Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR 22. september 2010 MIÐVIKUDAGUR
• Dregur úr vöðvaspennu
• Höfuð- háls- og bakverkjum
• Er slakandi og bætir svefn
• Notkun 10-20 mínútur í senn
• Gefur þér aukna orku og vellíðan
Verð: 9.750 kr.
Nálastungudýnan
Opið virka daga frá kl. 9 -18
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Slitnað hefur upp úr vinskap Sigurðar G. Tómassonar útvarpsmanns og Arnþrúð-
ar Karlsdóttur útvarpsstjóra. Arnþrúður sendi Sigurði SMS um helgina þar sem hún
sagði þátt hans ekki vera lengur á dagskrá. Sigurður lítur á skilaboðin sem uppsögn en
Arnþrúður vill ekki meina það. Sigurður segist ekki vilja snúa til baka á Útvarp Sögu.
Sigurði G. Tómassyni var sagt upp
störfum á Útvarpi Sögu í SMS-skila-
boðum sem Arnþrúður Karlsdóttir
sendi honum á sunnudag. Sigurður
segist hafa sent SMS-skilaboð til Arn-
þrúðar eftir að hafa ekki náð í hana
í síma þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Hún hafi svarað með uppsögn.
Sigurður hefur starfað lengi á Út-
varpi Sögu og var til að byrja með
meðeigandi Arnþrúðar að stöðinni.
Hann segir þau hafa deilt stundum
hart þegar þau áttu stöðina saman
en ákveðið að sættast og Sigurður
horfið um leið úr eigendahópnum.
Sigurður snéri svo aftur til starfa sem
óbreyttur starfsmaður fyrir fjórum
árum.
„Við höfum nú átt ágæt samskipti
allan tímann sem ég hef unnið þar
sem starfsmaður,“ segir Sigurður.
Bara misskilningur
Arnþrúður segir í samtali við DV að
SMS-skilaboðin hafi alls ekki jafn-
gilt uppsögn Sigurðar. „Þetta er ekki
uppsögn,“ segir Arnþrúður. Í SMS-
skilaboðunum er þó sagt mjög skýrt
að þáttur Sigurðar verði ekki á dag-
skrá í vetur. Sigurður segist ekki
koma til með að vinna fyrir Arnþrúði
þó hún finni nýjan stað fyrir þáttinn.
„Hún hefur auðvitað ekki sagt
mér upp löglega en ég fer ekki með
ofbeldi inn í útsendingu til að stýra
þar þætti,“ segir Sigurður. „Ég veit í
sjálfu sér ekki hvað hún er að hugsa
eða hvað hún ætlar sér. Ég skil það
ekki neitt og það verður þá bara að
vera svo.“
Engin uppsögn
Arnþrúður segir að hún hafi einung-
is gert breytingar á dagskránni, ekki
verið að reka Sigurð. Hún segir mjög
eðlilegt að dagskránni sé breytt
en að Sigurður hefði ekki heyrt af
breytingunum þar sem hann hafi
verið fjarverandi. „Ég er bara að
breyta dagskrá. Það er að byrja vetr-
ardagskrá.“
„Ég er ekkert að úttala mig neitt
frekar um þetta. Málið er bara þetta
að þetta er engin uppsögn,“ segir
Arnþrúður og segist hafa bara lesið
um uppsögnina. „Ég hef hvergi sagt
honum upp. Honum hefur ekkert
verið sagt upp. Þetta er tómt kjaft-
æði.“
Aldrei heyrt um vetrardagskrá
Í SMS-skilaboðunum segir orðrétt:
„Þú kemur alltof seint Siggi minn.
Vetrardagskráin er byrjuð. Ekki er
gert ráð fyrir þínum þætti þar.“ Lengri
voru þau skilaboð ekki. Sigurður seg-
ir þó að klárt mál hafi verið að hann
myndi snúa til baka úr sumarfríi í
september.
„Ég get ekki séð neitt eðlilegt í
þessu,“ segir hann. „Ég hef aldrei
heyrt þess getið að það sé nein vetr-
ardagskrá á Útvarpi Sögu.“
Sigurður segir að tíminn sem
hann var frá vinnu á útvarpsstöðinni
hafi verið umsaminn og öllum ljós.
Hann segist hafa tekið út það sumar-
frí sem hann hafi átt inni og tekið svo
launalaust leyfi fyrir utan það. Sig-
urður segir að hann hafi tekið sam-
bærilegt frí í fyrrasumar án neinna
vandræða.
„Ég sagði bara nákvæmlega að ég
myndi koma til starfa í septem ber.
Það var bara búist við því og ekkert
meira um það að segja,“ segir Sigurð-
ur.
Aldrei aftur á Útvarp Sögu
Sigurður segist ekki getað hugsað sér
að vinna aftur á Útvarpi Sögu. „Nei,
það er náttúrulega algerlega útilok-
að.“ Hann er ekki sáttur við vinnu-
brögð og nálgun Arnþrúðar á mál-
inu. „Ég get ekki unnið undir stjórn
manneskju sem vinnur svona. Það
segir sér sjálft.“
„Hún hefur ekki haft neitt sam-
band við mig eftir þetta SMS,“ segir
Sigurður. „Hún hefur ekki sent mér
neitt eða hringt í mig eða nokkurn
skapaðan hlut þannig að ég veit ekki
hvað ég á að halda um þetta.“
Ég fer ekki með ofbeldi inn í
útsendingu til að stýra
þar þætti.
AÐALSTEINN KJARTANSSON
blaðamaður skrifar: adalsteinn@dv.is
„ÞÚ KEMUR ALLT OF
SEINT SIGGI MINN“
Útvarpsstjórinn
Arnþrúðursegirekki
hafaveriðgertráðfyrir
þættiSigurðarívetrar-
dagskráÚtvarpsSögu.
Sigurðurkannastekkert
viðaðÚtvarpSagahafi
nokkurntímannhaft
sérstakavetrardagskrá.
MYND STEFÁN KARLSSON
Tekinn með hass
Síðdegis á mánudag handtók lög-
reglan á Akureyri mann um tvítugt
grunaðan um að hafa ekið bifreið
undir áhrifum fíkniefna. Í fram-
haldi af því var gerð húsleit á heimili
hans þar sem hald var lagt á um 20
grömm af kannabisefnum auk tækja
og tóla til neyslu þeirra.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur
fram að auk þess hafði maðurinn
verið að rækta kannabis í íbúð sinni
en í litlum mæli þó. Manninum var
sleppt að lokinni yfirheyrslu og telst
málið upplýst.
Þyrla sótti slasaða
Þyrla Landhelgisgæslunnar var köll-
uð út á þriðjudagsmorgun út vegna
bílslyss sem varð milli Minni-Borg-
ar og Svínavatns. Sex voru í bílnum
sem valt og endaði utan vegar.
Þrír eru alvarlega slasaðir og voru
þeir fluttir með þyrlu til Reykjavíkur.
Þrír aðrir eru minna slasaðir.
Nýr rekstrarstjóri
ráðinn á DV
Stefán Torfi Sigurðsson hefur verið
ráðinn rekstrarstjóri DV ehf. Stefán
er viðskiptafræðingur frá Háskól-
anum á Akureyri og leggur stund
á meistaranám í viðskiptafræðum,
alþjóðastjórnun og stefnumótun
í Viðskiptaháskólanum á Bifröst.
Hann starfaði áður sem sérfræðing-
ur á fjármálasviði hjá Orkubúi Vest-
fjarða. Þá var hann fjármálastjóri hjá
Hvíldarkletti ehf. og starfaði hjá Víf-
ilfelli. Hann hefur einnig starfað hjá
slökkviliði Ísafjarðarbæjar frá árinu
2002 og sem sjúkraflutningamaður í
afleysingum. „Ég hlakka til að takast
á við spennandi starf og klára þau
skemmtilegu verkefni sem bíða,“
segir Stefán Torfi.
Ríkissaksóknari hefur ákært sex-
tán ára stúlku fyrir að hella sjóðandi
heitu vatni yfir starfsmann með-
ferðarheimilisins Árbót í Aðaldæla-
hreppi. Atvikið átti sér stað þann ní-
unda ágúst í fyrra og voru afleiðingar
árásarinnar þær að starfsmaðurinn
hlaut útbreidd fyrsta og annars stigs
brunasár vinstra megin á andliti, á
höfði og á brjósti. Fórnarlamb árás-
arinnar, 47 ára karlmaður, krefst tæp-
lega 650 þúsunda króna í skaðabæt-
ur.
Málið var þingfest í Héraðsdómi
Norðurlands eystra í síðustu viku.
Auk þess að sæta ákæru fyrir of-
angreint brot er stúlkan einnig ákærð
fyrir tvö rán og hótun. Henni er gefið
að sök að hafa mánudaginn 3. mars
ógnað starfsmanni Olís við Tryggva-
braut á Akureyri með dúkahníf. Hót-
aði hún að skera starfsmanninn með
hnífnum ef hann afhenti henni ekki
sígarettur. Í kjölfar hótunarinnar af-
henti starfsmaðurinn stúlkunni síg-
arettur og kveikjara.
Þá er hún ákærð fyrir að hafa að
kvöldi sunnudagsins 11. apríl ruðst
inn um opnar svaladyr á íbúð við
Klettastíg á Akureyri. Þar er hún sögð
hafa ógnað húsráðanda, 22 ára konu,
með tréskafti og hótað því að berja
hana ef hún afhenti henni ekki pen-
inga og hníf og æki henni til Reykja-
víkur. Afhenti húsráðandinn henni
hníf í kjölfarið. Þá er hún einnig
ákærð fyrir að hafa, sama kvöld, hót-
að þrítugri konu með hníf á bílastæði
fyrir utan íbúðina á Klettastíg. Rík-
issaksóknari krefst þess að stúlkan
verði dæmd til refsingar en til vara að
hún verði látin sæta öryggisgæslu á
viðeigandi stofnun.
Vegna þess hve stúlkan var ung
þegar meint brot voru framin er um
lokað þinghald að ræða og feng-
ust því ekki upplýsingar um afstöðu
stúlkunnar til sakargifta. Aðalmeð-
ferð í málinu hófst í gær, þriðjudag.
einar@dv.is
Ung stúlka ákærð fyrir fólskulega árás á meðferðarheimili:
Hlautalvarlegbrunasár
Akureyri Stúlkunniermeðalannars
gefiðaðsökaðhafaræntverslunOlísá
Akureyri.