Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Side 16
16 erlent 22. september 2010 miðvikudagur Útbreiddasta dagblaðið í hættuleg- ustu borg Mexíkó, Ciudad Juarez, ætlar að draga stórlega úr fréttaflutn- ingi af eiturlyfjastríðinu í landinu. Sú ákvörðun var tekin í kjölfar þess að annar blaðamaður dagblaðsins á tæpum tveimur árum var myrtur. Á meðan brýna alþjóðasamtök blaða- manna fyrir stjórnvöldum að gera ör- yggismál blaðamanna að forgangs- máli í landinu. Yfir 28 þúsund manns hafa dáið í ofbeldi sem tengist eiturlyfjasölu frá því að Felipe Calderon forseti lýsti yfir stríði gegn glæpasamtök- um í landinu árið 2006 og fór að beita hernum gegnum þeim. Of- beldið hefur færst yfir til annarra landa í Mið-Ameríku. Forsetinn hefur varið aðgerðir sínar og segir að aukið ofbeldi tákni að eiturlyfja- gengin fyllist nú örvæntingu. 21 árs ljósmyndari myrtur Í leiðara sem birtist á forsíðunni á sunnudaginn spurði dagblaðið El Diario de Juarez glæpagengin, sem stýra í raun borginni, hvað þau vildu að dagblaðið gerði, svo það gæti haldið áfram störfum án frek- ari dauðsfalla, meiðsla eða ógnana við starfsfólk þess. „Leiðtogar samtakanna sem berjast um völdin yfir Ciudad Jua- rez: Við höfum misst tvo blaða- menn úr röðum okkur á tæpum tveimur árum og það hefur valdið okkur, og sérstaklega fjölskyldum þeirra, óbætanlegu tjóni,“ sagði í leiðaranum. „Við viljum biðja ykkur um að útskýra hvað það er sem þið viljið að við gerum, hvað við eigum að birta og hvað ekki, svo við vitum við hverju við eigum að búast.“ Þetta var annar forsíðuleiðari blaðsins síðan vopnaðir menn réð- ust á tvo ljósmyndara El Diario á fimmtudaginn – annar var nýr starfsmaður og hinn var í starfs- reynslu. Nýi starfsmaðurinn, Luis Carlos Santiago, 21 árs, lést og hinn slasaðist alvarlega. Ráðist var á þá þegar þeir fengu sér að borða í há- deginu. Árið 2008 var rannsóknar- blaðamaður El Diario myrtur þegar hann fylgdi dætrum sínum í skól- ann. Fjölmiðlar þora ekki Að minnsta kosti 22 mexíkóskir blaðamenn hafa verið myrtir á síð- ustu fjórum árum. Að minnsta kosti átta þeirra voru myrtir fyrir frétta- flutning sinn af glæpum og spillingu, að því er kemur fram hjá Nefnd til varnar blaðamönnum, bandarísk- um eftirlitssamtökum fyrir fjölmiðla sem ætla að kynna skýrslu sína fyrir Felipe Calderon forseta á miðviku- daginn. Að minnsta kosti sjö aðr- ir blaðamenn hafa horfið eða flúið land frá því að eiturlyfjastríðið hófst. Margir fjölmiðlar, sérstaklega á svæðum utan alfaraleiðar, hafa hætt fréttaflutningi af stríðinu. El Diario var ekki eitt þeirra, fyrr en á sunnu- daginn. Aðgerðaleysi stjórnvalda „El Diario var með frábæra umfjöll- un um glæpi þrátt fyrir að það starfi á einu versta svæðinu. Sú staðreynd að þeir gefist upp er hræðileg. Það bendir til þess að ástandið sé orðið algjörlega stjórnlaust,“ segir Carlos Luis, einn af forvígismönnum Nefndar til varnar blaðamönnum. Innanríkisráðherra Calderons for- dæmdi morðið nokkrum klukku- stundum eftir tilræðið og kallaði það árás á tjáningarfrelsi allra Mexíkóa. En í báðum forsíðuleiðurunum sakaði El Diario stjórnvöld um algjört aðgerða- leysi vegna hótana og árása eiturlyfja- barónanna á hendur blaðamönnum. Ein hættulegasta borg í heim Í leiðara El Diario á sunnudaginn var skrifað að blaðið beindi ofangreind- um tilmælum til glæpagengjanna þar sem þau væru nú í raun valdhafar í borginni. Einnig var skrifað að Calde- ron hefði lofað blaðamönnum vernd, en að þau loforð hefðu alls ekki ver- ið efnd. Tvær stríðandi fylkingar eiturlyfja- gengja hafa barist um völd í borginni síðustu tvö árin. Í því stríði hafa nær 5.000 borgarar látist, í borg sem telur 1,3 milljónir íbúar. Það gerir Ciudad Juarez að hættulegustu borg heims. „Við viljum ekki lengur vera not- uð sem fallbyssufóður í þessu stríði því við erum örmagna,“ sagði Pedro Torres, ritstjóri El Diario, í samtali við hElgi hrAFn guðmundsson blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Við viljum ekki lengur vera not- uð sem fallbyssufóður í þessu stríði því við erum örmagna. Mexíkóska dagblaðið El Diario de Juarez hefur beðið glæpagengi í borginni Ciudad Juarez um að útskýra hvað þau vilji blað- inu eftir að 21 árs ljósmyndari blaðsins var myrtur. Á götum Ciudad Juarez geisar blóðugt stríð á milli eiturlyfjagengja. Sam- tals hafa um 30 þúsund manns fallið á síð- ustu fjórum árum í eiturlyfjastríðinu. skelfilegt ástand KonursyrgjamyrtanástvinímexíkóskuborginniCiudadJuarez semereinhættulegastaborgheims.Fimmþúsundmannshafaveriðmyrtirþar síðaneiturlyfjastríðiðíMexíkóhófst.Ofbeldiðvirðistenganendaætlaaðtakaog meiraaðsegjablaðamennhafagefistuppafóttaviðeiturlyfjagengin.mynd rEutErs DAGBLAÐ GEFST UPP FYRIR GLÆPAGENGI myrtur í blóma lí fsins Aðstandendu rogsamstarfsfólk  ljósmyndaransLu isCarlosSantiago ,21árs,fylgjahon um tilgrafar.Dagblað iðhans,ElDiario, hefurgefistupp vegna sífelldraárásaglæ pagengjaáblaða mennþess.mynd r EutErs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.