Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Blaðsíða 22
22 úttekt 22. september 2010 miðvikudagur Ég hefði aldrei trúað því þegar við vorum enn að bíða eftir jákvæðri niður-stöðu að innan fjögurra ára væri ég að ganga með fjórða og fimmta barnið. Það erfiða við ófrjó- semisbaráttuna er óvissan, að vita ekki hversu oft við þurfum að ganga í gegnum þennan rússíbana, hversu oft við eigum eftir að verða fyrir von- brigðum og eyða jafnvel fullt af pen- ingum og tilfinningum í eitthvað sem verður aldrei,“ segir fjölburamamm- an Katrín Björk Baldvinsdóttir sem er komin 20 vikur á leið með tvíbura. Missti einn þríburann Katrín Björk og eiginmaður hennar, Eyþór Már Bjarnason, höfðu reynt að eignast barn um árabil. Árið 2006 fóru þau í fyrsta skipti í uppsetn- ingu á frystum fósturvísum, þar sem þau höfðu loksins fengið fósturvísa í frysti  eftir þriðju smásjármeðferð- ina, en í það skiptið með gjafasæði og voru tveir frystir fósturvísar settir upp. Annað eggið skipti sér í tvennt og Katrín og Eyþór áttu von á þrí- burum, eineggja strákum og stelpu. Óeðlilegar æðatengingar í fylgju ollu því að annar drengurinn fékk nánast allt blóðflæðið en hinn fékk litla sem enga næringu, af völdum sjúkdóms sem kallast TTTS. Katrín var send til Belgíu þar sem leiseraðgerð var framkvæmd á þeim æðum í fylgjunni sem tengdu blóðrásir barnanna en allt kom fyrir ekki. Þríburi A, Bjarni, lést á 24. viku og  þau  komu svo öll í heiminn  eft- ir 28 vikur. Í dag eru Baldvin Ásgeir og Elísabet Heiða heilbrigðir þriggja ára sólargeislar foreldra sinna sem verða stóru systkini í febrúar þeg- ar litlu systkini þeirra koma í heim- inn. „Við biðum með að segja þeim frá fjölguninni þar til eftir 20. vikna sónarinn. Þau höfðu ekkert verið að spá í þetta fyrr og er greinilega alveg sama þótt móðir þeirra fitni. Elísabet sýnir kúlunni meiri áhuga en hon- um er nokk sama. Þau átta sig senni- lega  ekkert á þessu enda bara rúm- lega þriggja ára.“ Litlar líkur á tvíburum Þegar þau Eyþór vildu reyna aft- ur, eftir að hafa sett upp síðustu frystu fósturvísana haustið 2009, var ákveðið að reyna tæknisæðingu þar sem notast hafði verið við gjafasæði í síðustu smásjármeðferðinni. „Í síð- ustu skoðuninni kom eitt eggbú í ljós og því benti ekkert til þess að hætta væri á tvíburaþungun. Læknirinn varð sjálfur mjög hissa þegar það kom í ljós að þau voru tvö. Við feng- um staðfest að um tvíeggja tvíbura væri að ræða í 20 vikna sónar þegar við sáum að þetta eru stelpa og strák- ur, en líkurnar á því höfðu verið mjög miklar þar sem þau eru hvort í sínum sekknum og hvort með sína fylgjuna. Það var mikill léttir að sjá það, því þá er ekki aftur hætta á TTTS. Það hef- ur því annað eggbú náð að þroskast á síðustu metrunum. Þetta átti að vera okkar síðasta meðferð enda fannst okkur við mjög rík með þessi tvö sem við eigum fyrir og meðferðir taka allt- af á andlega. Ég hafði enga trú á að við myndum fá fjölbura aftur en samt var eitthvað sem sagði mér að geyma barnadótið. Ég hef verið til í að lána það en ekki gefa eða selja sem kem- ur sér vel núna enda ekki margt sem okkur vantar.“ Fjögur börn yngri en fjögurra ára Þrátt fyrir allt segir Katrín áfallið ekki hafa verið mikið þegar í ljós kom að um tvíbura væri að ræða. „Við átt- um reyndar bágt með að trúa þessu, hristum bara höfuðið í vantrú, en okkur brá meira þegar við áttum von á þremur. Núna vitum við að við get- um þetta, þótt það sé náttúrulega annað að vera með fjögur börn yngri en fjögurra ára,“ segir hún brosandi og bætir við að viðbrögðin sem þau fái séu alltaf jákvæð. „Fólk er hissa og finnst þetta frábært. Flestir segja að það verði nóg að gera og ég mót- mæli því ekki. Eins fáránlega og það hljómar eftir svona ófrjósemisbar- áttu þá viðurkenni ég að ég kvíði stundum fyrir því ég veit hvað er erf- itt að vera með tvö lítil og hvað þá með tvö önnur sem eiga sínar dram- astundir. Stundum þyrmir því yfir okkur en ég veit að þetta er samt af- skaplega mikið lúxusvandamál.“ Stefnir á dramalausa meðgöngu Katrín nýtur meðgöngunnar en vegna sögunnar er sjaldnast langt í áhyggjurnar. „Ég hef tvisvar áður orðið ófrísk, fyrst missti ég fóstrið og síðast fékk ég aðeins tvö af þremur börnum til mín. Hugsanir eins og: „Mun ég fá þau bæði til mín?“ koma upp en ég reyni samt að njóta með- göngunnar. Á þessum tíma síðast var ég komin í algjöra sófalegu en í dag er ég eldhress, er í meðgöngu- jóga og fer að synda reglulega enda engin ástæða til annars. Ég hef þó aðeins fengið í bakið og finn fyrir þreytu í bumbunni sem getur verið út af keisaraskurðinum en ég kvarta ekki. Ég passa mig þó á að hvílast og fara vel með mig því ég ætla mér að ganga með fram yfir áramót og von- andi tekst það. Mér fannst við búin að upplifa nóga dramatík og stefndi á dramalausa einburameðgöngu en því hefur nú verið breytt í drama- lausa tvíburameðgöngu,“ segir hún brosandi og bætir við að það sé nota- legt að hugsa til þess að hún eigi eft- ir að geta jánkað því þegar hún verði spurð hvort þetta séu tvíburar. „Fólk getur verið ótrúlega forvitið. Við töl- um um þríburana því þótt eitt af börnunum sé látið voru þau þrjú. Það verður því gott að geta brosað og sagt: „Já, þau eru tvíburar,“ án þess að fara í flækju.“ Stjórnarmenn fá óskabörn Katrín er formaður Tilveru, sam- taka um ófrjósemi, en félagið held- ur aðalfund þann 19. október. „Það eru allir velkomnir á fundinn en staðsetning hans verður aug- lýst á heimasíðu Tilveru, tilvera. is, á næstu dögum. Á aðalfundin- um verður meðal annars  kosin ný stjórn. Okkur mun vanta nokkra nýja stjórnarmenn að þessu sinni. Mjög margir sem fara í stjórn fá loksins óskabörnin í hendurnar og Eins fáránlegt og það hljómar eft-ir svona ófrjósemisbaráttu þá viður- kenni ég að ég kvíði stundum fyrir því ég veit hvað er erfitt að vera með tvö lítil og hvað þá með tvö önnur sem eiga sínar dramastundir. Katrín Björk Baldvinsdóttir varð ófrísk að þríburum árið 2006 eftir langa baráttu við ófrjósemi. Eftir erfiða meðgöngu lést eitt barnið en hin tvö eru heilbrigðir þriggja ára sólargeislar foreldra sinna. Katrín Björk er aftur ófrísk og í þetta skiptið að tvíburum. Í febrúar munu þau hjónin eiga fjögur börn yngri en fjögurra ára. „Lúxus- vandamál,“ segir Katrín Björk sem er for- maður Tilveru – samtaka um ófrjósemi. Stækkandi fjölskylda Baldvin Ásgeir og Elísabet Heiða eru rúmlega þriggja ára. Þau höfðu ekki veitt stækkandi maga móður sinnar neina athygli en vita nú af væntanlegum systkinum. Mynd RóBeRt ReyniSSon Fjögur börn yngri en fjögurra ára Fólk getur verið ótrúlega forvitið. Við tölum um þríburana því þótt eitt barnanna sé látið voru þau þrjú.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.