Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Blaðsíða 17
miðvikudagur 22. september 2010 erlent 17
Stefani Joanne Angelina Germa-
notta, betur þekkt sem Lady GaGa,
kom fram á útifundi á mánudag-
inn þar sem hún mótmælti harðlega
reglum bandarískra stjórnvalda sem
meina opinberlega samkynhneigðu
fólki að ganga í bandaríska herinn.
Samkvæmt reglunum, sem Barack
Obama forseti hefur lofað að afnema,
má samkynhneigt fólk starfa í her-
num að því gefnu að það gefi ekki upp
kynhneigð sína. Þeir sem brjóta regl-
urnar, sem ganga undir gælunafninu
„ekki spyrja, ekki segja frá“, hafa end-
urtekið verið reknir úr hernum.
Lady GaGa kom fram á útifundi í
Portland í Maine-ríki sem beint var
gegn tveimur öldungadeildarþing-
mönnum repúblikana í fylkinu.
Þrátt fyrir að Obama hafi lofað að
afnema reglurnar verður þeim ekki
aflétt nema með lagabreytingu á
bandaríska þinginu.
Lady GaGa var aldrei þessu vant
ekki klædd furðufötum, heldur í jakka
og með bindi. Hún stakk upp á nýjum
reglum sem beint yrði að gagnkyn-
hneigðum hermönnum sem líður
„óþægilega“ vegna samkynhneigðra
hermanna í hernum. „Nýju lögin
heita „ef þér líkar þetta ekki, farðu þá
heim“,“ sagði söngkonan.
Málefni samkynhneigðra í her-
num hafa lengi verið umdeild á með-
al almennings í Bandaríkjunum. En
nú virðast þó, samkvæmt nýjustu
skoðanakönnunum, flestir Banda-
ríkjamenn hlynntir því að opinber-
lega samkynhneigðir hermenn fáir
að starfa í Bandaríkjaher.
Lady GaGa mótmælir reglum í hernum:
Hermenn segi frá kynhneigð sinni
Að minnsta kosti hundrað þúsund Þjóðverjar hafa beðið banda-
ríska netrisann Google um að þurrka út myndir af húsum þeirra
í nýja þrívíddarkortaforritinu Street View.
Þjóðverjar eru á meðal helstu not-
enda Google Street View-þjónust-
unnar, sem bandaríski netrisinn
hefur hannað til að sjá megi borgir í
þrívídd á jörðu niðri á kortavef þess.
Það þýðir hins vegar ekki að þeir
vilji að húsin þeirra sjáist á netinu.
Að minnsta kosti hundrað þúsund
manns, og hugsanlega mun fleiri,
hafa sent beiðni á netinu til Goog-
le og beðið um að heimili þeirra séu
þurrkuð út af síðum Google. Korta-
vefir Google, sem gera netnotend-
um kleyft að sjá gervihnattamyndir
og ljósmyndir af borgum hafa valdið
miklum titringi í Þýskalandi. Marg-
ir þar í landi eru uggandi yfir því að
auðvelt geti reynst, yfirvöldum og
öðrum, að fylgjast með borgurum.
Margir Þjóðverjar af eldri kynslóð-
um, sem muna eftir starfsaðferð-
um öryggislögreglunnar Gestapo
í Þýskalandi nasismans og STASI í
Austur-Þýskalandi, eru sérlega ósátt-
ir við þessar tækninýjungar.
Mikill fjöldi ósáttur
Þýska vikuritið Der Spiegel hef-
ur rannsakað málið og komist að
því að yfir að minnsta kosti hundr-
að þúsund manns hafi sent kvörtun
til Google vegna þýsku útgáfu Street
View-forritsins, sem kemur þó ekki í
gagnið fyrr en í árslok. Tímaritið hef-
ur auk þess eftir öruggum heimild-
um frá stjórn bandaríska veffyrirtæk-
isins að fjöldi þeirra Þjóðverja sem
vilji að heimili sín verði þurrkuð út sé
mörg hundruð þúsund.
Í Street View geta netnotendur
um allan heim séð 360 gráðu myndir
af götum stærstu borga veraldar. Til
dæmis getur netnotandi slegið upp
mynd af Big Ben í London og ferð-
ast svo innan hennar líkt og hann
sé á göngu í kringum turninn fræga.
Hann getur gengið áfram, inn í St.
James’s Park og skömmu síðar birt-
ist Buckingham Palace ljóslifandi í
þrívídd ásamt öllum öðrum bygging-
um í nágrenninu. Á síðunni er einnig
hægt að skoða myndir af íbúðahverf-
um og það hefur valdið mörgum
angist, enda telja borgarar að hægt
sé að glápa inn í garða hjá þeim.
Óvíst hvort Google ráði við
flóðið
Johannes Caspar, sem er sérstakur
hagsmunavörður einkalífs borgar-
anna í Hamborg þar sem Google rek-
ur höfuðstöðvar sínar í Þýskalandi,
heimsótti nýlega skrifstofur fyrir-
tækisins. Hann segir í viðtali við Der
Spiegel að við fyrstu sýn hafi honum
virst að fyrirtækið ætlaði að verða við
óskum þeirra sem vilja ekki að hús
þeirra sjáist. „Hins vegar á eftir að
koma í ljós hvort Google ræður við
allt flóðið sem berst af kvörtunum.“
Það mun ekki vera svo einfalt mál
að gera hús ógreinileg í Street View,
þar sem byggingarnar í forritinu eru
límdar saman með mörgum mis-
munandi myndum.
Málshöfðanir um allan heim
En þrátt fyrir að andstaðan við Street
View sé mjög áberandi og sterk á
meðal þýsku þjóðarinnar virðast þó
allmargir Þjóðverjar nota þjónust-
una stíft. Samkvæmt gögnum frá
Google er Street View, í þeim lönd-
um sem það hefur ekki verið tekið í
notkun, vinsælast í Þýskalandi.
Thomas de Maizière, innanrík-
isráðherra Þýskalands, fyrirskipaði
sérstakan fund í þessari viku þar
sem rædd verður löggjöf um gervi-
hnatta- og kortanetsíður á borð
við Google Street View. Í síðustu
viku bannaði tékknesk persónu-
verndarstofnun Google að safna
fleiri myndum í Street View. Sam-
kvæmt Reuters-fréttastöðinni á
fyrirtækið yfir höfði sér málshöfð-
anir á grundvelli persónuverndar-
laga í 37 ríkjum Bandaríkjanna og
fjölmörgum löndum heims. Street
View sýnir nú götumyndir frá 23
löndum.
heLGi hrafn GuðMundsson
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
The Associated Press á sunnudag-
inn. Hann sagði að starfsfólk sitt hefði
fyllst algjörri reiði, örvæntingu og
sorg eftir að það hafði borið hinn 21
árs Santiago til grafar á laugardaginn.
Glæpagengi hafi bein
áhrif á fréttir
Samkvæmt skýrslunni sem Nefnd-
in til varnar blaðamönnum gaf út
snemma í mánuðinum „… hafa
stjórnvöld í Mexíkó neitað að taka
ábyrgð á sífelldum árásum á tjáning-
arfrelsið.“ Nefndin segir að aðeins
innan við tíu prósent glæpanna gegn
fjölmiðlafólki hafi verið upplýst.
Nefndin brýnir fyrir Calderon að
gera árásir á fjölmiðlafólk að alríkis-
glæp. Þau vilja að hann stofni nefnd
sem vinni eingöngu að verndun
blaðamanna. Einnig er þess krafist að
embætti sérstaks saksóknara vegna
árása á glæpamenn fái aukið sjálf-
stæði.
„Við búum nú við að glæpagengi
reyna að hafa bein áhrif á upplýsinga-
flæðið og það er mjög stórt vanda-
mál fyrir allt landið. Það hefur haft
vond áhrif á mannréttindi milljóna
Mexíkó manna,“ sagði Carlos Luis í
Nefndinni til varnar blaðamönnum.
skelfilegt ástand Konur syrgja myrtan ástvin í mexíkósku borginni Ciudad Juarez
sem er ein hættulegasta borg heims. Fimm þúsund manns hafa verið myrtir þar
síðan eiturlyfjastríðið í Mexíkó hófst. Ofbeldið virðist engan enda ætla að taka og
meira að segja blaðamenn hafa gefist upp af ótta við eiturlyfjagengin. Mynd reuters
DAGBLAÐ GEFST UPP
FYRIR GLÆPAGENGI
HRÆÐAST HNýSNI
mEÐ STREET VIEw
Der Spiegel hef-ur auk þess eftir
öruggum heimildum frá
stjórn bandaríska vef-
fyrirtækisins að fjöldi
þeirra Þjóðverja sem
vilji að heimili sín verði
þurrkuð út sé mörg
hundruð þúsund.
hnýsni? Bílar með áföstum myndavélum sem notaðar eru til að mynda borgir í Street View á ráðstefnu í Hannover í Þýskalandi.
Margir Þjóðverjar vilja ekki að húsin sín birtist í forritinu og að hnýsnir netnotendur geti þannig skyggnst inn í einkalíf þeirra.
Mynd reuters
Með bindi Lady Gaga mótmælir
umdeildum reglum Bandaríkjahers
sem meina samkynhneigðum að
segja frá kynhneigð sinni.
verkaMenn í kaLiforníu:
Fundu urmul
steingervinga
Hópur byggingaverkamanna í Kali-
forníuríki í Bandaríkjunum upp-
götvaði gríðarlegt magn af ævaforn-
um steingervingum þegar grafið var
fyrir grunni í Riverside-sýslu á dög-
unum. Verkamennirnir fundu meðal
annars elstu beinagrind af sverðketti
sem fundist hefur í sögu fylkisins. Í
einni holunni kom fjarsjóður stein-
gervinga í ljós en vísindamenn hafa
hingað til greint 1.450 þeirra. Þar á
meðal eru 250 stórir hryggleysingjar,
en margar tegundirnar hafa aldrei
birst mönnum áður. „Við erum enn
að telja steingervingana. Ég hef unn-
ið á þessu svæði í 40 ár og hvergi séð
jafn marga steingervinga og hér,“
sagði steingervingafræðingur sem
rannsakar fundinn.
Skoskt olíufélag hefur fundið
olíu úti fyrir ströndum Græn-
lands. Olían fannst á fjög-
ur hundruð metra svæði, á
Alpa-1S1-svæðinu. Lítið magn
af olíu fannst á fjögur þúsund
og þrjú hundruð metra dýpi.
Ekki er talið að nægilegt magn
af olíu sé að finna á svæðinu til
að réttlæta að þar verði reistur
olíuborpallur en með niður-
stöðunum er staðfest að olíu
sé að finna á svæðinu. Frekari
boranir munu fara fram á næstu
mánuðum. Hlutabréf í skoska
félaginu hækkuðu í verði um
þrjú prósentustig á hlutabréfa-
mörkuðum í Lundúnum við
fréttirnar. Ove Karl Berthelsen,
grænlenskur ráðherra, segir
fundinn vera hvetjandi.
skoskt oLíuféLaG finnur oLíu:
Olía finnst á
Grænlandi