Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Side 19
FRIÐRIK WEISSHAPPEL er upphafsmaður afmælisgjafar á Facebook í formi fjársöfnunar handa Ómari Ragnarssyni sem hefur sannarlega undið upp á sig. Þegar hafa yfir 6.500 manns skráð sig á síðuna og á þriðjudag gaf Landsvirkj- un Ómari tvær milljónir. HEPPINN AÐ FÁ MARGAR HUGMYNDIR Noam Chomsky er talinn einn helsti höfundur nútímamálvísinda. Hann er kominn yfir áttrætt og er nú einn- ig þekktur fyrir skarpa ádeilu sína á vestræn stjórnmál og lífshætti. Bono, söngvari írsku hljómsveitarinnar U2, kallaði Chomsky eitt sinn óþreytandi andófsmann og New York Times tel- ur hann einn af áhrifamestu andans mönnum samtímans. Lýðræði og hlutverk fjölmiðla er Chomsky hugleikið. Hann bendir á að um miðja nítjándu öld hafi dagblöð verið frjálsari en nú á tímum. Raunar hafi frelsi þeirra hrakað stöðugt allar götur síðan. Ein ástæðan er sú að mik- ið fjármagn þarf til að reka dagblöð á samkeppnismarkaði. Þörfin fyrir aukið fjármagn leiðir til aukinna áhrifa stór- fyrirtækja og auglýsenda í fjölmiðlun. Auglýsingar eiga að sínu leyti lítið skylt við upplýsingar, sem eru næringarefni lýðræðisins að mati Chomskys. Þessi þróun hefur leitt til alvarlegr- ar hnignunar stjórnmálanna sem selja kjósendum ímyndir en ekki málefni og upplýsingar. „Aðeins 10 prósent kjós- enda vita, þegar upp er staðið, hver afstaða frambjóðenda er til mála. Það er ekki vegna þess að kjósendur séu heimskir eða hafi ekki áhuga. Ástæðan er sú sama og ástæðan fyrir því að við vitum ekki úr hverju tannkrem er gert.“ Innræting á menntabraut Noam Chomsky heldur fram athyglis- verðri kenningu um innrætingu og skoðanakúgun. Hún felst í því að með aukinni menntun fólks samsami það sig betur ríkjandi gildum. Þetta er rót- tæk fullyrðing: Með lengri skólagöngu og aukinni menntun veður fólk þægara og hlýðnara. Það gerist á hljóðlátan, fínlegan og ómeðvitaðan hátt. Orðrétt segir Chomsky til dæmis um blaða- og fréttamenn: „Þeir munu segja þér að enginn skipi þeim fyrir verkum. Það er satt og þeir hafa rétt fyrir sér. Enginn segir þeim fyrir verkum. Innrætingin er svo djúp að menntafólk trúir því að hugsun þess sé hlutlæg.“ Um þetta leitar Chomsky fanga í Dýrabæ eftir George Orwell og vekur sérstaka athygli á inngangi þessarar frægu bókar. Svo einkennilega vildi til að inngangur Orwells fylgdi ekki fyrstu útgáfu bókarinnar. „Það er góð og gild ástæða fyrir því, honum var stungið undir stól,“ segir Chomsky. Í inngangi Orwells segir: „Þessi bók er háðsádeila á einræðisríki. En hér ætla ég að ræða hið frjálsa Eng- land. Í hinu frjálsa Englandi eru málin ekki svo mjög frábrugðin. Það er hægt að þagga niður óvinsælar skoðanir án íhlutunar ríkisins og það er gert.“ Orwell komst vitanlega að sömu niðurstöðu og Chomsky og fjöldi ann- arra hugsandi manna: Fjármagnið nær undirtökunum og voldugir auðmenn hafa nægar ástæður til þess að bæla vissar hugmyndir og þanka í opinberri umræðu. Orwell og Chomsky höfðu, eins og áður greinir, áhyggjur af þöggun með- al menntaðra manna. Þegar þeir væru búnir að afla sér menntunar, til dæmis í virtum háskólum, væru þeir jafnframt búnir að meðtaka boðskap um að suma hluti væri hvorki hægt né æski- legt að segja. Hafa skal það sem… Orwell og Chomsky eru þarna að ýja að því að menntakerfið innræti með- virkni og fylgispekt við ríkjandi vald. Því lengri skólaganga, því langvinn- ari innræting. „Svo þegar fólkið, sem notið hefur langrar skólagöngu, fer út í lífið og leitast við að vera gagnrýnið eru aðferðirnar margar til að draga úr því kjarkinn eða útiloka það á einn eða annan hátt.“ Að mati Chomskys geta þannig háværir talsmenn hlutlægninnar og frjálsrar hugsunar endurómað tóman áróður valdhafa þegar vel er að gáð. Því almennari sem hollusta manna verður því meir hnignar lýðræðinu. Vel má vera að einhverjum þyki Chomsky og Orwell draga upp dökka mynd af innrætingarmættinum. En var það ekki svo að flestir Íslendingar hlustuðu á fagurgala stjórnvalda og út- rásarvíkinga fyrir bankahrun og fundu bjartsýninni og græðginni hlutlæg og jafnvel vísindaleg rök dag hvern? Hér með er skorað á Ríkisútvarpið að endurflytja prýðisgóða þætti Maríu Kristjánsdóttur leikhúsfræðings um Noam Chomsky, en þeir voru á dag- skrá Rásar 1 árið 2006. Innrætingin lævísa 1 FRÆGASTI BOSSINN Í BIKÍNÍ Kim Kardashian skellti sér á ströndina um helgina. 2 GLEYMDU SYNI SÍNUM Á BENSÍN- STÖÐ Bresk hjón gleymdu syni sínum í Sviss. 3 LÖGMAÐUR LINDSAY FÉKK NÓG AF HENNI Robert Shapiro, nýráðinn lögmaður Lindsay Lohan, er hættur að verja hana. 4 LARSSON VAR LANGT KOMINN MEÐ ÞÁ FJÓRÐU Sænski rithöfund- urinn Stieg Larsson var langt kominn með fjórðu Millenium-söguna þegar hann lést. 5 HANDTEKINN FYRIR AÐ NAUÐGA HUNDINUM SÍNUM 64 ára gamall Bandaríkjamaður var handtekinn á föstudag fyrir að nauðga hundinum sínum. 6 GUÐMUNDUR FRANKLÍN: „HANN HEFUR BARA EKKI LESIÐ ALLAN TEXTANN“ Stofnandi Hægri grænna svarar gagnrýni Jónasar Kristjáns- sonar. 7 VEL HEPPNUÐ ÚTRÁS ARNALD-AR: SPÁIR LÍTIÐ Í HAGNAÐINN Arnaldur Indriðason segist lítið spá í það þó hann hafi hagnast mikið á bóksölu. MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN Hver er maðurinn? „Friðrik Weisshappel.“ Hvað drífur þig áfram? „Dagdraumar.“ Hvar vildirðu helst búa ef ekki á Íslandi? „Það væri þá einna helst í Kaupmanna- höfn.“ Hvað borðarðu í morgunmat? „Það sama og dóttir mín, hafragraut.“ Hvaða bók lastu síðast? „Hún heitir A Thousand Splendid Suns eftir Khaled Hosseini.“ Hvernig flaug þér í hug að hefja söfnun fyrir Ómar? „Það satt að segja veit ég ekki, mér bara datt þetta í hug. Ég er heppinn að fá margar hugmyndir og þetta er ein af þeim.“ Áttirðu von á þessum viðbrögðum? „Aldrei í lífinu átti ég von á þessum viðbrögðum.“ Hvert er þitt uppáhaldslag með Ómari? „Sveitaball, ég er búinn að vera að söngla það daginn út og daginn inn, rjúkandi upp í sveitaballadans, nokkur spor til hægri og nokkur til vinstri á ólíklegustu stöðum.“ Hvar fæst besti hamborgarinn í Kaupmannahöfn? „Á The Laundromat Cafe, að sjálfsögðu.“ Hvað er fram undan? „Björt framtíð.“ MAÐUR DAGSINS KJALLARI „Já, ég held það bara.“ SIGMAR ÞÓR MATTHÍASSON 23 ÁRA, TÓNLISTARKENNARI „Já, ég hugsa að ég geri það.“ ÞORVALDUR HALLDÓRSSON 24 ÁRA, TÓNLISTARKENNARI „Ég ætla að styrkja Ómar Ragnarsson. Klárlega.“ BALDUR TRYGGVASON 24 ÁRA, TÓNLISTARMAÐUR „Já, ég hef hugsað mér að gera það.“ LILJA BJÖRK RUNÓLFSDÓTTIR 22 ÁRA, TÓNLISTARKONA „Já, mögulega.“ INGI BJARNI SKÚLASON 22 ÁRA, TÓNLISTARMAÐUR ÆTLAR ÞÚ AÐ STYRKJA ÓMAR RAGNARSSON? DÓMSTÓLL GÖTUNNAR MIÐVIKUDAGUR 21. júlí 2010 UMRÆÐA 19 HINSTA FERÐIN Herjólfur lagði í sína síðustu ferð frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja á mánudag. Með tilkomu Landeyjahafnar lögðust siglingarnar frá Þorlákshöfn af og tekur siglingin til Eyja nú mun skemmri tíma en áður. Margir íbúar Þorlákshafnar horfðu með söknuði á það þegar skipið lagði frá höfn í síðasta skiptið. MYND DAVÍÐ ÞÓR GUÐLAUGSSON „Orwell og Chomsky eru þarna að ýja að því að menntakerfið innræti meðvirkni og fylgispekt við ríkjandi vald.“ JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.