að halda hús-
fund þar sem ræða á fullt af mál-
um sem varða lóðina. Ekkert
kemur fram um að kjósa eigi nýja
stjórn eða leggja fram reikninga.
Ekki hefur verið haldinn aðal-
fundur í þrjú ár og sama fólkið
er enn í stjórn. Er þetta í lagi?
Samkvæmt lögum um fjöleignar-
hús er húsfélögum skylt að halda
aðalfund árlega og eigi síðar en
í apríllok. Mikilvægustu verkefni
aðalfundar eru kosning stjórnar
og framlagning ársreikninga. Ekk-
ert er því til fyrirstöðu að sama fólk
sinni stjórnarstörfum áfram en
það þarf að fara fram árleg kosn-
ing engu að síður. Þá skal stjórn,
einkum gjaldkeri, sjá um að bók-
hald húsfélagsins sé fært og haldið
á fullnægjandi hátt en leggja þarf
fram efnahags- og rekstrarreikn-
ing á aðalfundi árlega til sam-
þykktar.
Hvað get ég gert ef ég er stödd
á húsfundi og verið er að taka
ákvörðun um eitthvað sem ég
tel ólöglegt eða t.d. að ég tel að
fullnægjandi samþykki hafi ekki
náðst eftir atkvæðagreiðslu og
ekkert er á mig hlustað?
Ef kurteisar ábendingar og rök-
ræður duga ekki til geta einstaka
fundarmenn óskað eftir því að
fá stutta bókun færða inn í fund-
argerð. Það að röksemdin eða
ábending sé bókfærð getur ver-
ið gagnlegt þegar fram í sækir þar
sem hún er skráð. Slík bókun hef-
ur almennt ekki úrslitaáhrif á það
hvort viðkomandi geti náð fram
rétti síðar en getur skipt máli í ein-
hverjum tilvikum. Komi til þess að
framkvæma eigi umdeilda ákvörð-
un er hægt að leggja málið fyrir
kærunefnd fjöleignarhúsamála.
Ég mætti ekki á aðalfund og
núna er ágreiningur í húsinu
milli hluta íbúa um hvað var
ákveðið og ég beðinn um að taka
afstöðu. Hvernig er hægt að sýna
fram á hvað er rétt og rangt í
þessu?
Hér sannast mikilvægi fund-
argerða því án þeirra er erfitt
að greiða úr ágreiningi um efni
ákvarðana. Í fundargerð er mik-
ilvægast að fram komi hvaða
ákvarðanir voru teknar og niður-
staða atkvæðagreiðslu. Þær þurfa
því ekki að vera langar. Þumal-
puttareglan er sú að þær eru kafla-
skiptar til samræmis við dagskrá
auglýsts aðalfundar eða húsfund-
ar. Fundarboðið sjálft er þannig
vísbending til ritara um uppbygg-
ingu fundargerðarinnar. Í þessu
tilfelli þarf því að kanna hvort
fundargerð hafi verið rituð. Þar
ætti að koma fram efni ákvarðana
a.m.k. í grófum dráttum. Fyrsta
skref er því að kalla eftir afriti
fundargerðar.
Ég er á leiðinni úr landi og næ
því ekki að mæta á aðalfund.
Það þarf að skipta um stjórn og
ég hefði viljað mæta. Get ég sent
hvern sem er fyrir mig t.d. leigj-
endur sem eru að taka við íbúð-
inni núna?
Hver sá sem framvísar skriflegu
umboði getur mætt á fund og
greitt atkvæði fyrir þína hönd.
Maki eða sambúðaraðili getur þó
mætt á fund án sérstaks umboðs.
Umboðið verður að vera skrif-
legt og dagsett. Fundurinn getur
ákveðið að heimila leigjendum í
húsinu eða öðrum sem geta átt
hagsmuna að gæta að sitja fund-
inn og hafa þar málfrelsi en hvorki
tillögu- né atkvæðisrétt. Þar sem
hagsmunir þínir lúta að kosningu
stjórnar er mikilvægt að hver sá
sem mun mæta fyrir þína hönd,
annar en maki, hafi skriflegt um-
boð.
vexti. Alls kostar því meira en 1,1 millj-
ón króna á ári að eiga nýjan bíl.
52 þúsund á mánuði
Útborguð miðlungslaun á Íslandi eru
um 2,7 milljónir króna á ári. Miðl-
ungslaun eru ekki meðallaun (sem
eru hærri). Í miðlungslaunum felst að
jafnmargir hafi hærri og lægri laun.
Heildartekjur þessa einstaklings eru
373 þúsund krónur á mánuði en út-
borguð laun eru þá áætluð um 224
þúsund krónur á mánuði. Sá sem hef-
ur slík laun notar 23 prósent launa
sinna í rekstur nýlegs bíls. Ef viðkom-
andi einstaklingur selur bílinn sinn
hækka ráðstöfunartekjurnar um 30
prósent, eða um 52 þúsund krónur
á mánuði. Inni í tölunni er ekki tekið
mið af afborgunum láns sem kann að
hvíla á bifreiðinni.
Þess ber að geta að þó lítill mark-
aður sé fyrir nýja bíla er markaður
fyrir nýlega bíla nokkuð virkur. Sumir
búa hins vegar við það ástand að bíl-
ar þeirra eru yfirveðsettir vegna stökk-
breyttra myntkörfulána. Þeir eiga auð-
vitað erfitt um vik en Hæstiréttur mun
á vordögum úrskurða um það hvort
erlend lán séu lögleg eða ekki. Ef rétt-
urinn staðfestir úrskurð héraðsdóms
kann staða þeirra sem hafa myntkörfu-
lán að breytast til hins betra.
Strætó eða hjól
Strætókort kostar á ársgrundvelli
42.000 krónur ef 9 mánaða kort er
keypt. Það er með öðrum orðum ódýr-
ara fyrir einstakling að taka strætó í
eitt ár en eiga bíl í einn mánuð. Þó skal
haft í huga að ekki hafa allir lands-
menn kost á að nota almenningssam-
göngur á borð við strætó.
Hinn valmöguleikinn sem fólk hef-
ur er að hjóla eða ganga, sem felur þó
í sér umtalsverða lífsstílsbreytingu.
Áætla má að reiðhjól kosti á við rekst-
ur bíls í einn mánuð.
Borgarfulltrúinn Gísli Marteinn
Baldursson skrifaði nýlega pistil á
heimasíðu sína um þennan valkost.
„Ég veit um nokkur heimili í borg-
inni sem hafa brugðist við þessu með
afar einföldum hætti: Selt bílinn sinn
eða tekið hann af númerum og byrjað
að ferðast ókeypis. Vitanlega er þetta
talsverð breyting á lífsstíl, en sú breyt-
ing er að mestu til góðs. Fólk hjólar
eða gengur til vinnu, kemur sér við
það í betra form og getur sparað sér
kostnað við ýmiskonar líkamsrækt. Ný
útgjöld koma auðvitað til sögunnar,
svo sem strætóferðir við ákveðin tæki-
færi eða leigubílar. En sá kostnaður er
dropi í hafið á móti bílnum,“ skrifaði
Gísli.
Hér til hliðar má sjá svokallað kort-
erskort, en þar sést hversu langt má
komast á reiðhjóli á einu korteri. Mið-
að er við að hjólað sé rólega en þeir
sem eru í góði formi geta vafalítið hjól-
að helmingi lengra.
Ráðlagður dagskammtur hreyfingar er 30
mínútur samkvæmt erlendum rannsókn-
um. Með því að hjóla tvisvar á dag í korter
má uppfylla daglega hreyfiþörf. Umhverf-
issvið Reykjavíkurborgar lét útbúa þetta
kort sem sýnir þá vegalengd sem meðal-
hjólreiðamaður ferðast á aðalstígum borg-
arinnar á 15 mínútum út frá þungamiðju.
Þú kemst þetta
langt á korteri