Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 29. september 2010 SVIÐSLJÓS 29
Á BARMI
GJALDÞROTS
Áttburamamman Nadya Suleman með bílskúrssölu:
ALLT TIL SÖLU Það mátti gera góð kaup og komust færri að en vildu.
NADYA SULEMAN Á barmi
gjaldþrots með fjórtán börn.
Söngvarinn Lenny Kravitz var frekar kvenlegur í klæðaburði þegar hann gekk um götur New York í síðustu viku. Lenny
var klæddur í leðurbuxur, leðurstígvél,
svarta mussu og með leðurtösku. Fatn-
að sem flestar konur yrðu hæstánægðar
með eins og sjá má á myndunum.
Tímaritið People Magazine, líkt og
svo mörg önnur, fjallaði um þetta sér-
staka klæðaval söngvarans. Á vefsíðu
tímaritsins fór fram könnun þar sem
lesendur gátu valið á milli þess hvort
þeim þætti klæðavalið ganga upp eða
ekki. 85 prósent sögðu nei.
Leðurklæddur Lenny Kravitz í New York:
Kvenlegur
Kravitz
LENNY KRAVITZ Þorir
að taka sénsa í klæðavali.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Á ttburamamman al-ræmda Nadya Suleman, hélt bílskúrssölu á dög-unum í örvæntingar-
fullri tilraun til að safna peningum.
Sögur herma að hún sé á barmi
gjaldþrots og muni brátt missa
húsið sem hún býr í ásamt börn-
unum sínum fjórtán. Bílskúrssal-
an vakti mikla athygli ytra og þurfti
lögreglan að loka götunni þar sem
Nadya býr í Kaliforníu vegna fjölda
fólks sem vildi gera góð kaup og
berja hina frægu móður augum.
Nadya segist hafa afþakkað boð
um að sitja nakin fyrir í Playboy
og leika í klámmynd en hún seg-
ist aldrei ætla að sitja fyrir nakin.
Hún segist vera góð móðir og setja
börnin sín fjórtán í forgang, en
hefur viðurkennt að það að eiga
fjórtán börn sé erfiðara en hún hafi
gert sér grein fyrir.
Á meðal þess sem áttbura-
mamman setti á sölu voru áritaður
gjafabrjóstahaldari sem hægt var
að kaupa á 3.000 krónur, fjórtán
litlir púkabúningar sem börnin
klæddust á hrekkjavökunni í fyrra,
árituð sónarmynd af áttburunum,
rautt bikiní sem Nadya klæddist í
myndaþætti fyrir tímarit þar sem
hún sýndi vöxtinn eftir áttbura-
meðgönguna og lítill stóll sem
sjónarpskonan Oprah Winfrey gaf
mömmunni sem notaður hefur
verið í skammarkrókinn.
Vinir segja að Nadya hafi trúað
því að almenningur myndi líta á
hana sem hetju og allir myndu vera
tilbúnir til að aðstoða hana um
peninga og nauðsynjar en sú var
ekki raunin og nú er hún sögð vera
einmana, blönk og óhamingjusöm
fjórtán barna móðir sem treystir á
bætur frá ríkinu.
KOMDU Í ÁSKRIFT!
512 70 80
dv.is/askrift
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ