Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Side 16
16 erlent 29. september 2010 miðvikudagur
LoðfíLabein í
stað fíLabeins
Rússar nýta sér nú alþjóðlegt bann á
viðskiptum með fílabein. Þeir safna
skögultönnum úr hinum útdauðu
loðfílum og selja víða um lönd. Talið
er að vinsældir loðfílabeins geti orð-
ið miklar, fólk geti átt muni úr þessu
fágæta efni án þess að fílategundir
nútímans þjáist. Michelle Obama,
forsetafrú Bandaríkjanna, hefur sést
skarta skartgripum sem unnir eru úr
skögultönnum loðfíla og rætt er um
að ný tískubóla sé að myndast.
Hlýnandi veðurfar á jörðinni
hefur í för með sér að lög í jarðvegi
á heimskautasvæðum, sem frost
fór aldrei úr, þiðna. Það gerir íbú-
um í norðanverðri Síberíu auðveld-
ara fyrir að grafa upp hræ loðfílanna
sem þar liggja grafnir og frosnir í
tug, hugsanlega hundraða milljóna
tali. Dýraverndunarsinnum, sem
umhugað er um velferð núlifandi
fílategunda í Afríku og Indlandi, líst
vel á að nýta loðfílahræin, þar sem
líklegt þykir að það muni draga úr
ólöglegum fílaveiðum.
150 milljónir loðfíla
60 tonn af loðfílabeini eru seld frá
Rússlandi til Kína á hverju ári, en
kínverski fílabeinsmarkaðurinn er
sá stærsti í heimi. Vísindamenn telja
að það sé aðeins brotabrot af þeim
miklu loðfílabirgðum sem hvíla í
rússneskri jörð. Þeir telja að allt að
150 milljónir loðfíla liggi frosnir í sí-
freranum í Síberíu, sem grafa megi
upp.
„Á hverju ári leita hundruð,
hugsanlega þúsundir manna, að
loðfílahræjum í túndrunni í norð-
anverðri Síberíu frá miðjum júní til
september,“ segir í nýlegri skýrslu
um málið.
Hlýnun jarðar hjálpar
Loðfílar eru taldir hafa birst á jörð-
inni fyrir 4,8 milljónum ára og orðið
útdauða fyrir að minnsta kosti 3.600
árum. Nú þegar hlýnun jarðar gerir
að verkum að ísilagðar túndrur Síb-
eríu þiðna hraðar verður sífellt auð-
veldara að finna vel varðveittar leif-
ar þessara virðulegu skepna.
Þetta hefur gert marga rússneska
viðskiptamenn áhugasama um
þessa nýstárlegu en ævafornu vöru
en hægt er að selja loðfílabein mun
hærra verði en venjulegt fílabein.
Hvert kíló getur kostað um sextíu
þúsund íslenskar krónur.
Verndar fíla
Áhugamenn um verndun fíla vonast
til að kaup og sala á beinum hinna
löngu útdauðu loðfíla muni auk-
ast enn frekar og muni á endanum
koma í veg fyrir svartamarkaðasölu
á fílabeini. „Hinn mikli innflutn-
ingur á loðfílabeini í Hong Kong,
sem aðallega er sent til meginlands
Kína, minnkar líklega þörfina á fíla-
beini frá Afríku. Það mun vonandi,
þegar fram í sækir, lækka verð á fíla-
beini og minnka áhuga manna á því
að veiða fíla,“ segir í skýrslunni.
Helgi Hrafn guðmundsson
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Vísindamenn telja að allt að
150 milljónir loðfíla
liggi frosnir í sífreran-
um í Síberíu, sem grafa
megi upp.
LoðfílarkallasthópurútdauðrafílaafættkvíslsemnefnistMammuthus.Leifar
þessarastórvöxnuspendýrahafafundistíjarðlögumallrameginlandanna
nemaíÁstralíuogSuður-Ameríku.Leifarnarhafaeinungisfundistíjarðlögum
frá Pleistósen-tímabilinusemnæryfirtímannfráþvífyrir1,6milljónumára
framaðlokumísaldarfyrir10.000árum.
Aðöllumlíkindumersíberískiloðfíllinn, Mammuthusprimigenius,kunn-
asturloðfílaendahöfðuþeirtalsvertmiklaútbreiðslu.Ótalleifarhafafundistaf
þeimogmeiraaðsegjadjúpfrystdýríheilulagi.Lítillloðfílskálfurertildæmis
tilsýnisínáttúrusögusafninuíSt.PétursborgíRússlandi.
Áloðfílumvorutværgerðirafhárum.Innrihárinsemlíkjastþelhárum
sauðkindarinnarvorugulbrúnaðlitog2–3sentímetralöng.Ytriháringáfu
loðfílumnafnsitt.Þauvoruvoldugogmikilhár,dökkbrúnaðlitogalltupp
íhálfanmetraálengd.Loðfílarvorumeðþykktskinnlíktogfílarnútímans
ogmjögþykktfitulagsemgatveriðalltað8sentímetraráþykkt.Eyrunvoru
minnieneyruafrískuogasískufílanna,sennilegavegnaþessaðloðfílarnir
lifðuákaldaristöðumenafrískirogasískirfílargera.Skögultennurloðfílagátu
veriðgríðarlegastórar.Loðfílarlifðuájurtumoghafaheimskautajurtirfundistí
frosnumhræjumloðfílaíJakútskíNorður-Síberíu.
Margirfræðimennteljaaðloðfílarnirhafidáiðútviðlokísaldarfyrirum10
þúsundárumþóaðsumirhaldiþvíframaðþeirhafiennveriðáferlinokkrum
þúsundumárumsíðar.Ekkierljósthversvegnaloðfílarnirdóuútenmenn
hallasthelstaðþvíaðástæðanséveðurfarsbreytingarsemurðuviðlokísaldar,
eftilvillásamtofveiði.
Tekið af Vísindavef Háskólans.
Hvernig voru loðfílar?
Rússar selja nú grimmt skögultennurnar
úr frosnum hræum loðfíla í Síberíu. Þær
geta skartgripagerðarmenn notað í stað
hins löngum eftirsótta hefðbundna fíla-
beins, sem bannað er að selja í heiminum.
Milljónir loðfíla liggja frosnar í sífreran-
um. Dýraverndurnarsinnar telja að það
geti stuðlað að verndun fíla í heiminum.
skögultenntar skepnur Loðfílarskörtuðugríðarstór-
umskögultönnum.Menngrafanúuppvelvarðveitt
hræþeirraítúndrumSíberíuogseljabeintilKína.
Taliðeraðaukinsalaáskögultönnunumgetiminnkað
eftirspurninaeftirólöglegufílabeini. mYnd WiKiPedia
Vel nýtanleg bein Útskurðuraf
loðfílúrloðfílabeini.Loftslagsbreyt-
ingarájörðinniþýðaaðauðveldara
erorðiðaðgrafahræloðfílannaupp.
mYnd reuTers