Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Blaðsíða 3
miðvikudagur 24. nóvember 2010 fréttir 3 StjórnSýSla gamla ÍSlandS Hafi þær áhyggj-ur verið á rökum reistar gat varla verið viðeigandi stjórnsýsla að afgreiða slíkt mál fyrir hönd skattgreið- enda með einkabréfi. 30. desember í fyrra er lögð áhersla á að ná sátt um starfslokin. Samningur Barnaverndar- stofu var upphaflega gerður við Meðferðarheimilið Árbót ehf. Aðeins um 2,6 milljóna króna skuldi hvíldi á rekstrinum í árslok 2008. Snæfríður og Hákon eiga einnig félagið Bragabót ehf., en skuldir þess félags höfðu ekki verið taldar fram í viðskiptum hjón- anna við Barnaverndarstofu. Hins vegar hefur Árbót ehf. greitt Bragabót ehf. húsaleigu vegna meðferðarheim- ilisins, alls um 54 milljónir króna á ár- unum 2006 til 2008. Árlegar leigutekjur Bragabótar vegna meðferðarheimil- isins eru nú um 20 milljónir króna. Af þessum tölum telur Barnaverndar- stofa óhætt að álykta að húsaleigan standi vel undir afborgunum af þeim lánum sem Hákon og Snæfríður telja að hvíli á Bragabót vegna meðferðar- heimilsins. Hitnar í kolunum Af gögnum málsins má ráða að ráð- herrarnir Árni Páll Árnason, þáverandi félagsmálaráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafi tek- ið hjáleið fram hjá samningum, lög- um og reglum um endanlegt upp- gjör við Hákon og Snæfríði án þess að byggja undir slík inngrip með því að fá fyrst álit frá ríkislögmanni. Umræddur tölvupóstur Steingríms til Árna Páls, þremur vikum eftir uppsögn samn- ingsins, hefst enda á athyglisverðum orðum: „Það er mjög að hitna í kol- unum fyrir norðan út af samskiptum Braga/Barnaverndarstofu og Árbótar- heimilisins.“ Fréttablaðið hefur upp úr gögnum Árna Páls, sem fengin eru úr félagsmálaráðuneytinu, að umræddan „hita“ í málinu megi rekja til þrýstings þingmanna í Norðaustur kjördæmi í þágu hjónanna. Í tölvupóstinum beitir fjármálaráðherrann sér síðan með eft- irfarandi hætti: „Ég mun hvorki sam- þykkja aukafjárveitingar né tilfærslu fjármuna eftir því sem slíkt þarf míns samþykkis nema betur verið farið of- aní saumana á forsendum þessa alls.“ Í minnisblaði Braga Guðbrands- sonar 9. febrúar á þessu ári kemur hins vegar fram að Bolli Þór Bollason hafði þá þegar staðfest þann skilning að ekki þyrfti samþykki fjármálaráðuneytis vegna fyrirhugaðrar starfsemi á vegum Barnaverndarstofu að Geldingalæk og að rekstrarfjárveiting til Árbótar yrði notuð í aðra starfsemi. Eðlilega að farið? Í svörum sínum á Alþingi á mánudag- inn taldi Steingrímur inngrip sín í Ár- bótarmálið eðlileg. „Það er búið að fara nákvæmlega eðlilega með þetta mál... Ég tel að eðlilega hafi verið unn- ið að þessu máli á allan hátt og í sam- ræmi við lögheimildir og góða stjórn- sýsluvenju.“ Í síðari ræðu sinni um málið þenn- an dag sagði Steingrímur ennfremur: „Hér var einfaldlega um það að ræða að ljúka samningsbundnum sam- skiptum með þeim hætti sem heppi- legast er ef það tekst, að klára það með samkomulagi.“ Með 30 milljóna samningi við Snæfríði og Hákon var farið gegn vilja Braga Guðbrandssonar sem byggði af- stöðu sína á gerðum samningum, lög- um og reglum. Ýmsir fulltrúar í kjör- dæminu beittu sér í þágu rekstraraðila Árbótar að því er Árni Páll fullyrðir. Vert er í því sambandi að vísa til þeirr- ar meginreglu um framkvæmd fjárlaga að óheimilt sé að stofna til útgjalda án lagaheimilda. Lög um fjárreiður ríkis- ins setja einnig skorður í þessum efn- um. Alþingi á síðasta orðið Niðurstaðan varð að Barnaverndar- stofa hvarf frá málinu í mars. Í nið- urlagi bréfs Braga og Heiðu Bjargar Pálmadóttur, lögfræðings Barnavernd- arstofu, til Bolla Þórs þann 25. mars segir orðrétt: „Telji ráðuneytið rétt að ákvarða um greiðslur til rekstraraðila umfram það sem samningurinn gerir ráð fyrir lítur Barnaverndarstofa svo á að slíkar greiðslur eigi ekki að fara af því fjármagni sem Barnaverndarstofu er ákveðið á fjárlögum eða hafa áhrif á fjárhag stofnunarinnar með neinum hætti.“ Þrjátíu milljóna samningurinn, sem lagt var fyrir félagsmálaráðuneyt- ið að gera við Hákon og Snæfríði með stuðningi þingmanna í Norðaustur- kjördæmi, var gerður með fyrirvara um samþykki Alþingis á fjáraukalög- um og fjárlögum. Þegar hafa verið greiddar 12 milljónir króna og standa því eftir 18 milljónir. Þær greiðast af fjáraukalögum eigi síðar en í árslok samþykki Alþingi greiðslurnar. Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur tek- ið sér frest til mánaðarmóta til að rökstyðja skipun Sigurðar Erlings- sonar í stöðu forstjóra Íbúðalána- sjóðs. Þrír umsækjendur, sem álit- legastir þóttu í mati Capacent og síðar Hagvangs, óskuðu eftir rök- stuðningi fyrir ákvörðuninni í krafti stjórnsýslulaga. Þau eru Yngvi Örn Kristinsson, Vilhjálmur Bjarnason og Elín Sigrún Jónsdóttir. Sigurð- ur Erlingsson, sá er skipaður var, var ekki í hópi þeirra sem hæfast- ir þóttu, hvorki í fyrri né síðari at- rennu, en tvívegis var staðan aug- lýst laus til umsóknar sökum tafa og vandræðagangs. Að minnsta kosti tveir umsækjendanna íhuga einnig að leggja málið fyrir um- boðsmann Alþingis. Sigurður starfaði sem yfirmað- ur í Landsbankanum. Hann var skipaður með örstuttum fyrirvara eftir að meirihluti stjórnar Íbúða- lánasjóðs hafið ákveðið að skipa Böðvar Þórisson í starfið, en hann var í hópi hinna fjögurra hæfustu. Böðvar á meðal annars starfsferil hjá Flögu, Sjóvá og fleiri fyrirtækj- um að baki. Böðvar gekk hins veg- ar úr skaftinu skömmu eftir að hon- um var kynnt niðurstaða stjórnar Íbúðalánasjóðs. Flokks- og kunningjatengsl „Það hefði getað haft áhrif á þessa ráðningu en þegar upp er staðið þá var hún einfaldlega hæfasti um- sækjandinn,“ segir Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu um ráðningu Sifjar Einarsdóttur Gúst- avsson. Sif var valin úr 160 manna hópi til að gegna starfi ferðamála- fulltrúa Íslandsstofu í New York. At- hygli vakti að sá sem gegndi starf- inu á undan henni var faðir hennar en Jón segir að sú staðreynd hafi ekki haft áhrif á ráðningu Sifjar. „Við völdum Sif því hún hefur mikla reynslu og ákváðum að láta hana ekki gjalda fyrir að vera dóttir föður síns,“ segir hann. Ættartengsl Hagvangur sá um að velja 20 af umsækjendunum en þegar þrír stóðu eftir tók nefnd á vegum Ís- landsstofu lokaákvörðun. Í nefnd- inni áttu sæti auk Jóns Ásbergsson- ar, þeir Hlynur Guðjónsson og Jón Gunnar Borgþórsson. Einar Gústavsson, faðir Sifjar og forveri hennar í starfinu, er bróðir Magnúsar Gústavssonar aðalræð- ismanns í New York til langs tíma. Hann er aftur náinn og gamall samstarfsmaður Friðriks Pálsson- ar stjórnarformanns Íslandsstofu. Hlynur Guðjónsson er viðskipta- fulltrúi í New York. Samkvæmt heimildum DV eru flestir framan- greindra þekktir sjálfstæðismenn. Hlynur var meðal annars fram- kvæmdastjóri Sambands ungra sjálfstæðismanna. Íslandsstofa er að miklu leyti rekin fyrir almannafé og opinbera gjaldtöku. Vandræðalegar stöðuveitingar Umsækjendur um stöðu forstjóra Íbúðalánasjóðs hafa óskað eftir rökstuðningi. Þeim hefur nú borist bréf þar sem stjórn sjóðsins óskar eftir fresti til mánaðarmóta. Fyrirheit um bætta stjórnsýslu í nýjum skýrslum „Það er mat þingmannanefndarinnar að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé áfellisdómur yfir íslenskri stjórnsýslu, verklagi hennar og skorti á formfestu jafnt í ráðuneytum sem sjálfstæðum stofnunum sem undir ráðuneytin heyra. Svo virðist sem aðilar innan stjórnsýslunnar telji sig ekki þurfa að standa skil á ákvörðunum sínum og axla ábyrgð, eins og fram kemur í skýrslu rann- sóknarnefndarinnar. Vegna smæðar samfélagsins skiptir formfesta, skráning upplýsinga, verkferlar, tímamörk og skýr ábyrgðarsvið enn meira máli en í stærri samfélögum. Í ljós kemur að upplýsingaskylda ráðuneyta og stofnana, innbyrðis og út á við, virðist ekki hafa verið virk né heldur frumkvæðisskylda, gagnsæi og rekjanleiki.“ (Úr skýrslu þingmannanefndar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis) „Þá hefur rannsóknarnefnd Alþingis sem fjallaði í skýrslu sinni um hrun íslensku bankanna og starfshópur forsætisráðherra um viðbrögð stjórnsýslunnar við skýrslunni dregið fram ýmsa veikleika innan stjórnsýslunnar sem þörf er á að skoða nánar í því skyni að gera þær úrbætur sem nauðsynlegar eru til að tryggja faglega, skilvirka og trúverðuga stjórnsýslu.“ (Úr fyrri hluta skýrslu nefndar um endurskoðun á lögum um Stjórnarráð Íslands) fögur fyrirheit jóHAnn HAuksson blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Að minnsta kosti tveir umsækj- endanna íhuga einnig að leggja málið fyrir umboðsmann Alþingis. Í úrvalshópi Vilhjálmur Bjarnason og fleiri hafa fengið bréf frá stjórn Íbúðalánasjóðs þar sem beðið er um frest til að rökstyðja skipun í fostjóra- stöðu Íbúðalánasjóðs. Íslandsstofa færir út kvíar Jón Ásbergsson var nýverið ráðinn framkvæmdastjóri Íslandsstofu. Hann mælti með Sif Einarsdóttur Gústavsson í söðu ferðamálafulltrúa í New York.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.