Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Side 24
haukar fá fyrrverandi börsung Nýliðar Hauka í Pepsi-deildinni hafa fengið til sín spænskan leikmann til að styrkja liðið fyrir lokaátökin en Haukar hafa enn ekki unnið leik í deildinni að tólf umferðum loknum. Leikmaður- inn sem um ræðir heitir Alejandro Garcia Canedo en hann gerir samning við Hauka út tímabilið. Alejandro er 24 ára og var síð- ast samningsbundinn katalónska risanum Barcelona en þar var hann leystur frá störfum árið 2006. Síðan þá hefur hann spilað áhugamannabolta og stundað nám í Bandaríkjunum. Ósáttir við M-in Knattspyrnuvefsíðan sammarinn.com sem er rekin af dyggum stuðningsmönnum KR hendir fram skemmti- legri grein um Bjarna Guðjónsson og öll þau fjölmörgu M sem hann hefur fengið í Morgunblaðinu en M fær sá sem hefur staðið sig vel í leiknum. Finnst KR-ingum Bjarni hafa verið meira og minna slakur í allt sumar en aldrei klikkar það að á hann er skellt M-i eftir hvern leik. Sér- staklega ofbauð þeim M-ið sem Bjarni fékk eftir Hauka-leikinn þar sem hann þótti standa sig afar illa. Greinin ber yfirskriftina „Stóra Bjarna Guðjóns samsærið“ og er afar skemmtileg lesning. MOLar Mourinho rændi unglingi frá liverpool n Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, var fljótur til þegar sautján ára undrabarnið Juan Lescano fékk ekki atvinnuleyfi hjá Liverpool. Argentínumað- urinn ungi var ekki lengi laus því Mourinho var snöggur að gera við hann fjögurra ára samning og spilar hann því sinn fótbolta í Madríd næstu ár. Les- cano þarf heldur betur að hafa fyrir hlutunum ætli hann sér að komast í aðalliðið en það er eins og allir vita stjörnum prýtt og á Mourinho enn eftir að bæta við vaska sveit sína. Cole fékk sjöuna n Allir á Anfield eru í sjöunda himni með komu enska landsliðsmanns- ins Joe Cole til liðsins. Því var ekki umflúið að skella kantmannin- um knáa í treyju númer sjö en þá tölu mun hann bera á bakinu næstu árin. Það hafa engar smá goðsagnir í Bítla- borginni borið sjöuna á bakinu. Leikmenn á borð við Kenny Dalglish, Kevin Keegan og Peter Beardsley hafa allir klæðst þeirri treyju. Dalglish er einmitt yfir- maður akademíu félagsins í dag og kom til greina sem næsti þjálfari liðs- ins áður en Roy Hodgson var ráðinn. gerrard hafði Mikil áhrif Aðeins meira af Cole og hans vista- skiptum. Roy Hodgson, þjálfari liðsins, sagði við Sky Sports að Ste- ven Gerrard og Jamie Carragher hefðu haft sitt að segja um að Cole skrifaði undir við Liverpool. „Jamie og Steven gerðu vel í að selja Cole hugmyndina þegar þeir voru á heimsmeistaramótinu. Cole var óákveðinn um hvað hann vildi gera og það þarf nú heldur betur að selja Lundúnapilti þá hugmynd að flytj- ast til Liverpool,“ sagði Hodgson en launapakki upp á 90.000 pund hafði án efa eitthvað að segja líka. dani varafyrir liði evrópu n Colin Montgomerie, fyrirliði Ry- der-liðs Evrópu, hefur valið þá þrjá menn sem verða varafyrirliðar Evr- ópu í ár. Einn af þeim er Daninn Thomas Björn en hinir eru þeir Darren Clarcke og Paul McGin- ley. Fyrirliði bandaríska liðs- ins valdi aftur á móti fjóra vara- fyrirliða, þá Tom Lehman, Jeff Slu- man, Davis Love og Paul Goydos. Bandaríkin unnu sigur á heima- velli fyrir tveimur árum og er það nú undir Evrópu komið að endur- heimta titilinn á Celtic Manor en keppnin hefst þrettánda október. 24 spOrt uMSjóN: TóMaS þóR þóRðaRSon tomas@dv.is 21. júlí 2010 miðvikudagur „Við þurfum bara að halda búrinu hreinu og skora tvö mörk. Það hljóm- ar einfalt en verður svo sannarlega erfitt,“ segir markamaskínan í Blika- liðinu, Alfreð Finnbogason, léttur, en bikarmeistararnir mæta Mother- well í seinni leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudags- kvöldið. Skotarnir unnu fyrri leikinn ytra, 1-0, og bíður Blikanna því erfitt verkefni. „Maður fann alveg fyrir getumun á liðunum. Þeir eru kvikari í öllum aðgerðum sínum og áræðnari, svona ekta breskt lið. Þeir tvöfalda mikið og jafnvel þrefalda á kantana. Svo dæla þeir boltanum fyrir þar sem bróð- ir Chris Sutton er. Hann er sko ekki ólíkur bróður sínum. Ef við náum að verjast þessum fyrirgjöfum eins og við gerðum úti þá eigum við fín- an séns,“ segir Alfreð en handan við hornið bíður leikur gegn Álasundi frá Noregi. „Við fengum aftur góðan drátt og okkar bíður lið sem við getum alveg unnið. Hefðum við fengið Karpaty Liev eða eitthvað hefði það minnk- að spenninginn fyrir leikinn en nú vitum við hvað bíður okkar. Við get- um alveg skorað á Motherwell. Við fáum alltaf færi og fengum þau líka úti. Okkur bara vantaði að setja þar útivallarmarkið sem hefði gjörbreytt öllu,“ segir Alfreð. Skoskir aðdáendur eru vanalega mjög duglegir að styðja sitt lið og verða væntanlega 300 slíkir mættir á Kópavogsvöll. Stuðningsmanna- lið Breiðabliks, Græna Pandan, þarf því að hafa fyrir hlutunum. „Ég held að það eigi eftir að heyrast meira í Skotunum. Ég set allavega þá pressu á Blikana í stúkunni. Þeir eru ekkert að keppa við Stinningskalda eða Ber- serki núna. Þetta verða alvöru stuðn- ingsmenn,“ segir Alfreð Finnboga- son. tomas@dv.is alfreð Finnbogason segir Blika alltaf fá færi: skosk heimsókn í kópavog Íslandsmótið í höggleik hefst á fimmtudaginn og stendur fram til sunnudags þegar meistarar í karla- og kvennaflokki verða krýndir. Mótið fer fram í fyrsta sinn á Kiðjabergsvelli í Grímsnesi en þar var Íslandsmótið í holukeppni haldið í fyrra en einn- ig hafa landsmót 35 ára og eldri ver- ið haldin á vellinum. Alls eru 144 keppendur skráðir til leiks, þar af 127 karlar og 17 konur. Íslandsmeistarar síðasta árs, Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum og Valdís Þóra Jóns- dóttir úr Golfklúbbnum Leyni, mæta bæði til þess að reyna verja titla sína. Birgir Leifur Hafþórsson verður einnig með í fyrsta skipti síðan 2007 en hann og Íslandsmeistarinn verða saman í ráshóp fyrstu tvo dagana. nýr völlur Í fyrsta skipti fer landsmótið fram á Kiðjabergsvelli í Grímsnesi en sá völlur er ungur að árum. Leiknir verða fjórir dagar af golfi, frá fimmtu- degi til sunnudags, alls 72 holur. Eftir fyrstu tvo dagana eða 36 holur verður keppendum í karlaflokki fækkað úr 127 í þá sjötíu og tvo sem hafa lægst skor. Séu menn jafnir í 72. sæti fara báðir áfram eða allir sé um fleiri en tvo að ræða. Allir leikmenn sem eru tíu höggum eða minna frá forystu- sauðnum halda þó áfram. Í kvenna- flokki er fækkað með sama hætti í átján eftir 36 holur leik. Þarf þess þó ekki í ár þar sem aðeins sautján kon- ur eru skráðar. Mest spennandi hollið fyrstu tvo dagana er án efa það sem inniheld- ur Íslandsmeistarann Ólaf Björn Loftsson úr Nesklúbbnum, Örn Ævar Hjartarson úr GS og Birgi Leif Haf- þórsson úr GKG. Birgir Leifur er þre- faldur Íslandsmeistari en hann vann árin 1996, 2003 og 2004. Örn Ævar hefur einu sinni hampað sigri á Ís- landsmótinu í höggleik, árið 2001 í Grafarholti. Kiðjabergið krefjandi „Við erum bara mjög spenntir,“ segir Hörður Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri Golfsambands Íslands, en þar á bæ hafa menn unnið hörðum hönd- um að skipulagi mótsins eins og ár hvert. „Nú fáum við nýjan völl inn í þetta og verður spilað í fyrsta sinn á Kiðjabergi. Það verður gaman að sjá hvernig kylfingum tekst að takast á við völlinn. Hann er mjög krefjandi í erfiðu landslagi og öðruvísi en það umhverfi sem við höfum van- ist að sjá hér á höfuðborgarsvæð- inu. Þetta verður bara spennandi og skemmtilegt,“ segir Hörður en í Kiðjaberginu hafa menn lagt nótt við dag að gera allt klárt. „Þar á bæ eru menn tilbúnir enda búnir að vinna mikið í vell- inum. Völlurinn var lengdur og byggðir hvítir og bláir teigar til að takast á við svona verkefni. Síðan hefur verið gengið frá ýmsu öðru á vellinum. Þó hann sé ungur er þetta virkilega fallegur völlur,“ seg- ir Hörður. náttúrulegar stúkur Í fyrra var mótið haldið í Grafar- holtinu á heimavelli Golfklúbbs Reykjavíkur. Umgjörðin þar var rómuð sem líklega sú besta í sög- unni en GR fagnaði þá 75 ára af- mæli sínu. Var sett upp stúka við átjándu flötina og stór skorveggur þar sem hægt var að fylgjast með gangi mála. Ekki verður boðið upp á þessa tvo hluti í Grímsnesinu en það þýðir þó ekki að áhorfendum muni ekki líða vel. „Við verðum ekki með stúku núna. Það eru náttúrulegar stúkur á svæðinu. Það er svo mikið landslag í vellinum að það er gott að fylgj- ast með, hægt er að fara upp á hóla og kletta til að sjá út um allt. Svo erum við með nýjung í ár. Við erum Krefjandi völlur í Kiðjaberginu Landsmótið í golfi hefst á fimmtudaginn en það fer nú fram í fyrsta skipti á Kiðjabergsvelli í Grímsnesi. Mikil vinna hefur verið lögð í að gera þennan nýja völl kláran fyrir mótið sem all- ir vilja vinna. Birgir Leifur Hafþórsson mætir á landsmótið í fyrsta skipti síðan árið 2007. Meistarinn ólafur Björn Loftsson tryggði sér sigur á ótrúlegan hátt í fyrra. Engir pallar Það verður bara notast við náttúrulegar stúkur og landslagið í Grímsnesinu um helgina. TóMaS þóR þóRðaRSon blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Frábær Alfreð Finnbogason hefur farið á kostum með Blikum í sumar. MynD ToMaSz KoLoDziEJSKi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.