Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Qupperneq 18
„Algjörlega, en það stefnir í gott samband,“ segir ÞORBJÖRG MARINÓSDÓTT- IR. Hún sagði upp hjá Séð og heyrt á þriðjudag eftir að ritstjóra hennar, Eiríki Jónssyni, var sagt upp sama dag. VAR ÞETTA MAKA- LAUS ÁKVÖRÐUN? „Nó komment.“ n Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og heyrt, vill ekkert tjá sig um uppsögn sína. – DV.is „Ég tek þetta að mér af því að ég treysti mér fullkom- lega til þess og hef áhuga á þessu.“ n Rúnar Kristinsson verður áfram þjálfari KR, en eftir að hann tók við fór liðið úr neðri hluta deildarinnar í möguleika á Íslandsmeistaratitli. – Fréttablaðið „Það hvarflar ekki að Ólafi að segja af sér.“ n KSÍ tók fram fyrir hendurnar á Ólafi Jóhannessyni, landsliðsþjálfara í knattspyrnu, og leyfði Eyjólfi Sverrissyni að velja þá sem hann vildi í U21 árs landsliðið. – Fótbolti.net „Ég hef lengi staðið vaktina með mínum nánustu samstarfsmönn- um og þegar þeir eru farn- ir sé ég ekki ástæðu til að vera þarna lengur.“ n Blaðakonan Þorbjörg Marinósdóttir er hætt á Séð og heyrt í kjölfar brottrekstrar Eiríks Jónssonar. – Pressan „Í grunninn er þetta ferðaþátt- ur en það fléttast margt inn í þetta eins og lífsstíll og heilsa.“ n Ívar Guðmundsson segir frá nýjum þætti sem hann og félagi hans, Arnar Grant, eru að byrja með. – DV Fasískir femínistar Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttar-lögmaður gantaðist með það á dögun-um að hann upplifði það sem höfnun að hafa ekki sætt kynferðislegri áreitni af hálfu prestis. Honum fannst það fyndið. Þá sem bentu honum á að brandarinn væri takt- laus og ósmekklegur kallaði hann hræsnara, teprukellingar, uppfulla af heilagri vandlæt- ingu og húmorslausa. Lífið væri of stutt til þess að vera fúll á móti. Þessi sami hæstaréttarlögmaður hef- ur farið þó nokkrum sinnum fyrir dóm með kynferðisbrotamál. Í vor varði hann vænd- iskaupanda og lýsti yfir ánægju sinni með að þinghaldið væri lokað. Sagði málið sjálft snar- galið og löggjöfina kengvitlausa. Hann sagði að þetta mál væri dæmi um að „mussukell- ingar“ á þingi vildu bæta heiminn en hugsuðu ekkert út í afleiðingarnar. Mussukellingar og femínistar eru honum ekki að skapi. Fasískir femínistar sem vilja hengja menn án dóms og laga voru umræðu- efnið í grein sem hann skrifaði fyrir Morg- unblaðið árið 2007. Þar fjallaði hann um opinbera umræðu um sýknudóm í kynferðis- brotamáli og blöskraði honum viðbrögð dóm- stóls götunnar og já, femínista. Skjólstæðingi sínum lýsti hann sem saklausum, barnungum pilti. Rétt er að taka það fram að þessi „saklausi, barnungi piltur“ hans Sveins Andra var full- orðinn maður sem ýtti konu inn á salernið á Hótel Sögu, læsti, dró niður um hana, ýtti henni niður á salernið og síðan niður á gólf þar sem hann kom fram vilja sínum . Dómararnir sem dæmdu í málinu töldu ljóst að hún hefði ekki viljað eiga við hann samræði eða önnur kynferðismök. Engu að síður var hann sýknaður af ákæru um nauðg- un. Forsenda sýknudómsins var að háttsemi hans féll ekki að skilgreiningu dómaranna á ofbeldi. Þá efuðust þeir um ásetning ákærða þar sem konan mótmælti ekki fyrr en hún var farin að finna til. Hún fraus. Skilaboðin voru skýr. Svo lengi sem kon- an mótmælir ekki máttu gera við hana það sem þú vilt. Væri kannski farsælla að ganga út frá því að samþykki þurfi að liggja fyrir áður en samræði hefst fremur en að gera konuna ábyrga fyrir því að láta karl vita af því að hann sé að nauðga henni? Kannski voru dómararnir á sömu línu og Sveinn Andri og töldu lífið of stutt til þess að vera fúll á móti. Þess vegna væri allt í lagi að grínast með kynferðisbrotamál. Þessi dóm- ur var lélegur brandari. Hæstiréttur ómerkti dóminn og sendi hann aftur í hérað þar sem maðurinn var fundinn sekur. Það var síð- an staðfest í Hæstarétti þar sem Jón Steinar Gunnlaugsson skilaði reyndar sératkvæði og vildi sýknu. Árið 2009 voru 130 nauðganir tilkynntar til Neyðarmóttöku vegna nauðgana. Sama ár voru 7 sakfelldir fyrir nauðgun. Hvar er húm- orinn í því? Sveinn Andri ritaði í pistli á dögunum að fátt væri alvöru fjölmiðli mikilvægara en traust þeirra sem á hann hlýða eða lesa. Við hljótum að gera sömu kröfu til hæstaréttarlögmanna. Við verðum að geta treyst dómgreind þeirra og annarra sem að réttarkerfinu standa. Það væri ágætis byrjun að taka kynferðisbrot alvarlega. INGIBJÖRG DÖGG KJARTANSDÓTTIR RITSTJÓRI SKRIFAR. Það væri ágætis byrjun að taka kynferðisbrot alvarlega. Niðurstaðan úr kosningu Al- þingis yfir ráð- herrunum fjórum á þriðju- daginn er óréttlát sem slík. Alþingi komst þar að því að ákæra bæri Geir H. Haarde einan fyrir emb- ættisverk sín og vanrækslu í að- draganda banka- hrunsins en ekki hina ráðherrana þrjá. Þessi niður- staða er óréttlát sem slík vegna þess hvernig komist var að henni, vegna þeirra forsendna sem hún byggir á en ekki vegna þess að niðurstað- an sjálf, að ákæra Geir, sé endilega röng. Í þessari athugun felst jafnframt ekki sá gildisdómur að það hafi ver- ið réttmætt að ákæra ekki hina ráð- herrana þrjá. Sú niðurstaða getur verið gagnrýnd á sömu forsendum og ákæran gegn Geir. Niðurstaða Alþingis er dæmi um ákvarðanatöku þar sem niðurstað- an getur ekki orðið réttlát vegna þess að ekki er komist að henni á réttlátan, hlutlægan hátt heldur byggir hún á pólitískum, hlutdræg- um forsendum. Þrjátíu og þrír þing- menn töldu að ákæra bæri Geir en þrjátíu sögðu að ekki bæri að ákæra hann. Úrslitin réðust á atkvæðum fjögurra þingmanna Samfylking- arinnar, þeirra Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, Ólínu Þorvarðardóttur, Helga Hjörvars og Skúla Helgason- ar. Þau töldu öll að ákæra bæri Geir en þyrma ætti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi formanni Samfylkingarinnar. Með þessari niðurstöðu í kosn- ingunni má segja að þingmenn Samfylkingarinnar hafi tekið ákvörðun að skera eigin flokksfor- mann, og þar með sömuleiðis eigin flokk, úr snörunni í formlega upp- gjörinu við pólitíska þátt íslenska efnahagshrunsins. Eftir stendur sú niðurstaða Alþingis að Geir einn sé sá ráðherra sem hafi gert nægilega mörg axarsköft, eða gerst sekur um nægilegt aðgerðaleysi, í aðdraganda hrunsins til að hægt sé að refsa hon- um fyrir þessi afglöp í starfi. Ef þingkosningarnar í fyrra hefðu farið á annan veg hefði niðurstað- an tvímælalaust orðið önnur í þess- ari kosningu. Segjum til dæmis ef Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn- arflokkurinn – eins ólíklegt og það kann að hljóma – hefðu myndað meirihlutastjórn eftir kosningarn- ar. Þá hefði niðurstaðan án nokk- urs vafa orðið sú að ekki bæri að ákæra neinn af ráðherrunum. Þetta hefði verið ákveðið í bakherbergjum flokkanna, forysta Sjálfstæðisflokks- ins hefði líklega sagt þingmönnum sínum og Framsóknarflokksins að greiða atkvæði á þennan hátt, líkt og nánast öruggt er að forysta Samfylk- ingarinnar hafði sín áhrif á hvernig kosið var á þriðjudaginn. Að sama skapi hefði niðurstaðan í kosn- ingunni orðið allt önnur ef Vinstri grænir hefðu náð meirihluta með Hreyfingunni og myndað ríkisstjórn – eins fjarstæðukennt og það kann að hljóma. Þá hefðu allir þingmenn flokkanna tveggja greitt atkvæði með því að ákæra bæri alla ráðherr- anna fjóra – líkt og allir þingmenn flokkanna gerðu reyndar á þriðju- daginn. Þessar ímynduðu en líklegu niðurstöður úr kosningunni um hvaða ráðherra ætti að senda fyr- ir landsdóm sýna enn frekar það sem kosningin um ákærurnar und- irstrikar: Aðferðafræðin við skera úr um hvort ákæra eigi þingmenn eða ekki á þennan hátt er gölluð af því að hún er pólítísk og hlutdræg en ekki fagleg og hlutlæg eins og hún ætti að vera til að hægt væri að taka mark á henni. Hefja þarf þessa ákvarðanatöku um sekt eða sakleysi þingmanna í einstökum hitamál- um yfir tímabundna pólitíska hags- muni þar sem seta tiltekinna flokka í ríkisstjórn getur haft úrslitaáhrif á hvernig kosið er. Kosningin sýn- ir líklega fyrst og fremst fram á þá bresti sem eru í þessu kerfi og mik- ilvægi þess að aðrir og hlutlægari og hlutlausari aðilar en þingmennirnir sjálfir greiði sjálfir atkvæði um sak- næmi hvers annars. Auðvitað koma þingmenn höggi á pólitíska and- stæðinga sína og fría sig og sína ef þeir geta það. Niðurstaðan úr slíkri kosningu verður aldrei annað en óréttlát og fátt er kannski gremjulegra og meira svekkjandi fyrir Alþingi og þjóðina alla en að komast að réttri niður- stöðu á röngum forsendum og geng- isfella þar með niðurstöðuna sjálfa og allt ferlið sem niðurstaðan bygg- ir á. Eftir þessa kosningu standa orð Jóns Hreggviðssonar og æpa á okk- ur – „Vont er þeirra ránglæti en verra er þeirra réttlæti“. Geir H. Haarde fær samúð sem fórnarlamb frá hluta þjóðarinnar eftir þá óheppilegu út- reið að vera dæmdur sekur af pól- itískum andstæðingum sínum fyrir syndir sem þeir sjálfir eiga hlutdeild í. Réttlætið hlýtur í eðli sínu alltaf að vera sanngjarnt en þetta réttlæti er ósanngjarnt. Geir H. Haarde – af öll- um mönnum – er orðinn píslarvott- ur á röngum forsendum. Óréttlæti Alþingis LEIÐARI SPURNINGIN KJALLARI BÓKSTAFLEGA 18 UMRÆÐA 29. september 2010 MIÐVIKUDAGUR SVELLKALDUR SIGMUNDUR n Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, formaður Framsókn- arflokksins, er óhræddur við að gera upp skuggalega for- tíð flokks síns hvað varðar einkavæðingu bankanna. Þetta kemur fram í því að hann hefur nú lagt fram breyt- ingartillögu vegna skýrslu þing- mannanefndar Atla Gíslason- ar. Leggur Sigmundur Davíð til að einkavæðing bankanna verði rannsökuð. Víst er að Halldór Ás- grímsson, annar tveggja höfuð- paura einkavæðingarinnar, kann honum ekki miklar þakkir fyrir. BARNUNGUR ÞINGMAÐUR n Víðir Smári Petersen er yngsti maður sem tekið hefur sæti á þingi. Víðir er varaþingmaður Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, og settist á þing í vikubyrjun. Hann er að- eins 21 árs og 319 daga gamall. Fyrra met átti Sigurður Magn- ússon sem tók sæti á þingi árið 1971, þá 23 ára og 167 daga gam- all. Víst er að Víðir á í vændum glæsta framtíð innan Sjálfstæð- isflokksins en hann er lögfræði- menntaður. ÞORFINNUR TIL BELGÍU n Margir velta fyrir sér hver taki við ritstjórn Eyjunnar þegar Þorf- innur Ómars- son hverfur á braut á næst- unni. Þorfinn- ur hefur látið í veðri vaka að brotthvarf hans verði með afar friðsömum hætti. Það má þó ljóst vera að eigendur Eyjunn- ar hafa ekki verið ánægðir því auglýst var eftir nýjum ritstjóra án samráðs við Þorfinn. Sjálf- ur er hann á förum til Belgíu þar sem eiginkona hans, Ástrós Gunnarsdóttir, ætlar að setja upp dansstúdíó. GRÁTBÓLGINN BJÖRN n Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, er líkt og margir sem standa yst til hægri í Sjálfstæðis- flokknum hald- inn miklu óþoli gagnvart Agli Helgasyni sjón- varpsmanni. Það var sem olía á eld þegar Egill setti inn athugasemd á Eyjuna við þá „frétt“ að Björn vildi ekki stjórn- lagaþing en legði til að kosið yrði til Alþingis. „Hann spurði fullur vandlætingar, hvað ritstjóra Eyj- unnar hefði þótt fréttnæmt við það, sem ég skrifaði,“ bloggaði Björn grátklökkur vegna mann- vonsku Egils. SANDKORN TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Lilja Skaftadóttir RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is UMSJÓN HELGARBLAÐS: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is UMSJÓN INNBLAÐS: Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. INGI F. VIL- HJÁLMSSON fréttastjóri skrifar Geir H. Haarde fær samúð sem fórnarlamb frá hluta þjóðarinnar eftir þá óheppilegu útreið að vera dæmdur sekur af pólitískum andstæðing- um sínum fyrir synd- ir sem þeir sjálfir eiga hlutdeild í.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.