Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Blaðsíða 14
heildartöluna – ef þeir vilja finna út
hvað bíllinn kostar þá raunverulega
á einu ári.
Meðal verkamaður í fullri vinnu
fær 238 þúsund krónur útborgaðar
á mánuði. Ef hann á nýjan bíl getur
hann gert ráð fyrir því að um miðj-
an maí geti hann farið að vinna fyrir
öðrum kostnaði en þeim sem hlýst af
bílaeign hans. Það tekur hann fjóra og
hálfan mánuð að vinna fyrir 1,1 millj-
ón króna. Þá á hann eftir að standa
straum af kostnaði vegna húsnæðis
og uppihalds.
Ómissandi lífsgæði?
Eins og áður sagði kostar 84 krónur á
dag að eiga strætókort sem gildir allt
árið. Að sama skapi kostar að jafnaði
3.090 krónur á dag að reka skuldlaus-
an nýjan þriggja milljón króna bíl.
Vissulega fylgja því mikil lífsgæði og
frjálsræði að eiga einkabíl og geta far-
ið hvert sem mann lystir, hvenær sem
er. Það hlýtur hins vegar að vera mis-
jafnt hvort þau lífsgæði séu af hinu
góða ef þungur rekstur einkabílsins
verður til þess að fólk nær ekki endum
saman um mánaðamót – með tilheyr-
andi áhyggjum og streitu sem fylgja.
Dísilolía
Algengt verð verð á lítra 192,6 kr. verð á lítra 190,6 kr.
Almennt verð verð á lítra 192,4 kr. verð á lítra 190,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 194,9 kr. verð á lítra 195,7 kr.
bensín
Almennt verð verð á lítra 192,3 kr. verð á lítra 190,3 kr.
Melabraut verð á lítra 192,4 kr. verð á lítra 190,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 192,6 kr. verð á lítra 190,6 kr.
KrefjAst svArA
uM ábyrgð
Neytendasamtökin hafa send Lands-
neti bréf þar sem óskað er rökstuðn-
ings fyrir þeirri fullyrðingu sem fram
kom í fréttum um að Landsnet, sem
sér um dreifingu rafmagns, bæri
ekki ábyrgð á tjóni vegna truflana.
Segir í bréfinu að í lögum um skað-
semisábyrgð sé sérstaklega tilgreint
að þau gildi einnig um rafmagn
en lögin segja að dreifingaraðili og
framleiðandi vöru beri ábyrgð á tjóni
sem verður vegna ágalla vöru. „Neyt-
endasamtökin æskja því sérstaklega
rökstuðnings fyrir því ef þið teljið
lög um skaðsemisábyrgð ekki eiga
við en ljóst er að skemmdir á vörum
í eigu neytenda, tölvum, ísskápum
o.s.frv. í þessu tilviki voru tilkomnar
vegna truflana á raforkukerfi,“ segir
í bréfinu en Landsnet hefur 10 daga
til að svara.
KoM Með
AðrA sósu
n „Ég pantaði mér grillað lamb með
rósmarínsósu en með kjötinu fylgdi
ekki nema um það bil hálf teskeið
af sósu – sem er allt of lítið,“ sagði
óánægður viðsktipavinur Volare á
Laugavegi. „Þegar ég bað þjóninn
um meiri sósu kom hann til baka
með villisveppasósu sem hann hellti
yfir kjötið mitt en ekki
sömu sósuna og ég var
með. Ég borða ekki
einu sinni sveppi, þeir
eru það versta sem ég
fæ,“ sagði viðskipta-
vinurinn sem kunni illa
við blöndu af villisveppa- og
rósmarínsósu með lambinu.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
„MAturinn
KliKKAr Aldrei“
n Ánægður viðskiptavinur vildi lofa
Thai matstofuna á Suðurlandsbraut.
„Þrír réttir á 1.200 kall. Maturinn
klikkar aldrei,“ sagði hann og bætti
því við að í hádeginu væri lægra
verð, en þá kostar 1.100 krón-
ur. Hann sagði enn fremur að
maturinn væri vel úti látinn
og maður færi aldrei
svangur frá matstof-
unni. „Ég er að verða
fastagestur þarna,“
sagði viðskiptavinurinn.
LOF&LAST
14 neyTendur UmSjóN: baldur guðmundsson baldur@dv.is 22. september 2010 miðvikudagur
Verðmerking benSínS röng Ein bensínstöð var með rangar
verðmerkingar á bensínverði í athugun Neytendastofu í ágúst. Stofan kannað þá hvort
verðmerkingar væru í samræmi við ákvæði reglna. Neytendastofa gefur hins vegar
ekki upp hvaða bensínstöð það var. Einnig var athugað hvort eldsneytisdælur væru
með löggildingu ásamt því sem skoðað var hvort löggildingarmiði væri sýnilegur.
„Sala á eldsneyti á að fara fram á löggiltum eldsneytisdælum og löggildingarmiði á að
vera sýnilegur á aðgengilegan hátt. Gerðar voru athugasemdir við níu stöðvar af 72
eða 12,5 prósent af heildarfjölda,“ segir á heimasíðu Neytendastofu. Í tvígang var lög-
gilding dæla útrunnin og hefur Neytendastofa óskað eftir skýringum á því.e
L
d
S
n
e
y
T
i
sparaðu 89 milljónir
Munurinn á því að reka nýjan skuld-
lausan einkabíl eða ferðast með al-
menningssamgöngum er 37 faldur.
Með öðrum orðum gætu 37 manns
ferðast með strætó fyrir þann pening
sem einn einstaklingur leggur árlega
í rekstur nýrrar bifreiðar.
Á tíu árum geturðu safnað þér 13
milljónum króna miðað við 6 pró-
senta árlega ávöxtun ef þú leggur 1,1
milljón króna inn á bankareikning í
stað þess að reka bifreið. Á fjörutíu
ára starfsævi nemur sparnaðurinn
miðað við sömu forsendur 89 millj-
ónum króna.
Þó skal haft í huga að þeir sem
eiga ekki bíl geta þurft að leggja í
kostnað vegna leigubíla, rútuferða
eða flugsamgangna. Við það getur
árlegur sparnaður minnkað en það
fer þó eftir þörfum hvers og eins.
Ljóst má vera að ferðirnar þyrftu að
vera ansi margar til að það beinlínis
borgaði sig að eiga bíl.
Ódýrt kort
Það kostar 84 krónur á dag að vera
með strætókort sem gildir í eitt ár.
Strætó bs. hefur nú í sumar og haust
boðið 33 prósent lengri gildistíma á
öllum kortum. Það þýðir að 9 mán-
aða kort gildir í heilt ár en tilboð-
ið gildir til 15. október. Eigandi bíls
sem ekur 15 þúsund kílómetra á ári
og eyðir 8 lítrum á hundraðið greið-
ir um 240 þúsund krónur á ári fyrir
bensínið eða um átta sinnum meira
en fyrir árskort í strætó, sem kostar
30.500 krónur.
margvíslegur kostnaður
FÍB gefur árlega út kostnað við rekst-
ur nýrrar bifreiðar. Þeir sýna svo ekki
verður um villst að rekstur einka-
bílsins kostar í mörgum tilfellum
síst minna en leiga íbúðarhúsnæðis.
Miðað er við þær forsendur að bíln-
um sé ekið 15 þúsund kílómetra á ári
og hann eyði 8 lítrum á hundraðið.
Þá kostar 1,1 milljón króna á ári að
reka bílinn og þrjátíu þúsund krón-
um betur. Í þessum tölum er miðað
við að eigandinn eigi bílinn skuld-
laust. Útreikningar FÍB eru nokkuð
nákvæmir. Tekið er mið af bensíni,
viðhaldi, hjólbörðum, tryggingum,
sköttum, kostnaði við þrif og bíla-
stæði, verðrýrnun og fjármagns-
kostnaði en það er sú upphæð sem
eigandinn gæti haft í vexti ef hann
seldi bílinn og leggði upphæðina
inn á bankabók. 1,1 milljón er því
sú upphæð sem árlega sparast ef þú
tekur alltaf strætó í stað þess að nota
einkabíl.
Passar dæmið ekki?
Þeir sem eiga eldri bifreiðar og finnst
reikningsdæmið ekki passa við sig
geta farið í töfluna hér til hliðar og
áætlað minni kostnað vegna verð-
rýrnunar en ættu þó að sama skapi
að geta bætt svolitlu við þegar kem-
ur að viðgerðarkostnaði, sem yfir-
leitt eykst eftir því sem bíllinn eld-
ist. Að sama skapi geta þeir sem hafa
áhvílandi lán á bifreiðinni sinni bætt
árlegum afborgunum af láninu við
baldur guðmundsson
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
1 37
37 kOrT eðA 1 bíLL
Þrjátíu og sjö árskort í strætó er hægt að fá fyrir það sem rekstur einkabíls í eitt ár
kostar samkvæmt útreikningum FÍB.
Þú getur flogið til og frá Kaupmannahöfn ásamt maka þínum í hverjum einasta mánuði
ef þú velur strætó frekar en að reka nýjan bíl - og samt átt afgang. Munurinn á þessum
ferðamáta er 37 faldur og nemur 1,1 milljón króna á ári. Verkamaður sem selur bílinn
getur minnkað starfshlutfall niður í 65 prósent við það eitt að losa sig við bílinn.