Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 21. júlí 2010 FRÉTTIR 7
Aðeins nokkrar vikur eru í að gestir
geti barið eðlur og slöngur augum í
návígi í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum í Laugardalnum í Reykjavík.
Tvær tegundir af eðlum og slöngum
eru nú í sóttkví undir eftirliti starfs-
manna Húsdýragarðsins og gangi
allt að óskum gætu aðeins verið um
fimm vikur í að skriðdýrin verði tekin
til sýningar.
Einhver gæti haldið að koma
skriðdýranna í Laugardalinn teng-
ist því að Jón Gnarr er orðinn borg-
arstjóri. Svo er þó ekki því nokkuð
er síðan sótt var um leyfi til að flytja
skriðdýrin inn til landsins og var ráð-
gert að taka þau til sýningar á árinu.
Fjölskyldu-og húsdýragarðurinn
fagnar á þessu ári 20 ára afmæli sínu
og var ákveðið að prófa eitthvað nýtt
á afmælisárinu. Að sögn Unnar Sig-
urþórsdóttur, deildarstjóra fræðslu-
deildar, hafa um sextán dýr í það
heila verið í sóttkví í um 2-3 vikur.
Yfirdýralæknir fer fram á að dýr sem
þessi séu í sóttkví í átta vikur áður en
ákvörðun er tekin um hvort dýrun-
um verði hleypt inn.
Kyrkislöngur og skeggdrekar
Sem fyrr segir er um að ræða fjór-
ar tegundir skriðdýra, sextán stykki
í það heila. Slöngutegundirnar eru
tvær. Annars vegar bóaslanga, sem
er kyrkislanga, og kornsnákur. Eðl-
utegundirnar tvær eru iguana-eðlur
og skeggdrekar. Skeggdrekar, þrátt
fyrir sitt ógnvænlega nafn, verða
venjulega ekki mikið meira en 60
sentímetrar að lengd. Bóaslöngur
geta hins vegar orðið allt að fjórum
metrum að lengd, og jafnvel rúm-
lega það.
Þessi skriðdýr eru ekki talin hættu-
leg en starfsfólk Fjölskyldu- og hús-
dýragarðsins hefur fengið þjálfun í
meðhöndlun þeirra og hefur sérstök-
um vistarverum þegar verið komið
upp fyrir dýrin í Húsdýragarðinum.
Aldrei áður hafa dýr sem þessi ver-
ið til sýningar hér á landi og heppnist
sóttkvíin verður því um að ræða tíma-
mótaatburð sem vonir standa til að
laði fleiri gesti að garðinum.
Vonar að borgarstjóri kunni að
meta dýrin
Mikið hefur verið fjallað um það
kosningaloforð Besta flokksins að
fá ísbjörn í Húsdýragarðinn. Nú eru
hjólin farin að snúast í þeim efnum
eins og lesa má í DV í dag en aðspurð
segir Unnur þó að borgarstjórinn,
Jón Gnarr, hafi ekki haft hönd í bagga
með að gefa grænt ljós á komu skrið-
dýranna. Ákvörðunin um að fá þau til
sýningar hafi verið afrakstur stefnu-
mótunarfunda starfsmanna fyrir þó
nokkru. „En borgarstjóri er vonandi
bara ánægður með komu þessara
dýra,“ segir Unnur. Ljóst er að ef allt
gengur upp verður Húsdýragarður-
inn býsna spennandi viðkomustaður
fyrir fólk á öllum aldri.
DV reyndi að ná tali af Jóni Gnarr
borgarstjóra til að spyrja hann út í
skoðanir hans á komu skriðdýranna í
Húsdýragarðinn en blaðið náði ekki í
hann.
Borgarstjóri er vonandi bara
ánægður með komu
þessara dýra.
SLÖNGUR Á LEIÐ Í
HÚSDÝRAGARÐINN
Ef allt gengur að óskum eru fimm vikur í að gestir Fjölskyldu- og húsdýragarðsins
geti skoðað slöngur og eðlur í garðinum. Sextán dýr eru nú í sóttkví og bíða leyfis
svo gestir og gangandi geti barið þau augum í fyrsta skipti hér á landi.
SIGURÐUR MIKAEL JÓNSSON
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Skeggdrekinn Ermeðal
þeirraskriðdýrasemlands-
menngetabráttskoðað.
Kyrkislanga Bóaslangaerkyrki-
slöngutegundsemgeturorðið
rúmlegafjögurrametralöng.
Runnu á lyktina
Lögreglumenn í eftirlitsferð um Eyr-
arbakka á mánudagskvöld fundu
einkennilega lykt á ferð sinni um
bæinn. Í ljós kom að um var að ræða
kannabislykt sem kom frá húsi einu í
bænum. Lögreglumennirnir kölluðu
á liðsauka og bönkuðu upp á. Þar
fundu þeir par á þrítugsaldri sem
var að skera niður þrjátíu kannabis-
plöntur í neysluskammta, samtals
um eitt kíló. Lögreglan lagði hald á
allan búnað og plöntur og handtók
fólkið. Myndin hér að ofan tengist
fréttinni ekki beint.
Sendinefnd AGS
á Íslandi
Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyr-
issjóðnum er stödd hér á landi
og verður fram á fimmtudag.
Nefndin mun meðal annars eiga
viðræður við stjórnvöld vegna
þriðju endurskoðunnar Íslands
og sjóðsins.
Önnur endurskoðunin var
samþykkt í apríl síðastliðnum.
Komið hefur fram að viðbúið sé
að endurskoðunin tefjist vegna
dóms Hæstaréttar um gengis-
tryggð lán og áhrif hans á efna-
hagsstöðu landsins.
Íslendingur
til Kabúl
Þórður Ægir Óskarsson sendiherra
hefur á vegum Íslensku friðar-
gæslunnar tekið að sér starf yfir-
manns pólitískra mála á skrifstofu
sérlegs fulltrúa framkvæmda-
stjóra Atlantshafsbandalagsins í
Afganistan,
Mark Sed-
will. Er hann
jafnframt stað-
gengill Sed-
wills.
Starf Þórð-
ar felur meðal
annars í sér
ábyrgð á sam-
skiptum og samvinnu við afgönsk
stjórnvöld, þing og þingmenn,
sendinefnd Sameinuðu þjóðanna
í landinu, aðrar alþjóðlegar stofn-
anir og erlend sendiráð í Kabúl.
Yfirmaður pólitískra mála tekur
jafnframt virkan þátt í sáttaferli
stríðandi fylkinga í landinu og
samskiptum við nágrannaríkin,
einkum Pakistan.
Bauð Björk
hlut í HS Orku
Ross Beaty, stjórnarformaður og for-
stjóri Magma Energy, bauð söng-
konunni Björk Guðmundsdóttur að
kaupa 25 prósenta hlut í HS Orku.
Frá þessu greindi vefútgáfa tímarits-
ins Reykjavík Grapevine á þriðjudag.
Þar er einnig birt svar Bjarkar við
tilboðinu þar sem hún vandar Beaty
ekki kveðjurnar.
„Kæri Ross, ég sá skilboð þín til
mín. Þar býður þú mér hlut í HS
Orku sem sýnir að þú er að misskilja
málstað minn herfilega. Mín skoðun
er sú að þetta fyrirtæki ætti ekki að
einkavæða. Því ætti að skila aftur til
fólksins. Að því sögðu þá hef ég eng-
an áhuga á hlutnum.“„Við erum að vinna á fullu í þessu ís-
bjarnarmáli öllu og ráðgerum að fara af
stað með söfnunarsíðu vegna ísbjarn-
arins um miðjan ágúst,“ segir Heiða
Kristín Helgadóttir, aðstoðarkona Jóns
Gnarr borgarstjóra. Eins og frægt er
orðið lofaði Jón og flokkur hans, Besti
flokkurinn, að koma fyrir ísbirni í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum.
Hingað til hefur öllum fullyrðing-
um um ísbirni í Húsdýragarðinum ver-
ið tekið með nokkrum fyrirvara. Hins
vegar hafa fjölmiðlar kannað raunhæfi
þessa loforðs og flestir sem til þekkja
verið á því að ef Besti flokkurinn ætlar
sér að standa við það myndi það kosta
hundruð milljóna króna eða að efndir
væru í besta falli ómögulegar.
Jóni Gnarr er hins vegar full alvara
með þessu og hefur hann nú látið hefja
vinnu við að koma upp vefsíðu þar sem
tekið verður á móti framlögum til að
fjármagna kosningaloforðið.
„Við ætlum að safna fyrir ísbirnin-
um með þessum hætti,“ segir Heiða í
samtali við DV. „Þetta er netsíða sem
verið er að útbúa og við ætlum að nota
þessa alþjóðlegu athygli sem Jón hef-
ur fengið til að auglýsa þessa ísbjarn-
arsíðu og taka við framlögum frá fólki
og félögum sem hafa áhuga á að koma
upp ísbjarnargryfju í Húsdýragarðin-
um.
„Jón er með mjög ákveðnar skoðan-
ir og hugmyndir um hvernig hann vill
að Húsdýragarðurinn verði og blómstri
sem eitthvað fyrirbæri í borginni. Og ég
veit að hann er að nota sumarfríið í að
skoða þessi mál mjög vel þannig að
ég hlakka bara til að fá hann úr fríinu,
uppfullan af góðum hugmyndum.“
mikael@dv.is
Besti flokkurinn safnar fyrir kosningaloforði sínu:
Söfnunaðhefjastfyrirísbirni
Ísbjörninn væntanlegur JónGnarrætlarséraðstandaviðgefiðloforðumísbjörní
Húsdýragarðinn.Söfnuninferígangínæstamánuði. MYND REUTERS