Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Page 3
miðvikudagur 22. september 2010 fréttir 3
„Okkur fannst bara djöfullegt að
horfa á eftir öllum þessum verð-
mætum í sjóinn. Þar að auki er
þörfin mikil fyrir svona hjálpar-
gögn og með þessu getum við bæði
hjálpað öðrum og um leið skap-
að atvinnu í bænum,“ segir Bald-
vin Ingimarsson, forstjóri SiglÓl á
Siglufirði.
Í samstarfi við félaga sína, þá
Hermann Einarsson og Stein-
ar Svavarsson, stofnaði Baldvin
sprotafyrirtækið síðla síðasta árs.
Áður höfðu þremenningarnir ver-
ið með í þróun neyðarmatarpakka
fyrir þurfandi þjóðir í um tveggja
ára skeið og standa nú uppi með
fullþróaða vöru. Neyðarpakkarnir
eru búnir til úr fiskislógi, úrgangi
sem fram til þessa hefur verið hent,
og eru hannaðir fyrir nauðstadda
á hamfarasvæðum sem ekki hafa
fengið neitt að borða í langan tíma.
Slóg til manneldis
Hinn siglfirski neyðarpakki hentar
vel að því leyti að hann er auðmelt-
anlegur og þurfandi geta því borðað
hann strax eftir að hafa jafnvel verið
matarlausir í marga daga. Aðspurður
segir Baldvin pakkann vera tilbúinn
og nú hefjist söluferlið í gegnum mat-
vælastofnun Sameinuðu þjóðanna.
„Við erum búnir að vera með þetta
í þróun, pakkinn er tilbúinn og allt í
góðu með hann, en við erum núna að
vinna í söluferlinu. Fyrstu skrefin eru
að njóta aðstoðar utanríkisráðuneyt-
isins og þaðan yfir til matvælastofnun
Sameinuðu þjóðanna,“ segir Baldvin.
„Þessi pakki á að fullnægja dags-
skammti prótíns fyrir einstakling. Í
honum verður massi sem verður fyr-
ir komið í mjög geymsluþolið form
og pakkað í umhverfisvænar umbúð-
ir. Margar hjálparstofnanir hafa sýnt
þessu áhuga, meðal annars Rauði
krossinn. Þróunin er búin að taka tvö
ár en í höndunum erum við nú með
fullunna vöru sem hægt að nýta til
manneldis.
Herbalife-kóngur
kveikti neistann
Baldvin bendir á dæmi þess að er-
lendar ríkisstjórnir leggi frekar fram
nauðþurftir en fjárhagsaðstoð.
Hann segir að kveikjan að verkefn-
inu hafi verið doktorsritgerð Jóns
Óttars Ragnarssonar, Herbalife-
kóngs og stofnanda Stöðvar 2. „Það
var raunar gömul doktorsritgerð frá
Jóni Óttari sem varð kveikjan. Ég hef
að vísu ekki séð ritgerðina en hún
gaf okkur hugmyndina. Við erum í
raun að nota þarna vöru sem áður
var hent, í þúsundum tonna,“ segir
Baldvin.
„Grunnurinn að þessu er nýting
þess sem annars er hent en okkar
aðalmál er þó þessi neyðarpakkar.
Síðar ætlum við okkur stærri hluti,
til að mynda ódýrt fiskfars eða boll-
ur.“
Félagarnir Hermann Einarsson, Baldvin Ingimarsson og Steinar Svavarsson hafa fullþróað
neyðarmatarpakka fyrir þurfandi á hamfarasvæðum. Pakkinn er unnið úr fiskislógi og er
þannig úr garði gerður að hann hentar best þeim sem ekki hafa borðað neitt í langan tíma.
Kveikjan að verkefninu var doktorsritgerð Jóns Óttars Ragnarssonar, stofnanda Stöðvar 2.
tRauStI HafStEInSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Þessi pakki á að fullnægja dags-
skammti prótíns fyrir
einstakling.
Úrgangur nýttur
í neyðarpakkana
Jón Óttar Ragnarsson Hugmyndin
aðverkefninukviknaðieftirlesturá
doktorsritgerðJónsÓttars.
neyðarpakkinn Hráefnisemáðurvarhent.
Hugmyndaríkir Félag-
arnirvinnaaðsöluferli
neyðarpakkanna.
fjölskyldu minni. Það er mjög
kirkjuglatt fólk og hann var nán-
ast í guðatölu fyrir störf sín inn-
an kirkjunnar. Fólk talaði svo
fallega um hann. Mér fannst
það alltaf svo spes því ég hafði
aðrar hugmyndir um hann. En
það er víst þannig að fólk getur
leikið eitthvert hlutverk þannig
öðru fólki dettur ekki einu sinni
í hug hvað leynist undir yfir-
borðinu. Síðustu ár hef ég ver-
ið að fylgjast með Helga og því
sem hann gerir. Hann starfaði
lengi erlendis en þegar ég sá að
hann var á ferðalagi með ferm-
ingarbörn þyrmdi yfir mig. Ég sá
líka frétt um hann þar sem hann
var með hóp af litlum börnum
í kringum sig í Eþíópíu og fékk
alveg gæsahúð.“
Óásættanleg niðurstaða
Hann telur að fórnarlömbin
séu jafnvel fleiri en þau sem
nú er vitað um. „Það versta
við þetta mál er að hann hefur
mjög líklega haldið áfram. Nú
eru tæp þrjátíu ár síðan vin-
ur minn sagði mér sína sögu
og ég er algjörlega sannfærður
um að fleiri fórnarlömb hafa
orðið á vegi hans. Enda viður-
kenndi hann brot sín gagnvart
hinum piltunum þremur fyrir
fagráðinu. Þú sérð það að vinur
minn var ekki einn þeirra. Ég á
bágt með að trúa því að svona
maður hætti bara. Það sem
við vitum núna er líklega bara
toppurinn á ísjakanum og ég
myndi gjarna vilja sjá yfirvöld
setja af stað rannsókn á slóð
hans. Kanna það hvort það séu
fleiri fórnarlömb þarna úti eða
ekki. Það er ekki ásættanlegt að
maðurinn játi kynferðisbrot en
sé svo laus allra mála.“
fórnarlamb Maðurinnerþjakaður
afsamviskubitiyfiraðhafaþagaðum
máliðásínumtíma.Þegarvinurhans
sagðihonumfráþvífannsthonum
máliðofyfirþyrmandiogþegar
vinurhanslésttaldihannofseintað
bregðastviðupplýsingunum.