Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 21. júlí 2010 FRÉTTIR 11
fyrir hrun og að mínu mati heldur sú
glæpastarfsemi áfram því það er ver-
ið að taka fólk af lífi í stórum stíl. Það
er einmitt Kaupþing sem fær verstu
útreiðina af öllum bönkunum í rann-
sóknum sérstaks saksóknara vegna
þeirrar markaðsmisnotkunar sem
átti sér stað þar fyrir hrunið,“ seg-
ir Stefán en þar vísar hann til þeirra
rannsókna á allsherjarmarkaðsmis-
notkun Kaupþings sem eru í gangi
hjá ákæruvaldinu.
Stefáni boðið í
einkabankaþjónustu
Ástæðan fyrir því af hverju Stefán
lét einkabankaþjónustuna sjá um
viðskipti sín var sú að starfsmaður
Kaupþings hafði samband við hann
með tölvupósti og í síma í byrjun
júlí árið 2007. Stefán hafði þá ný-
verið fengið 12 milljónir króna í arð-
greiðslu inn á gjaldeyrisreikning sinn
hjá bankanum og var honum boðið
að skoða einkabankaþjónustuna.
Hann segist hafa ákveðið að verða
viðskiptavinur einkabankaþjónust-
unnar.
Opnaður var vörslureikningur á
nafni Stefáns og voru milljónirnar
12 lagðar inn á hann sem eigið fé til
að fjárfesta fyrir. Skömmu síðar fékk
Stefán tölvupóst frá einkabankaþjón-
ustunni þar sem honum var boðið
50 milljóna króna lán til að fjárfesta
fyrir. „Ástæðan fyrir því að ég gerði
þetta var að bankinn hringdi í mig og
bauð mér þessi hlutabréf með höf-
uðstólsvörðu láni. Sölumaðurinn –
teppasölumaðurinn – hringdi í mig
og bauð mér þetta. Um leið og bank-
inn hrundi gekk þessi viðskiptastjóri
út úr bankanum og hætti en honum
var örugglega fullkunnugt um þetta.“
Heimildir DV frá viðskiptavinum
einkabankaþjónustu Glitnis herma
að viðskiptastjórar þeirra hafi einn-
ig hætt í bankanum eftir hrun og að
erfiðlega hafi gengið að fá svör við
þeim spurningum sem viðskipta-
vinirnir vildu spyrja starfsmennina.
„Ég byrjaði með 12 milljónir króna í
eigið fé, tók lán upp á 50 milljónir og
skulda 160 milljónir í dag,“ segir Stef-
án. „Bankinn nálgaðist mig, tók pen-
ingana mína, lofaði gulli og grænum
skógum og sveik mig svo.“
Aðspurður hvort hann hafi aldrei
fyllst efasemdum í garð einkabanka-
þjónustunnar segir Stefán: „Nei,
vegna þess að þeir lofuðu mér vökt-
un. Ég treysti þeim vegna þess að ég
taldi að þeir kynnu þetta betur en ég
og þeir lofuðu að verja mig fyrir tapi.“
Blaðamaður: „Þannig að meira að
segja fjármálastjóri Baugs var tekinn
illa af einkabankaþjónustu eins við-
skiptabankans?“
Stefán: „Já, já, af því að ég treysti
þeim. Þeir buðu mér þessa þjón-
ustu... Ég held að ég sé fyrsti ein-
staklingurinn sem er tekinn af lífi af
bönkunum fyrir að hafa verið kúnni
í eignastýringu. Ég er fyrsti einstakl-
ingurinn sem er líflátinn. Ég missi
löggildingarréttindin sem endur-
skoðandi og missi allt út af þessu.
Svo er mikil hætta á að þetta verði
til þess að aðrar fjármálastofnanir
gjaldfelli lán og kröfur gegn mér, lán
sem eru í skilum.“
Stefán segist vera
milljónamæringur
Stefán segir, aðspurður hvernig
málarekstur Arion banka komi við
hann persónulega, að hann sé í raun
milljónamæringur. „Ég er heppinn.
Ég lít á mig sem milljónamæring
þrátt fyrir þetta. Ég á skemmtilega
og fallega konu, á fjögur yndisleg
börn, ég er í góðu starfi, ég er heil-
brigður og hraustur, vel menntaður
og ég kann ýmislegt. Ef maður for-
gangsraðar er það kannski þetta sem
skiptir mestu máli. Svo kannski end-
ar maður á veraldlegum eigum eins
og einhverju húsi eða fjármáladóti
og öðru slíku. En ef þú ert ekki heil-
brigður og átt ekki heilbrigð börn, þá
hvað? Þetta eru grunnatriðin,“ segir
hann.
Aðspurður hvort hann muni
missa hús sitt á Laufásveginum,
sem hann færði yfir á hlutafélag
móður sinnar síðla árs 2008, segist
Stefán ekki vita það að svo stöddu.
„Ég hreinlega veit það ekki.“ Svo
kann þó að fara þar sem slíkir
gerningar eru riftanlegir fjögur ár
aftur í tímann. Skiptastjóri þrota-
bús Stefáns kann því mögulega
að taka afstöðu til þess ef Hæsti-
réttur staðfestir gjaldþrotaúr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur
yfir honum.
Málarekstur í máli Stefáns
mun fara fram fyrir Hæstarétti
síðar á árinu. Ekki er komin
dagsetning á málflutninginn
en Stefán segir líklegt að mál-
ið verði tekið fyrir í haust.
Uppgjör Stefáns Uppgjörið
sem Stefán fékk sent heim
vegna afleiðusamningsins
við Kaupþing sýnir fram á
að samningurinn var gerður
upp á núlli. Hærri upphæð
var tekin út af reikningi
hans en hann átti að skulda
samkvæmt samningnum.
Viðskiptavinir eignastýringar-
deildanna eiga að fá
fagmenn til að fara yfir
reikningana sína.
„KAUPÞING RÆNDI MIG“
Sakar Kaupþing um skjalafals
Stefán segir að uppgjör Kaupþings
á afleiðusamningum sem hann
gerði við einkabankaþjónustu
bankans hafi ekki verið neitt
annað en skjalafals og
sakar hann bankann
um rán. Kaupþing
hefur sett Stefán í
þrot vegna skulda
sem hann stofnaði
til í gegnum
einkabankaþjón-
ustuna.
MYND HÖRÐUR