Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Síða 14
Dísilolía
Algengt verð verð á lítra 193,4 kr. verð á lítra 190,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 193,1 kr. verð á lítra 190,1 kr.
Algengt verð verð á lítra 194,5 kr. verð á lítra 191,5 kr.
bensín
Dalvegi verð á lítra 193,0 kr. verð á lítra 190,0 kr.
Melabraut verð á lítra 193,1 kr. verð á lítra 190,1 kr.
Algengt verð verð á lítra 193,4 kr. verð á lítra 191,5 kr.
SkeMMDAr nið-
urSuðuDóSir
Innihald niðursuðudósa sem hafa
beyglast kann að vera skemmt.
Þannig er mögulegt að þær hafi
jafnvel gatast lítillega, sem er nóg
til þess að allt innihaldið skemm-
ist. Góð þumalputtaregla er að
þrýsta ofan á allar pakkningar sem
eru með loki. Ef þær hafa lyfst upp
er innsiglið rofið, og ef það er raun-
in heyrist smellur og lokið hreyfist
upp aftur. Því skaltu aldrei kaupa
beyglaðar niðursuðudósir.
kleSSt kAkA
n Lastið að þessu sinni fær Bakara-
meistarinn í Húsgagnahöllinni. Við-
skiptavinur keypti sér súkkulaðiköku
með karamellukremi ofan á og setti
afgreiðslustúlkan kökuna beint ofan
í bréfpoka. Þegar heim var komið
var kremið komið út um allt og varla
hægt að borða kökuna sem var orðin
vægast sagt ógirnileg.
Þessi sami viðskipta-
vinur hafði áður keypt
eins köku en þá var
bakki settur utan um
kökuna áður en hún
fór ofan í bréfpokann. Mynd-
in að ofan er úr safni.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
FyrirMynDAr-
tölvuþjónuStA
n Lofið að þessu sinni fær Tölvu-
tækni í Kópavogi. Ánægður við-
skiptavinur keypti sér tölvu á staðn-
um og sagði þjónustuna hafa
verið afar góða þar. Þá hafi
hún verið fagmannleg og við-
komandi fengið heiðarleg
ráð um tölvuviðskipti.
Að lokum bætti hún
við að verðið hafi verið
betra en í öðrum tölvu-
búðum.
LOF&LAST
14 neyTendur UmSjóN: Símon örn reyniSSon simon@dv.is 21. júlí 2010 miðvikudagur
ekTA beLgíSkAr vöFFLur Á Þingeyri fyrir-
finnst kaffihús sem selur ósviknar belgískar vöfflur. Það er rekið í
nýuppgerðu húsi á Fjarðargötu 5 í bænum, sem eigendurnir sjálfir
unnu hörðum höndum við að gera upp. Það er ekki nóg með að
vöfflurnar séu ósviknar, heldur er staðurinn í eigu Belga. Vöfflujárn-
ið er einnig frá Belgíu, og segir eigandinn uppskriftina hafa fylgt
járninu. Hvað sem því líður er þetta huggulegur staður sem er þess
virði að vera heimsóttur. Þar kostar ein vaffla með sultu 650 krónur,
en kaffibolli kostar 300 krónur. e
L
d
S
n
e
y
T
i
Ódýrustu vegasjoppurnar
Á ferð um landið knýr hungrið oft
dyra og þá er oft freistandi að stoppa
í næstu vegasjoppu og fá sér eitthvað
snarl. Hamborgarar, ís eða pylsur
verða oft fyrir valinu, og hafa sum-
ir gengið svo langt að kalla þessa
þrenningu hinn raunverulega þjóð-
arrétt Íslendinga. DV kannaði verð-
ið á fjórum hlutum í ýmsum vega-
sjoppum landsins, hamborgara með
frönskum, pylsu, litlum ís í brauði og
loks verðið á 30 lítrum af bensíni.
Inni á kortinu eru einn-
ig nokkur góð tjaldstæði,
en DV fjallaði um tjald-
stæði landsins í síðasta
mánuði. Að lokum
hafa ódýrustu bens-
ínstöðvarnar ver-
ið merktar inn á
kortið.
DV tók saman verð á bensíni, pylsum, ham-
borgurum með frönskum og ís í brauði í
nokkrum sjoppum í kringum landið.
Símon örn reyniSSon
blaðamaður skrifar: simon@dv.is
Hyrnan, borgarnesi
Hamborgari: 1.240 krónur.
Lítill ís: 220 krónur.
Pylsa: 270 krónur.
Bensín: 5.802 krónur.
Olís, borgarnesi
Hamborgari: 980 krónur.
Lítill ís: 225 krónur.
Pylsa: 260 krónur.
Bensín: 5.802 krónur.
Olís, Stykkishólmi
Hamborgari: 980 krónur.
Lítill ís: 225 krónur.
Pylsa: 260 krónur.
Bensín: 5.802 krónur.
Hamraborg, ísafirði
Hamborgari: 995 krónur.
Lítill ís: 230 krónur.
Pylsa: 250 krónur.
Bensín: - Ekki selt.
Staðarskáli
Hamborgari: 1.095 krónur.
Lítill ís: 240 krónur.
Pylsa: 280 krónur.
Bensín: 5.802 krónur.
veitingaskálinn
víðigerði
Hamborgari: 950 krónur.
Lítill ís: 225 krónur.
Pylsa: 260 krónur.
Bensín: - Ekki selt.
n1-sjoppan,
blönduósi
Hamborgari: 1.095 krónur.
Lítill ís: 240 krónur.
Pylsa: 280 krónur.
Bensín: 5.802 krónur.
Pylsuvagninn,
Selfossi
Hamborgari: 890 krónur.
Lítill ís: - Ekki selt
Pylsa: 280 krónur.
Bensín: - Ekki selt
Ódýrasta
bensínið
ódýrasta bensínið er hjá Orkunni
(20. júlí klukkan 17.00). Á
Orkustöðvunum kostar bensín-
lítrinn 193 krónur og þær eru
dreifðar um landið. Þrjátíu
lítrar af bensíni fæst þar á
5.790 krónur. ódýr bens-
ínstöð hefur verið merkt
inn á kortið með reglulegu
millibili á hringveginum og í
nágrenni hans.
Fimm stjörnu
tjaldstæði
Fossatún, borgarfirði
Verð: 800-1.000 krónur fyrir fullorðna.
Skjólsælt, fallegt landslag og fyrsta flokks aðstaða. mínigolf, klifurturn, sparkvöll-
ur og frítt internet í klukkustund eru meðal þeirra fríðinda sem gestum bjóðast.
breiðavík á vestfjörðum
Verð: 1.200 krónur á mann.
Fallegt útsýni og fyrirmyndaraðstaða til boða hér. Þeir sem gista í Breiðavík geta
meðal annars að nýtt þvotta- og baðaðstöðu, matsal, rafmagn, og hafa aðgang
að heitu og köldu vatni.
Úlfljótsvatn
Verð: 1.200 krónur fyrir fullorðna.
Góð aðstaða fyrir stóra hópa. Fjöldinn allur af leiktækjum er þarna fyrir börnin,
og hjólabátar fást leigðir. Viðskiptavinir fá að veiða frítt, því veiðileyfi er innifalið
í verðinu. meðferð áfengra drykkja er bönnuð.
bakkaflöt, Skagafirði
Verð: 800 krónur fyrir 12 ára og eldri.
Skjólgott og fagurt umhverfi. Tjaldsvæðið er umkringt trjám og hólfaskipt,
sem er hentugt fyrir hópa sem vilja næði. Boðið er upp á afnot af gasgrilli og
eldunaraðstöðu þar sem um 20 manns geta sest niður.
Heiðarbær, reykjahverfi
Verð: 750 krónur á mann.
Eldunaraðstaða með heitu og köldu vatni býðst gestum, sem og rafmagn
og salerni sem er ætíð opið. Þetta tjaldstæði er staðsett nálægt mörgum af
náttúruperlum Íslands, svo sem mývatni, Goðafossi, jökulsárgljúfri og Ásbyrgi.
Fossatún,
borgarfirði
Úlfljótsvatn
breiðavík