Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Page 10
10 fréttir 29. september 2010 miðvikudagur
Jussanam Da Silva fær ekki atvinnu-
leyfi hér á landi í kjölfar skilnaðar
við eiginmann sinn þrátt fyrir góð
meðmæli vinnuveitanda á meðan
aðrir borgarar utan EES eiga greið-
ara aðgengi að vinnumarkaði. Hjón-
in Mauricio Weimar og Kelly Gar-
bini eru meðal þeirra. Ástæðuna má
rekja beint til þess að makar utan
EES-ríkja missa dvalarleyfi vegna
skilnaðar og þurfa þá að sækja um
leyfi bæði til dvalar og atvinnu á
nýjum forsendum. Jussanam hefði
verið betur sett hefði hún sótt um
dvalarleyfi á öðrum forsendum en
hjúskap sínum.
Fengu atvinnuleyfi vegna
skorts á vinnuafli
Sumarið 2009 var auglýst deildar-
stjórastaða við tónlistardeild Hafra-
lækjarskóla í Þingeyjarsveit. Þrír
sóttu um stöðuna. Mauricio og Kelly
Garbini kona hans eru bæði brasil-
ískir ríkisborgarar og komu til Ís-
lands 2008. Mauricio fékk stöð-
una og kona hans var einnig ráðin
tónlistarkennari við skólann. Þeg-
ar Mauricio og Kelly eru ráðin til
skólans eru þau þegar með tíma-
bundið atvinnuleyfi vegna skorts á
vinnuafli. Þau fengu það leyfi end-
urnýjað til eins árs.
Jussanam de Silva er hins veg-
ar neitað um atvinnuleyfi á þeirri
forsendu að hér sé atvinnuleysi og
ekki var tekin afstaða til þess að hún
hefði til að bera sérþekkingu sem
nýttist á íslenskum vinnumarkaði
umfram aðra. Þrátt fyrir atvinnuleysi
hefur borið á manneklu á frístunda-
heimilum borgarinnar og forráða-
menn bera því við að erfiðlega gangi
að fá fólk til að gegna störfum sem
þessum.
Nemendur halda tónleika
Mauricio Weimar og Kelly Garbini
Wenning eru ákaflega vel liðin af
stjórnendum og nemendum Hafra-
lækjaskóla. Þau kenna nemendum
á fiðlu, gítar, slagverk, píanó, hljóm-
borð, harmonikku og tónmennt.
Að auki leggja nemendur stund á
tónfræði, læra að efna til tónleika-
halds og hvernig standa skuli að
flutningi tónlistar, sköpun tónsmíða
og spuna. Í Hafralækjaskóla sækja
nemendur tíma í tónlistarnámi á
skólatíma grunnskólans. Hafralækj-
arskóli telst reyndar til frumkvöðla
í skólastarfi hvað tónlistarkennsl-
una varðar og í seinni tíð hefur svip-
að skipulag verið tekið upp víða um
land.
Harpa Hólmgrímsdóttir, skóla-
stjóri Hafralækjaskóli, er ánægð
með framlag Mauricios til kennsl-
unnar og segir hann ná vel til nem-
enda; „Mauricio spilar á fiðlu með
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, á
gítar og slagverkshljóðfæri. Nem-
endur hér eru hrifnir af honum og
kennsluaðferðum hans og það er
gaman að því lífi sem er í tónlistar-
kennslunni hér. Nemendur halda
tónleika fyrir sveitunga og troða upp
á skemmtunum.“
Fengu góðar leiðbeiningar
Mauricio og Kelly kunna að eig-
in sögn afar vel við sig og segja ferl-
ið við að flytja hingað til lands hafa
verið fremur lipurt. Mauricio segist
hafa fylgst með máli Jussanam og
furðar sig á því að hún hafi ekki feng-
ið jafngóða aðstoð og þau hjón við að
flytjast hingað til lands. „Við fengum
góðar og hnitmiðaðar leiðbeiningar
frá starfsmönnum Útlendingastofu.
Ég hef lagt áherslu á að mennta mig
í hljóðfæraleik og þurfti að sýna fram
á að ég hefði haldgóða þekkingu sem
ég gæti miðlað áfram til nemenda.
Það hlýtur að vera að hún hafi fengið
misvísandi ráðgjöf. Einhver þarf að
beina henni í rétt ferli svo njóta megi
starfskrafta hennar hér því þetta er
augljóslega öflug söngkona sem get-
ur gefið af sér,“ segir Mauricio.
Hefur ekkert frétt
Jussanam segist ekki hafa frétt neitt
um afgreiðslu kæru sinnar og hvort
hún verði yfirhöfuð tekin til umfjöll-
unar. „Ákvörðun um hvort mál Juss-
anam verði tekið til efnislegrar með-
ferðar hefur ekki verið tekin, það mál
er enn til skoðunar hjá ráðuneytinu,“
staðfestir Margrét Erlendsdóttir,
deildarstjóri í félagsmálaráðuneyt-
inu.
Jussanam hefur áhyggjur af 21
árs gamalli dóttur sinni sem hefur
tímabundið dvalarleyfi sem renn-
ur út í apríl á næsta ári. Hún getur
ekki hugsað sér að skilja hana eftir
hér á landi og vonast enn til þess að
þær fái að dvelja hér saman. Skilnað-
ur hennar við íslenskan eiginmann
hennar gengur í gegn þann 15.októ-
ber. Þau eiga í engum samskiptum
vegna vandkvæða Jussanam við að
leysa úr málum sínum og dótturinn-
ar hér á landi.
Brasilísk hjón fá leyfi
en jussanam hafnað
kristjaNa guðbraNdsdóttir
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is
Umsókn jussanam da silva um landvistarleyfi var hafnað en
umsókn brasílískra hjóna var samþykkt og starfa þau við tón-
listarkennslu í Hafralækjarskóla í Aðaldal. Eins og Jussanam
eru þau brasilískir ríkisborgarar en fengu tímabundið atvinnu-
leyfi vegna skorts á vinnuafli. Þau þykja glæða dalinn lífi og
almenn ánægja er með störf þeirra. Kæra Jussanam hefur enn
ekki verið tekin til umfjöllunar og hún er enn í fullkominni
óvissu um stöðu sína.
Jussanam hefði verið betur sett
hefði hún sótt um dval-
arleyfi á öðrum forsend-
um en hjúskap sínum.
Mauricio og kelly í Hafralækjarskóla
JussanamþarfbetriráðgjöfsegirMauricio.
Áhyggjufull Jussanam
hugnastekkiaðskiljadótt-
ursínaeinaeftirálandinu.
MyNd róbert reyNissoN