Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Síða 20
Uni og Jón á
Eyrarbakka
Söngvaskáldin Uni og Jón Tryggvi
hafa undanfarnar vikur boðið upp
á tónleika að heimili sínu Merkigili
á Eyrarbakka og
hafa þau fengið
til liðs við sig
hina og þessa
listamenn. Tón-
leikar þessir hafa
gengið vonum
framar og verið
vel sóttir og á
næstu tónleikum
mun sviðsmyndin ekki vera af verri
endanum, haf og himinn sem skiptir
litum á meðan tónlistin nærir hjört-
un. Þriðju tónleikarnir þetta haustið
verða haldnir sunnudagskvöldið 3.
október kl. 20.00. Einnig mun Jónas
Sigurðsson koma fram en hljóm-
sveitin hans Ritvélar framtíðarinnar
gefur út plötu í október. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.00. Aðgangur er ókeyp-
is, en frjáls framlög vel þegin.
Ívar og PétUr
tilnEfndir
Ljósmyndasafn Reykjavíkur legg-
ur metnað í að kynna íslenska
ljósmyndara á alþjóðlegum vett-
vangi og tilnefnir íslenska ljós-
myndara til fernra alþjóðlegra
verðlauna. Þessi verðlaun eru:
Henri Cartier Bresson Awards,
Hasselblad Awards, Leopold
Godowsky, Jr. Color Photog-
raphy Awards og The Deutsche
Börse Photography Prize. Að
þessu sinni tilnefnir safnið tvo
ljósmyndara til Deutsche Bör-
se-verðlaunanna 2011, þá Ívar
Brynjólfsson og Pétur Thomsen.
Ívar Brynjólfsson er tilnefndur
fyrir sýningu sína Vinnustaðir al-
vöru karla sem haldin var í Lista-
safni Íslands fyrr á árinu. Pétur
Thomsen er tilnefndur fyrir sýn-
ingar sínar Thomsen & Thomsen,
sem stóð yfir í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur í sumar, og Aðflutt
landslag sem nú stendur yfir í
Listasafni Íslands.
frEyJa dana sýn-
ir á ólafsfirði
Sama dag og göngin milli Ólafs-
fjarðar, Héðinsfjarðar og Siglufjarð-
ar verða opnuð, 2. október, verð-
ur opnuð málverkasýning Freyju
Dönu, Á heimaslóðum, í Listhúsinu
á Ólafsfirði. Þetta er fimmta einka-
sýning Freyju Dönu á Íslandi en hún
hefur einnig sýnt verk sín í Edinborg
í Skotlandi. Freyja Dana er fædd
og uppalin á Ólafsfirði en býr nú í
Edinborg. Á sýningunni eru 23 mál-
verk unnin í pastel, krít og akríl og
öll verkin eru unnin undanfarna 18
mánuði. Myndirnar eru fjölbreyttar:
Landslag, sjórinn, fjaran, fólkið og
dýr og fuglar. Sýningin er í minningu
föður hennar, Kristjáns H. Jónsson-
ar, fyrrverandi forstöðumanns Horn-
brekku á Ólafsfirði, sem lést í júní.
20 fókus 29. september 2010 miðvikudagur
MaMMa gógó fraMlag Íslands Íslenska kvikmynda- og sjónvarps-
akademían kaus kvikmyndina Mömmu Gógó sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna
2011 í rafrænni kosningu sem fram fór 21.–24. september. Myndin fékk 43 prósent atkvæða
meðlima akademíunnar. Kosið var á milli átta mynda sem frumsýndar voru á tímabilinu 1.
október 2009–30. september 2010. Leikstjóri myndarinnar og handritshöfundur er Friðrik Þór
Friðriksson. Fyrsta framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna var kvikmyndin Land og synir árið
1981. Tvær íslenskar kvikmyndir hafa hlotið tilnefningu, ein í fullri lengd og ein stuttmynd. Börn
náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson var tilnefnd 1992 í flokknum besta erlenda kvikmyndin
og Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnarsson var tilnefnd í flokknum besta leikna stuttmyndin 2006.
svEPPi skákar gEkko Sveppi skákaði sjálfum Gordon
Gekko í bíóaðsókn helgarinnar sem leið. Algjör Sveppi og dularfulla hótel-
herbergið var vinsælasta mynd landsins þriðju vikuna í röð. Í öðru sæti
var teiknimyndin Dispicable Me en í því þriðja Wall Street: Money Never
Sleeps. Sú kom ný inn en Michael Douglas er þar mættur aftur í hlutverki
Gordons Gekko. Um 26.000 manns hafa lagt leið sína á mynd Sveppa
en hún hefur þénað rúmar 27 milljónir króna. Sumarlandið er í 6. sæti
yfir vinsælustu myndirnar en þetta var önnur helgi hennar í sýningum.
Tæplega 3.500 manns hafa nú séð myndina.
PlayStation Move er það nýjasta frá
Sony en það er fjarstýring sem teng-
ist sjónvarpinu í gegnum auga sem
þú setur undir eða yfir sjónvarpið
þitt. Tæknin er auðvitað eftirlíking
af Nintendo Wii en Sony ætlar nú að
ryðjast inn á þann markað með PS
Move, fjórum árum eftir að Wii kom
á markaðinn. Ég fékk í hendurnar
Move-stýripinnann, PS Eye-mynda-
vél og „nunchuck“-pinna en þeir
leikir sem komu út á sama tíma og
PS Move notast ekki við „nunchuck“.
Það fyrsta sem ég tók eftir var
hversu vel pinninn fór í hendi en
hann er töluvert stærri en Wii-
stýripinninn. Það sem maður finnur
fljótt fyrir er hversu þægilega hristi-
tæknin er notuð til að gera upplif-
unina ekki bara skemmtilegri, held-
ur auðveldari og betri.
Að setja upp tólin er ekkert mál
frekar en nokkuð annað frá PlayS-
tation. Myndavélinni er einfald-
lega komið fyrir undir eða yfir sjón-
varpinu, svo er kveikt á pinnanum
og maður fer í gegnum disk sem
kennir manni það helsta. Maður er
byrjaður að spila fyrsta leikinn inn-
an við fimm mínútum eftir að tólin
eru komin heim. Þá tel ég með þann
tíma sem það tekur að taka þau upp
úr pakkanum.
Ég fór fyrst í leikinn Sports
Champions sem ég dæmi hér að
neðan. Þar fór ég fyrst í borðtenn-
is og var hreinlega óhugnanlegt
hversu vel PS Move hermdi eft-
ir handahreyfingum mínum. Ég er
ekki frá því að það sé ekki hægt að
komast nær því að spila borðtennis í
alvörunni nema þú sért bara mætt-
ur á æfingu með Guðmundi Step-
hensen.
Helsti gallinn enn sem komið er,
er hversu mismunandi stöður mað-
ur þarf að taka eftir leikjum. Sumir
leikir vilja hafa mann metra frá en
aðrir kannski þrjá til fjóra metra.
Þetta skiptir engu svakalegu máli en
hlýtur að vera á meðal þess fyrsta
sem Sony-menn munu kippa í lið-
inn. Einnig er tiltölulega auðvelt að
blinda augað en oft er nauðsynlegt
að færa til húsgögn sé maður að
spila leik þar sem fjarstýringin þarf
að fara niður að gólfi. Minnsti hlut-
ur getur myndað skugga sem augað
nær ekki að komast framhjá.
Þrátt fyrir þessa galla verð ég að
segja að PS Move sé gífurlega vel
heppnað. Það á líka bara eftir að
verða betra með nýrri og betri leikj-
um sem koma út. Það eru ekki marg-
ir leikir til nú þegar en stóru nöfnin
á borð við Killzone 3 og SOCOM 4
munu vera gerðir með PS Move-
möguleika fyrir hendi. PS Move er
ekki eitthvað sem á eftir að koma
og fara. Fylgi Sony og leikjafram-
leiðendur eftir þessari góðu byrjun
verður þetta klárlega gífurlega vin-
sælt og þurfa menn hjá Nintendo að
fara að passa sig.
Tómas Þór Þórðarson
Frábært svar
frá sony
Það nýjasta frá Sony PlayStation er
Move- tæknin sem á að koma fyrirtækinu
inn á markaðinn sem Nintendo Wii hef-
ur einokað. Þó PlayStation Move sé ekki
gallalaust verður tilraunin að teljast hafa
heppnast alveg ljómandi vel.
Mikið fjör PlayStation
Move er gott í partíin.
Á vellinum heima í stofu
SportS ChaMpionS er einn af þeim leikjum
sem fylgdu útgáfu PlayStation Move-stýripinnans.
Í leiknum er hægt að spila borðtennis, badminton,
frisbí-golf, víkingaskylmingar, bogfimi og boccia.
Move-pinninn er gjörsamlega búinn til fyrir þennan
leik en bæði er hægt að taka vel á því standandi í
borðtennis eða badminton og svo slaka á í frisbí-
golfi eða boccia. Allir þessir fjórir leikir eru gjörsam-
lega magnaðir og hægt að spila þá endalaust. Það
sem dregur leikinn aftur á móti niður er bogfimin
sem verður að teljast frekar misheppnuð og svo
skylmingaleikurinn sem er algjört sorp. Fjórir af sex
eru aftur á móti meira en nóg en Sports Champions
er algjör skyldueign með PS Move. Hvernig tólið líkir
eftir handahreyfingum manns er ótrúlegt. Virkilega
vel heppnaður leikur.
Rúllandi leiðindi
Einn af leikjunum sem ég fékk með pinnanum var
kung fu rider. Þar rúllar maður sér niður götur og
torg á skrifstofustólum og reynir um leið að komast
framhjá og í gegnum hindranir auk þess að sparka í
vonda menn sem vilja þér illt. Satt best að segja hef
ég vart prófað leiðinlegri leik. Þetta var eini leikurinn
PS Move-leikurinn þar sem ekki var um að ræða
nánast fullkomna tækni og var oft hreinlega erfitt
að skilja hvernig maður átti að fara áfram eða hvað
ætti að gera. Ljóst er að þessi skelfilegi leikur mun
gleymast fljótt og því fyrr því betra. Algjör hryllingur.
Hefjum fjörið
Ef foreldrar vilja fá frið fyrir börnunum sínum þá
kaupa þeir Start the party með PS Move-tækn-
inni, flóknara er það ekki. Leikurinn er uppfullur
af „mini“-leikjum þar sem tekist er á við alls konar
þrautir. Reynt er að mála myndir, kremja flugur með
badmintonspaða, stýra kjúklingum í rétta körfu með
viftu og margt, margt fleira. Leikurinn er ekki bara
fyrir börn. Þetta er alveg úrvals samkvæmisleikur en
mynd er tekin af hverjum keppanda og fær hann að
vera með sitt sigurhljóð og hvaðeina. Einnig er síðar
í leiknum hægt að taka upp hljóð fyrir aðra. Pinninn
er afar nákvæmur í leiknum sem gerir spilun alveg
frábæra. Flottur leikur fyrir fólk frá 5–65 ára.
Dúllustund við skjáinn
eyepet er þitt eigið gæludýr á sjónvarpsskjánum
en það er einn leikjanna sem fylgdi útgáfu PS Move.
Hann virkar þannig að þú beinir auganu niður á gólf
og innan stundar birtist þar egg sem þú þarft að fara
vel með. Úr egginu kemur afskaplega dúllulegur api
sem hægt er að leika sér með endalaust. Maður fær
nýtt dót reglulega sem apinn vill leika sér með og
svo þarf auðvitað að gefa honum að borða. Ég verð
að segja að byrjun leiksins er nokkuð flókin fyrir þau
allra yngstu, þó lítil börn muni án efa hafa gaman
af því að klappa dýrinu. Á heildina litið er þetta
afskaplega dúlluleg stund á stofugólfinu heima sem
virkjar ímyndunarafl krakka.
Þægileg
fjarstýring
Fjarstýringin
fer vel í hendi
og hristitæknin
er afskaplega
þægileg.