Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Blaðsíða 11
miðvikudagur 22. september 2010 fréttir 11
Einar Örn Benediktsson segir ótækt að varaborgarfulltrúar séu án launa því þeir skili mikilli vinnu. Hanna
Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar, segir málflutning meirihlutans útúrsnúning og Þorleifur
Gunnarsson segir að fyrst áhugi sé á hagræðingu fari betur á því að lækka enn frekar hæstu launin. Hann
fái greiddar 307.000 krónur í laun eftir breytingu og þyrfti á aukavinnu að halda væru þau lægri.
„þeir eru eins
og þeytispjald“
„Á síðasta kjörtímabili voru laun allra
æðstu embættismanna borgarinn-
ar og borgarfulltrúa lækkuð vegna
nauðsynlegrar hagræðingar,“ segir
Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrver-
andi borgarstjóri, og segir að góð sam-
staða hafi verið um þá lækkun. „Allir
samþykktu samhljóða að lækka þessi
laun. Það þurfti að hagræða og lækk-
un launanna var hluti af hagræðingu
innan borgarinnar. Nú er verið að
snúa þeirri ákvörðun við og hækka
þau aftur. Að reyna að halda því fram
að hér sé um leiðréttingu að ræða er
útúrsnúningur.“ Hanna Birna seg-
ir forgangsröðun borgarinnar vera
ranga. Það þurfi að hagræða og um
það hafi hingað til ríkt samhugur allra
starfsmanna borgarinnar. Hækkun-
in gefi röng skilaboð til starfsmanna
borgarinnar.
Vonarglæta kveikt
„Hækkun á launum varaborgarfull-
trúa og leiðrétting á kjörum kveikir
ákveðna vonarglætu hjá okkur,“ segir
Jakobína Þórðardóttir, framkvæmda-
stjóri Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar. Hún segir að á síðasta ári hafi
öll áhersla verið lög á að launahag-
ræðing og sá sparnaður sem varð að
eiga sér stað í borginni næði til allra
sem gætu borið hann. „Kjarasamn-
ingar okkar eru lausir 30. nóvem-
ber og þá má benda á að störfum hjá
Reykjavíkurborg hefur fækkað þótt
fólki hafi ekki verið sagt upp. Öll yf-
irvinna hefur verið skorin niður og
ætlast til þess að fólk vinni meira á
skemmri tíma.“ Jakobína vill bera kjör
starfsmanna í þessari stöðu saman
við kjör varaborgarfulltrúanna. Eins
og er þá fái þeir ekki greitt að fullu
fyrir þá vinnu sem unnin er. Skipti
þá engu hvort breytingin á kjörum er
kölluð leiðrétting eða hækkun. Jak-
obína segir félagsmenn sína halda
þetta vera vísbendingu um að okinu
og þrengingunum sé létt af starfs-
mönnum borgarinnar eins og vara-
borgarfulltrúum en segist þó ekki of
vongóð. „Við erum ekki bjartsýn á að
kjör okkar batni mikið í bráðina,“ seg-
ir Jakobína.
Varaborgarfulltrúar eru
eins og þeytispjald
Einar Örn Benediktsson, borgarfull-
trúi Besta flokksins, segist ekki snúa
staðreyndum á hvolf og það sé miður
að fréttaflutningur hafi verið með því
móti. Hann segir um leiðréttingu vera
að ræða og að ákveðinni hagræðingu
sé náð um leið. „Launin hafa ekki ver-
ið hækkuð. Varaborgarfulltrúar fá aft-
ur sömu laun og þeir voru með fyr-
ir breytingu. Það eina sem við höfum
gert er að eyða þeirri óvissu sem hef-
ur ríkt um launakjör þeirra. Fyrir þá
sem ekki skilja eru varaborgarfulltrú-
ar afar mikilvægir í starfi borgarinnar
og gefa lýðræðinu aukið vægi. Þeir eru
eins og þeytispjald og vinnuframlag
þeirra er mikið. Það er ótækt að borga
þeim engin laun. Þetta snýst líka um
að nýta varaborgarfulltrúana frekar
en að koma að öðrum í ráð og nefndir
og borga þeim fyrir þá vinnu. Þannig
næst fram hagræðing og einnig auk-
in skilvirkni innan borgarinnar.“ Ein-
ar nefnir að breytingarnar séu hluti af
því að einfalda stjórnkerfið. Á því sé
full þörf.
Einar Örn bendir á nærtækt dæmi:
„Nú er Björk Vilhelmsdóttir til dæm-
is í flugvél á leiðinni til Möltu á þing
um eiturlyfjaneyslu. Þá þarf að kalla
til varaborgarfulltrúa sem er skylt að
mæta til leiks og passa að þráðurinn
slitni ekki í verkum borgarinnar því
það er svo margt að gera. Þeir eru enn-
þá að taka á sig sömu kjaraskerðingu
og aðrir borgarstarfsmenn hafa gert.
Þetta eru ekki há laun sem um er að
ræða.“
Lækkum hæstu launin
Hækkunin felur í sér að fyrstu vara-
borgarfulltrúar njóti 70 prósenta
af grunnlaunum borgarfulltrúa en
fallið verði frá breytingum á kjörum
sem tóku gildi við upphaf kjörtíma-
bilsins. Varaborgarfulltrúarnir sem
fá hækkun eru Geir Sveinsson, Páll
Hjaltason, Hjálmar Sveinsson og
Þorleifur Gunnlaugsson. Hækkunin
er frá 22 prósentum og allt upp í 63
prósent.
Þorleifur Gunnlaugsson, vara-
borgarfulltrúi Vinstri grænna, seg-
ist styðja þessa breytingu. Hann segir
ábyrgð varaborgarfulltrúa vera mikla
og vinnuálagið töluvert.
Eftir breytinguna sé hann eftir
sem áður með fremur lág laun: „Ég
fæ greiddar 307.000 krónur á mán-
uði sem er þó meira en þeir fá sem
fá greidda fjárhagsaðstoð frá Reykja-
víkurborg,“ segir Þorleifur. „Ég styð
breytinguna og myndi fremur vilja
fjölga varaborgarfulltrúum verulega
til þess að vinna að hag borgarbúa.
Það ætti fremur skoða að lækka enn
frekar hæstu
laun borgarstarfsmanna. Hanna
Birna Kristjánsdóttir er til dæm-
is með um 700.000 krónur í laun og
minnist ekki mikið á það,“ bendir
hann á.
Þorleifur segist vinna mikið alla
daga og væri hann lægra launaður
þyrfti hann ef til vill að finna sér frek-
ari vinnu. „Ég vil vinna fyrir borg-
ina og að hag borgarbúa og verð
að benda á að ég er í raun og veru
í miklu meira en fullu starfi. Ofan
á þessi laun leggjast engar frekari
greiðslur. Fólk áttar sig ekki á því og
það er ef til vill eitthvað sem þarf að
skýra betur. Í launagreiðslunni eru
öll okkar störf innifalin.“
Þorleifur segir að í þrengingunum
fyndist honum réttmætt fyrst verið er
að ræða um jöfnuð, hagræðingu og
að ekki sé hægt að borga laun upp að
fátæktarmörkum, hafi borgin frum-
kvæði að því að hæstu laun megi ekki
vera hærri en tvöföld lægstu laun
starfsmanna borgarinnar. „Við ætt-
um að lækka hæstu launin. Þar er
svigrúm til hagræðingar.“
Kristjana GuðBrandsdóttir
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is
hvað segja starfsmenn borgarinnar?
Upplýsingar Um
vinnUframlag erU
óljósar
sóLVEiG HaLLdórsdóttir,sérkennariáleikskólan-
umHagaborg,telurupplýsingarallsekkiveranægartil
þessaðhægtséaðleggjamatáþaðhvortleiðréttingin
eðahækkunineigiréttásér.„Ífyrstalagigeriégmér
ekkinægilegavelgreinfyrirvinnuframlagivaraborgar-
fulltrúatilþessaðgetalagtmatáhvortbreytingarnar
séuréttmætareðaumframþaðsemerviðhæfiídag.
Afþvílitlasemégheflesiðþáfinnstmérégekkigeta
myndaðmérskoðun.Síðastþegarégvissiþáskiluðu
varaborgarfulltrúarafarmisjöfnuvinnuframlagiogþá
varmismunandihvortnefndarsetavarlaunuðeðaekki.“
hanna birna
hreykti sér
ÞorBjÖrG KarLsdóttir,verkefnastjóriá
BorgarbókasafniReykjavíkur,segistloksinshafa
skiliðorðræðunaþegarhúnheyrðiEinarÖrn
BenediktssonútskýraþaðíviðtaliáRás2aðmeint
launahækkunværiíraunleiðréttingákjörum
varaborgarfulltrúannasemhefðuveriðlaunalausir
íeinhverntíma.„ÍhálfansólarhringhreykirHanna
BirnasérafþvíaðBestiflokkurinnséaðhækka
launáerfiðumtímumogfjölmiðlarsláþvíuppán
þessaðleitauppiskýringar.Þaðþarfaðskýraþetta
málbeturogfjölmiðlarþurfaaðreiknadæmiðtil
enda,“segirÞorbjörg.
hver erU laUnin?
„Mérfinnstfjölmiðlarekkigefagóðamyndafþví
hvaðumeraðræða,“segirHóLmfríður Gunn-
LauGsdóttir,bókavörðuráBorgarbókasafni
Reykjavíkur.„Hvaðerulauninaðhækkamikið?
Hversvegnahækkaþauíeinhverjumtilfellumum
20prósentogöðrumumheil60prósent?Hvað
vorulaunináður.Þaðerekkihægtaðtakaafstöðu
útfráþeimupplýsingumsemalmenningurhefur.
Égvarreiðíhálfansólarhringyfiróréttlætinuognú
erégreiðútífréttamennfyriraðhafaekkimatreitt
þettabeturogskýranákvæmlegahvaðhérerum
aðræða.“
Varaborgarfulltrúar eru eins og
þeytispjald EinarÖrnBenediktsson
segirósanngjarntaðborgavaraborgar-
fulltrúumenginlaun.
„Við samþykktum öll að lækka
launin“ HannaBirnasemtelur
meirihlutannsnúastaðreyndum
áhvolf.
Þetta eru ekki há laun sem
um er að ræða.