Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Blaðsíða 20
Borgarleikhúsið frumsýnir verkið Enron á fimmtudag: Draumar, dramb og fall nýr Diskur kammerkórs Smekkleysa hefur gefið út nýjan geisladisk með flutningi Kammer- kórs Suðurlands á verkum breska tónskáldsins Sir John Tavener (f. 1944). Stjórnandi kórsins er Hilm- ar Örn Agnarsson og með kórnum syngja Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir sópran og Hrólfur Sæmundsson barítón. Margir kannast við verk Ta- veners Prayer of the Heart en það samdi hann sérstaklega fyrir Björk og hún flutti verkið með Brodsky- kvartettinum. kynning í þjóð- minjasafninu Fimmtudaginn 23. september kl. 16.30-18.00 verður fjöl- breytt fræðslustarf Þjóðminja- safns Íslands kynnt, ásamt sýn- ingum, fyrirlestrum og öðru því sem verður á dagskrá safnsins í vetur. Kynningin hefst í fyrir- lestrasal safnsins og er öllum opin. Nýjung á safninu er „Ó borg, mín borg“, en það er herbergi búið húsgögnum frá árunum 1955-65. Þar geta safngestir sest niður, skoðað myndir og handfjatlað muni frá þessum árum. rosemunthe í LjósmynDasafni reykjavíkur Á sýningu danska ljósmyndarans Johans Rosenmunthe „The Isle of Human“ er dýr að finna á ólíkleg- ustu stöðum. Dýrin falla inn í um- hverfið á myndunum líkt og þau séu á sínum heimaslóðum. Myndirnar eru mikið unnar og eru samsettar úr allavega tveimur eða fleiri mynd- um. Sýningin er í Ljósmyndasafni Reykjavíkur dagana 23. september – 16. okóber og er opin virka daga frá 12 – 19 og frá 13 – 17 um helgar. Að- gangur er ókeypis. rafmagnað fimmtuDagskvöLD á faktorý Fimmtudagskvöldið 23. september verður rafmagnað á skemmtistaðnum Faktorý í miðbænum. Á neðri hæð staðarins verður haldið Full Moon-partí þar sem plötusnúðarnir Dj Tommy White & Sir Dancelot munu halda uppi brjáluðu fjöri. Á efri hæðinni munu svo Tonik, Ljósvaki og Futuregrapher halda tónleika. Það verður ókeypis inn á alla þessa skemmtun og fjörið mun hefjast stundvís- lega kl. 22.00 á báðum hæðum. sveppi vinsæLL í kvikmynDahúsunum Fyrsta íslenska þrívíddarmyndin, Algjör Sveppi og dularfulla hótelherberg- ið, er aðra helgina í röð vinsælasta mynd landsins. Alveg frá því kvikmyndin var frumsýnd hafa um tuttugu þúsund manns gert sér ferð í kvikmyn- adhúsin til þess að sjá hana. Þessi mikla aðsókn á kvikmyndina, þýðir að framleiðendur hennar geta vel við unað. Kvikmyndin hefur þénað um 20 milljónir í miðasölu. Næst vinsælasta kvikmynd landsins er Despicable Me eða Aulinn ég og þriðja vinsælasta kvikmyndin er grínmyndin The Other Guys. 20 fókus 22. september 2010 miðvikudagur Flaggskip Borgarleikhússins þetta leikárið verður frumsýnt á fimmtu- daginn á Stóra sviðinu. Um er að ræða hið heimsfræga verk Enron sem hefur vakið athylgi um heim allan undan- farið. Líkt og nafnið gefur til kynna er verkið byggt upp á sögu stórfyrirtæk- isins Enron sem óx með ógnarhraða en varð svo á endanum eitt stærsta fjármálahneyksli í sögu Bandaríkj- anna. Stefán Jónsson leikstýrir íslenskri uppfærslu verksins en þýðandi er Eirikur Örn Norðdahl. Börkur Jóns- son sér um leikmynd og Helga Stef- ánsdóttir búninga. Tónlist er í hönd- um Sigtryggs Baldurssonar og Helga Svavars Helgasonar en dansa semur Sveinbjörg Þórhallsdóttir. 15 leikarar taka þátt í sýningunni og má þar nefna Stefán Hall Stefánsson,  Jóhönnu Vig- dísi Arnardóttur,Halldóru Geirharðs- dóttur, Ellert A. Ingimundarson, Hall- dór Gylfason og fleiri. Verkinu er lýst sem blöndu sígilds harmleiks og kraft- mikils gamanleiks. Saga um drauma og þrá, dramb og fall. Það er hin 29 ára gamla Lucy Prebble sem er höfundur verksins en Fortune Magazine valdi hana í hóp þeirra 25 einstaklinga í heiminum sem hafa þótt ná best utan um breytta heimsmynd eftir heimskreppuna. Verkið hefur vakið svo mikla lukku að Sony Pictures hefur keypt kvikmynda- réttinn nú þegar. Enron hefur gengið fyrir fullu húsi í Lundúnum í heilt ár en verkið er væntanlegt á fjalir leik- húsa víða um heim á næstu mánuð- um, meðal annars í Berlín, Hamborg, Vínarborg, Bern, Stokkhólmi, Osló og París. asgeir@dv.is Enron Verður frumsýnt á morgun. keppnisflokk- urinn í ár: n Aardvark (Bandaríkin, Argentína, 2010) n At Ellen‘s Age (Þýskaland, 2010) n Attenberg (Grikkland, 2010) n Inside America (Austurríki, 2010) n Jo For Jonathan (Kanada, 2010) n The Four Times (Ítalía, 2010) n Littlerock (Bandaríkin, 2010) n Mandoo (Írak, 2010) n Tomorrow (Frakkland, Rúmenía, Ungverjaland, 2010) n Song of Tomorrow (Svíþjóð, 2010) n The Christening (Pólland, 2010) fimm íslenskar frumsýningar: n Brim - Árni Ólafur Ásgeirsson n Uppistandsstelpur - Áslaug Einarsdóttir n Ísland Úganda - Garðar Stefánsson, Rúnar Ingi Einarsson n Höllin - Héðinn Halldórsson n Kraftur - síðasti spretturinn - Árni Gunnarsson, Steingrímur Karlsson, Þorvaldur Björgúlfsson n Einnig sýndar á hátíðinni: Desem- ber eftir Hilmar Oddsson, Mamma Gógó eftir Friðrik Þór Friðriksson og Kóngavegur eftir Valdísi Óskarsdótt- ur. miðaverð: Hátíðarpassi sem gildir á allar myndir - 9.000 kr. Átta miða afsláttarkort (fyrir átta á eina sýningu eða einn á átta) Stakur miði - 1.000 kr.  Upplýsingamiðstöð og miðasala RIFF er í verslun Eymundsson í Austurstræti. Sýningar mynda á RIFF verða í Háskólabíói, Norræna húsinu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, Iðnó, Tjarnarbíói og Bíó Paradís við Hverfisgötu (í gamla Regnboganum) Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, RIFF, hefst á morg- un. Á hátíðinni verða sýndar 140 myndir frá 29 löndum. Þar af eru 28 íslenskar. Keppt verður í 14 mismunandi flokkum en 12 myndir keppa um aðalverðlaun hátíðarinnar. RIFF, alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, verður sett í sjöunda sinn á morgun. Opnunarmynd RIFF í ár er bandaríska gamanmyndin Cyrus eftir þá bræður Jay og Mark Duplass. Myndin skartar stórleikurunum John C. Reilly, Jonah Hill og Marisu Tomei í aðalhlutverkum. Að þessu sinni eru 140 myndir sýndar á hátíðinni sem stendur yfir í 11 daga. Á þeim dögum verða hvorki fleiri né færri en 350 sýningar á sex sýningarstöðum. Myndirnar 140 eru frá 29 löndum og þar af eru 28 íslensk- ar myndir. Fimm myndir í fullri lengd verða frumsýndar, þrjár sem sýndar hafa verið áður og 16 stuttmyndir. Að þessu sinni eru flokkarnir á hátíðinni 14 talsins en það er einum flokki fleira en í fyrra. Við bætist flokk- urinn Betri heimur og í honum eru sýndar myndir sem fjalla um mann- réttindamál með einum eða öðrum hætti. 12 myndir keppa í aðalflokkn- um sem nefnist Vitranir. Þar er keppt um verðlaunagripinn Gyllta lundann en hann er veittur í sjötta sinn í ár. Líkt og undanfarin ár verður sér- stakur heiðursgestur á hátíðinni en í fyrra var það enginn annar en Ósk- arsverðlaunahafinn Milos Fore- man. Að þessu sinni er það banda- ríski kvikmyndagerðarmaðurinn Jim Jarmusch  og mun hann jafnframt hljóta heiðursverðlaun hátíðarinn- ar líkt og venja er. Fimm myndir eft- ir Jarmusch verða sýndar í tengslum við komu hans hingað til lands, auk þess sem eiginkona hans, Sara Dri- ver, kemur með honum til landsins og svarar spurningum í tengslum við sýningu á myndinni You Are Not I sem þau hjónin gerðu saman árið 1981. RIFF hefur stækkað ár frá ári og að þessu sinni er búist við um 300 er- lendum gestum á hátíðina. Sá hópur samanstendur af fagfólki úr stéttinni, og fjölmiðlafólki sem og fulltrúum annarra þekktra kvikmyndahátíða. Sem dæmi má nefna fulltrúa frá kvik- myndahátíðunum Berlinale, Tor- onto, Karlovy Vary og Tribecca. asgeir@dv.is 350 sýningar á 11 Dögum Jonah Hill Leikur eitt aðalhlutverk- anna í opnunar- mynd hátíðarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.