Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Blaðsíða 13
miðvikudagur 24. nóvember 2010 fréttir 13 K: Og þú ferð síðan í bæinn og leggur bílnum við Kolaportið og ferð að labba á milli bara og ferð að skemmta þér. G: Já og fá mér í glas, já. K: Þú sagðir að Hildur hefði hringt í þig kringum tvöleytið og hún hefði komið í bæinn og þið hefðuð hist svo hálftíma síðar á Hressó. G: Já. K: Já og þið eruð á börunum að drekka og svona að ert svona að reyna að gleyma þessum áformum um að drepa Hannes og þið farið meðal ann- ars á Amsterdam og þar eruð þið byrj- uð að drekka svolítið stíft sagðir þú? G: Já. K: Og þið eruð að skemmta ykk- ur og þú heldur áfram að reyna að gleyma þessu og Þið faið út og Hildur vill fá meira í glas og þið farið inn á Dubliner [...] G: Já. K: Svo eruð þið að ganga þarna framhjá leigubílaröðinni og þú segir alveg rosaleg biðröð og nenntir ekki að bíða þannig þið fóruð í bílinn og settust þar og þar ætluðuð þið að fara að sofa, varst svona að spá í að fara að sofa í bílnum sko. G: Ég var að pæla í að sofa í bílnum þar til ég gæti keyrt heim, það er að segja. K: En svo ókstu fullur heim sagðir þú þarna heim í Klapparhlíð, þú hélst á Hildi upp í rúm og hagræddir svona koddanum undir hana og fórst sjálfur í sófann en gast þá ekki sofið. G: Nei. K: Þessar hugsanir fara að sækja á þig með að drepa Hannes? G: Já. K: Og þú sérð að þarna er upplagt tækifæri til þess og þú ert með allt til- búið í skottinu segir þú og þú sagðir að þú hefðir verið tilbúinn með það mjög lengi? G: Já. K: Og þú fórst út í bíl og lagðir þarna við leikskólann í Setbergshverf- inu og tókst úlpu úr skottinu, hettu, og poka með dóti sagðir þú og það er úr að þú gengur af stað og við ljósa- staur þá setur þú poka yfir lappirnar á þér, tape-ar þá fasta og setur á þig latexhanska og nærð í hnífinn og setur hulstrið í vasann og þú gengur áleiðis í Háaberg og þú stoppar þig ekki af, varst allan tímann að reyna að stoppa þig samt af. Ferð að framhurðinni og þar er allt læst og þá ferðu að hurðinni í bílskúrnum. Þú labbar upp stigann og ferð að Hannesi sofandi, stóðst þarna í smá stund og... [...] K: Síðan hleypur þú út sagðir þú, ferð að ljósastaur. Er það sami ljósa- staur og við töluðum um fyrr? G: Já. K: Þar tekur þú húfuna af þér og pokana af löppunum og þú ferð síðan að bílnum og setur úlpuna og pokana í skottið og ekur í burtu. Þú ferð að bryggjunni í Hafnarfirði og þar tekur þú pokann og úlpuna og hendir því undir bryggjuna. Þú varst reyndar svo- lítið tvísaga með úlpuna, þú sagðir að þú hefðir tekið úlpuna og farið með í ruslið við Eyrarholtið? G: Nei, ég tók. K: Hvaða föt fóru í ruslið við Eyr- arholtið? G: Það var bolurinn minn og bux- urnar. K: Já, þannig að þú hefur rugl- ast bara. Þú sagðir að þú hefðir ráfað eitthvað í kringum bryggjuna í Hafn- arfirði. Síðan hefðir þú ekið heim og farið inn, sett buxurnar og úlpu, sagðir þú, en hvað var það, bolur? G: Bolur. K: Bolur, þannig að það er ekki rétt með úlpuna? Þú sagðir nefnilega úlpu, þess vegna spurði ég. G: Ok. K: Þú gekkst að Eyrarholti og hentir þessu í ruslið þar. Þú kysstir svo Hildi og lagðist í sófann, þú grést og grést og gast ekki sofið. Þú verður var við að X bróðir þinn vaknar og fer að horfa á teiknimyndir og leggst hjá honum og svo einhverju seinna þá vaknar Hildur og þú skutlar henni heim og þú vildir helst ekki hleypa henni út úr bílnum sagðir þú, þegar heim var komið. G: Nei. K: Svo ferðu heim, lást í rúminu og ef að ég skil þig rétt þá bara sofn- aðir þú ekki, hreyfðir þig ekki, fórst í ræktina og reynir að gleyma þessu. Þú kemur heim og ferð að fylgjast með fréttunum á miðlunum. Er það net- miðlunum náttúrulega? G: Já. K:Síðan þegar sjónvarpið byrjar þá segir mamma þín að Hannes sé dáinn? G: Já. K: Og þú segir að þig hafi grunað að hann væri dáinn en þarna fengið endanlega staðfestingu er það ekki rétt skilið? G: Jú. K: Og þú segir að þú hafir ekki sofið almennilega síðan og þú fórst í tölvu- leiki og reyndir að gleyma þessu. Og þú gast ekki sofið og þú sendir meðal annars þarna daginn eftir tölvupóst í vinnuna um að þú gætir ekki mætt. G: Ég sendi tölvupóstinn um kvöldið. K: Um kvöldið, var það um kvöld- ið? G: Það var sunnudagskvöldið. K: Er þetta rétt með farið sem ég hef farið með núna? G: Já. K: Ok, þá ætla ég svona að spyrja þig kannski, þú sagðir áðan að allt hefði verið tilbúið í skottinu mjög lengi, skýrðu það nánar. G: Sko ég hafði verið að pæla hvað ég ætti að gera í þessu. Eins og ég segi, ég elskaði Hildi. Eins og ég segi, ég pældi í því að hvað ég ætti að gera, hvort ég ætti að reyna að gleyma þessu, hvort ég ætti að reyna að finna bara einhverja aðra stelpu sem ég gæti verið hrifinn af og ég pældi alltaf í því hvort að ég ætti að bara að reyna að drepa Hannes og ég svona hægt og ró- lega byrjaði að safna hlutum í skottið hjá mér. Ég átti hníf og átti úlpuna. Svo einhvern tímann þá fór ég og keypti límband og svo held ég að ég hafi ein- hvern tímann stolið einhverjum poka af latexhönskum í vinnunni minni og svo held ég að ég hafi keypt þessa lambhúshettu í, ég held að það hafi verið 66°Norður, og ég hafi bara verið að safna þessu öllu í skottinu hjá mér. K: Þú ert búinn að safna þessu, hvenær varstu búinn að safna þessum hlutum í skottið endanlega? G: Öllu? K: Já. B: Eða hvenær byrjaðir þú, manstu það ? G: Það var alveg bara 2009 sko. B: Og hvenær var þetta tilbúið í skottinu? G: Svona í byrjun 2010. K: Og ertu búinn að ganga með þessa hugsun að drepa? G: Já, en... ég var alltaf að finna af- sakanir til að gera það ekki og stoppa mig af en þetta kvöld, þetta var bara allt svo fullkomið. K: Hvað var fullkomið við þetta kvöld? G: Hildur var með mér allt kvöldið og hún fór heim með mér, heim til mín. Hannes var einn heima. Mér fannst, að Hannes væri ekki þá myndi Hildur bara vera áfram hjá mér. K: Fannst þér þú vera búinn að ná henni frá honum þarna þetta kvöld eða? G: Ég veit það ekki, ég veit það ekki frekar, en ég kannski bara plataði sjálf- an mig til að halda það, já, að núna væri hún mín... ég var samt fljótur að fatta eftir að Hannes var dáinn að það var enginn séns á því. K: Hvernig fattaðir þú það? G: Ég bara, það var ljóst að ég myndi ekki komast upp með þetta, að það myndi fattast og Hildur myndi aldrei tala við mig aftur. K: Það er kannski eitt, af hverju safnaðir þú þessum hlutum, í hvaða tilgangi voru þeir? G: Ég veit það ekki, ég hélt bara að, ég gat ekki losnað við þessa hugsun úr hausnum á mér og bara við það að finna einn hlut og koma honum í skottið að þá náði ég einhvern veginn að, að ljúka hugsuninni, um kannski að halda áfram. Það er að segja að taka hana og halda áfram seinna með hana. Ef ég gerði ekki neitt þá leið mér rosalega illa, ég varð að gera eitthvað, mér fannst nóg að setja eitthvað í skottið hjá mér og vera með það til- búið, þá náði ég að ýta því til hliðar en það kom bara alltaf aftur. K: Hvað kom þessari hugsun af stað? G: Það var bara Hildur. Hún hjálp- aði mér svo mikið og ég bara, ég bara algjörlega misskildi allt í kringum hana Hildi greinilega. Ég hélt eins og ég segi hún hjálpaði mér með mitt líf. Ég hafði alltaf bara verið einn heima í tölvunni. Fyrst var ég þakklátur en svo varð ég ástfanginn og svo hefur þetta bara orðið að þráhyggju, ég gat aldrei hætt að hugsa um hana, hvað ég gæti gert til þess að fá hana til mín. B: Gerir þú þér grein fyrir þessu núna, eða gerðir þú þér grein fyrir þessu áður? G: Ég geri mér grein fyrir þessu núna, ég sé að það er helling af hlut- um sem ég gerði mér ekki grein fyrir en núna. [...] K: Þá er það kannski, hvaða til- finningar barstu til Hannesar áður en þetta gerðist? G: Það var eiginlega ekkert, hann var rosalega fínn gaur þegar ég hitti hann fyrst sko. Hann var rosalega almennilegur og fínn gaur og hérna bauð mér í glas og svona, svolítið bara hjálpaði mér, það er að þegar við vor- um á djamminu. Eins og ég segi ég hafði aldrei farið, og farið niður í mið- bæinn, það var samt meira Hildur en hann, en hann var þarna líka sko. [...] K: Hvaða tilfinningar berðu þá til hans, mannsins sem þú ætlar að drepa? G: Ég vildi, ég vildi bara losna við hann til að fá hana, ég var aldrei reiður út í hann en ég vildi samt... bara eina leiðin hélt ég var að losna við hann. Hvort hann hafi bara sett upp ein- hverja falska grímu og brosað þegar hann var nálægt henni, ég man aldrei eftir að hata hann, ég man aldrei eftir því. K: Þannig að ef ég tek þetta svona heilt saman að þú ert búinn að ganga með þessa tilfinningu svona eitthvað frá 2009 eitthvað eftir að ástarjátningin birtist þarna á YouTube. [...] K: Og þessar hugsanir sækja á þig að drepa hann og ef ég skil þig rétt, til þess að fá Hildi til þín? G: Já. K: Það kemur fram, þú lýsir því að þú hafir sett poka á lappirnar, tape og latex, og þú hafir sett á þig hettu og fleira. Af hverju gerðir þú þetta, af hverju bjóstu þig út með þessum hætti? G: Ég var búinn að hugsa um þetta svo lengi, ég var búinn að hugsa um þetta svo lengi og byrjaður að plana þetta í hausnum á mér og hérna hugsa um allar þessar bíómyndir og allt þetta. Eins og ég segi hefði mig langað til þess að komast upp með þetta en ... K: Þú hefðir ætlað að komast upp með þennan glæp, að drepa mann? G: Ég ætlaði að reyna það, já. K: En þú talaðir um kvikmyndir og annað slíkt, skýrðu það nánar hvernig? G: Maður horfir á CSI eða eitthvað svoleiðis og maður sér alla þessa rann- sóknarlögregluþætti, ég veit það ekki en ég bara, maður fékk kannski bara hugmynd að bara ef ég myndi bara labba inn eins og ég er væri ég bara gómaður á staðnum. Ég hélt að ef að ég myndi þrauka og bara neita öllu þá myndi þetta fara af því að ég hélt að ég hefði ekki skilið neitt eftir. Þá gæti ég einhvern veginn vonast til að seinna meir fá Hildi til mín, en það gekk ekki. K: Þannig að svona heilt yfir litið, ég dreg þetta saman, þá varstu að gera þetta með þennan útbúnað til þess að fela slóða þína? G: Ég var að reyna það, já. K: Þú varst að reyna það. B: Kannski eitt í þessu sambandi að skórnir, sem þú varst tekinn í... ? G: Já. B: Þeir sem sagt gáfu það af sér að það væri sem sagt mjög líklega blóð undir þeim, nú ertu búinn að segja okkur að þú settir poka yfir fæturna. Getur þú útskýrt það hvers vegna að... ? G: Ekki hugmynd. B: Þú gerðir þér ekki grein fyrir því að kannski pokinn hefði rifnað eða? G: Nei, ég var ekkert að kíkja á það, hann hefur örugglega rifnað eða eitt- hvað. B: Það er líka annað sem mig lang- ar til þess að spyrja þig að. Þú segir að þú hafir staðið þarna yfir rúmi Hannesar og hann hafi verið sofandi, þú hafir staðið í einhver smá tíma og hugsað, síðan tekur þú þessa ákvörð- un að stinga Hannes? G: Já. B: Hann liggur á bakinu þá í rúm- inu er það ekki? G: Hann liggur á maganum eða hann liggur á bakinu, jú, með magann upp, jú. B: Hann liggur á bakinu með mag- ann upp? G: Já. „Þetta var bara allt svo fullkomið“ framhald á næstu síðu Óvíst um sakhæfi Gunnar Rúnar var metinn ósakhæfur en farið hefur verið fram á yfirmat og er því alls óvíst hvort hann verði dæmdur sekur eða saklaus.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.