Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Page 18
HUGÐAREFNI DAVÍÐS n Erfitt er að finna það eintak Morg- unblaðsins frá því Davíð Odds- son hóf störf þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður er ekki nefndur og þá yfirleitt af slæmu. Davíð hefur, vakinn og sofinn, verið með Jón á heilanum í um það bil 10 ár eða frá því hann var forsætisráðherra. Staksteinar og leiðarar Moggans hafa verið undir- lagðir af þessu hugðarefni ritstjór- ans. Á mánudaginn var skráður nýr kafli í íslenskri fyndni þegar Davíð tengdi saman fjölmiðlafyrirtækið 365 og þá staðreynd að það eru einmitt 365 dagar í árinu. Reikna má með því að einhverjir lesendur Moggans hafi staðið á öndinni af hlátri yfir hinni hárbeittu kímni. STYRKUR ÚTGERÐARMANNA n Einhverjar vangaveltur eru uppi um það hver haldi úti áróðursvefn- um amx.is sem stýrt er af Friðbirni Orra Ketils- syni. Friðbjörn er tengdason- ur Gunnlaugs Sævars Gunn- laugssonar sem hefur lifibrauð sitt af þjónustu við athafnakon- una Guðbjörgu Matthíasdóttur í Vestmannaeyj- um. Guðbjörg er áhrifamikil innan Landssambands íslenskra útvegs- manna. Því er haldið fram að stór hluti þeirra peninga sem fara til reksturs amx.is komi frá LÍÚ. Talað er um hálfa aðra milljón á mánuði. Þetta fæst þó ekki staðfest hjá sam- tökunum. ALMÁTTUGUR RÁÐALAUS n Einn af öflugustu útgerðarmönn- um Íslands er Jón Guðbjartsson sem rekur rækjuútgerð og vinnslu á Ísafirði. Jón hefur í gegnum tíðina haft það orð á sér að geta flest. Í samræmi við það var hann kallaður Almátt- ugur þegar hann bjó í Bolung- arvík. En nú er Jón ráðalaus eftir að Jón Bjarna- son sjávarútvegsráðherra ákvað að gefa veiðar á úthafsrækju frjálsar. Eins og fram kom í DV keypti Jón rækjukvóta fyrir 160 milljónir fyrir nokkrum vikum. Sú fjárfesting er einskis virði í dag og Jóni er eðlilega brugðið. SONURINN LÍKA Í ÚTVARP n Útvarp Saga er á mikilli ferð þessa dagana undir styrkri stjórn Arn- þrúðar Karlsdóttur. Fyrir nokkrum vikum flutti stöðin í nýtt og glæsi- legt húsnæði við Nóatún. Og enn er verið að færa út kvíarnar því á næstunni verður opnuð tónlistar- rás undir merkjum Sögu. Það má segja að snemma beygist krókurinn því það er sonur Arnþrúðar sem þar verður við stjórnvölinn. Björk Guðmundsdóttir er snillingur á ótal sviðum. Hún er ekki aðeins tónlist-armaður af hæstu gráðu í poppheiminum heldur veit hún allt um umhverfismál og þar með talin orkumál. Björk er á meðal auðug- ustu Íslendinga vegna hæfileika sinna. Þeir peningar sem henni hafa áskotnast hafa orðið til í útlönd- um. Og það er einmitt þess vegna sem hún veit hversu hættulegir útlendingar geta verið illa upplýst- um eyjaskeggjum úti í ballarhafi sem gjarnan falla fyrir gylliboðum útlendinga. Þetta er í raun eins og það var á tímum landafundanna. Landkönnuðir veifuðu glysi framan í frumbyggja og fengu þá þannig til að afhenda þau gæði sem lönd þeirra bjuggu að. Íslendingar lifa nú þá erfiðu tíma að flest verðmæti eru veðsett útlendingunum. Vitl-eysingarnir í útgerðinni eiga yfir höfði sér skuldabréfavafninga í risabönkum erlendis. Og það er ein- ungis tímaspursmál hvenær ljótu kallarnir fara fram með veðkall og eignast íslenska þorskstofninn og að ekki sé talað um humarinn. Sama er uppi á teningnum með íslensku ork- una. Lög banna að útlendingar utan Evrópu komi höndum yfir jarðhita- svæðin okkar. En þar sem Kanada- maður nokkur ásældist fjallið Keili og alla þá orku sem sprettur upp þar í kring varð að finna leið til að draumur hann rættist. Íslendingar eru þaulreyndir í að stofna allskonar fyrirtækjaflækjur til að eignarhald- ið sé ekki að þvælast fyrir hunda og manna fótum. Þess vegna veitti ráðuneyti eitt góðfúslega aðstoð við að stofna skúffufyrirtæki í Svíþjóð. Þannig gat Kandamaðurinn eignast fjallið og orkuna. Söngkonan Björk er búin að sjá í gegnum allt þetta sjón-arspil. Hún veit að það er ein-ungis tímaspursmál hvenær illa upplýstir landar hennar glepjast til að selja Geysi, Gullfoss, Esjuna og jafnvel fjallkonuna. Þess vegna boðaði hún til blaðamannafundar á eyjunni bláu. Þar útskýrði hún fyrir nokkrum vitleysingum af fjölmiðl- um hvað væri í gangi. Jafnframt lét hún í ljósi áhyggjur af skorti á rannsóknarblaðamennsku á Íslandi sem hefði væntanlega komið í veg fyrir að auðlindirnar væru á leið í hendur útlendinga. Opinmynntir blaðamenn hlýddu á niðurstöður og opinberanir söngkonunnar. Þegar þeir síðan vildu bergja meira af fróð- leiksbrunni Bjarkar var fundinum slitið. Blaðamennirnir sem sáu ekki landið falla í hendur útlendinga máttu einskis spyrja. Þetta var ekki þannig blaðamannafundur. Þetta var svona upplýsingafundur. Og blaðamenn- irnir létu þetta gott heita. Hver og einn hélt á sinn fjölmiðil og menn skrifuðu og skröfuðu eftir nákvæmri forskrift söngkonunnar. Það þarf enga rann- sóknarblaðamenn á svona landi. Við eigum Björk sem sér í gegnum holt og hæðir og varar okkur við ljótu útlend- ingunum sem gerðu hana ríka. BJÖRK Á BLÁRRI EYJU „Samskipti mín við Jón Bjarnason hafa engin verið og munu engin verða,“ segir JÓN GUÐBJARTSSON, einn af eigendum rækjuvinnslunnar Kampa á Ísafirði aðspurður um samband hans við Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Jón Guðbjartsson keypti aflaheimildir af Byggðastofnun fyrir 160 milljónir króna aðeins vikum áður en nafni hans gaf veiðar á úthafsrækju frjálsar. Hann skoðar nú réttarstöðu sína vegna málsins. HVERNIG RÆKIR ÞÚ SAMBAND ÞITT VIÐ JÓN? „Ég velti þessu nú ekki mikið fyrir mér ef ég á að segja eins og er.“ n Arnaldur Indriðason, rithöfundur um 80 milljóna króna hagnað sinn af bókasölu. - DV „Ég hef nú aldrei lent í öðru eins ofbeldi á ævinni og hef ég þó gengið í gegnum ýmislegt.“ n Stefán H. Hilmarsson, endurskoðandi og fyrrverandi fjármálastjóri Baugs um það að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi lýst hann gjaldþrota. - Vísir „Þetta eru meginástæður þess að þegar ég las greinina hans Brynjars Níelssonar þá langaði mig að fara og berja hann.“ n Bjarni Karlsson, sóknarprestur um Pressupistil Brynjars Níelssonar hæstaréttarlög- manns um vændi. - Pressan „You didn’t really put your money where your mouth is, did you?“ n Úr svari Bjarkar Guðmundsdóttur til Ross Beaty fjárfestis. - Reykjavik Grapevine „Annars leið mér eins og ég væri komin í gettóið þar sem nasisminn var, þær myndir sem maður hefur séð af því.“ n Bryndís Gyða Grímsdóttir Pressupenni um ferðalag sitt til Tyrklands. - DV Galgopinn Gylfi Ríkisstjórn Íslands hefur ekki borið gæfu til að standa með almenningi í landinu. Þótt Jóhanna Sigurðardótt- ir hafi í gegnum tíðina uppskorið aðdáun og fylgi fyrir að standa með því fólki sem á erf- iðast uppdráttar kveður við annan tón eftir að hún var gerð að forsætisráðherra. Skyndi- lega varð það hennar hlutskipti að standa vörð um banka og fjármálastofnanir. Fólk- ið sem hún lofaði skjaldborg var skilið eftir á berangri. Þetta er í raun saga íslensku kreppunnar. Ofuráhersla var lögð á að verja hagsmuni fjármagnseigenda, hvort sem litið er til inni- stæðna í bönkum eða þeirra sem lögðu fé sitt í áhættusjóði. Þannig eru dæmi um að íslenska ríkið hafi bjargað fjármunum stór- eignafólks án þess að hafa til þess neina laga- skyldu. Þetta var á ábyrgð Jóhönnu Sigurð- ardóttur ekki síður en annarra ráðherra sem sendu reikninginn á þá skuldugu í samfélag- inu. Fólk í heljargreipum banka og fjármála- stofnana átti að þola stökkbreytt lán til þess að hægt væri að standa vörð um hagsmuni eignafólks í landinu. Hæstiréttur Íslands dæmdi síðar að myntkörfulánin væru ólögleg. Það er nötur- leg staðreynd að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurð- ardóttur leitar nú ákaft leiða fram hjá dómi Hæstaréttar. Skuldarar, sem skornir voru úr snörunni, skulu fara aftur í gálgann. Heilög Jóhanna tekur að sér hlutverk böðulsins. Sá ráðherra ríkisstjórnarinnar sem hvað ákafastur er í að umskrifa dóm Hæstarétt- ar er Gylfi Magnússon efnahagsráðherra. Gylfi á frama sinn því að þakka að hann hélt þrumuræðu á Austurvelli í aðdraganda búsáhaldabyltingarinnar. Þá var hann mað- ur fólksins. Nú er hann genginn í björg kerf- isins og tekur banka og okurlánara fram yfir fólk í neyð. Galgopinn sem talaði sig inn í hjörtu valdamanna á Austurvelli hefur sýnt sitt rétta andlit. Og Jóhanna Sigurðardóttir er á góðri leið með að sanna að allt hennar tal um að hjálpa fólki var lýðskrum. Ríkis- stjórnin, sem kennir sig við jöfnuð, er uppvís að því að vera í algjörri mótsögn við yfirlýsta stefnu. Hræsnin og tvöfeldnin eru aðals- merki þeirra. REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. Heilög Jóhanna tekur að sér hlutverk böðulsins. SANDKORN TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Lilja Skaftadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Bogi Örn Emilsson RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. LEIÐARI SPURNINGIN SVARTHÖFÐI BÓKSTAFLEGA 18 UMRÆÐA 21. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.