Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Blaðsíða 10
10 fréttir 22. september 2010 miðvikudagur
Nýfráskildar konur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins eru meðal þeirra sem er neitað um endur-
nýjun atvinnuleyfis. Tónlistarkonan og frístundaleiðbeinandinn Jussanam de Silva frá Brasilíu er ein þess-
ara kvenna. Hana grunaði ekki, þegar hún skildi við eiginmann sinn síðasta vor, að forsendur dvalar hennar
væru orðnar að engu í augum íslenskra yfirvalda og það þykir henni sárt.
Aðstæður brasilísku konunnar Juss-
anam de Silva eru þær að Vinnu-
málastofnun hefur hafnað því að
framlengja vinnuleyfi hennar í kjöl-
far skilnaðar hennar við íslenskan
eiginmann sinn. Jussanam hefur
unnið í tvö ár á frístundaheimilinu
Hlíðaskjóli og til stóð að endurnýja
við hana samninginn í lok sumars.
Vinnumálastofnun hafnaði umsókn
um tímabundið atvinnuleyfi. Það er
vegna þess að hún getur ekki starf-
að hér lengur á þeim forsendum að
hún sé gift íslenskum manni. Juss-
anam var gift í tvö ár og býr hér með
18 ára dóttur sinni.
Vel liðin en þarf samt að fara
Jussanam býr núna í Reykjavík
með dóttur sinni. Hún er vel lið-
in á vinnustað sínum, Hlíðaskjóli,
þar sem hún hefur nýtt tónlistar-
hæfileika sína til að kenna börn-
unum söng og leiklist. Yfirmaður
Jussanam í Hlíðaskjóli, Andrea Ól-
afsdóttir, hefur aðstoðað Jussanam
í samskiptum hennar við Vinnu-
málastofnun og Útlendingastofn-
un. Hún undrast það að þurfa að
missa svo góðan starfskraft þeg-
ar svo erfiðlega gengur að fá góða
starfsmenn í starf innan frístunda-
heimilanna. Jussanam sé einn
hinna fáu staðföstu starfskrafta
sem börnin læri að reiða sig á. Hún
hafi þess utan mikið fram að færa í
skólastarfið sem missir sé að. „Svör
Vinnumálastofnunar eru á þá leið
að vegna mikils atvinnuleysis á Ís-
landi sé laganna vegna ekki hægt
að veita starfskröftum utan EES
atvinnuleyfi.“
Andrea segir það sorglega stað-
reynd að fólki sé neitað um endur-
nýjun atvinnuleyfa og það sent heim
þó að það sé vel liðið af atvinnurek-
endum sem vildu hafa það áfram í
starfi. „Vinnumálastofnun er bund-
in af lögum og reglum þannig að
eftir stendur að það er ákvörðun ís-
lenskra stjórnvalda að veita borgur-
um EES-ríkja forgang fram yfir fólk
utan svæðisins þegar kemur að veit-
ingu atvinnuleyfa,“ segir Andrea.
Virt söngkona á Íslandi
Auk þess að starfa á frístundaheim-
ilinu þá sinnir Jussanam tónlistar-
ferli sínum og hefur getið sér gott
orð sem bossa nova-söngkona. Hún
hefur átt í samstarfi við marga af
þekktustu djasstónlistarmönnum
Íslands, þar á meðal Tómas R. Ein-
arsson, Hauk Gröndal saxófónleik-
ara og Agnar Má Magnússon píanó-
leikara. Jussanam gaf út fyrstu plötu
sína í fyrra, „Ela é Carioca“, eftir vel
heppnaða tónleika í Salnum í Kópa-
vogi.
Jussanam er fædd í Rio de Jan-
eiro og lærði frá unga aldri að syngja
sömbu og bossa nova-tónlist. Auk
þess að vera söngkona þá kom Juss-
anam fram í sápuóperum í brasil-
íska sjónvarpinu. Hún segist vilja
búa hér á landi þrátt fyrir mótlætið
sem hún hefur orðið fyrir og að hún
vilji ekki snúa til Rio í bráð. Þar bíði
hennar ekkert lengur.
„Lífið hér er gott og ég nýt starfs-
ins með börnunum og samstarfsins
við þá hæfileikaríku tónlistarmenn
sem ég hef verið svo gæfusöm að fá
að vinna með. Ég á hér vini og líf sem
ég vil byggja upp. Mér finnst erfið og
sár tilhugsun að þurfa að fara frá öllu
og byrja aftur upp á nýtt í Rio. Dótt-
ir mín býr hér með mér og saman
finnst okkur við hafa mikið að gefa
til íslensks samfélags og finnst erfitt
að vera hafnað.“
Fráskildar konur reknar heim
Jussanam segir að fljótlega eftir að
hún skildi við eiginmann sinn hafi
sigið á ógæfuhliðina. „Ég sótti um
skilnað í vor og vegna þess að á
mínum vinnustað eru aðeins gerðir
samningar á ársgrundvelli þurfti ég
að endurnýja hann og sækja um nýtt
vinnuleyfi. Því var svo hafnað með
bréfi frá Vinnumálastofnun í ág-
úst.“ Hún bendir á að skilnaðurinn
sé ekki einu sinni genginn í gegn.
Hann gangi í gegn í október. Hún
velti því eðlilega fyrir sér hvort að
það sé virkilega svo að aðeins fáein-
um mánuðum frá því að karlmenn
skilji við eiginkonur sínar þurfi þær
hreinlega að pakka saman föggum
sínum og halda til síns heima. Hún
bendir á að hún þurfi meira að segja
að borga kostnaðinn við heimförina
sjálf.
„Ég eins og margar aðrar konur
sem hafa verið í mínum sporum hef
slitið mig upp frá heimahögunum
til að byggja upp líf hér. Lífið byggði
ég ekki aðeins upp með eiginmanni
mínum heldur vinum mínum og
dóttur, vinnuveitendum, vinnufé-
lögum og samstarfsmönnum. Ég á
mér minn eigin sjálfstæða tilveru-
rétt og mér finnst sárt að þurfa til-
neydd að skila allt það eftir sem ég
hef byggt upp ef ég þarf að yfirgefa
landið. Staða kvenna sem skilja við
maka sína er veik hér á landi og mér
þykir það leitt því staða kvenna hér á
landi er annars sterk.“
REKIN ÚR LANDI
EFTIR SKILNAÐ
Sárt að þurfa að fara Aðeins fáeinum
mánuðum eftir skilnaðinn þarf Jussanam de
Silva að fara af landi brott.
MYND RÓBERT REYNISSON
Ég, eins og margar aðrar konur sem hafa verið í
mínum sporum, hef slitið mig
upp frá heimahögunum til að
byggja upp líf hér.
Fólk sem hyggst sækja um atvinnu- og dvalarleyfi hér á landi skilar umsóknum sínum
til Útlendingastofnunar sem skoðar hvort forsendur séu fyrir því að veita dvalarleyfi,
að sögn Hreiðars Eiríkssonar, forstöðumanns leyfasviðs stofnunarinnar. „Við
skoðum dvalarleyfisumsóknina og ef viðkomandi uppfyllir skilyrði laga fyrir útgáfu
dvalarleyfis samþykkjum við dvalarleyfisumsóknina með fyrirvara um samþykki
Vinnumálastofnunar á útgáfu atvinnuleyfis,“ segir hann.
Hreiðar tekur fram að þegar fólk komi hingað á grundvelli hjúskapar fái það dval-
arleyfi á grundvelli hans. „Síðan gerist það að hjúskapur er ekki lengur fyrir hendi, til
dæmis við skilnað, að þá eru ekki lengur forsendur fyrir áframhaldandi útgáfu einmitt
þessarar tegundar leyfis. Þá í mörgum tilfellum hefur viðkomandi sótt um atvinnu-
og dvalarleyfi. Í þeim tilfellum sem þeim hefur verið synjað er forsenda fyrir útgáfu
dvalarleyfis brostin þar sem framfærsla er ekki lengur fyrir hendi,“ segir Hreiðar.
ERFITT FYRIR FÓlk uTaN EES-RÍkJaNNa
Baldur Aðalsteinsson, verkefnastjóri í atvinnuleyfum hjá Vinnumálastofnun, segir
stofnunina fara eftir reglum sem henni hafi verið settar en þær kveði á um að fólk frá
Evrópska efnahagssvæðinu hafi forgang fram yfir fólk frá öðrum ríkjum þegar sótt er
um atvinnuleyfi hér á landi. Á þetta hafi stjórnvöld lagt ríka áherslu.
Baldur bendir á að fyrir nokkrum árum hafi vinnumarkaðurinn verið opnaður
fólki frá nýjustu aðildarríkjum ESB og þá hafi forgangur EES-borgara verið ítrekaður.
„Afleiðing af þessu er sú að það er mun erfiðara fyrir þá sem eru utan EES að fá
atvinnuleyfi og sér í lagi þegar atvinnuleysi er mikið,“ segir hann. Oft sé um verka-
mannastörf að ræða og þá sé hugsunin sú að hægt sé að fá verkamenn frá Evrópska
efnahagssvæðinu til að sinna þeim. Ekki þurfi að leita út fyrir þessi lönd vegna slíkra
starfa.
Um mál útlendinga sem hafa verið giftir íslenskum ríkisborgurum í stuttan tíma
og lagt stund á atvinnu hér á landi en svo skilið við makann, segir Baldur að í raun sé
staða þeirra sú sama og staða annarra einstaklinga sem aldrei hafa haft atvinnurétt-
indi á landinu. „Einstaklingur sem giftist Íslendingi fær atvinnuréttindi í dvalarleyfinu.
Við skilnað þarf hann að sækja um tímabundið atvinnuleyfi í fyrsta sinn,“ segir Baldur.
JuSSaNaM HElDuR TÓNlEIka
Jussanam hefur áfrýjað til dómsmála- og mannréttindaráðuneytis en málið hefur
ekki verið tekið fyrir enn. Þangað til er Jussanam án allra framfærslutekna og
hefur því ekki í sig og á. Jussanam hefur því ákveðið að halda styrktartónleika í
sal Austurbæjarskóla á föstudaginn. Miða á tónleikana má kaupa í Draumalandi í
Austurbæjarskóla. Á tónleikunum verður leikin brasilísk tónlist undir blúsáhrifum og
Jussanam ætlar að koma gestum sínum á óvart með því að syngja vinsælt íslenskt
dægurlag á portúgölsku.
ÚTlENDINGaSTOFNuN:
TAKA TILLIT
TIL AÐSTÆÐNA
kRISTJaNa GuðBRaNDSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is